Monitor - 02.08.2012, Síða 4
4 MONITOR FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012
Hvar verður þú um
verslunarmannahelgina?
Það getur verið erfi tt að ákveða hvert skuli halda þessa miklu ferðahelgi. Monitor
kynnti sér dagskrána á helstu hátíðum helgarinnar fyrir óákveðna ferðalanga.
Mýrarboltinn
Drulluskemmtilegt drullusva ð
fyrir orkubolta.
Hvað? Drullumall, íþróttir og skemmtidagskrá.
Hvar? Á Ísafi rði.
Hverjir spila? Dikta, The Vintage Caravan, Húsið á
sléttunni og fl eiri.
Hvað kostar? 8500 kr. fyrir allan pakkann, 6500 kr.
fyrir þá sem vilja ekki drulla sig út.
Hvernig er veðurspáin? Léttskýjað og 12-13 gráður.
Ein með öllu
Kirkjutröppuhlaup,
kaff i Költ og stans-
laus dagskrá.
Hvað? Fjölskylduhátíð með vinalegu
ívafi .
Hvar? Akureyri.
Hverjir spila? Hvanndalsbræður,
Dúndurfréttir, Hjálmar, Páll Óskar, XXX
Rottweilerhundar, Sálin hans Jóns míns
og fl eiri.
Hvað kostar? Ekkert á hátíðina
en miðaverð á einstaka tónleika er
misjafnt.
Hvernig er veðurspáin? Léttskýjað og
13-16 gráður.
Þjóðhátíð
Dalurinn, brekkan, brennan og
lífi ð sem er yndislegt.
Hvað? Útihátíð á heimsmælikvarða.
Hvar? Í Vestmannaeyjum.
Hverjir spila? Ronan Keating, Dope D.O.D., Blaz Roca, Friðrik
Dór, Jón Jónsson, Bubbi, Bó, Helgi Björns, Mugison, Fjallabræður,
Hjálmar, Kiriyama Family, Ham, Retrobot, Ingó og Veðurguðirnir,
Botnleðja, Buff , Úlfur Úlfur, Páll Óskar og fl eiri.
Hvað kostar? Miði í dalinn kostar 18.900 krónur.
Hvernig er veðurspáin? Skýjað með köfl um
og 12-13 gráður.