Morgunblaðið - 09.07.2012, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.07.2012, Blaðsíða 7
TENNIS Kristján Jónsson kris@mbl.is Svisslendingurinn Roger Federer kom í veg fyrir fögnuð heimamanna í einliðaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis í gær. Englendingurinn Andy Murray komst nefnilega í úrslitin, fyrstur Breta í 74 ár. Breti hefur raunar ekki unnið einliðaleik karla á einu risamótanna fjögurra síðan Fred Perry gerði það árið 1936 og væntingarnar til hins 25 ára gamla Murrays voru því miklar. Hann stóðst álagið í fyrsta settinu og vann það 6:4 en Federer sýndi hvers hann er megnugur og vann þrjú þau næstu 7:5, 6:3 og 6:4. Jafnaði met Sampras Sigur Federers er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Um er að ræða sjöunda sigur hans í einliðaleik á Wimbledon og jafnaði hann þar með met Bandaríkjamannsins Pete Sam- pras. Federer endurheimti auk þess efsta sæti heimlistans en þar sat hann um langa hríð áður en Spánverjinn Rafael Nadal og Serbinn Novak Djokovic gerðu sig gildandi á meðal þeirra bestu. Vera Federers í efsta sæti heims- listans næstu vikuna gerir það að verkum að hann hefur samtals verið í efsta sætinu í 286 vikur sem er met. Federer er þrítugur og hefur um ára- bil verið einn þekktasti íþróttamaður heimsins. Hann er næstelsti mað- urinn til að komast í efsta sæti listans. Andy Murray hefur ekki átt sam- bærilegri velgengni að fagna því hann hefur fjórum sinnum komist í úrslit á risamótunum og ávallt tapað. Er það metjöfnun og deilir hann því vafasama meti með þjálfara sínum, Ivan Lendl frá Tékklandi, sem einn- ig tapaði fjórum fyrstu úrslita- leikjum sínum. Misjöfn viðbrögð heimamanna Andy Murray var gríðarlega vel fagnað af áhorfendum þrátt fyrir tapið og hrósaði hann þeim mjög fyr- ir stuðninginn að mótinu loknu. Ýms- ir gamlir tennisspilarar tjáðu sig einnig á samskiptasíðum þar sem þeir hrósuðu Murray fyrir frammi- stöðuna gegn stórstjörnunni Fede- rer. Bresku fjölmiðlarnir fóru hins vegar ekki jafn mjúkum höndum um Murray enda ekki vanir því þegar breskir íþróttamenn eiga í hlut. Fyr- irsagnaborðinn á Sky News var til að mynda á þá leið að Murray hefði tap- að Wimbledon-mótinu en ekki að Federer hefði unnið. Frammistaðan ein sú besta Þegar sigurinn var í höfn tjáði Federer blaðamönnum að erfiðum kafla á hans ferli væri nú lokið. Sig- urinn var hans sautjándi á risamóti en sá fyrsti frá því í janúar 2010. „Ég var mjög nálægt sigrum síðustu tvö árin en sumir sáu það bara ekki. Ég vissi það hins vegar. Mér fannst að á þessum tímapunkti þyrfti ég að hafa trú á því að nú myndu hlutirnir aftur snúast á sveif með mér. Ég tel að frammistaða mín sé með þeim betri sem ég hef sýnt,“ sagði Roger Fede- rer sem verður aftur í sviðsljósinu í Lundúnum á Ólympíuleikunum. Federer í fararbroddi á ný AFP Sigurvegari Svissneski tenniskappinn Roger Federer fagnar sínum sautjánda risatitli í gær.  Fagnaði sigri á risamóti í sautjánda skipti  Endurheimtir efsta sæti heimslistans  Hefur unnið Wimbledon-mótið sjö sinnum  Andy Murray tókst ekki að slá á uppsafnaða 74 ára gamla gremju TENNIS Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Guð minn góður, ég trúi þessu ekki,“ hrópaði kampakát tennis- drottningin Serena Williams eftir að hún hafði tryggt sér sigur á Wimbledon-mótinu í fimmta skipt- ið á ferlinum. Hún hefur nú unnið alls fjórtán risatitla á mögnuðum ferli en sá sem hún vann á laugar- daginn var afar sérstakur. Serena vann pólsku stúlkuna Agnieszku Radwanska í þremur settum, 6:1, 5:7 og 6:2. Þetta er fyrsti sigur Serenu á risamóti í tvö ár eða síðan hún vann Wimbledon- mótið síðast árið 2010. Óstöðvandi í þessum ham Serena er orðin þrítug og varð á laugardaginn elsta konan til þess að vinna Wimbledon síðan Martina Navratilova vann hennar síðast titil árið 1990. Hún er með stíl sem er frábrugðinn öllum öðrum enda kraftlega vaxin en ótrúlega mikil íþróttakona. Þessum litlu tennishnátum á borð við Radwanska er hreinlega vorkunn að þurfa að deila velli með Serenu þegar hún er í þeim ham sem sást í úrslitaleiknum. Það á enginn mögulega í Serenu þegar hún spilar af svona krafti. Radwanska fær stóran plús fyr- ir að koma sterk til baka eftir að hlé var gert vegna rigningar og vinna annað settið. En dagurinn var Serenu. Krafturinn var of mikill. Þessi er einstakur Serena jafnaði metin við systur sína, Venus, en báðar hafa nú unn- ið þetta frægasta tennismót heims fimm sinnum. Sigurinn skiptir Serenu þó gríðarlegu máli þar sem síðustu tvö ár hafa verið henni erf- ið vegna meiðsla og veikinda. „Hver og einn titill er sérstakur en þessi er einstakur. Þetta er Wimbledon. Mig langaði að vinna þetta mót aftur svo mikið!“ sagði Serena við fólkið á aðalvellinum á Wimbledon-mótsvæðinu. „Þessi titill er mér augljóslega mikilvægur því þetta er endur- koma hjá mér. Ég gæti ekki beðið um það betra, ég einfaldlega gæti það ekki,“ sagði hún. Steig á glerbrot Ástæðan fyrir því að sigurinn er svo sérstakur fyrir Serenu eru vandamálin sem hófust eftir að hún vann Wimbledon síðast. Hún steig þá á glerbrot á veitingastað sem varð mun meira vandamál en búist var við. Þurfti hún að fara í uppskurð og var frá út árið. Ekki skánaði það árið 2011 því þá greindi Serena frá því að hún hefði fengið blóðtappa og þurfti hún að draga sig úr hverju mótinu á fætur öðru. Serena Williams virðist þó vera komast í betra og betra form eins og sást á Wimbledon. Sjóðheit Serena AFP Ánægð Serena Williams fagnar á skemmtilegan hátt eftir að hafa sigrað Agnieszku Radwanska frá Póllandi í úrslitaleiknum í London.  Serena Williams vann einliðaleik kvenna á Wimbledon  Fyrsti sigur hennar á risamóti í tvö ár eftir erfið meiðsli AFP Systrasigur Serena og Venus Williams ánægðar eftir að þær unnu tvíliða- leikinn á Wimbledon, nokkrum tímum eftir að Serena vann einliðaleikinn. ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.