Morgunblaðið - 24.07.2012, Side 1
Í KAPLAKRIKA
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Það er óhætt að segja að íslenska
landsliðið í handknattleik karla fari
lemstrað til London á Ólympíu-
leikana. Snorri Steinn Guðjónsson,
Aron Pálmarsson og Ólafur Bjarki
Ragnarsson voru ekki með liðinu í
síðasta vináttulandsleiknum fyrir
leikana sem fram fór í gær. Ísland
vann þá Argentínu öðru sinni á
þremur dögum. Lokatölur í gær
voru 29:22 en þessi leikur var betri
af hálfu Íslands en sá fyrri á laug-
ardaginn. Ísland mætir Argentínu í
fyrsta leik í riðlinum á sunnudaginn.
Ef ekkert stórkostlegt gerist á Ís-
land að eiga góða möguleika á að
vinna Argentínu. Þeir eru þó sýnd
veiði en ekki gefin. Leikmenn liðsins
eru léttir á fæti, hreyfanlegir og
kunna alveg að kasta bolta. Þá var
einn af sterkari mönnum liðsins ekki
með í gær en það sama má reyndar
segja um Ísland.
Vörnin hélt ágætlega á löngum
köflum, sóknarleikurinn gekk vel og
markverðirnir vörðu ágætlega. Ekk-
ert af þessu er þó áhyggjuefni ís-
lenska liðsins fyrir Ólympíuleikana
sem er langt og strembið mót. Flest-
ir ef ekki allir eru sammála um að
allt þarf að ganga upp ætli íþrótta-
menn sér medalíu á þessum stærsta
íþróttaviðburði veraldar. Þannig var
það í Peking fyrir fjórum árum þeg-
ar liðið kom heim með silfurverðlaun
eftir tap fyrir Frökkum í úrslitaleik.
Snorri getur ekki gripið bolta
Nú eru hinsvegar lykilleikmenn
liðsins tæpir og sumir hreinlega
meiddir. Áhyggjuefni Guðmundar
Þórðar Guðmundssonar landsliðs-
þjálfara hlýtur því að vera meiðslin
og hvort þeir leikmenn sem glíma
við meiðsli geti hreinlega haldið út
langt og erfitt mót. Þá hefur þessi
atburðarás með Aron Pálmarsson
ekki hjálpað liðinu en fátt er mik-
ilvægara fyrir landslið en að slípa sig
saman í vináttuleikjum fyrir stór-
mót. Þegar tvo lykilmenn vantar í
báðum leikjunum er það erfitt.
Meiðsli Snorra Steins virðast ekki
síður alvarleg en Guðmundur var
ekki bjartsýnn á að hann tæki neinn
þátt á æfingum fyrr en í fyrsta lagi
þegar til London væri komið. „Hann
getur ekki gripið boltann,“ sagði
Guðmundur um sinaskeiðabólguna
sem Snorri glímir við. Hann hefur
verið einn allra mikilvægasti leik-
maður liðsins í sóknarleiknum und-
anfarin ár og yrði mikil eftirsjá að
honum færi allt á versta veg.
Þá má ekki gleyma því að Guðjón
Valur Sigurðsson hefur átt við
meiðsl að stríða og ekki langt síðan
hann fór að æfa aftur. Hann hefur þó
sýnt það í gegnum árin að fátt fær
stöðvað þennan mikla keppnismann.
Leikmenn eru þó reynslunni rík-
ari frá síðustu leikum og ætti það, ef
vel er farið með, að hjálpa liðinu.
Þeir vita hvað þarf til og hvernig
skal ná í úrslitaleikinn. Það er því
alls ekki allt svart eins og kann að
virðast við lestur þessarar greinar.
Fara lemstraðir til London
Meiðsli hrjá lykilleikmenn íslenska liðsins Áhyggjurnar beinast að þeim
frekar en gæðum handboltans Snorri glímir við svæsna sinaskeiðabólgu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kveðjuleikur Guðmundur Þ. Guðmundsson stýrði landsliðinu í síðasta sinn á heimavelli gegn Argentínu í gærkvöld.
Hann kvaðst þó lítið upptekinn af því, enda um nóg að hugsa nokkrum dögum fyrir fyrsta leik á Ólympíuleikum.
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
íþróttir
Reykjavíkurslagur Framarar sóttu þrjú stig á Hlíðarenda í leik þar sem allt gerðist á
tveimur mínútum í seinni hálfleik. Tvö mörk og eitt rautt spjald frá 64. til 66. mínútu. 4
Íþróttir
mbl.is
Rauða spjaldið
fór þrisvar á loft
í fjórum leikjum
Pepsi-deildar
karla í gærkvöld
og viðkomandi
leikmenn verða
allir í banni í 13.
umferðinni sem
er leikin á sunnu-
dag og mánudag.
Brynjar Gauti
Guðjónsson hjá ÍBV var rekinn af
velli eftir tæpa hálfa mínútu gegn
Selfossi, Haukur Páll Sigurðsson
hjá Val um miðjan seinni hálfleik
gegn Fram og Sverrir Ingi Ingason
hjá Breiðabliki í uppbótartíma
gegn ÍA. vs@mbl.is
Þrír í bann eftir
rautt spjald
Sverrir Ingi
Ingason
Aron Pálm-
arsson, landsliðs-
maður í hand-
knattleik, stóðst í
gær lækn-
isskoðun í Kiel í
Þýskalandi, sam-
kvæmt frétta-
tilkynningu sem
HSÍ sendi frá
sér. Þar segir:
„Virðast þeir
læknar sem að málinu hafa komið
sammála um að Aron geti tekið þátt
í Ólympíuleikunum í London 2012.
Aron kemur til landsins í kvöld (í
gærkvöld) og getur tekið þátt í
næstu æfingu landsliðsins sem fer
fram miðvikudag 25. júlí en þá fer
liðið út til London og æfir.“
Aron fer með
til London
Aron
Pálmarsson
Þór/KA náði í
gærkvöld átta
stiga forystu í
Pepsi-deild
kvenna í fótbolt-
anum með naum-
um sigri á botn-
liði KR, 2:1, á
Þórsvellinum á
Akureyri.
Katrín Ás-
björnsdóttir og
Sandra María Jessen komu Þór/KA
í 2:0 á fyrstu 18 mínútunum en eftir
að Anna Garðarsdóttir minnkaði
muninn fyrir KR í byrjun síðari
hálfleiks var Vesturbæjarliðið mun
hættulegra það sem eftir lifði leiks.
Góð markvarsla hjá Chantel Jon-
es gerði útslagið fyrir Akureyr-
arliðið en þó var Lára Einarsdóttir
nærri því að skora þriðja markið
þegar hún skaut í þverslá KR-
marksins. KR er sem fyrr án sigurs
og illa statt á botni deildarinnar.
Breiðablik og Stjarnan geta
minnkað forskot Þórs/KA í fimm
stig á ný í kvöld þegar aðrir leikir
11. umferðar fara fram. vs@mbl.is
Átta stiga for-
ysta Þórs/KA
Sandra María
Jessen
Kaplakriki, vináttulandsleikur karla,
mánudag 23. júlí 2012.
Gangur leiksins: 0:1, 5:1, 8:4, 12:7,
13:8, 15:11, 17:15, 20:15, 29:22.
Mörk Íslands: Ólafur Gústafsson 4,
Alexander Petersson 4, Guðjón Valur
Sigurðsson 4, Vignir Svavarsson,
Ólafur Stefánsson 4/2, Róbert
Gunnarsson 2, Arnór Atlason 2, Ingi-
mundur Ingimundarson 2, Kári Krist-
ján Kristjánsson 1, Ásgeir Örn Hall-
grímsson 1, Bjarki Már Elísson 1.
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmunds-
son 8 (þar af 5 til mótherja), Björg-
vin Páll Gústavsson 5/1 (þar af 2 til
mótherja). Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Argentínu: Federico Fern-
andez 4/1, Guido Riccobelli 3, Fe-
derico Wieyra 3, Andrés Kogovsek 2,
Damián Migueles 2, Gonzalo Carou
2, Sebestián Simonet 2/1, Frederico
Pizzaro 2/1, Mariano Cánepa 2.
Varin skot: Fernando Garcia 6 (þar
af 4 til mótherja), Matias Schulz 4
(þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Hlynur Leifsson og Anton
Gylfi Pálsson. Áhorfendur: 1.200.
Ísland – Argentína 29:22
Ólafur Gústafsson spilaði vel með
íslenska landsliðinu í handknattleik
gegn Argentínu í gær. Ólafur er
fyrir utan Ólympíuhópinn enn sem
komið er en hann er fimmtándi
maðurinn í hópnum. Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari get-
ur því kallað til hans ef einhverjir
heltast úr lestinni vegna meiðsla
eða sökum einhvers annars. Ólafur
sýndi það í gær að hann er tilbúinn
að taka stóra stökkið og því var
landsliðsþjálfarinn svo gott sem
sammála.
„Nú erum við búnir að sjá hann í
alvöru leik. Ég var svo sem búinn
að sjá það fyrr í þessum undirbún-
ingi að hann er búinn að standa sig
mjög vel. Hann hefur vaxið mikið
undanfarið og er framtíðarmaður í
íslenska landsliðinu. Á því er eng-
inn vafi,“ sagði Guðmundur um
Ólaf og frammistöðu hans.
Það er því spurning ef Guð-
mundur væri að velja hópinn núna
hvort ekki væri hreinlega pláss fyr-
ir þessa öflugu skyttu úr Hafn-
arfirði.
Ólafur Gústafsson var ljósið
í „meiðslamyrkrinu“