Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 02.08.2012, Qupperneq 13

Monitor - 02.08.2012, Qupperneq 13
13FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012 Monitor Stíllinn kíkti til ungs pars sem býr í nýtískulegri og fallegri íbúð í Vesturbænum. Þau eru yfirleitt sammála þegar kemur að því að gera fínt á heimilinu og finnst gaman að blanda saman gömlum og nýjum húsgögnum til að skapa heimilislega stemningu. Gaman að kaupa hluti sem eiga sér fáa líka Hafið þið mikinn áhuga á hönnun? Nei, við getum ekki beinlínis sagt það. Okkur finnst gaman að fal- legum hlutum og höfum skoðanir á því hvað okkur finnst flott en við lítum ekki til einstakra hönnuða. Hvað hafið þið í huga þegar þið kaupið húsgögn og skreytið heimilið? Helst að hlutirnir passi inn á heimilið og oft finnst okkur gaman að kaupa hluti sem eiga sér fáa líka. Hver er uppáhaldshúsgagnaverslunin ykkar? Okkur finnst erfitt að nefna einhverja eina húsgagnaverslun hérna á Íslandi en við höfum oft farið í húsgagnaverslun í Salzburg í Aust- urríki sem heitir Gehmacher og er hún í miklu uppáhaldi. Hvernig myndu þið lýsa stílnum á heimilinu? Heimilið okkar er frekar stílhreint og frekar í áttina að vera nýtísku- legt. Til að gera heimilislegra finnst okkur flott að blanda gömlum húsgögnum og hlutum við nýrri, til dæmis tekk-sófaborðið. Hafið þið svipaðan smekk þegar kemur að stílnum á heimilinu? Já, allavega höfum við yfirleitt verið mjög sammála hingað til. Ef þið yrðuð að mála alla íbúðina í einum og sama litnum öðrum en hvítum, hvaða litur yrði fyrir valinu? Einhver ljós litur eins og til dæmis ljósbrúnn. BORÐIÐ OG STÓLARNIR ERU KEYPTIR Í HEIMA OG KERTA- STJAKINN ER ÚR ILVU BOLTINN ER KEYPTUR Í SALZBURG Í BÚÐINNI GEHMACHER SPEGILLINN OPNAR RÝMIÐ OG MÁLVERKIÐ LÍFGAR UPP Á ÞAÐ KERTASTJAKINN ER HANNAÐUR AF MARGRÉTI HALLDÓRS- DÓTTUR OG LAMPINN ER KEYPTUR Í CASA STOFUBORÐIÐ ER GJÖF FRÁ ÖMMU OG AFA STÍLHREINT OG FALLEGT MÁLVERKIÐ ER KEYPT Í GEHMACHER VEGGKLUKKAN ER ÚR URBAN OUTFITTERS M yn di r/ St yr m ir Ká ri

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.