Morgunblaðið - 27.07.2012, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
Á miðvikudaginn í þessari viku var
hasarmyndin The Dark Knight Ris-
es frumsýnd hér á Íslandi en spáð er
að hún verði eins stærsta mynd sum-
arsins, ef ekki ársins. Myndin er
seinasta kvikmyndin í trílógíu leik-
stjórans Christophers Nolans um
leðurblökumanninn sem tekst á við
ill öfl í Gotham borg.
Kvikmyndin var frumsýnd í Den-
ver í Bandaríkjunum þann 20. júlí en
þar varð martröð að veruleika þegar
12 létust og 58 slösuðust eftir skot-
árás sem hinn 24 ára James Holmes
ber ábyrgð á. Í kjölfarið á árásinni
aflýstu kvikmyndahús í París frum-
sýningunni.
Nú hefur myndin hinsvegar verið
frumsýnd víðsvegar um heim án
þess að fleiri árásir hafi átt sér stað.
Kvikmyndin hefur víðsvegar hlot-
ið lof gagnrýnanda og áhorfenda. Til
að mynda gefa notendur vefmiðilsins
IMDb gefa myndinni einkunnina 9,1
af 10. Í tímaritinu Time segir að í
myndinni fari leikstjórinn á kostum
með dáleiðandi hápunkti trílógíunn-
ar þar sem teiknimyndasöguhetjan
leðurblökumaðurinn endurfæðist á
hvíta tjaldinu. Þótt kvikmyndin inni-
haldi hefðbundna þætti hasarmynda
þá er Nolan engu að síður listamað-
ur með dekkri sýn heldur en titill
myndarinnar gefur í skyn. Hér er á
ferð hörkuspennandi mynd fyrir
helgargesti bíóanna.
Leyndardómsfull Hetjur og skúrkar úr teiknimyndasögunni um Leður-
blökumanninn lifna við á hvíta tjaldinu í kvikmyndatrílógíu Nolans.
Dáleiðandi hápunktur
Nolans í tríólógíunni
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Við tökum öll þátt í heilaspunanum
og hugmyndavinnunni við að búa til
leikritin. Að sjálfsögðu verður það
ferli flóknara þegar sex aðilar starfa
saman en hins vegar vegur upp á
móti að útkoman kemur meira á
óvart,“ segir Þórey Sigþórsdóttir.
Hún er ein af sex félögum í al-
þjóðlega leikhópnum Head of a
Woman. Leikhópinn skipa sex út-
skriftarnemendur í framhaldsnámi í
leiklist í London, og frá Kanada,
Ísrael, Taívan, Englandi, Skotlandi
og Íslandi. Þau sýna tvo einþáttunga
sem nefnast Á gráu svæði: Leikrit
fyrir sex heila og Curricula vitae, en
sá síðarnefndi er útskriftarverkefni
leikhópsins. Báðir einþáttungarnir
verða sýndir á sunnudaginn 29. júlí
og mánudaginn 30. júlí kl. 20 í
Norðurpólnum.
Fjarvera, ferðalög og lífshlaup
„Það sem stóð til að verða vanda-
mál varð í raun kveikja fyrir sýn-
inguna,“ segir Þórey um Curricula
Vitae. „Þegar ég ákvað að vera
áfram í hópnum var ljóst að ég
myndi þurfa að vera fjarverandi í
ákveðinn tíma vegna annarra verk-
efna,“ segir Þórey og bætir við að
samstarf þar sem sex leikstjórar eru
krefjist mikillar einbeitingar og
sveigjanleika til þess að samstarfið
gangi upp. „Fjarvera mín hafði áhrif
á hópinn en hún varð að lokum upp-
spretta efniviðar sem við tökumst á
við í útskriftar-
verkefninu,“ segir
Þórey en hugtök á
borð við fjar-
lægðir, fjarvera,
ferðalög og lífs-
hlaup eru meðal
viðfangsefni ein-
þáttungsins.
„Þannig má segja að leikhópurinn
vinni úr gagnabanka eigin reynslu
og upplifana í gegnum þessi hugtök.
Hráar upplýsingar eru settar fram í
ólíkum formum. Og svo er það hlut-
verk áhorfandans með þessum hráu
upplýsingum að setja saman söguna.
Þannig fáum við oft þau viðbrögð frá
áhorfendum að leiksýningin hreyfi
við þeim og það fer í sitt eigið ferða-
lag,“ segir Þórey.
Spennandi áskorun
Leikhópurinn fer óhefðbundnar
leiðir í leiklistinni og nýtist við fjöl-
breyttar frásagnaraðferðir, til að
mynda orð, myndir, dans, rými og
fleira. „Það er bæði áskorun en líka
spennandi að vinna með ólíku fólki.
Úr samstarfinu verður ávallt ný út-
koma og við förum öll út fyrir okkar
þægindaramma þegar við vinnum
saman,“ segir Þórey.
Head of a Woman frum-
sýnir í Norðurpólnum
Tilraunakennd Leikhópurinn Head of a Woman fer óhefðbundnar leiðir í verkunum
Á gráu svæði: Leikrit fyrir sex heila og Curricula Vitae sem þau sýna í Norðurpólnum.
Allt varð vitlaust í dægurmenningunni vestanhafs
á dögunum er upp komst um framhjáhald Twi-
light-stjörnunnar Kristen Stewart. Stúlkan, sem
hélt við leikstjórann Rupert Sanders, hefur stigið
fram og beðið kærasta sinn, leikarann Robert
Pattinson, afsökunar á athæfi sínu en það er enn
óljóst hvort sá síðarnefndi fyrirgefur feilsporið.
„Ég biðst innilegrar afsökunar á því að hafa
sært einhvern og valdið hneykslun þeirra sem
standa mér næst eða koma að málinu á einhvern
hátt. Þessi andartaks ógætni hefur stofnað því í
hættu sem skiptir mig hvað mestu máli, manneskj-
unni sem ég elska og virði hvað mest, Rob. Ég
elska hann, mér þykir þetta miður,“ tjáði leik-
konan fjölmiðlum.
Sanders hefur verið minna í sviðsljósinu en hann hefur einnig beðist af-
sökunar á framferði sínu. Hann á konu og börn.
Nú hefur hin litríka söngkona Lady Gaga dregist inn í hringiðuna og
hefur gagnrýnt fjölmiðla fyrir það hversu illa þeir hafa komið fram við
leikkonuna. Lady Gaga setti færslu þess efnis inn á samskiptasíðuna Twit-
ter og hefur sú færsla hlotið miklar undirtektir.
Lady Gaga ver Kristen Stewart
Ótrú Leikkonan hélt
framhjá kærasta sínu, Ro-
bert Pattinson.
THE DARK KNIGHT RISES Sýnd kl. 3:50 - 7 - 10:10 (Power)
TED Sýnd kl. 5:50 - 10:15
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10:20
ÍSÖLD 4 ÍSL TAL 3D Sýnd kl. 4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
ÍSL TEXTI
HHHH
-FBL
HHHH
-MBL
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
35.000 MANNS!
ÍSL TAL
MANNI, DÝRI OG LÚLLI ERU
MÆTTIR AFTUR Í STÆRSTU
FJÖLSKYLDUMYND SUMARSINS!
12
12
12
L
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
35.000 MANNS!
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSÖLD 3D KL. 5.50 L
TED KL. 8 - 10.10 12
SPIDERMAN 3D KL. 10.10 10
INTOUCHABLES KL. 5.50 - 8 12
HLUTI AF HVERJUM SELDUM
BÍÓMIÐA ALLAN JÚLÍ
- rennur til Barnaheilla
- TV, KVIKMYNDIR.IS - VJV, SVARTHÖFÐI
DARK KNIGHT RISES KL. 4.30 - 5.30 - 8 - 9 - 11.30
DARK KNIGHT RISES LÚXUS KL. 4.30 - 8 - 11.30 10
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3.20 - 5.50 L
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.20 L
TED KL. 8 - 10.20 12
SPIDER-MAN 3D KL. 5 - 8 - 10.50 10
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL.5.50 L
TED KL. 8 12
SPIDER-MAN 3D KL. 6 - 9 10
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 6.30 - 8 - 9 - 10.30 12
WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 10.25 L