Monitor - 02.08.2012, Blaðsíða 12
12 MONITOR FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012
Lísa Hafl iðadóttir
lisa@monitor.is
stíllinn
Tannteygjurnar voru
Hvenær byrjaðir þú í módelbrans-
anum?
Ég var að vinna í ísbúðinni sumarið
2010 þegar umboðsmaður frá Elite
spurði mig hvort ég hefði áhuga á
að verða módel. Ég vissi ekki hvort
þetta væri grín eða ekki en lét hana
samt fá númerið mitt. Mánuði
seinna hringdi hún og bauð mér að
taka þátt í Elite-keppninni.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum
þínum?
Ég er mjög mikið fyrir sérstök föt
og fi nnst gaman að blanda saman
allskonar stílum. Skemmtilegast
fi nnst mér þó að klæðast pönkara-
og hippalegum fötum.
Hefur þú mikinn áhuga á tísku?
Ég hef mjög gaman af því að fylgj-
ast með tískunni og sjá hvernig
hún snýst í hringi.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Á Íslandi fi nnst mér best að gramsa
í verslunum sem selja notuð föt,
svo sem Spúútnik, Nostalgíu og
Rokk og rósum. Þegar ég fer til
útlanda versla ég aðallega í Monki,
Weekday, Urban Outfi tters, Ameri-
can Apparel og auðvitað H&M.
Hver er best klædda kona heims?
Mary-Kate og Ashley Olsen eru
alltaf jafnfl ottar en fólkið sem ég
tek mest eftir er það sem er ekki
hrætt við að prófa eitthvað nýtt og
er öruggt í því sem það klæðist.
Hvað er ómissandi að eiga í
fataskápnum fyrir sumarið?
Gallastuttbuxur, gallajakka, maga-
boli, rokkuð sólgleraugu og svo má
ekki gleyma bikiníinu.
Hver hafa verið þín verstu
tískumistök?
Þegar ég var með spangir og bað
tannlækninn minn að skreyta þær
með bleikum og grænum teygjum.
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég er ísbúðardama í ísbúðinni í
Garðabæ í allt sumar en í ágúst fer
ég svo með fjölskyldunni til Köben
þar sem ég get vonandi endurnýjað
hluta af fataskápnum mínum.
Hvort myndir þú frekar vilja vera
forseti eða rokkstjarna?
Ég myndi vilja vera forseti sem
væri rokkstjarna. Ég er kona, ég slæ
tvær fl ugur í einu höggi.
Hvert er þitt stærsta verkefni til
þessa?
Þegar ég fór í myndatöku fyrir
spænska tímaritið The Balde. Það
var voða spennandi.
En það skemmtilegasta?
Þegar ég var fengin til að vera gína
í Topshop.
Er eitthvað spennandi á döfi nni
hjá þér í fyrirsætustörfunum?
Ekkert á næstunni en við sjáum
hvað setur.
stærstu tískumistökin
Stíllinn fékk Áslaugu Björnsdóttur í heimsókn
þessa vikuna en hún skapaði sér nafn í
módelbransanum fyrir nokkrum árum. Áslaug
klæddi sig upp fyrir fjögur mismunandi tilefni.
UPPÁHALDS
HATTUR: MONKI
BOLUR: GINA TRICOT
BUXUR: H&M
SKÓR: MONKI
HVERSDAGS
JAKKI: DKNY
SKYRTA: AMERICAN APPAREL
KJÓLL: H&M
SKÓR: DR. MARTENS
ÚT Á LÍFIÐ
HATTUR: MONKI
SKYRTA : URBAN
OUTFITTERS
SAMFELLA: BERSHKA
PILS: H&M
SKÓR: URBAN
OUTFITTERS
SUMARDRESSIÐ
BOLUR: H&M,
BUXUR: SPÚÚTNIK
SKÓR: DR. MARTENS
SÓLGLERAUGU: H&M
Áslaug hefur tekið þátt í mörgum
skemmtilegum verkefnum tengdum
módelstörfum og árið 2010 tók hún
þátt í Elite-keppninni. Í haust stefnir
Áslaug á að hefja nám í lögfræði við
Háskóla Íslands en hún útskrifaðist
frá Verzló í vor.
M
yn
di
r/
Ár
ni
S
æ
be
rg