Morgunblaðið - 24.07.2012, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2012
Í EYJUM
Júlíus G. Ingason
sport@mbl.is
Ekkert annað en fallslagurinn
blasir við Selfyssingum í haust ef
fram heldur sem horfir. Í gær
voru þeir í dauðafæri á að sækja
stig á einn erfiðasta heimavöll
deildarinnar þegar þeir sóttu ÍBV
heim á Hásteinsvöllinn enda léku
þeir manni fleiri í 93 mínútur af
94. En það voru Eyjamenn sem
réðu lögum og lofum á vellinum og
unnu verðskuldaðan sigur. Þrátt
fyrir yfirburði ÍBV var aðeins eitt
mark sem skildi að undir lokin og
lokatölur 1:0.
Það bjuggust allir við því að
rauða spjaldið á fyrstu mínútu
leiksins yrði mikið áfall fyrir Eyja-
menn en dómurinn var líklega
réttur hjá ágætum dómurum leiks-
ins.
Maður hefðu ætlað að lið sem er
að berjast fyrir lífi sínu í deildinni,
myndi láta sverfa til stáls einum
fleiri eftir aðeins tæplega mínútu
leik. Reyndar er það vel þekkt að
lið sem lenda manni undir eflast
oft við mótlætið og það var ná-
kvæmlega sem gerðist á Hásteins-
velli í gær. Eyjamenn hreinlega
unnu enn betur inni á vellinum,
sérstaklega miðjumenn liðsins og
fremstur í flokki fór miðjumað-
urinn George Baldock, sem hefur
sprengikraft á við góða tívolí-
bombu á þjóðhátíð. Selfyssingar
réðu í raun og veru ekkert við
hraðann á Eyjaliðinu.
Það var í raun átakanlegt að
horfa á Selfossliðið í fyrri hálfleik
því liðið átti aðeins eitt skot að
marki ÍBV, skot Jóns Daða Böðv-
arssonar beint úr aukaspyrnu á
þriðju mínútu eftir rauða spjaldið.
Annað var það ekki og andleysið
var algjört.
Logi Ólafsson, þjálfari liðsins,
hefur eitthvað náð til sinna leik-
manna í hálfleik því allt annað var
að sjá til Selfyssinga í síðari hálf-
leik. Reyndar voru Eyjamenn
áfram sterkari aðilinn en um tíma
náðu Selfyssingar ágætis pressu á
Eyjaliðið í síðari hálfleik og vantaði
ekki mikið upp á að brjóta ísinn.
Það er hins vegar áhyggjuefni fyrir
Erfitt haust á Se
Sjötti sigur Eyjamanna í röð Léku sam
mínútur af 94 Slakir útlendingar áhyggj
I 1. Arnór Eyvar Ólafsson áttierfiða sendingu á Brynjar Gauta
Guðjónsson, samherja sinn í vörninni.
Sóknarmaðurinn Viðar Örn Kjart-
ansson komst inn í sendinguna og var að
sleppa framhjá Brynjari þegar Brynjar
hljóp hann niður. Beint rautt og líklega
réttur dómur.
VÍTI? 16 Tonny Mawejje vannskallaeinvígi gegn Ro-
bert Sandnes og um leið skullu þeir
saman þannig að Úgandamaðurinn lá
eftir inni í vítateig. Þorvaldur Árnason,
dómari dæmdi ekki víti.
FÆRI 17. Abel Dhaira spark-aði langt út, alla leið í
vítateig Selfyssinga þar sem miðvörð-
urinn Andre Ove Brenne missti boltann
yfir sig og Christi-
an Olsen skaut
viðstöðulaust frá
vítateigslínunni en
rétt framhjá.
1:0 25. Eyja-menn
tóku stutta horn-
spyrnu, Tryggvi
Guðmundsson
sendi á Guðmund
Þórarinsson sem
sendi fyrir mark
Selfyssinga, beint í lappirnar á Rasmus
Christiansen, sem skoraði af stuttu
færi.
FÆRI 35. Enski miðjumað-urinn George Baldock
lét vaða af um 20 metra færi en naum-
lega framhjá samskeytunum.
FÆRI 63. Viðar Örn Kjart-ansson hafði heppnina
með sér í baráttu við Matt Garner en
Viðar fékk boltann eftir klafs og skaut
að marki en Abel Dhaira varði vel.
FÆRI 74. Upp úr hornspyrnuSelfyssinga, náðu Eyja-
menn flottri skyndisókn. Christian Ol-
sen sendi á George Baldock sem virtist
vera sloppinn í gegn en fyrsta snerting
Englendingsins var arfaslök og mark-
vörður Selfyssinga náði boltanum.
I Gul spjöld:Sigurður (Selfossi), 20. (brot),
Brenne (Selfossi), 28. (brot), Kjartan
(Selfossi), 64. (brot), Sandnes (Selfossi),
79. (brot), Tómas (Selfossi), 90. (mót-
mæli).
MMM
Enginn.
MM
George Baldock (ÍBV)
M
Rasmus Christiansen (ÍBV)
Matt Garner (ÍBV)
Guðmundur Þórarinsson (ÍBV)
Tryggvi Guðmundsson (ÍBV)
Christian Steen Olsen (ÍBV)
Jón Daði Böðvarsson (Selfossi)
Viðar Örn Kjartansson (Selfossi)
Jon André Brenne (Selfossi)
Miðjumaðurinn Gunnar Már Guð-
mundsson var ekki í leikmannahópi ÍBV
í gær en meiðsli í hné hafa tekið sig upp
að nýju hjá Gunnari. Meiðslin komu í
veg fyrir að Gunnar spilaði fyrstu fimm
leiki ÍBV liðsins.
Það er ekki á hverjum degi sem leik-
maður fær að líta rauða spjaldið áður en
ein mínúta er liðin en það afrekaði
Brynjar Gauti Guðjónsson í leiknum
gegn Selfossi í gær. Það má því segja að
Brynjar Gauti missi af tveimur leikjum
ÍBV, hann fer sjálfkrafa í leikbann fyrir
næsta leik ÍBV og missti þar að auki
nánast af öllum leiknum gegn Selfyss-
ingum.
Myndbandsviðtöl má sjá við þá Loga
Ólafsson, Magnús Gylfason, Jón Daða
Böðvarsson og Tryggva Guðmundsson
á mbl.is/sport.
Þetta gerðist í Vestmannaeyjum
Rasmus
Christiansen
FÆRI 19. Andri Adolphssonátti frábæran sprett sem
byrjaði á því að hann fór auðveldlega
framhjá Þórði við miðlínuna. Andri kom
sér svo inn í teiginn og fór til hægri það-
an sem hann skaut með hægri fæti lausu
skoti sem Ingvar varði. Andri náði frá-
kastinu og átti þá skot sem virtist fara í
hönd Sverris Inga, en hann var með
höndina þétt upp að sér.
FÆRI 76. Theodore Furnessvar nýkominn inná sem
varamaður þegar hann slapp aleinn
gegn Ingvari markverði en Ingvar varði
mjög vel í tvígang.
0:1 87. ÁrniVil-
hjálmsson var bú-
inn að vera inná í
um 9 mínútur þeg-
ar hann kom með
boltann inn í teig-
inn vinstra megin
og spyrnti neðst í
vinstra markhorn-
ið.
1:1 90. Víta-spyrna var
dæmd þegar Rafn Andri braut á Andra
Adolphssyni innan vítateigs Blika. Jó-
hannes Karl Guðjónsson þrumaði úr vít-
inu efst í vinstra markhornið.
I 90. Sverrir Ingi Ingason fékk aðlíta sitt annað gula spjald og þar
með rautt fyrir að ýta við leikmanni ÍA
þegar Skagamenn reyndu að hrifsa af
honum boltann eftir mark Jóhannesar,
til að fara með boltann að miðju svo leik-
ur hæfist sem fyrst að nýju.
I Gul spjöld:Arnar Már (ÍA) 19. (brot), Elfar
Árni (Breiðabliki) 34. (brot), Martin (ÍA)
48. (brot), Finnur (Breiðabliki) 55.
(brot), Sindri Snær (Breiðabliki) 56.
(leikaraskapur), Sverrir (Breiðabliki) 65.
(brot), Eggert (ÍA) 90. (hrinding).
MM
Enginn.
M
Ármann Smári Björnsson (ÍA)
Kári Ársælsson (ÍA)
Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)
Andri Adolphsson (ÍA)
Ingvar Þór Kale (Breiðabliki)
Sverrir Ingi Ingason (Breiðabliki)
Renee Troost (Breiðabliki)
Kristinn Jónsson (Breiðabliki)
Ben J. Everson nýr sóknarmaður
Breiðabliks sem kom frá Tindastóli gat
ekki spilað sinn fyrsta leik vegna
meiðsla.
Þetta gerðist á Akranesvelli
Árni
Vilhjálmsson
Akranesvöllur, Pepsi-deild karla, 12.
umferð, mánudag 23. júlí 2012.
Skilyrði: Hvass hliðarvindur og skýj-
að. Völlurinn flottur.
Skot: ÍA 13 (9) – Breiðablik 14 (4).
Horn: ÍA 5 – Breiðablik 8.
Lið ÍA: (4-4-2) Mark: Árni Snær
Ólafsson. Vörn: Einar Logi Einarsson,
Ármann Smári Björnsson, Kári Ár-
sælsson, Guðjón H. Sveinsson. Miðja:
Dean Martin (Theodore Furness 75.),
Arnar Már Guðjónsson, Jóhannes Karl
Guðjónsson, Andri Adolphsson. Sókn:
Jón Vilhelm Ákason (Ólafur Valur
Valdimarsson 75.), Garðar B. Gunn-
laugsson (Eggert Kári Karlsson 82.).
Lið Breiðabliks: (4-3-3) Mark: Ingvar
Þór Kale. Vörn: Þórður Steinar Hreið-
arsson (Haukur Baldvinsson 67.),
Sverrir Ingi Ingason, Renee Troost,
Kristinn Jónsson. Miðja: Sindri Snær
Magnússon (Árni Vilhjálmsson 79.),
Andri Rafn Yeoman (Rafn Andri Har-
aldsson 72.), Finnur Orri Margeirs-
son. Sókn: Gísli Páll Helgason, Elfar
Árni Aðalsteinsson, Tómas Óli Garð-
arsson.
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson – 6.
Áhorfendur: Á að giska 1.100.
ÍA – Breiðablik 1:1
Á AKRANESI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ég ætlaði bara að fara að skjóta bolt-
anum og var svo sparkaður niður, inn-
an teigs, þannig að það hlýtur að vera
víti. Mér fannst að við hefðum líka átt
að fá víti í fyrri hálfleiknum þegar ég
sparkaði boltanum í höndina á varn-
armanni, og þá hefði þetta kannski
orðið opnari leikur,“ sagði Andri
Adolphsson, einn af aðalleikurunum í
hádramatískum lokakafla leiks ÍA og
Breiðabliks á Akranesi í gærkvöldi.
Ekki er hægt að tala um að þessi
lokakafli hafi verið rúsínan í pylsu-
endanum. Rúsínan var borin fram ein
og sér í þetta sinn því leikurinn var af-
ar tíðindalítill þar til á síðasta kort-
erinu þegar varamenn hleyptu miklu
lífi í hann. Árni Vilhjálmsson kom
Blikum yfir rétt fyrir leikslok eftir að
hafa verið inná í nokkrar mínútur en
Jóhannes Karl Guðjónsson jafnaði
metin í uppbótartíma úr vítinu sem
Andri fiskaði. Áður hafði Theodore
Furness svo klúðrað dauðafæri einn
gegn markverði í sínum fyrsta leik
eftir að hafa komið frá Tindastóli.
„Við fengum gott færi til að komast
yfir rétt áður en þeir skoruðu en úr
því sem komið var erum við sáttir við
þessi úrslit. Það hefði verið sætt ef
Furness hefði skorað úr sinni fyrstu
snertingu en svona er þetta,“ sagði
Andri sem var besti maður leiksins.
Hann var ánægður með spilamennsku
ÍA í fyrsta leik eftir brotthvarf Bret-
anna Gary Martin og Mark Doninger.
Þeim sem þetta skrifar fannst reynd-
ar að liðið hefði verið mun beinskeytt-
ara með Martin frammi í gær í stað
Garðars Gunnlaugssonar sem hafði
hægt um sig.
Látunum var ekki lokið eftir mörk-
in tvö því eftir jöfnunarmark ÍA fór
rauða spjaldið á loft. Skagamenn
gengu harkalega fram við að ná bolt-
anum af Ingvari Kale til að geta hafið
leik strax eftir markið, og þaðan barst
hann til Blikans unga Sverris Inga
sem fékk sitt annað gula spjald.
„Þetta eru gríðarlega mikil von-
brigði. Við vorum með leikinn í hönd-
um okkar en misstum hann út af
þessu víti í lokin. Það sem ég skil ekki
er ákvörðun línuvarðar um að dæma
innkast í aðdragandum að vítinu sem
var algjörlega fáránlegt. Þeir áttu
aldrei að fá þetta innkast,“ sagði
Sverrir svekktur yfir rauða spjaldinu.
„Þeir voru búnir að vera að slást við
Kale, ýtandi við honum og eitthvað.
Boltinn kom til mín og þá kemur
Skagamaðurinn og ýtir mér, og ég ýti
honum til baka og ætla að koma bolt-
anum á miðjuna. Þá kemur dómarinn
bara og spjaldar mig og segir mér að
koma mér út af, án útskýringa.“
Rúsínan borin
fram ein og sér
Tvö mörk og rautt á lokamínútunum
Morgunblaðið/Ómar
Jafnaði Jóhannes Karl skoraði af
miklu öryggi úr víti í uppbótartíma.
Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla, 12.
umferð, mánudag 23. júlí 2012.
Skilyrði: Hæg gola, 13 stiga hiti og
sól. Völlurinn mjúkur og góður eftir
rigningu daginn áður.
Skot: ÍBV 18 (9) – Selfoss 5 (5).
Horn: ÍBV 8 – Selfoss 3.
Lið ÍBV: (4-5-1) Mark: Abel Dhaira.
Vörn: Arnór Eyvar Ólafsson, Brynjar
Gauti Guðjónsson, Rasmus Christian-
sen, Matt Garner. Miðja: Tonny Ma-
wejje (Andri Ólafsson 76.), George
Baldock, Guðmundur Þórarinsson,
ÍBV – Selfo
Pepsi-deild karla
Úrvalsdeildin, 12. umferð:
ÍBV – Selfoss ............................................ 1:0
Rasmus Christiansen 25. Rautt spjald:
Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV) 1.
Keflavík – Fylkir ..................................... 0:2
Jóhann Þórhallsson 76., Ingimundur Níels
Óskarsson 88.
ÍA – Breiðablik......................................... 1:1
Jóhannes Karl Guðjónsson 90. (víti) – Árni
Vilhjálmsson 87. Rautt spjald: Sverrir Ingi
Ingason (Breiðabliki) 90.
Valur – Fram............................................ 0:2
Samuel Tillen 64. (víti), Steven Lennon 66.
Rautt spjald: Haukur Páll Sigurðsson (Val)
65.
Staðan:
KR 12 7 3 2 24:15 24
FH 11 7 2 2 29:12 23
Stjarnan 12 5 6 1 25:19 21
ÍBV 11 6 2 3 21:11 20
Fylkir 12 5 4 3 16:19 19
ÍA 12 5 3 4 19:23 18
Breiðablik 12 4 4 4 10:14 16
Keflavík 12 4 3 5 19:18 15
Valur 12 5 0 7 16:17 15
Fram 12 4 0 8 15:19 12
Selfoss 12 2 2 8 13:25 8
Grindavík 12 1 3 8 15:30 6
Markahæstir:
Björn Daníel Sverrisson, FH ..................... 7
Kjartan Henry Finnbogason, KR.............. 6
Christian Olsen, ÍBV................................... 6
Atli Guðnason, FH ...................................... 6
Ingimundur N. Óskarsson, Fylki .............. 6
Pepsi-deild kvenna
Úrvalsdeildin, 11. umferð:
Þór/KA – KR............................................ 2:1
Katrín Ásbjörnsdóttir 9., Sandra María
Jessen 18. – Anna Garðarsdóttir 53.
Staðan:
Þór/KA 11 9 1 1 30:11 28
Breiðablik 10 6 2 2 26:10 20
Stjarnan 10 6 2 2 27:12 20
ÍBV 10 6 1 3 26:14 19
Valur 10 5 1 4 22:12 16
FH 10 3 2 5 15:23 11
Fylkir 10 3 2 5 11:20 11
Afturelding 10 2 2 6 9:22 8
Selfoss 10 2 2 6 16:45 8
KR 11 0 3 8 10:23 3
Markahæstar:
Sandra María Jessen, Þór/KA ................. 12
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni............ 9
Rakel Hönnudóttir, Breiðabliki ................. 8
Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki .......... 7
Ashley Bares, Stjörnunni ........................... 7
Danka Podovac, ÍBV................................... 7
Danmörk
AGF – Esbjerg ......................................... 0:0
Aron Jóhannsson lék fyrstu 73 mínút-
urnar með AGF.
Arnór Smárason kom inná hjá Esbjerg á
74. mínútu.
Staðan:
SønderjyskE 2 1 1 0 7:2 4
København 2 1 1 0 5:3 4
AaB 2 1 1 0 3:2 4
Nordsjælland 2 1 0 1 5:3 3
Midtjylland 2 1 0 1 5:5 3
OB 2 1 0 1 1:1 3
Silkeborg 2 1 0 1 3:4 3
Horsens 2 1 0 1 2:4 3
Randers 2 1 0 1 2:6 3
AGF 2 0 2 0 1:1 2
Esbjerg 2 0 1 1 2:3 1
Brøndby 2 0 0 2 1:3 0
Noregur
Rosenborg – Lilleström .......................... 1:1
Pálmi Rafn Pálmason lék í 79 mínútur
með Lilleström en Stefán Logi Magnússon
var varamarkvörður liðsins.
Staða efstu liða:
Strömsgodset 16 11 2 3 33:20 35
Molde 16 10 1 5 29:18 31
Rosenborg 16 7 8 1 26:14 29
Haugasund 16 6 7 3 23:15 25
Vålerenga 16 7 3 6 22:21 24
Hönefoss 15 6 6 3 15:14 24
Tromsö 15 6 5 4 25:19 23
Brann 16 7 1 8 30:25 22
Svíþjóð
Norrköping – Djurgården...................... 1:1
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan
leikinn með Norrköping.
GAIS – Malmö .......................................... 2:3
Staða efstu liða:
Elfsborg 16 11 1 4 27:14 34
Malmö 16 9 4 3 30:20 31
Helsingborg 16 7 7 2 21:15 28
AIK 16 7 6 3 19:16 27
Häcken 16 8 2 6 34:21 26
Norrköping 16 7 4 5 24:29 25
Åtvidaberg 16 7 3 6 32:24 24
Sundsvall 16 5 5 6 21:20 20
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Meistaradeild, 2. umferð, seinni leikur:
KR-völlur: KR – HJK Helsinki........... 19.15
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – FH ........................ 18
Varmárvöllur: Afturelding – Breiðabl 19.15
Selfossvöllur: Selfoss – Valur.............. 19.15
Samsungvöllur: Stjarnan – Fylkir...... 19.30
Í KVÖLD!