Morgunblaðið - 01.08.2012, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2012
íþróttir
Handbolti Túnisbúar grátt leiknir í London. Gróft brot hjá Wissem Hmam á Guðjóni Val í byrjun
leiks kveikti í íslensku leikmönnunum. Stórkostlegur varnarleikur. Svíarnir næstir. 2-3
Íþróttir
mbl.is
Danska handknattleiksfélagið AG
Köbenhavn var í gær lýst gjald-
þrota og þar með lauk stuttri en
glæsilegri sögu liðsins á sviplegan
hátt. Fjórir Íslendingar urðu
danskir meistarar með því í vetur,
fyrirliðinn Arnór Atlason og þeir
Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur
Stefánsson og Guðjón Valur Sig-
urðsson. Þá komst liðið í undan-
úrslit Meistaradeildar Evrópu í
fyrstu tilraun.
Ólafur var ekki lengur samnings-
bundinn félaginu, samningur hans
rann út fyrr í sumar, og Guðjón var
búinn að semja við þýsku meist-
arana Kiel. Arnór og Snorri eru
hins vegar atvinnulausir og fréttu
það þegar þeir gengu af velli eftir
sigurinn glæsilega á Túnis á Ól-
ympíuleikunum í London í gær.
Þeir gáfu ekki kost á viðtölum
við íslenska fjölmiðla um málið en
Arnór sagði hins vegar við TV2 í
Danmörku að þetta væri afar sorg-
legt og leikmenn liðsins hefðu ekki
séð fyrir að svona myndi fara þótt
fjárhagsvandræðin hefðu verið
kunn.
Auk Arnór og Snorra eru fjöl-
margir snjallir handboltamenn á
lausu eftir gjaldþrot AG. Þar á
meðal stórskytturnar Mikkel Han-
sen og Kim Andersson. Ystad í Sví-
þjóð lýsti því yfir í gær að það hefði
augastað á þremur Svíum hjá lið-
inu, Andersson, Nicklas Ekberg og
Fredrik Petersen. vs@mbl.is
Margir snjallir
á lausu eftir
gjaldþrot AG
Snorri Steinn
Guðjónsson
Arnór
Atlason
Bandaríski sundgarpurinn Michael Phelps varð
í gær verðlaunahæsti Ólympíufari allra tíma.
Fyrir leikana í London var hann búinn að vinna
sextán verðlaunapeninga, þar af fjórtán gull-
verðlaun en ekki nokkur annar Ólympíufari
kemst nálægt þeirri ótrúlegu tölu.
Hans markmið í London var að taka fram úr
sovésku fimleikakonunni Larissu Latynina sem
á sínum tíma vann 18 verðlaun á Ólympíu-
leikum (9 gull, 5 silfur og 4 brons), frá 1956 til
1964.
Í fyrradag var Phelps í sveit Bandaríkjanna
sem náði silfri í 4x100 metra skriðsundi og
vantaði hann því aðeins tvenn verðlaun í gær í
þeim tveimur úrslitasundum sem hann átti að
keppa í. Phelps varð annar í 200 metra flug-
sundi sem var afar svekkjandi þar sem hann
var fyrstur í sundinu nær allan tímann. Aftur á
móti jafnaði hann þar met Latyninu. Seinna um
kvöldið var hann svo í sveit Bandaríkjanna sem
vann 4x200 metra skriðsundið og varð um leið
ókrýndur konungur Ólympíuleikanna.
Nítján ára gamall vann Phelps 6 gull og 2
brons í Aþenu 2004. Hann vann átta gull, sem
er met, í Peking í fyrra, og er kominn með gull
og tvö silfur í London. tomas@mbl.is
Ólympíukóngurinn
Michael Phelps á toppinn yfir flest ÓL-verðlaun
AFP
19 verðlaun Afrek Phelps verður seint toppað.
Í LONDON
Texti: Kristján Jónsson
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson
Ragna Ingólfsdóttir úr TBR veitti tuttugustu
bestu badmintonkonu heims, Jie Yao, verðuga
keppni í sínum síðasta leik á Ólympíuleikunum í
London í gærkvöldi. Ragna tapaði 0:2 eftir mikla
baráttu og er úr leik en Yao vann F-riðilinn og
komst í 16-manna úrslit. Ragna tjáði Morgun-
blaðinu hins vegar að leik loknum að hann hefði
verið hennar síðasti á ferlinum.
„Ég er mjög sátt bæði við þessa Ólympíuleika
og við ferilinn,“ sagði Ragna og sagðist hafa
ákveðið þetta fyrir löngu síðan. „Síðustu fimm ár-
in hafa verið svolítið ströggl eftir að ég sleit kross-
bandið. Hver einasta æfing hefur verið svolítið
erfið og það tók á. Mér fannst leiðinlegt hvernig
endi Ólympíuleikarnir fengu hjá mér í Peking þar
sem ég meiddist á móti þessum sterka andstæð-
ingi. Ég vildi því taka aðra Ólympíuleika og
standa mig vel. Ég hef hins vegar æft tvisvar á
dag í tíu ár og keppt út um allan heim. Mér finnst
þetta orðið gott. Ég er 29 ára gömul og finnst ég
hafa toppað á þessum leikum. Það sem ég ætlaði
mér að gera gekk eftir.“
Frammistaðan var til sóma
Frammistaða Rögnu á leikunum var henni til
sóma. Hún tapaði ekki lotu á móti Akvile Stapu-
saityte frá Litháen í fyrri leiknum og þjarmaði að
Yao í annarri lotunni í gærkvöldi. Ragna hafði
frumkvæðið í þeirri lotu og skoraði á einum kafla
sex stig í röð. Úr varð framlengd lota og óbærileg
spenna.
Yao tókst að kreista fram sigur en verulega var
af þessum leikreynda spilara dregið sem áður fyrr
var í landsliði Kína. Sú niðurstaða var meirihluta
áhorfenda í Wembley-höllinni þvert um geð. Ég
get ekki annað en velt því fyrir mér hvort Ragna
hefði ekki hreinlega verið sigurstranglegri í odda-
lotunni ef hún hefði unnið aðra lotuna en hún var
einu stigi frá því. Yao vann hins vegar fyrri lotuna
sannfærandi 21:12.
Biðin vann væntanlega gegn Rögnu
Önnur hugsun sem leitar á mig er hversu mikil
áhrif það hafði á Rögnu að hún þurfti að bíða í 75
mínútur eftir að leikurinn hæfist miðað við áætl-
un. Á vellinum voru lið frá S-Kóreu og Indónesíu
að spila tvíliðaleik og kepptust við að tapa leikn-
um. Já, þið lásuð rétt. Þau vildu ekki mæta sterk-
asta pari heims í næsta áfanga.
Fyrir vikið var Ragna að hita upp í alla vega tvo
klukkutíma fyrir mikilvægasta leik sinn á ferl-
inum. Þar sem andstæðingurinn hefur gífurlega
reynslu þá hlýtur hún að hafa átt auðveldara með
að glíma við þessa uppákomu. „Ég mætti klukkan
19, var tilbúin kl. 20 og spilaði kl. 22. Ég reyndi
auðvitað að halda á mér hita en það er ógeðslega
erfitt að bíða svona lengi. Þetta hefur ekki oft
gerst en ég hef lent í svipuðum aðstæðum tvisvar
áður og þetta reynir mjög á andlega. Sérstaklega
þegar ég er búin að bíða allan daginn og spila
svona seint. Þetta hefði verið svolítið annað ef ég
hefði lent í klukkutíma bið að morgni til. Ég var
orðin mjög þreytt og svöng þegar ég loksins fór
inn á því ég hafði borðað kl. 17. Ég reyndi að troða
í mig banana en það var óþægilegt því ég vissi
ekki hversu langt væri í leikinn.“
„Finnst ég hafa toppað“
Ragna Ingólfsdóttir gekk út af stóra sviðinu í London sátt við ferilinn Lætur
gott heita eftir hörkuleik á móti andstæðingi sem er númer 20 á heimslistanum
Morgunblaðið/Golli
Sá síðasti Ragna Ingólfsdóttir einbeitt í síðasta leiknum á ferlinum í London í gærkvöld.
Þessar þjóðir hafa fengið flest verðlaun,
gull, silfur og brons, eftir fjóra fyrstu
keppnisdagana:
1 Kína 13 6 4
2 Bandaríkin 9 8 6
3 Frakkland 4 3 4
4 Suður-Kórea 3 2 3
5 Norður-Kórea 3 0 1
6 Kasakstan 3 0 0
7 Ítalía 2 4 2
8 Þýskaland 2 3 1
9 Rússland 2 2 4
10 Suður-Afríka 2 0 0
11 Japan 1 4 8
12 Ástralía 1 3 2
13 Rúmenía 1 2 2
14 Brasilía 1 1 1
14 Ungverjaland 1 1 1
16 Holland 1 1 0
17 Úkraína 1 0 2
18 Georgía 1 0 0
19 Litháen 1 0 0
20 Slóvenía 1 0 0
Alls hafa 43 þjóðir fengið verðlaun.
LONDON 2012
Verðlaun