Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012 Á HLÍÐARENDA Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Framarar byrja seinni helming Ís- landsmótsins vel en þeir lögðu ná- granna sína og erkifjendur í Val, 2:0, í 12. umferð Pepsi-deildarinnar á Hlíðarenda í gærkvöldi. Leikurinn var afskaplega tíðindalítill og lítið fyrir augað en allt gerðist þó á tveggja mínútna kafla í seinni hálf- leik þar sem Framarar skoruðu bæði mörk sín og Haukur Páll Sigurðsson fékk rautt spjald í liði Vals. 45 mínútur af hrotum Fyrri hálfleikurinn á Hlíðarenda í gær var með þeim leiðinlegri sem sést hafa í deildinni í sumar en bæði lið voru greinilega staðráðin í að tapa ekki leiknum. Framarar voru þó ívið betri og stjórnuðu leiknum en gest- irnir úr Safamýrinni fengu mikið af hálffærum í gegnum hornspyrnur og föst leikatriði. Valsmenn aftur á móti gátu varla sent boltann á milli manna en þeir voru ekki nema svipur hjá sjón miðað við frammistöðuna sem þeir buðu upp á gegn FH í síðustu umferð. Hlíðarendapiltar eru ennþá í eitt/ kalt-pakkanum og virðast ætla að vera þannig í allt sumar. Þegar flautað var til hálfleiks var klappað. Ekki þó fyrir leikmönnum heldur fyrir því að fá fimmtán mín- útna hlé frá leiknum. Fótboltaleikur sem býður upp á tvö mörk og rautt spjald þykir vana- lega ekki tíðindalítill en Valur og Fram kreistu það allt saman í fjör- ugan tveggja mínútna pakka. Á 64. mínútu dæmdi Gunnar Jarl Jónsson, dómari leiksins, vítaspyrnu á Halldór Kristin Halldórsson þegar hann fékk boltann í höndina eftir skot Halldórs Hermanns Jónssonar. Óviljandi, en réttur dómur. Sam Tillen skoraði úr vítinu og Valsmenn þurftu því eðlilega að taka miðju. Heimamenn voru aftur á móti sofandi því Steven Lennon, sem átti mjög góðan leik, hirti af þeim boltann og tók stefnuna að marki Vals en Haukur Páll tæklaði hann illa og fékk réttilega rautt spjald. Haukur er fastur leikmaður en vanalega heið- arlegur. Þetta var ekki honum líkt. Lennon fær plús í kladdann Steven Lennon gerði sér lítið fyrir og skoraði beint úr aukaspyrnunni sem dæmd var á Hauk, 2:0, og kór- ónaði þar með flotta frammistöðu. Lennon hafði verið mikið í um- ræðunni fram að leiknum og í mjög neikvæðu ljósi. Skotinn tók aftur á móti fagmannlega á málum og átti einn af sínum betri leikjum í sumar. Það hefur oft verið auðvelt að gagnrýna Lennon en fyrir þennan leik og þessa frammistöðu eftir allt sem á undan er gengið fær hann plús í kladdann. Morgunblaðið/Kristinn Minn bolti Valsmaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson vinnur boltann með góðri tæklingu en Framarinn Almarr Ormarsson gerir sig kláran í baráttuna. Heill leikur á 2 mínútum  Framarar afgreiddu Val með tveimur mörkum á tveimur mínútum  Haukur Páll fékk rautt fyrir ljóta tæklingu  Hvorugt liðið gert jafntefli Vodafonevöllur, Pepsi-deild karla, 12. umferð, mánudag 23. júlí 2012. Skilyrði: Sól en nokkur vindur. Skot: Valur 3 (2) – Fram 13 (6). Horn: Valur 3 – Fram 12. Lið Vals: (4-3-3) Mark: Ólafur Þ. Gunnarsson. Vörn: Jónas Tór Næs, Halldór K. Halldórsson, Atli S. Þór- arinsson, Matarr Jobe. Miðja: Hauk- ur P. Sigurðsson, Rúnar M. Sig- urjónsson, Kristinn F. Sigurðsson. Sókn: Ásgeir Þ. Ingólfsson (Kolbeinn Kárason 61.), Hörður Sveinsson (Andri F. Stefánsson 69.), Guðjón P. Lýðsson (Úlfar H. Pálsson 69.) Lið Fram: (4-4-2) Mark: Ögmundur Kristinsson. Vörn: Almarr Orm- arsson, Kristján Hauksson, Alan Lowing, Sam Tillen. Miðja: Ásgeir G. Ásgeirsson, Jón Gunnar Eysteins- son, Halldór Hermann Jónsson, Sam Hewson. Sókn: Steven Lennon, Sveinbjörn Jónasson (Orri Gunn- arsson 90.). Dómari: Gunnar Jarl Jónsson – 8. Áhorfendur: 1.132. Valur – Fram 0:2 FÆRI 13. Steven Lennongaf fyrir markið og missti Ólafur Þór Gunnarsson, markvörður Vals, af boltanum. Sam Hewson var of lengi að átta sig á fjærstönginni, annars hefði hann getað skallað boltann í tómt netið. FÆRI 43. Sam Hewsonvar í góðu skallafæri en Atli Sveinn náði að trufla hann með góðum varnarleik. Samt sem áður sleikti boltinn utanverða stöngina og Ólafur var sigraður í markinu. FÆRI 49. Valur fékk auka-spyrnu á vítateigs- línunni vinstra megin. Rúnar Már Sigurjónsson náði að koma bolt- anum yfir vegginn og skrúfaði bolt- ann í samskeytin en Ögmundur var mættur í hornið og varði glæsilega. VÍTI 64. Halldór Hermannátti skot að marki Vals sem Halldór Kristinn Halldórsson fékk í höndina er hann lá í grasinu. Gunnar Jarl benti rakleiðis á punkt- inn við mikla óánægju Valsmanna 0:1 64. Úr vítinu skoraði bak-vörðurinn Sam Tillen af miklu öryggi. I 65. Steven Lennon stal bolt-anum af Valsmönnum eftir að þeir tóku miðju og tók á rás að marki Vals. Haukur Páll Sigurðs- son tæklaði hann aftan frá og var réttilega sendur af velli með beint rautt spjald. 0:2 66.Úr aukaspyrn- unni sem dæmd var á Hauk Pál skoraði Ste- ven Lennon með fallegu skoti. FÆRI 82. Steven Lennongaf boltann inn fyrir vörnina á Sam Hewson sem skaut úr þröngu færi en Ólafur Þór varði í markinu. I Gul spjöld:Guðjón (Val) 30. (Peysutog), Halldór (Fram) 36. (brot), Jónas Tór (Val) 63. (peysutog), Rúnar Már (Val) 77. (brot). MMM Enginn. MM Steven Lennon (Fram). M Atli Sveinn Þórarinsson (Val) Rúnar Már Sigurjónsson (Val) Kristján Hauksson (Fram) Sam Tillen (Fram) Sam Hewson (Fram)  Jónas Tór Næs, færeyski lands- liðsmaðurinn, spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val í sumar eftir að hann kom aftur til liðsins.  Eftir leikinn tjáði Þorvaldur Ör- lygsson mbl.is að Steven Lennon yrði áfram hjá Fram á meðan hann væri þjálfari.  Hvorki Valur né Fram hafa enn gert jafntefli í deildinni eftir 12 um- ferðir í sumar. Þetta gerðist á Hlíðarenda Steven Lennon það er Akvile Stapusaityte frá Litháen sem er í 94. sæti heimslistans. Hún er 26 ára og hefur hæst náð 89. sæti á heimslistanum. Stapusaityte keppti á Iceland Int- ernational-mótinu í nóvember síðastliðnum og tapaði þá fyrir Rögnu í oddalotu í úrslitaleik. Ragna hafði þríveg- is áður unnið hana. Sigurvegari riðilsins mun væntanlega mæta Sainu Nehwael frá Indlandi í 16 manna úrslitum en hún er talin 4. besti keppandinn á leikunum. Ragna hélt til London í gærmorgun ásamt þjálfara sínum Jonas Huang en þetta eru hennar aðrir Ólympíu- leikar. Keppni í badminton hefst á laugardag en ekki liggur fyrir hvenær leikir Rögnu verða. sindris@mbl.is Badmintondrottningin Ragna Ingólfsdóttir getur verið ánægð með riðilinn sem hún leikur í á Ólympíu- leikunum í London sem hefjast um helgina. Nýbreytni er að keppt sé í riðlum en dregið var í sextán riðla og mun sigurvegari hvers þeirra komast í sextán manna úrslitin. Sextán bestu keppendunum var raðað í riðlana og lenti Ragna í riðli með þeirri 14. bestu samkvæmt þeirri röð, Yao Jie frá Hollandi. Jie, sem er 35 ára og kínversk að uppruna, hefur hæst náð 8. sæti á heimlista árið 2010 en er nú í 20. sæti þar. Ragna er í 81. sæti. Þekkir þá litháísku vel Þriðji keppandinn í F-riðli er Rögnu að góðu kunn en Morgunblaðið/Kristinn London Ragna Ingólfsdóttir þekkir annan mótherjanna í London ansi vel. Ragna hafði heppnina með sér

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.