Morgunblaðið - 22.08.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2012
Skúli Helgason, þingmaðurSamfylkingarinnar, fullyrti á
dögunum að hér á landi hefði
staðið yfir áratuga karp um ESB-
aðild. Nú, þegar vonleysi umsókn-
arinnar verður æ augljósara, er
þetta það sem
aðildarsinnar binda
helst vonir við; að
ljúka verði við-
ræðum til að losna
við karpið.
Björn Bjarnasonsvarar þessu á
vef sínum og bend-
ir á að hér hefur
alls ekki verið
karpað áratugum
saman vegna ESB.
Alþýðuflokkurinn
hafi sett aðild á
oddinn árið 1995 en
eftir slæma útreið í kosningum
hafi hann ekki haft málið á stefnu-
skrá sinni vegna kosninganna
1999. Samfylkingin hafi ekki gert
mikið úr málinu í kosningunum
2003 og 2007, en sett málið á odd-
inn eftir fall bankanna haustið
2008.
Björn bendir á hve ótrúverðugttal samfylkingarmanna sé um
að losna þurfi við karpið, enda
hafi Samfylkingin sjálf ekki einu
sinni mótað samningsmarkmið og
átti því þó að vera löngu lokið.
Hér hefur ekki verið neitt „ára-tuga karp“ um ESB-aðild.
Nokkrir menn hafa að vísu ára-
tugum saman verið sannfærðir um
að Ísland ætti heima í ESB, þeir
voru ekkert að karpa um þá skoð-
un við aðra, þeir vissu að hún ætti
ekki hljómgrunn. Það er Samfylk-
ingin sem hefur stofnað til ófrið-
arins um ESB í íslenskum stjórn-
málum. Skynsamlegasta leiðin til
að kveða niður „karpið“ er að ýta
henni til hliðar svo að hún sjái að
sér eins og Alþýðuflokkurinn
gerði milli kosninganna 1995 og
1999,“ segir Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason
Samfylkingarkarp
STAKSTEINAR
Skúli Helgason
Flaxseed oil
Hörfræolía í perlum einfalt og þægilegt.
Omega 3-7-9
Omega 3 úr laxi, omega 7 úr hafþyrni
og omega 9 úr jómfrúar olívuolíu.
Salmon olía
Laxalýsi fullt af lífsnauðsynlegri
næringu.
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Lífsnauðsynlegar olíur
Fáum mýkri húð, meiri liðleika
og skarpari hugsun.
Vegna einstakra gæða
nýtur Solaray virðingar
og trausts um allan heim
Veður víða um heim 21.8., kl. 18.00
Reykjavík 15 skúrir
Bolungarvík 15 skýjað
Akureyri 15 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skúrir
Vestmannaeyjar 12 skýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 13 skýjað
Ósló 20 skúrir
Kaupmannahöfn 20 skýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Helsinki 15 heiðskírt
Lúxemborg 28 léttskýjað
Brussel 25 léttskýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 21 léttskýjað
París 30 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 22 skýjað
Berlín 25 heiðskírt
Vín 31 léttskýjað
Moskva 12 skýjað
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 31 heiðskírt
Mallorca 33 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 21 léttskýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:43 21:19
ÍSAFJÖRÐUR 5:37 21:35
SIGLUFJÖRÐUR 5:19 21:19
DJÚPIVOGUR 5:09 20:52
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta voru 36 kílómetrar meðfram
ströndinni,“ segir Fylkir Sævarsson
sem varð á dögunum Danmerk-
urmeistari í sjókajakróðri.
Kappinn kveðst hafa verið búinn
á því að keppni lokinni en hann var
38 mínútum á undan næsta manni
þegar hann kom í mark.
„Ég er búinn að vera að róa
hérna í Danmörku síðastliðin þrjú
ár. Ég hef tvisvar reynt að róa
hringinn í kringum Danmörk og
setja met í því. Það hefur nú reynd-
ar mistekist tvö ár í röð. Fyrst
brotnuðu árarnar og í ár brotnaði
kajakinn,“ segir kappinn. Fylkir gat
því ekki róið á eigin báti á nýaf-
stöðnu móti heldur fékk hann lán-
aðan bát hjá vini sínum.
„Í fyrra réri ég tæplega 5.600
kílómetra og setti met í klúbbnum
sem ég er í. Í ár er ég búinn að róa
rúmlega 4.000 kílómetra. Ég tók
þátt í annarri keppni í vor þar sem
var róið 42 kílómetra hringinn í
kringum Amager. Þar voru talsvert
fleiri keppendur. Ég vann þá
keppni og kom í mark einum
klukkutíma og sjö mínútum á undan
næsta keppanda,“ segir
meistarinn.
Getur ekki keppt á Íslandi
„Um næstu helgi er mót á Íslandi
sem er svona eiginlega eins og Ís-
landsmeistaramótið. Mér er hins-
vegar ekki heimilt að taka þátt í því.
Ef þú ætlar að verða Íslandsmeist-
ari þá þarftu að taka þátt í nokkr-
um keppnum og safna stigum. Þetta
er ekki eins og annars staðar þar
sem er bara eitt mót og sigurveg-
arinn á því móti vinnur,“ segir
hann. Fylkir segist gjarnan vilja
taka þátt í mótinu hér heima en
aðeins ef um staka keppni yrði að
ræða. Hann segist jafnframt æfa
eftir íslenskri áætlun.
„Íslenska æfingaprógrammið er
að taka Danina algjörlega í nefið,“
segir Fylkir glettinn að lokum.
Íslendingur sigrar í Danmörku
Fylkir Sævarsson hlaut Danmerk-
urmeistaratitil í sjókajakróðri
Meistari Fylkir Sævarsson sankar að sér titlum í Danmörku.