Morgunblaðið - 09.07.2012, Síða 5

Morgunblaðið - 09.07.2012, Síða 5
OSSVOGI as Þór Þórðarson as@mbl.is ir viku horfði blaðamaður dolfall- á leik KR og Grindavíkur. Dolfall- yfir því hversu slakir Grindvík- ar voru og velti fyrir sér hvort karnir hans Guðjóns Þórðarsonar ndu hreinlega vinna leik í deildinni í ar. n hlutirnir eru fljótir að breytast í anum. Guðjón fagnaði sínum 100. i í efstu deild í vikunni þegar ndavík lagði Val og í gærkvöldi af- ddu þeir gulu 1. deildarlið Víkings mannlega í átta liða úrslitum Borg- rbikarsins, 3:0. Grindavík er því mið í undanúrslitin og geta menn t sér að brosa suður með sjó eftir tt tímabil hingað til. pulagðir, agaðir beinskeyttir Nálgun“ er orð sem Guðjón Þórð- on er búinn að gera ódauðlegt í anum hér heima. Og nálgun Grind- nga í gær svínvirkaði. Þeir leyfðu mamönnum að rúlla boltanum í i hálfleik en spiluðu skipulagðan narleik og voru agaðir í sínum að- ðum. Sama hversu mikið heima- nn reyndu sköpuðu þeir sér engin . að þurfti aftur á móti ekki mikið til num vítateignum. Þó Grindvíkingar gju ekki mörg færi voru þeir bein- yttir og hættulegir. Eftir tvö stang- kot skoraði Pape Mamadou Faye r gestina á 33. mínútu af stuttu færi ar það mark sem köld vatnsgusa í lit Víkinga sem höfðu verið betri nn fram að því. Mættu of seint í síðari hálfleik Þegar Kristinn Jakobsson flautaði til upphafs síðari hálfleiks var aðeins annað liðið mætt til leiks. Víkingar voru staðir, eflaust enn að hugsa hvernig í ósköpunum þeir gátu verið undir eftir fyrri hálfleikinn. Á meðan heimamenn pældu í því tók Pape á sprett upp vinstri kantinn, sól- aði hvern Víkinginn á fætur öðrum og þeir sem reyndu að stöðva hann hrukku af Pape. Hann óð upp að víta- teignum eins og trukkur en skot hans úr þröngu færi var varið. Alexander Magnússon var sá eini með meðvitund í teignum og þrumaði boltanum í markið á 47. mínútu. Rothögg fyrir Víkinga og seinni hálfleikurinn varla byrjaður. Markið drap leikinn alveg því Grindavík fór bara aftur í að leyfa Vík- ingum að halda boltanum og sækja á sig en sterk varnarlína gestanna átti í engum vandræðum með sóknarlotur heimamanna. Óskar Pétursson þurfti ekki mikið að gera í leiknum í marki Grindavíkur en það sem hann gerði, gerði hann vel. Líkamlegir yfirburðir Ray Anthony Jónsson innsiglaði sig- ur Grindavíkur með bylmingsskoti fyr- ir utan teig á 77. mínútu. Sanngjarn sigur heimamanna sem voru klókir og kláruðu sitt verkefni af mikilli fag- mennsku. Það var alveg ljóst hvort liðið hafði tekið betur á því í ræktinni í vetur því Grindavík hafði mikla líkamlega yf- irburði í leiknum. Alexander Magn- ússon var eins og karlmaður á meðal pilta á miðjunni og sömu sögu má segja um Pape sem spilaði mjög vel þær 53 mínútur sem hann var inn á í gær. Grindjánar hafa ekki fengið mörg tækifæri til að fagna en menn leyfðu sér að brosa eftir leik í gær. Það var mun léttara yfir Grindavíkurliðinu en fyrir viku. Grindavík er núna 90 mín- útur frá úrslitaleiknum. Morgunblaðið/Golli Skot Grindvíkingurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson reynir skot að marki Víkings en Egill Atlason reynir að stöðva hann. Fagmannleg afgreiðsla hjá Grindavík í Víkinni Botnliðið í Pepsi-deildinni 90 mínútum frá bikarúrslitaleik ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2012 Ljósmynd/Sigfús Gunnar ftir að hafa gert seinna mark sitt á tveimur mínútum undir lok leiksins á Hásteinsvelli í gær. Greinilega við lítinn fögnuð Eyjamanna á „Hólnum.“ Ómar Garðarsson sport@mbl.is Hannes Þór Halldórsson, mark- vörður KR, gat verið ánægður með sinn hlut í sigri sinna manna á móti Eyjamönnum í bikarslag liðanna á Hásteinsvelli í gær. Hannes varði stórkostlega þegar mest á reið fyr- ir KR-inga, eftir að hafa fengið á sig mark eftir sautján mínútna leik. „Þetta eru frábær úrslit á útivelli gegn sterku liði Eyjamanna,“ sagði Hannes við Morgunblaðið eftir leik- inn. „Það er gaman að eiga sinn þátt í því og full ástæða til að gleðjast. Þetta eru draumaleikir, að lenda marki undir og ná svo að skora tvö mörk á lokamínútunum og komast þannig áfram í bik- arnum. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í fótbolta, dramatík og spenna allan leikinn,“ sagði Hannes en hann hefur reynst Eyjamönnum erfiður í sumar. Hann varði vítaspyrnu frá Matt Garner í uppbótartíma þegar liðin mættust í Vesturbænum í 3. um- ferð deildarinnar í vor og tryggði þá KR sigur, 3:2. Í gær varði hann þrívegis frá ÍBV í sömu sókninni þegar Eyjamenn fengu gullið færi til að komast í 2:0. Refsað fyrir að nýta ekki færin Tryggvi Guðmundsson, leik- maður ÍBV, var að vonum ekki kát- ur eftir tapið. „Við sköpuðum okk- ur færi en nýttum þau ekki. Og þegar þú nýtir ekki færin er þér refsað,“ sagði Tryggvi við Morg- unblaðið. Ástæðan fyrir því að maður er í fótbolta Víkingsvöllur, bikarkeppni karla, Borg- unarbikarinn, 8-liða úrslit, sunnudag 8. júlí 2012. Skilyrði: Úði og tólf gráðu hiti. Mörk: 0:1 Pape Mamadou Faye 33., 0:2 Alexander Magnússon 47., 0:3 Ray Anthony Jónsson 77. Skot: Víkingur 10 (6) – Grindavík 11 (6). Horn: Víkingur 6 – Grindavík 3. Lið Víkings: (4-4-2) Mark: Magnús Þormar. Vörn: Kjartan Baldursson, Jón Guðbrandsson, Egill Atlason, Halldór Sigurðsson.. Miðja: Gunnar Stein- dórsson (Patrik S. Atlason 67.), Þor- valdur Sveinsson, Kristinn J. Magn- ússon, Hjalti Hauksson (Viktor Jónsson 53.). Sókn: Aron Þrándarson, Helgi Sigurðsson (Sigurður Lárusson 75.). Lið Grindavíkur: (5-4-1) Mark: Óskar Pétursson. Vörn: Matthías Örn Frið- riksson, Björn Bryde, Ólafur Örn Bjarnason, Mikael Eklund, Ray Jóns- son. Miðja: Marco V. Stefánsson, Magnús Björgvinsson (Óli B. Bjarnason 67.), Alexander Magnússon, Scott Ramsay (Alex Hilmarsson 89.). Sókn: Pape Faye (Hafþór Vilhjálmsson 53.). Dómari: Kristinn Jakobsson. Áhorfendur: Um 600. Víkingur R. – Grindavík 0:3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.