Morgunblaðið - 09.07.2012, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012
Mark Webber á Red Bull háði harða
rimmu við Fernando Alonso á Ferrari á
lokakafla breska kappakstursins í Silver-
stone í gær og hafði sigur af Ferr-
ariþórnum er hann skaust fram úr hon-
um er tæpir fjórir hringir voru eftir af
52. Með því minnkaði Webber jafnframt
bilið milli þeirra í titilslagnum.
Alonso heldur enn forystu í keppninni
um heimsmeistaratitil ökumanna en með
sigrinum minnkaði Webber það bil úr 20
stigum í 13.
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á
Red Bull varð þriðji og var ekki langt frá
því að færa liði sínu tvöfaldan sigur en
Alonso átti í vök að verjast á gatslitnum
mjúkdekkjum á lokasprettinum. Alonso
hóf keppni af ráspól og hafði byggt upp
um fimm sekúndna forskot er að fyrstu
dekkjaskiptum kom. Það bil hélst nær út
í gegn en hugsanlega varð dekkjataktík
Ferrari Alonso að falli. Meðan flestir not-
uðu mjúkdekk framan af og skiptu síðan
yfir á hörð dekk fór Alonso öðru vísi að:
notaði hörðu dekkin fyrst og beið fram í
lokalotuna með að setja mjúkdekk undir.
Felipe Massa á Ferrari háði rimmu við
sinn gamla liðsfélaga, Michael Schumac-
her á Mercedes, framan af og náði af
honum þriðja sætinu á 11. hring. Missti
hins vegar Vettel fram úr sér í dekkj-
astoppunum og sætti síðan sókn frá Kimi
Räikkönen á Lotus en hélt fjórða sætinu.
Er það besti árangur hans í ár, sjötta
sæti í Mónakó var hans besta þar til í
dag. agas@mbl.is
Webber skaust framúr
AFP
Efstir Fernando Alonso og Mark Webber á verðlaunapallinum í gær.
FÓTBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
„Þetta var bara einn af þessum leikj-
um sem allt gekk upp. Ég átti þrjú
skot á markið og tvö þeirra fóru
inn,“ segir Englendingurinn Theo-
dore Eugene Furness, leikmaður
Tindastóls sem vann Hött, 6:2, í
nýliðaslagnum í 1. deild á Sauðár-
króksvelli á laugardaginn. Theodore
skorað tvö af mörkum Stólanna og
vinur hans, Ben J. Everson, tvö en
þeir eru markahæstir í deildinni með
sex mörk hvor.
Með Tindastóli spila einnig tveir
bræður Theodores, Dominic og
markvörðurinn Seb, en allir hafa
staðið sig mjög vel.
Hefði þegið sex mörk
Flestir bjuggust við hörkuleik í
nýliðaslagnum en ekki þessari
markaveislu þar sem Höttur fær á
sig lítið af mörkum. „Donni þjálfari
sagði fyrir leik að þetta yrði mikill
baráttuleikur. Við héldum að þetta
yrði mjög tæpt en það fór bara allt
inn,“ segir Theodore kátur í bragði.
Hann er ánægður með eigin frammi-
stöðu enda búinn að skora sex mörk.
„Þetta er búið að ganga vel. Við
erum að spila vel sem lið en ég hefði
nú getað verið búinn að skora fleiri
mörk. Hefði samt einhver boðið mér
fyrir tímabilið að skora sex mörk í
fyrstu átta leikjunum hefði ég alveg
þegið það,“ segir hann.
Middlesbrough-mafían
Theodore spilaði með Stólunum
líka í fyrra en hann kom til landsins
upphaflega til að fara á reynslu hjá
KA. Það var vinur hans úr ung-
lingaakademíunni hjá Middles-
brough, Gary Martin, sem mælti
með honum við Gunnlaug Jónsson,
þjálfara KA. Gary er sem kunnugt
er framherji ÍA.
„Gary er vinur minn og hann gaf
mér góð meðmæli. Ég fór á reynslu
hjá KA en það gekk ekki upp. KA lét
þá Tindastól vita af mér og þannig
endaði ég hér,“ segir Theodore sem
gaf Halldóri Jóni Sigurðssyni,
Donna þjálfara, ferilskrá bræðra
sinna fyrir tímabilið í sumar.
„Donni spurði mig hvort ég þekkti
ekki einhverja leikmenn sem væru
nægilega góðir. Ég lét hann fá nöfn á
fullt af leikmönnum, þar á meðal
bræðrum mínum því ég veit hvað
þeir geta. Honum leist best á þá og
líka Ben Everson sem er vinur okkar
frá Middlesbrough,“ segir
Theodore.
Í landsliðsúrtaki í innifótbolta
Eftir að Theodore var leystur
undan samningi hjá Middlesbrough
fór hann í háskóla í Bandaríkjunum
að spila. Hann og skólinn áttu ekki
samleið og fór hann því til Belgíu að
spila og svo aftur heim að spila í hálf-
atvinnumennsku og vinna samhliða
boltanum. Hann er líka mikill áhuga-
maður um innifótbolta, eða futsal
eins og hann kallast á alþjóðavísu.
„Ég hef spilað með liði í Middles-
brough í futsal. Mér fannst það gam-
an um leið og ég prófaði það. Ég hef
verið í einskonar landsliðsúrtökum
fyrir leikmenn sem koma til greina í
framtíðinni sem landsliðsmenn Eng-
lands í futsal,“ segir Theodore.
Líkar vistin á Sauðárkróki
„Hann er mjög frábrugðinn öðr-
um stöðum sem ég hef búið á,“ segir
Theodore um Sauðárkrók en honum
líkar vistin í Skagafirðinum og leiðist
ekkert.
„Mér finnst gott að búa hér. Mér
leiðist ekkert. Við bræðurnir erum
hérna saman og finnum okkur alltaf
eitthvað að gera. Fólkið er líka gott
við okkur og allir vilja allt fyrir mann
gera,“ segir Theodore sem myndi
mikið langa til að spila í efstu deild.
„Ég myndi elska að spila í Pepsi-
deildinni. Vonandi spila ég bara vel
með Tindastóli í sumar og svo sjáum
við hvað gerist,“ segir markahrók-
urinn Theodore Furness.
Fyrsti sigur Djúpmanna
Einn annar leikur fór fram í 1.
deildinni á laugardaginn. Þar vann
BÍ/Bolungarvík sinn fyrsta sigur á
tímabilinu í dramatískum leik gegn
Leikni úr Reykjavík.
Heimamenn komust í 3:0 í fyrri
hálfleik og virtust ætla sigla sínum
fyrsta sigri auðveldlega í höfn. Gest-
irnir úr Breiðholtinu gáfust þó ekki
upp og voru búnir að jafna eftir 74
mínútna leik. Gunnar Einarsson,
varnarjálkurinn öflugi, skoraði þá
jöfnunarmarkið.
En til að halda dramatíkinni
áfram fór BÍ/Bolungarvík upp völl-
inn í næstu sókn, fékk víti sem úr
skoraði Daninn Dennis Nielsen og
tryggði heimamönnum sigur, 4:3.
Djúpmenn höfðu því sætaskipti við
Leikni sem er nú á botninum, þvert á
væntingar liðsins.
Markaskorara og stöðuna í 1.
deildinni er að finna á bls. 6.
Þrír enskir bræður fara á
kostum í Skagafirðinum
Theodore Furness og fjölskylduvinurinn Ben J. Everson raða inn mörkum
Ljósmynd/Valgeir S. Kárason
Bræðurnir Dominic Furness, Theodore Furness og Seb Furness ganga ánægðir af Sauðárkróksvelli.
Landsliðs-framherjinn
Kolbeinn Sig-
þórsson var á
skotskónum fyrir
Ajax sem vann 1.
deildar liðið Em-
men í æfingaleik
á laugardaginn,
5:0. Kolbeinn
skoraði annað mark hollensku
meistaranna á 14. mínútu en Ajax
var komið yfir, 3:0, eftir hálftíma og
vann að lokum auðveldan sigur, 5:0.
Þetta var fyrsti æfingaleikur Ajax
fyrir komandi tímabil.
Rúrik Gíslason, landsliðsmaður íknattspyrnu, skoraði mark
danska úrvalsdeildarliðsins OB þeg-
ar það tapaði naumlega, 1:2, fyrir
þýska liðinu Wolfsburg í æfingaleik.
Leikið var í Leck í norðurhluta
Þýskalands. Rúrik var hættulegur
allan tímann og átti m.a. stang-
arskot snemma leiks. Hann jafnaði
metin fyrir OB seint í leiknum en
Þjóðverjarnir skoruðu sigurmark
sitt í lokin, úr vítaspyrnu.
Salomon Kalou, framherjiChelsea, hefur yfirgefið
Evrópumeistarana í knattspyrnu og
er genginn í raðir franska úrvals-
deildarliðsins Lille. Hann kemur til
Lille án greiðslu þar sem samn-
ingur hans við Chelsea rann út eftir
tímabilið. Kalou hefur leikið með
Chelsea frá 2006.
Watford, sem leikur í ensku B-deildinni, hefur ráðið Ítalann
Gianfranco Zola sem knattspyrnu-
stjóra félagsins en þetta hefur stað-
ið til síðustu daga. Zola tekur við
starfinu af Sean Dyche sem var
rekinn fyrr í vikunni til þess að
rýma fyrir Zola. Ítalinn hefur verið
án starfs síðan hann var látinn fara
frá West Ham árið 2010. Það er
eina liðið sem hann hefur stýrt á
sínum stutta þjálfaraferli. Enska
fótboltann þekkir Zola þó vel eftir
að hafa leikið með Chelsea í sjö ár.
Ryan Giggs,hinn reyndi
leikmaður Man-
chester United,
hefur verið skip-
aður fyrirliði
breska landsliðs-
ins í knattspyrnu
sem keppir á Ól-
ympíuleikunum í
London. Giggs er einn af þremur
eldri leikmönnum í breska liðinu,
ásamt Craig Bellamy frá Liverpool
og Micah Richards frá Manchester
City, en hvert lið má nota þrjá leik-
menn sem eru eldri en 23 ára.
Fyrsti opinberi leikur breska liðsins
verður vináttuleikur gegn Bras-
ilíumönnum í Middlesbrough 20.
júlí og það verður í fyrsta skipti í
hálfa öld sem sameiginlegt lið Bret-
lands spilar landsleik.
Þýska knattspyrnufélagið BayerLeverkusen hafnaði 25 millj-
óna evra tilboði Chelsea í framherj-
ann unga André Schürrle sam-
kvæmt Sky Sports en Schürrle var
í þýska landsliðinu á EM. „Fyrsta
tilboð Chelsea leiddi til viðræðna
milli félaganna en á endanum
ákváðum við að halda André hjá
Leverkusen,“ segir framkvæmda-
stjóri Leverkusen, Wolfgang Holz-
häuser. André Schürrle er 21 árs
gamall framherji sem kom til Lev-
erkusen frá Mainz fyrir síðasta
tímabil, stóð sig afar vel og er orð-
inn fastamaður í landsliðshópi Þjóð-
verja.
Fólk sport@mbl.is
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110
Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðs-
son, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 net-
fang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun
Landsprent ehf.