Morgunblaðið - 22.08.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Opið virka daga frá 8 -18 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
Sturtu- og BAðhurðir
með hertu öryggisgleri
SKiNNY handsturtuhaus
Verð kr. 1990.-
SPriNg sturtuhaus 20 cm
Verð kr. 9450.-
EMotioN sturtuhaus 10 cm
Verð kr. 3990.-
gæði þjóNuStA og áBYrgð - þAð Er tENgi
oNdA handsturtuhaus
Verð kr. 2490.-
oASiS Sturtuhurð
80 x 80 cm
Verð kr. 86.900.-
90 x 90 cm
Verð kr. 89.900.-
FoNtE handsturtuhaus
Verð kr. 1089.-
AlMAr SturtuhAuSAr FjölBrEYtt úrvAl
FliPPEr i BAðhurð
85 x 140 cm
Verð kr. 29.900.-
StAr Sturtuhurð
80 x 80 cm
Verð kr. 68.000.-
90 x 90 cm
Verð kr. 69.900.-
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
„Leikararnir og starfsfólkið blótuðu
rosalega mikið, þannig við ákváðum
að í hvert skipti sem einhver myndi
blóta myndi hann borga þúsund
krónur,“ segir Mímir Bjarki Pálma-
son 12 ára strákur sem leikur í Nóa,
sem er stórmynd leikstjórans Dar-
rens Aronofskys. Fjögur börn fóru
af stað með þennan sektarsjóð fyrir
blótsyrði á tökustað myndarinnar en
þau leika öll börn Nóa sem Russell
Crowe leikur í myndinni. Að sögn
Mímis tók fólk uppátæki krakkanna
misvel. „Stundum fannst þeim þetta
fyndið en stundum voru þau aðeins
ósátt með þetta og sögðust ekki hafa
verið að blóta.“ Krakkarnir höfðu
innheimt sektir fyrir fjórtán blóts-
yrði þegar þau komu færandi hendi í
Rauða krossinn í gær með samtals
14.000 krónur.
Aðspurður af hverju þau ákváðu
að gefa peninginn til Rauða krossins
sagði Mímir: „Okkur langaði að
styrkja eitthvað á Íslandi og þetta
var eitt af því sem okkur datt í hug.
Við höfum fengið rosalega góðar
viðtökur við þessu.“
Russell Crowe blótaði mest
„Þau blótuðu aðeins minna þegar
þau áttuðu sig á því að það þurfti að
borga þúsund krónur í hvert skipti.
Russell Crowe blótaði samt lang-
mest og þurfti að borga fleiri þúsund
í sjóðinn. Hann borgaði ekki alveg
allt, en meirihlutann af því þó,“ segir
Mímir Bjarki sem bætti því við að
þau stóðu Emmu Watson aldrei af
því að blóta en Jennifer Connelly var
staðin að verki ásamt öðrum starfs-
mönnum myndarinnar. „Þau voru öll
rosalega vinaleg og góð við mann.
Þetta hefur verið rosalega skemmti-
legt allt saman,“ segir Mímir Bjarki
sem hitti allar helstu stórstjörnur
myndarinnar og segir það hafa verið
virkilega gaman.
Leikur son Nóa
Í myndinni er Mímir staðgengill
Gavins Gasalenga sem kemur frá
Texas og er einnig 12 ára og leikur
barn Nóa. ,,Ég er það sem kallast
þarna bodydouble. Þegar Gavin hef-
ur unnið of lengi eða er í annarri
töku kem ég inn í staðinn og leik fyr-
ir hann. Það sést ekki í andlit mitt en
það sést í bakið og fyrir neðan höf-
uð.“ Mímir segir hann og Gavin hafa
orðið ágætis vini og hann hitti hann
mögulega aftur þegar hann fer til
New York.
Hann segist hafa lært mikið á
þessu. „Það er ekki jafn auðvelt að
leika í myndum og maður heldur í
fyrstu. Ég er búinn að sjá hvernig
fólkið hagar sér við gerð svona
myndar, það er allt svolítið stress-
andi en samt rosalega gaman.“
Upptökur myndarinnar kláruðust
í gær en Mímir hafði verið á töku-
stað síðustu 20 daga. Hann segir að
sumar tökur hafi verið ansi erfiðar.
„Erfiðasta var í fyrradag þegar við
þurftum að flýja frá óvinum í hrauni.
Við vorum með sjö kílóa bakpoka á
okkur. Við hlupum oft því það þurfti
að taka þetta frá sjö mismunandi
sjónarhornum. Þetta var rosalega
erfitt og ég var með verki eftir þetta
alls staðar.“
Crowe þurfti að blæða í blótsjóðinn
Söfnuðu Nola Gross, 9 ára, Mímir, 12 ára, Gavin Gasalenga, 12 ára, og Skyl-
ar Burke, 9 ára, afhentu Janice Balfour hjá Rauða krossinum blótsjóðinn.
Mímir Bjarki Pálmason er staðgengill í Nóa Fannst leikararnir og starfsfólk myndarinnar blóta
of mikið Gáfu 14.000 krónur til Rauða krossins Russell Crowe blótaði mest en stelpurnar minna
Tvífari Mímir Bjarki og leikstjórinn Darren Aronofsky. Mímir Bjarki kveðst
geta hugsað sér að koma aftur að kvikmyndagerð.
Staðgengill í Nóa
» Í myndinni er Mímir stað-
gengill Gavins Gasalenga sem
kemur frá Texas og er 12 ára.
» Leikur þegar Gavin hefur
unnið of mikið eða er í öðrum
tökum.
» Þau eru fjögur sem leika
börn Nóa í kvikmyndinni og
Mímir er eini Íslendingurinn.