Morgunblaðið - 27.07.2012, Page 48
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 209. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Frekar glaður að vera ennþá á lífi
2. Ekki keypt í soðið í 2 ár
3. Sjómenn toppa forstjóra í launum
4. Skógarbobbi fannst á vörubretti
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ný sýning verður opnuð í Norræna
húsinu laugardaginn 28. júlí. Nefnist
hún Dropi við dropa og stendur til 6.
ágúst. Á sýningunni eru 20 prentaðar
auglýsingar um vatnsskort og hag-
kvæma nýtingu auðlinda.
Dropi við dropa –
sýning um vatnskrísu
Á morgun verð-
ur grænmetis-
markaður við Álf-
heima frá kl. 11 -
16 en þar verður
vistvænt græn-
meti frá Garð-
yrkjustöðinni
Kinn til sölu. Einn-
ig eru verk Ránar
Jónsdóttur til sýnis á „pop-up“
myndlistarsýningu í Álfheimum sem
er opin laugardag og sunnudag milli
kl. 14 og 18.
„Pop-up“ myndlist og
grænmetismarkaður
Vigdís Finnbogadóttir verður stödd
í Þrándheimi í Noregi um helgina.
Hún er stödd þar sem heiðursgestur
á Olavsfestdagen en það er einn af
helstu menningar-
viðburðum í Noregi.
Laugardaginn 28.
júlí fjallar Vigdís
ásamt norska rit-
höfundinum Knut
Ödegärd um
Ólaf helga og
íslensk
skáld.
Vigdís heiðursgestur
á Olavsfestdagen
Á laugardag Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti
12 til 22 stig, hlýjast inn til landsins.
Á sunnudag Hæg suðvestlæg átt og þykknar upp vestantil á land-
inu með dálítilli vætu síðdegis, en annars bjartviðri. Hlýtt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG . Víða léttskýjað. Hiti 10 til 19 stig að deg-
inum, hlýjast inn til landsins.
VEÐUR
Formleg móttökuathöfn fyrir
íslenska hópinn í ólympíu-
þorpinu í London fór fram í
gærkvöldi. Voru allir íslensku
keppendurnir þar sam-
ankomnir ásamt fylgdarliði
og fylgdust með þegar ís-
lenski fáninn var dreginn að
húni undir íslenska þjóð-
söngnum. Um var að ræða
móttökuathöfn í þorpinu
sjálfu þar sem keppendur frá
öllum þjóðunum dvelja með-
an á leikunum stendur. » 1
Íslenski fáninn
dreginn að húni
Helgi Valur Daníelsson og samherjar
hans í sænska liðinu AIK reyndust of-
jarlar FH-inga í gærkvöld þegar liðin
mættust í Evrópudeild UEFA í Kapla-
krika. Svíarnir unnu þó minnsta
mögulega sigur, 1:0, og unnu einvígið
2:1 samanlagt. Á Ak-
ureyri nýttu Þórs-
arar ekki tvær
víta-
spyrn-
ur
gegn
tékk-
neskum
andstæð-
ingum og
töpuðu
einnig 0:1.
»2-3
Helgi og félagar of
sterkir fyrir FH-inga
„Ég er himinlifandi með þetta allt
saman og er rosaspenntur að koma
heim og byrja að spila aftur með KR,“
segir knattspyrnumaðurinn Jónas
Guðni Sævarsson. Hann gekk í gær frá
starfslokasamningi við sænska liðið
Halmstad og skrifaði undir þriggja ára
samning við Íslands- og bikarmeistara
KR en hann var í herbúðum Vestur-
bæinga áður en hann fór út. »4
Spenntur að koma heim
og spila aftur með KR
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
„Mótið hófst á föstudaginn þegar
við tókum á móti eldri skátum. Þau
hjálpuðu okkur að setja upp mótið
en hér er heilmikið búið að vera í
gangi,“ segir Hrólfur Jónsson,
mótsstjóri Landsmóts skáta.
Landsmótið er alþjóðlegt skáta-
mót, en það stendur nú yfir á Úlf-
ljótsvatni. Mótið hófst 20. júlí og því
lýkur 29. júlí.
Heilmikil vinna og undirbúningur
liggur á bak við mótið en að sögn
Hrólfs er aðstaðan með besta móti.
„Hér er búið að setja upp alls kyns
aðstöðu fyrir fólkið. Hér erum við
m.a. með útvarpsstöð, upplýs-
ingatjald, verslun og þrjú kaffihús.
Við þurfum náttúrlega að tryggja
það að fólk hafi aðgang að mat og
öðrum nauðsynjum,“ segir Hrólfur
og bætir við í léttum tón að þetta sé
orðið eins og meðalstórt sveitarfé-
lag.
Nóg í boði
Að sögn Hrólfs merkir orðið skáti
í raun og veru það að vera könn-
uður, skátahreyfingin snúist um
margt annað en bara að binda
hnúta.
„Þetta fjallar um að læra við leik.
Við viljum sýna fólki hvernig hægt
er að vera sinn eigin leiðtogi í líf-
inu,“ segir Hrólfur.
Landsmótið er vel skipulagt
og er nóg í boði fyrir mann-
skapinn. Dagskráin er þétt
en mótið er allt skipulagt í
kringum skátaflokka. „Það
er mikil nýbreytni í dag-
skránni. Krakkarnir
skipuleggja sjálfir
hvað þau taka sér
fyrir hendur og
dagskrárþorpin eru
fjögur. Það er því
nóg um að vera,“
segir Hrólfur, en í
þorpunum er m.a.
hægt að fara í vatnasafarí, göngu-
ferðir, mála, dansa og syngja.
Alþjóðlegur bragur
Ekki eru það aðeins Íslendingar
sem taka þátt í mótinu, því skátar
úr öllum hornum heims hafa lagt
leið sína á mótið. „Hér eru 600 er-
lendir skátar frá 18 löndum en ís-
lensku skátarnir eru um 700 talsins.
Svo eru líka mörg hundruð manns
hérna í fjölskyldubúðunum sem
tengjast skátahreyfingunni ekkert
og við eigum von á fleira fólki yfir
helgina.,“ segir Hrólfur, en hann
hvetur alla til að mæta á mótið og
vill þakka öllum þeim sem komið
hafa að skipulagningu mótsins.
MDaglegt líf »10-11
Útvarpsstöð og þrjú kaffihús
Skátar
skemmta sér á
landsmóti
Morgunblaðið/Eggert
Landsmót Þessi ungmenni ákváðu að skella sér í mýrarbolta í góða veðrinu. Skipt var í lið á milli stelpna og stráka.
Skátahreyfingin er alþjóðleg
hreyfing barna og unglinga,
en í heiminum eru um 38
milljónir skáta sem starfa í
tveimur heimsbandalögum.
Allir skátar í heiminum hafa
sömu einkunnarorð: „Ávallt
viðbúinn“, en skátalög og
skátaheiti eru að grunni
til hin sömu alls staðar í
heiminum. Skátar stunda
m.a. útilíf, vinna að
margvíslegum viðfangsefnum og
taka þátt í alþjóðlegu skátastarfi.
Ingimar Guðjónsson er 12 ára
skáti frá Eyrarbakka, en þetta er í
fyrsta skiptið sem hann tekur þátt
í Landsmóti skáta. „Að vera skáti
er búið að vera draumur minn í
langan tíma og þetta er búið að
vera mjög gaman,“ segir Ingimar,
en hann segir nóg vera í boði og er
mjög ánægður með dagskrána.
Skátar um 38 milljónir
SKÁTAHREYFINGIN ALÞJÓÐLEG
Ingimar er mjög
ánægður með dag-
skrána og mótið.