Morgunblaðið - 22.08.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
FRÉTTASKÝRING
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það kæmi mér bara ekkert á
óvart ef Jóhanna ákveður að vera
áfram. Hún hefur verið farsæll
formaður, ríkisstjórninni hefur
gengið vel í þeim verkefnum sem
hún hefur ætlað sér að leysa og
efnahagslífið er á uppleið,“ segir
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður
Samfylkingar, en flokksstjórnar-
fundur Samfylkingarinnar verður
haldinn á Hótel Natura næstkom-
andi laugardag.
Á fundinum mun Jóhanna Sig-
urðardóttir, forsætisráðherra og
formaður flokksins, flytja ávarp og
kann hún að nýta tækifærið til að
tilkynna hvort hún gefi áfram kost
á sér til formennsku.
Ólína bendir á að mjög erfitt sé
að segja fyrir um hvort Jóhanna
hafi í hyggju að gegna áfram stöðu
formanns og þá er alls óvíst hvort
hún tilkynni yfir höfuð ákvörðun
sína á fundinum. „Það getur vel
verið að eftir fundinn ætli hún
sjálf að meta það hvort hún gefi
áfram kost á sér eða ekki,“ segir
Ólína.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
þingmaður Samfylkingar, telur lík-
legt að Jóhanna gefi upp ákvörðun
sína á fundinum. „Vegna þess að
framundan er prófkjör svo hún
hlýtur að taka af skarið,“ segir
Sigmundur en prófkjör verða hald-
in í haust.
ESB ekki rætt sérstaklega
Að venju eru ýmis mál til um-
ræðu á komandi flokksstjórnar-
fundi en aðalumræðuefnið eru
reglur um aðferðir við val á fram-
boðslista og aðgerðaáætlun í mál-
efnum ungs fólks. Líkt og hjá
Vinstrihreyfingunni – grænu fram-
boði, sem heldur flokksráðsfund
þessa sömu helgi, stendur ekki til
að ræða sérstaklega aðildarum-
sókn Íslands að Evrópusamband-
inu. Fundarmönnum mun þó gef-
ast kostur á að ræða um stöðu
stjórnmála og kosningavorið sem
framundan er. „Það kæmi mér
ekkert á óvart ef einhver umræða
yrði um Evrópusambandsmálin,
sjávarútvegsmálin og almennt um
stöðuna í stjórnmálum. Ætli ár-
angurinn af stjórnarsamstarfinu
verði ekki til umræðu líka,“ segir
Ólína.
Napur kosningavetur
Hún segist eiga von á því að vet-
urinn sem framundan er í stjórn-
málum verði harður og metur hún
það að fenginni reynslu af stjórn-
arandstöðunni.
„Nógu erfitt var að halda þeim í
málefnanlegri umræðu þótt kosn-
ingaskjálfti bætist ekki við,“ segir
hún og bendir á að þingmenn
stjórnarflokkanna séu fullir sjálfs-
trausts og stefni á góða kosningu í
vor. „Við sjáum þann árangur sem
ríkisstjórnin hefur náð og við ætl-
um ekkert að þegja yfir þeim ár-
angri.“
Mikilvægari mál til en ESB
Róbert Marshall, þingmaður
Samfylkingar, segist vonast til
þess að komandi mánuðir verði
málefnalegir í stjórnmálum.
„Ég held að störf þingsins hafi
valdið mörgum mjög miklum von-
brigðum og okkur tókst ekki að
vera málefnanleg,“ segir Róbert
en hann segir jafnframt alla
stjórnmálamenn hljóta að átta sig
á því að almenningur kallar nú eft-
ir vandaðri og uppbyggilegri um-
ræðu á þingi.
„Ég vonast eftir því að meiri
náungakærleikur svífi yfir vötnum
á þessum kosningavetri.“
Ýmsir forystumenn í röðum
Vinstri grænna hafa að undan-
förnu stigið fram og mælst til þess
að aðildarumsóknin verði endur-
skoðuð. Róbert segir slíka umræðu
vera sjálfsagða enda staða sam-
bandsins að mörgu leyti óljós og
ekki fyrirséð um þróun þess. Hann
telur þó ekki neina ástæðu til þess
að slíta viðræðum á þessu stigi
málsins.
„Það er þó mjög mikilvægt fyrir
samfylkingarfólk að muna að inn-
ganga í Evrópusambandið er ekki
eina stefnumál okkar,“ segir Ró-
bert og bætir við að jafnaðarstefn-
an hljóti að vera ofar aðild.
Spurður hvort hann eigi von á
að Jóhanna tilkynni ákvörðun sína
til embættis formanns segir Ró-
bert: „Mér þætti það mjög líklegt
að hún gæfi eitthvað slíkt til
kynna.“
Ætla ekki að þegja yfir árangri
Þingmenn innan Samfylkingarinnar telja líklegt að Jóhanna gefi upp afstöðu sína til formennsku um
helgina Harður kosningavetur framundan Almenningur sagður kalla eftir vandaðri umræðu
Morgunblaðið/Eggert
Fundarhöld Talsverð spenna ríkir um ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Samtals voru tólf manns ákærðir í
kjölfar mótmæla vörubílstjóra vor-
ið 2008 og hinnar svokölluðu „bús-
áhaldabyltingar“ í ársbyrjun 2009,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Tveir menn voru ákærðir í kjöl-
far vörubílstjóramótmælanna, ann-
ar fyrir að kasta grjóti í andlit lög-
reglumanns á Suðurlandsvegi og
hinn fyrir að ráðast á lögreglu-
mann við Kirkjusand. Sá fyrr-
nefndi fékk þriggja mánaða skil-
orðsbundinn dóm til tveggja ára en
sá hinn síðarnefndi fékk sex mán-
aða dóm, en af þeim voru fjórir
mánuðir skilorðsbundnir.
Mótmæli vörubílstjóra stóðu yfir
í sex daga vorið 2008, frá 27. mars
til 4. apríl, og svo aftur í þrjá daga,
frá 23. til 25. apríl, en með þeim
vildu vörubílstjórar meðal annars
mótmæla háu eldsneytisverði og
vökulögum. Þá má ætla að sam-
félagslegur kostnaður vegna mót-
mælanna hafi verið þónokkur en
samkvæmt útreikningum frá fram-
kvæmda- og eignasviði Reykjavík-
urborgar sem birtust í Morg-
unblaðinu þann 4. apríl 2008 var
samfélagslegur kostnaður vegna
mótmælanna, og þeirra umferð-
artafa sem þeim fylgdu, ekki undir
31,4 milljónum króna.
„Búsáhaldabyltingin“
Í kjölfar hinnar svokölluðu „bús-
áhaldabyltingar“, sem stóð yfir frá
11. október 2008 til 31. janúar 2009
voru tíu manns ákærðir. Annars
vegar var um að ræða mál hinna
svokölluðu níumenninga og hins
vegar er um að ræða mál manns
sem ákærður var fyrir að skemma
öryggismyndavél á Alþingi þann
13. janúar 2009.
Þá var fimm aðilum gert að
greiða sekt fyrir brot gegn lög-
reglusamþykkt. Af þessum fimm
var einn handtekinn við ráð-
herrabústaðinn þann 8. nóvember
2008, þrír við Hótel Borg í
tengslum við hin svokölluðu
„Kryddsíldarmótmæli“ og einn við
Alþingishúsið þann 20. janúar 2009.
Erfitt að ná brotamönnum
„Ýmsu var kastað í Alþing-
ishúsið og lögreglumenn og í tveim
til þremur tilvikum slösuðust lög-
reglumenn. Slíkt er að sjálfsögðu
refsiverð háttsemi og hefðum við
náð til þeirra sem um ræðir þá
hefðu þeir að sjálfsögðu þurft að
gjalda fyrir það með refsiábyrgð
sinni, þ.e. annaðhvort með sekt eða
ákæru,“ segir Jón H.B. Snorrason,
aðstoðarlögreglustjóri hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu, og
bætir við: „En í þessu ástandi sem
allir þekkja þá átti lögreglan fullt í
fangi með að verja Alþingishúsið
og hafa hemil á þessu öllu saman.
Þetta var hvað magnaðast undir
miðnætti þegar var dimmt og
rökkvað og var erfitt að átta sig á
því hverjir voru ábyrgir fyrir að
kasta.“
Aðspurður hvort lögreglan hafi
lært eitthvað af þessum mótmæl-
um, þ.e. hvort hún sé nú reynsl-
unni ríkari, segir Jón svo vera.
„Auðvitað var þetta einstakt og
skilur eftir sig mikla reynslu en
það má ekki gleyma því að þarna
voru þúsundir mótmælenda á
hverjum einasta degi og þetta var
lögreglulið sem telur einungis örfá
hundruð þannig að þetta var gríð-
arlega erfitt verkefni,“ segir Jón.
Morgunblaðið/Golli
Mótmæli við Alþingishúsið Lögreglumenn áttu fullt í fangi með að
verja Alþingishúsið í því ástandi sem einkenndi „búsáhaldabyltinguna“.
Morgunblaðið/Júlíus
Vörubílstjórar mótmæla Langar bílaraðir mynduðust þegar vörubílstjórarnir
stöðvuðu bíla sína í Ártúnsbrekku. Tafirnar voru samfélaginu dýrar.
Tólf mótmælendur ákærðir
Samtals voru 12 manns ákærðir í kjölfar „vörubílstjóramótmælanna“ og
„búsáhaldabyltingarinnar“ Fleiri hefðu verið ákærðir ef til þeirra hefði náðst
Mótmæli
» Tveir menn voru ákærðir í
kjölfar vörubílstjóramótmæl-
anna vorið 2008.
» Tíu aðilar voru ákærðir í
kjölfar „búsáhaldabylting-
arinnar“.
» Að sögn Jóns H.B. Snorra-
sonar, aðstoðarlögreglustjóra
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, hefðu fleiri verið
ákærðir ef til þeirra hefði
náðst.
Innheimta geng-
islána var rædd
á fundi ríkis-
stjórnarinnar í
gær og segir Ög-
mundur Jónas-
son, sem starfað
hefur sem efna-
hags- og við-
skiptaráðherra í
fjarveru Stein-
gríms J. Sigfús-
sonar, það vera eindregna niður-
stöðu ríkisstjórnar að hraða beri
öllum fordæmisgefandi dómsmál-
um sem að snúa að gengislánum.
Er það gert til að eyða þeirri
óvissu sem ríkir um lánin en einn-
ig var sá möguleiki ræddur að
setja á sérstök lög, sem skila ættu
sömu niðurstöðu, en Ögmundur
segir ólíklegt að lagasetning geti
eytt óvissunni.
Alvarlegt að virða ekki dóma
„Fremur viljum við leggja
áherslu á að hraða þessum for-
dæmisgefandi dómsmálum,“ segir
Ögmundur og bendir á að mjög
misjafnt er hvernig fjármálastofn-
anir hafa tekið á þessum málum að
undanförnu. „Einn aðili virðist
mér skera sig úr hvað þetta snert-
ir og það er slitastjórn Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis og
Frjálsa fjárfestingabankans,“ seg-
ir Ögmundur og vísar þar með til
Dróma en að undanförnu hafa
ráðuneytum borist fjölmargar
kvartanir vegna félagsins. „Ég tel
að það sé mjög alvarlegt mál ef
ekki er farið eftir niðurstöðum
dóma hvað varðar gengislánin og
þá horfi ég fyrst og fremst til
Dróma. Það er ekki einleikið hve
margar kvartanir berast vegna
framkomu Dróma við lántakend-
ur,“ segir Ögmundur og bætir við
að brýnt sé að grunnreglur réttar-
ríkis séu ávallt virtar. khj@mbl.is
Eyða á
óvissu um
gengislán
Vinnubrögð
Dróma varasöm
Ögmundur
Jónasson