Morgunblaðið - 27.07.2012, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2012
„Í fyrstu vissi ég ekki meira um
Tóma Sæmundsson nema að hann
væri einn af Fjölnismönnum. En
þegar ég hafði lesið mér til komst ég
ekki bara að því hvað þetta var stór-
kostlegur maður heldur einnig hvað
það var ljúf og einlæg vinátta milli
hans og Jónasar,“ segir Guðrún Ás-
mundsdóttir. Hún gerir ævi og
störfum Jónasar Hallgrímssonar
skil auk vináttu hans og Tómasar
Sæmundssonar í leiksýningu sem
hún samdi og leikstýrir, og nefnist
Ekki skamma mig séra Tumi. Leik-
sýningin verður sett á svið í Hóla-
neskirkju á Skagaströnd í kvöld kl.
20, í Bifröst á Sauðárkróki laugar-
daginn 28. júlí kl. 20 og í Ketilhúsinu
á Akureyri sunnudaginn 29. júlí kl.
16.
„Mér líður hvergi betur heldur en
uppi á safni að grafa í fortíðinni og fá
að kynnast svona stórkostlegum
mönnum í gegnum þær góðu bækur
sem ég hef stuðst við,“ segir Guðrún
en hún samdi leiksýninguna eftir
mikið grúsk í ýmsum heimildum,
með það markmið að veita nýja,
fræðandi og skemmtilega sýn á líf
Jónasar og vinskap hans við Tómas.
„Það hefur verið gríðarlega gam-
an að vinna með Davíð Þóri og
Ragnari, enda er vinátta þeirra lík
þeirra Jónasar og Tómasar,“ segir
Guðrún, en hlutverk Tómasar Sæ-
mundssonar túlkar Davíð Þór Jóns-
son og Ragnar Kjartansson fer með
hlutverk Jónasar Hallgrímssonar.
Fjöldi annarra leikara og listamanna
er í liði með Guðrúnu í leiksýning-
unni. Þar má nefna Ásdísi Sif Guð-
mundsdóttur og Örnu Guðný Vals-
dóttur sem sjá um leiksviðið og
vídeóverk, Alexöndru Chernyshova,
sópransöngkonu og leikkonu, og
Þráin Karlsson leikara.
„Ég gæti haft leiksýninguna
endalausa, því líf þessara manna og
allt sem ég er að uppgötva í kringum
þá spinnur endalaust upp á sig fleiri
persónum og sögum,“ segir Guðrún
en bætir við að lokum að útkoman
hafi orðið hnitmiðuð en létt og
skemmtileg leiksýning.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðrún Ásmundsdóttir Líður hvergi betur heldur en uppi á safni að grafa
í fortíðinni og kynnast stórkostlegum mönnum á borð við Jónas og Tómas.
Söguleg leiksýn-
ing Guðrúnar
Bertel Ólafsson og Heiða Eiríksdóttir, þekkt sem
tónlistarkonan úr Unun og Hellvar, hafa gefið út nýjan
dansvænan poppsmell, sem nefnist „Chrome like mirr-
or“. Bertel Ólafsson er eini meðlimur hljómsveitarinnar
Rudda. Hann fékk Heiðu til liðs við sig á síðustu breið-
skífu „I need a vacation“ sem kom út í fyrra. Hún söng
þar ásamt Bertel. Samsarfið gekk svo vel að þeim fannst
kjörið að halda því áfram.
Bertel segir sjálfur um lagið ,,Chrome like mirror“:
„Það er samstarfsverkefni mitt og Heiðu. Hún semur
sönglínu og texta við grunn sem ég hef gert. Það hefur
reynst vel að vinna á þennan hátt, því þegar ólíkir ein-
staklingar blanda saman tónlist verður til samsuða sem
er spennandi. Ég held að nýja lagið sé vel til þess fallið
að dilla sér í sumarstemningunni og gaman að gera
svona rafpopp saman,“ segir Bertel.
Fleira gott fólk kemur að smellinum en Aron Arnars-
son sá um hljóðblöndun og hljómjöfnun á síðustu plötu.
Hann er sáttur við samstarfið eins og við er að búast.
Bertel er enginn nýgræðingur í tónlistinni, hann hefur
verið að fást við tónlistarsköpun í fjölda ára og hefur
sent frá sér 3 stórar plötur, ásamt fjölda smáskífna.
Nýja lagið mun hljóma á væntanlegri plötu sem er í
vinnslu. Það er taktfast syntapopp, og greina má örlítið
stærra skref í átt að enn dansvænni raftónlist en hann
hefur samið hingað til.
Innblásturinn sækir hann í breskt indíe rokk og raf-
popp 9. áratugarins.
Lagið er hægt að nálgast á vefsíðunum gogoyoko.com
og tonlist.is.
Ruddinn rafpoppast
Ruddi Bertel Ólafsson og Heiða Eiríksdóttir sameina
krafta sína í nýjum danssmelli sumarsins.
Níels Hafstein gefur Nýlistasafninu
níu verk úr eigin smiðju, fyrir á safnið
tuttugu og tvö verk eftir hann unnin í
ýmsa miðla. Átta þeirra verða kynnt
sérstaklega á sýningunni, Við-
kvæmur farangur sem opnuð verður í
Nýlistasafninu laugardaginn 28. júlí.
Gestum safnsins gefst kostur á að
fá innsýn í listsköpun hans. Eldri og
yngri verk verða til sýnis en þau eru
fjölbreytt og spanna allt frá efnis-
miklum skúlptúrum til örsmárra
verka eða stemninga.
Verkin eru sögð, „viðkvæm, brot-
hætt, sett saman úr nytjahlutum og
efnum sem eru notuð í hátækni, og
birta óvænt sjónarhorn í samspili
hins venjulega og hins sjaldgæfa“.
Níels er ekki einvörðungu einn
fremsti samtímalistamaður þjóð-
arinnar heldur stofnaði hann einnig
Nýlistasafnið árið 1978. Því var kom-
ið á fót meðal annars til þess að varð-
veita og stuðla að rannsóknum á sam-
tímamyndlist. Einnig stuðlaði hann
að tilurð Safnasafnsins á Svalbarðs-
strönd árið 1995 sem helgar sig utan-
garðs- og alþýðulist.
Doktor Hlynur Helgason, mynd-
listarmaður og heimspekingur, ritar
texta sem fylgir sýningunni. Hann
mun vera með spjall um sýninguna í
safninu og halda erindi um feril
Níelsar síðar.
List Viðkvæmur farangur, sýning á
verkum Níelsar Hafstein, opnar í
Nýlistasafninu laugard. 28. júlí.
Níels gefur
Nýlistasafninu
NÝTT Í BÍÓ
ÞAU HAFA EITT TÆKIFÆRI
TIL AÐ KOMAST AFTUR HEIM
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Daniel Craig er magnaður í þessum
frábæra þriller sem kemur á óvart!
- Entertainment Weekly
- The Hollywood Reporter
- Empire - Boxoffice Magazine
Stærsta opnun S. Soderbergh í USA
Channing Tatum og Matthew McConaughey eru
magnaðir í þessari sjóðheitu mynd!STÆRSTA MYND ÁRSINS
EMPIRE
KVIKMYNDIR.IS
HOLLYWOOD REPORTER
SÉÐ OG HEYRT
EGILSHÖLL
VIP
12
12
12
12
12
12
12
12
KRINGLUNNI
L
L
L
L
12
12
12
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
16
16
16
L
L
L
KEFLAVÍK
16SELFOSSI
ÁLFABAKKA
THE DARK KNIGHT RISES
kl. 1 - 2 - 4:30 - 5:30 - 6 - 8 - 9 - 10 - 10:20 - 11:20 2D
DARK KNIGHT RISES VIP kl. 1 - 4:30 - 8 - 11:20 2D
MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D
DREAMHOUSE kl. 8 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1:30 - 3:40 3D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 1:30 2D DARK KNIGHT RISES kl. 5:30 - 6 - 9 - 10 2D
MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 5:50 3D
AKUREYRI
DARK KNIGHT RISES kl. 4:30 - 8 - 11:20 2D
LOL kl. 6 2D
DREAM HOUSE kl. 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES kl. 4:40-8 - 11:20 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D
UNDRALAND IBBA ísl.Tali kl. 6 2DTHE DARK KNIGHT RISES kl. 8 - 11:15 2D
DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D
DARK KNIGHT RISES
1 - 2 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10:10 - 11:10 2D
TED kl. 3:20 - 5:40 - 10:30 2D
MAGIC MIKE kl. 8 2D
ÍSÖLD 4 ísl.Tali kl. 2 - 4 3D
MADAGASCAR 3 ísl.Tali kl. 1 - 3 2D