Morgunblaðið - 09.07.2012, Blaðsíða 1
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ólafur Björn Loftsson hefur ákveð-
ið að gerast atvinnumaður í golfi
síðsumars og segir að næstu vikur
verði spennandi hjá sér í íþróttinni.
Ólafur virðist vera í fantaformi og
fór hamförum í meistaramóti Nes-
klúbbsins sem lauk um helgina. Þar
lék Ólafur holurnar 72 á samtals 25
höggum undir pari en slíkt skor er
sjaldséð hér á eyjunni.
Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst setti Ólafur eins konar
Íslandsmet með þessari frammi-
stöðu. Birgir Leifur Hafþórsson lék
á 22 undir pari á meistaramóti
GKG árið 2003 og er það líklega
næstbesta skor sem náðst hefur á
72 holum hérlendis.
„Ég man ekki eftir því að hafa
séð svo lágt skor áður hérna heima.
Eins og svo oft þá þarf maður að
treysta á góð veðurskilyrði til að
skora vel á Íslandi og það var til-
tölulega rólegur vindur þessa fjóra
daga á Seltjarnarnesinu. Það gefur
manni tækifæri á því að spila vel en
auðvitað var ég að spila frábært
golf. Þetta var ótrúlega gaman,“
sagði Ólafur þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær.
Áður best náð 15 undir pari
Sjálfur hafði hann mest náð að
vera á 15 undir pari í Meistara-
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsmet? Ólafur Björn Loftsson náði líklega besta skori sem náðst hef-
ur á 72 holum hér á landi þegar hann lék á 25 höggum undir pari.
mótinu hjá Nesklúbbnum en það
var árið 2009 eða skömmu áður en
hann varð Íslandsmeistari. Vall-
armet Ólafs á 18 holum á Nesvell-
inum stóð hins vegar af sér atlög-
urnar en það er 61 högg frá árinu
2008. Að þessu sinni lék Ólafur á
68, 68, 64 og 63 höggum.
Ólafur útskrifaðist í vor með BS-
gráðu í fjármálum frá Charlotte-
háskólanum í Bandaríkjunum.
Hann hefur ákveðið að fara í úr-
tökumót fyrir atvinnumótaröð í
haust.
Stefnir á atvinnumennsku
í ágúst
„Ég er með stór markmið í haust
og ætla að fara í úrtökumót. Ég
ætla að gerast atvinnumaður og
væntanlega verður það í ágúst. Ég
veit ekki hvort ég reyni við PGA
eða Evrópumótaröðina en hugs-
anlega fer ég í bæði úrtökumótin.
Ég æfi nú mjög stíft og hlakka til
að takast á við þær áskoranir sem
framundan eru. Evrópumót lands-
liða byrjar á fimmtudaginn og Ís-
landsmótið á Hellu í framhaldinu.
Þá fer Evrópumót áhugamanna
einnig fram í sumar og úrtökumótin
bætast við í haust. Þetta eru rosa-
lega spennandi tímar og það hjálp-
ar mikið til að maður er að spila
vel,“ sagði Ólafur ennfremur og
hann ætlar að halda styrktarmót í
samstarfi við Nesklúbbinn 22. júlí
til að afla fjár fyrir verkefni hausts-
ins.
„Rosalega spennandi“
Ólafur Björn Loftsson lék á 25 undir pari á Nesinu Líklega lægsta skor á 72
holum hérlendis Fer í úrtökumót í haust, kannski bæði í PGA og Evrópu
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012
íþróttir
Vonsvikin Helga Margrét ætlaði að vera komin í 6.200 stig á þessu ári. Hefur ekki bætt
sig í þrjú ár og náði ekki Ólympíulágmarkinu í sjöþrautinni. Hló að því fyrir þremur árum. 8
Íþróttir
mbl.is
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson er
kominn í 3.-5.
sætið yfir marka-
hæstu menn
sænsku úrvals-
deildarinnar í
knattspyrnu eftir
að hann tryggði
Norrköping sig-
ur á Kalmar í
gær, 2:1.
Gunnar skoraði þar bæði mörk
Norrköping, lyfti liði sínu upp í
fjórða sætið í deildinni, og hefur nú
sjálfur skorað 8 mörk í deildinni
það sem af er þessu tímabili.
Hann og Alfreð Finnbogason hjá
Helsingborg eru jafnir í 3.-5. sæti
markalistans, ásamt René Makon-
dele, leikmanni Häcken. Waris Maj-
eed hjá Häcken er markahæstur
með 13 mörk og Viktor Prodell,
leikmaður Åtvidaberg, hefur gert
11 mörk en síðan koma Íslending-
arnir.
Alfreð á leik til góða og spilar
með Helsingborg gegn Gautaborg í
deildinni í kvöld. vs@mbl.is
Gunnar í hóp
markahæstu
í Svíþjóð
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson
Tékkinn Daniel Kolar hefur ákveðið
að færa sig um set í Reykjavík og
mun á næsta keppnistímabili leika
með Íslandsmeisturunum í Birn-
inum á Íslandsmótinu í íshokkí. Frá
þessu er greint á heimasíðu félags-
ins.
Kolar ætti að reynast liði Bjarn-
arins góður liðsauki og mun auk
þess koma að þjálfun yngri flokka í
Grafarvoginum. Kolar snéri aftur til
Íslands fyrir síðasta tímabil en hann
kom fyrst til Skautafélags Reykja-
víkur árið 2006.
Kolar lék vel með SR sem varð
deildarmeistari síðasta vetur og var
auk þess aðstoðarþjálfari meist-
araflokks. Björninn vann SR 3:1 í
úrslitarimmunni um titilinn og þar
skoraði Kolar þrjú mörk fyrir SR og
átti þrjár stoðsendingar í leikjunum
fjórum. kris@mbl.is
Björninn
krækti í Kolar
Franska knattspyrnusambandið
staðfesti í gærkvöld að Didier Desc-
hamps yrði næsti landsliðsþjálfari
Frakka. Hann tekur við af Laurent
Blanc sem hætti störfum eftir að
Frakkar féllu út í 8-liða úrslitunum
á EM í síðasta mánuði. Deschamps,
sem er 43 ára, var fyrirliði heims-
og Evrópumeistara Frakka 1998 og
2000. Hann hefur stýrt liði Mar-
seille undanfarin ár en áður liðum
Juventus og Mónakó.
vs@mbl.is
Deschamps
með Frakka
Grindavík, KR og 1. deildarlið Þróttar úr Reykjavík eru kom-
in í undanúrslitin í bikarkeppni karla í fótbolta eftir sigra í
gær þegar þrír af fjórum leikjum undanúrslitanna fóru fram.
Guðjón Þórðarson er kominn með lið í undanúrslit keppn-
innar annað árið í röð. Í fyrra var það 1. deildarlið BÍ/
Bolungarvíkur en nú er það botnlið úrvalsdeildar, Grindavík,
sem hefur unnið fleiri leiki í bikarnum en í deildinni í sumar.
Grindvíkingar sigruðu Víking R. örugglega, 3:0, í Víkinni.
Þróttarar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu úrvalsdeildarlið
Selfyssinga á sannfærandi hátt, 3:0, á Valbjarnarvelli. Þetta
er í sjöunda sinn í sögunni sem Þróttur kemst í undanúrslit
bikarsins, en félaginu hefur hinsvegar aldrei tekist að komast
lengra og hefur tapað öllum sex undanúrslitaleikjunum til
þessa.
KR-ingar, sem eiga titil að verja, voru undir í 70 mínútur í
Vestmannaeyjum en sigruðu 2:1 eftir að Óskar Örn Hauks-
son skoraði tvívegis á síðustu mínútum leiksins. Eyjamenn
verða því enn um sinn að bíða eftir bikarævintýri því þeir
hafa ekki komist í úrslit keppninnar í tólf ár.
Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld þegar Stjarnan og Fram
mætast í Garðabænum og þá kemur í ljós hvert fjórða liðið
verður í undanúrslitunum. vs@mbl.is »4-5
Guðjón aftur í
undanúrslitin
Þróttur sló út Selfyssinga
Morgunblaðið/Golli
Bikargleði Ray Anthony Jónsson fagnar ásamt Matthíasi Erni Friðrikssyni eftir að hafa
gulltryggt Grindvíkingum sigur á Víkingum í gærkvöld, 3:0.