Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 2
Í LAUGARDAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Framarar fóru illa að ráði sínu á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Áður en leikurinn hófst var ljóst að staða Fram í fallbaráttunni hafði versnað nokkuð eftir sigur Selfyss- inga á Keflvíkingum. Fram var því í fallsæti þegar leikurinn hófst. Eftir markalausan og tíðindalít- inn fyrri hálfleik birti skyndilega til fyrir Framara í fljóðljósunum. Fram fékk vítaspyrnu á 63. mínútu og Jóhann Laxdal var auk þess rekinn af leikvelli. Samuel Tillen tók vítaspyrnuna, þó hann hafi krækt í hana sjálfur, með slæmum afleiðingum því hann brenndi af. Framarar nýttu sér þó liðsmuninn og náðu forystunni á 73. mínútu þegar Kristinn Ingi Halldórsson skoraði sitt ellefta mark í deildinni. Öflugir menn á bekknum Á varamannabekk Garðbæinga sátu tveir af hættulegustu sókn- armönnum deildarinnar, Garðar Jóhannsson og Halldór Orri Björnsson. Var þeim umsvifalaust skipt inn á eftir að Garðbæingar lentu undir. Bjarni Jóhannsson þjálfari þeirra bætti um betur og sendi Tryggva Bjarnason einnig á vettvang og fór hann í fremstu víg- línu. Með tvo turna frammi freist- uðu Garðbæingar þess að skapa usla í vörn Fram og það gekk upp. Markið kom þó ekki fyrr en í upp- bótartíma og Framarar voru sjálf- sagt farnir að sjá þrjú stig í hill- ingum. Barátta hjá báðum liðum Miðað við þá stöðu sem upp var komin þá er það auðvitað alvarlegt mál fyrir Framara að hafa ekki landað þremur stigum. Þess í stað fengu þeir eitt og eru nú með jafn- mörg stig og Selfoss í 10. til 11. sæti deildarinnar. Einungis tvær umferðir eru eftir af deildinni og næsta lið fyrir ofan er Valur með 25 stig en Fram og Selfoss eru með 21 stig. Framarar eiga eftir að fara upp á Skipaskaga og munu fá Eyjamenn í heimsókn í síðustu um- ferðinni. Framarar eru auðvitað með svarta beltið í fallbaráttu og koma væntanlega til með að sýna það. Garðbæingar eru í baráttu sem er allt annars eðlis. Þeir eru að vinna í því að komast í Evr- ópukeppni í fyrsta skipti í karlafót- boltanum. Stjarnan er í 4. sæti með 31 stig, stigi á eftir KR og stigi á undan Breiðabliki.  Leikmanni fleiri misstu þeir niður forskot í uppbótartíma  Vítaspyrna nýttist ekki  Turnarnir tveir bjuggu til mark Návígi Alexander Scholz og Sveinbjörn Jónasson leggja sig alla fram um að ná til boltans á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Hafa Framarar efni á Í GRINDAVÍK Stefán Stefánsson ste@mbl.is Grautfúlir yfir að láta bikarmeistara ná jafntefli. Þannig verður hugarfari Grindvíkinga helst lýst eftir að hafa gert 2:2 jafntefli við KR suður með sjó í gær þegar leikið var í 20. um- ferð Pepsideildarinnar því Vest- urbæingum tókst að skora jöfn- unarmarkið þegar minna en mínúta var til leiksloka. Á pappírnum höfðu liðin ekki að neina að keppa nema heiðrinum því Grindvíkingar eru fallnir úr efstu deild og KR-ingar búnir að missa af Íslandsmeistaratitlinum til FH. Það skal samt ekki vanmeta mátt heið- ursins því bæði lið léku oft mjög vel og nóg var af færum framan af. Fyrstu fimmtán mínúturnar fengu gestirnir þrjú alveg opin færi þegar liggur við að auðveldara hefði verið að skora en ekki. Síðan fengu Grind- víkingar þrjú færi, öll nákvæmlega eins og Magnús Björgvinsson skor- aði úr tveimur þeirra. Fram eftir síð- ari hálfleik var lítið um að vera en sókn KR þyngdist, þeir skoruðu eitt og svo jöfnunarmark í blálokin, fengu því ríkulega borgað fyrir að leggja árar ekki í bát. Sumarið í hnotskurn „Mér fannst við eiga fínan leik og vorum algjörir klaufar að klúðra þessu í lokin þegar ein mínúta var eftir, ætli þetta sé ekki bara sumarið í hnotskurn hjá okkur,“ sagði Magn- ús Björgvinsson, sem skoraði bæði mörk Grindvíkinga. Liðið er þegar fallið og það mátti greina að ein- hvern léttleika yfir leikmönnum – ekki yfir að falla, heldur gefa allt sitt í leikinn og hugsa ekki um neitt ann- að. „Stemningin í liðinu er fín. Eins og staðan er í dag erum við bara að spila til að hafa gaman af því, það er engin pressa á okkur og ætlum að stríða liðunum, sem við eigum eftir að spila við,“ bætti Magnús við. Það má alveg skamma KR-inga fyrir að vinna ekki botnlið deild- arinnar örugglega, gera bara jafn- tefli. Það er hinsvegar afar tæpt því KR-ingar sannarlega óðu í færum til að byrja með og áttu síðan nokkur inn á milli. Ef þeim hefði tekist að skora úr fjórðungi af galopnum fær- um sínum hefðu Vesturbæingar ver- ið stoltir af sínum mönnum. Hins- vegar duga ef og hefði skammt í fótbolta. Það er samt ljóst að fram- herjum KR voru mislagðir fætur, svo ekki sé meira sagt. Draugfúlir Grindvíkingar  Alls ekki sáttir við 2:2 jafntefli gegn KR Morgunblaðið/Ómar Tvö Emil Atlason var bjargvættur KR-inga og skoraði tvívegis. 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 1:0 25. Alex Freyr Hilmarsson gafinnfyrir vörn KR vinstra meg- in á Magnús Björgvinsson, sem rakti boltann í átt að markinu og við mark- teigshornið renndi hann boltanum und- ir Hannes Þór í markinu. Einfalt, ekk- ert fát. FÆRI 27. Eftir góða sókn fékkEmil Atlason boltann í opið færi vinstra megin en Óskar Pét- ursson varði, sló boltann yfir markið. FÆRI 32. Magnús Björg-vinsson slapp aftur í gegn á sama stað og þegar hann skor- aði fyrir fimm mínútum en skaut nú framhjá hægri stönginni. 2:0 33. Enn og aftur alveg einssókn þegar Magnús Björg- vinsson fékk aðra sendingu frá Alex og á móts við vinstra markteigshornið skaut hann af öryggi í hægra hornið. FÆRI 39. Emil Atlason meðglæsilega sendingu hægra megin, Gary Martin elti og komst einn upp að hægra markteigs- horni en skaut í hliðarnetið. 2:1 77. Atli Sigurjónsson gaf fyrirfrá hliðarlínunni vinstra meg- in. Boltinn kom niður við hægri stöng- ina þar sem Emil Atlason skallaði bolt- ann niður í hornið. Óskar Pétursson elti en tók ekki boltann. SLÁ 88. Emil Atlason vinstrikantmaður KR fékk fyr- irgjöf frá hægri og skallaði við vinstra markteigshornið. Boltinn datt á slána og út en Grindvíkingar hreinsa frá. 2:2 89. Ray A. Jónsson varn-armaður Grindvíkinga var einn í teignum er sending Atla kom frá hægri. Hann tók boltann niður og beið eftir Óskari Péturssyni með boltann fyrir framan sig svo Emil Atlason stakk sér inn, hirti boltann og skoraði í autt markið. I Gul spjöld:Emil (KR) 67. (brot), Magnús Már (KR) 80. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Óskar Pétursson (Grindavík) Ólafur Örn Bjarnason (Grindavík) Magnús Björgvinsson (Grindavík) Matthías Örn Friðriksson (Grindavík) Hafþór Ægir Vilhjálmsson (Grindavík) Magnús Már Lúðvíksson (KR) Aron Bjarki Jósepsson (KR) Guðmundur Reynir Gunnarsson (KR) Viktor B. Arnarsson (KR) Bjarni Guðjónsson (KR) Þetta gerðist á Grindavíkurvelli Grindavíkurvöllur, Pepsi-deild karla, 20. umferð, fimmtudag 20. sept- ember 2012. Skilyrði: Suðvestan gjóla, glaða sól- skin og 8 stiga hiti. Völlur góður . Skot: Grindavík 10 (6) – KR 15 (8). Horn: Grindavík 4 – KR 6. Lið Grindavíkur: (4-5-1) Mark: Ósk- ar Pétursson. Vörn: Matthías Örn Friðriksson, Björn Berg Bryde, Ólafur Örn Bjarnason, Ray A. Jónsson. Miðja: Óli Baldur Bjarnason (Scott Ramsay 82.), Iain Williamson, Marko V. Stefánsson, Alex Freyr Hilm- arsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson (Daníel Leó Grétarsson 84.). Sókn: Magnús Björgvinsson. Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Magnús Már Lúð- víksson, Aron Bjarki Jósepsson, Grétar S. Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson. Miðja: Viktor B. Arnarsson (Jónas Guðni Sævarsson 84.), Bjarni Guðjónsson, Baldur Sig- urðsson. Sókn: Emil Atlason, Gary Martin, Þorsteinn Már Ragnarsson (Atli Sigurjónsson 54.). Dómari: Guðmundur Ársæll Guð- mundsson – 8. Áhorfendur: 202. Grindavík – KR 2:2 Laugardalsvöllur, Pepsi-deild karla, 20. umferð, fimmtudag 20. sept- ember 2012. Skilyrði: Logn, skýjað en kólnandi veður með kvöldinu. Skot: Fram 8 (4) – Stjarnan 11 (4). Horn: Fram 9 – Stjarnan 8. Lið Fram: (4-4-3) Mark: Ögmundur Kristinsson Vörn: Daði Guðmunds- son, Kristján Hauksson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Samuel Tillen. Miðja: Halldór Hermann Jónsson, Samuel Hewson (Stefán Birgir Jó- hannesson 90.), Orri Gunnarsson. Sókn: Kristinn Ingi Halldórsson, Sveinbjörn Jónasson (Hólmbert Friðjónsson 83.), Almarr Orm- arsson. Lið Stjörnunnar: (4-3-3) Mark: Ingvar Jónsson Vörn: Jóhann Lax- dal, Daníel Laxdal, Alexander Scholz, Hörður Árnason. Miðja: Baldvin Sturluson, Mark Doninger (Halldór Orri Björnsson 69.), Atli Jóhannsson. Sókn: Gunnar Örn Jónsson(Garðar Jóhannsson 69.), Ellert Hreinsson, Kennie Chopart (Tryggvi Bjarnason 78.) Dómari: Þorvaldur Árnason – 7. Áhorfendur: 604. Fram – Stjarnan 1:1 Svíþjóð Guif – Alingsås..................................... 31:31  Heimir Óli Heimisson skoraði eitt mark fyrir Guif og Haukur Andrésson eitt. Krist- ján Andrésson þjálfar liðið.  Ásbjörn Friðriksson náði ekki að skora fyrir Alingsås. Frakkland Nantes – Chambéry............................. 29:32  Gunnar Steinn Jónsson leikur með Nan- tes. HANDBOLTI Pepsi-deild karla Úrvalsdeildin, 20. umferð: Valur – ÍBV........................................... 0:3 Rasmus Christiansen 45., Christian Olsen 56., Tryggvi Guðmundsson 86. FH – ÍA.................................................. 2:1 Emil Pálsson 74., Atli Guðnason 90. – Dean Martin 62. Selfoss – Keflavík................................. 2:1 Egill Jónsson 45., Viðar Örn Kjartansson 48.(víti) – Jóhann Birnir Guðmundsson 80. Breiðablik – Fylkir .............................. 1:1 Sverrir Ingi Ingason 90. – Ingimundur Níels Óskarsson 56. Grindavík – KR .................................... 2:2 Magnús Björgvinsson 25., 33. – Emil Atlason 77., 89. Fram – Stjarnan................................... 1:1 Kristinn Ingi Halldórsson 73. – Garðar Jóhannsson 90. Rautt spjald: Jóhann Laxdal (Stjörnunni) 63. Staðan: FH 20 14 3 3 47:20 45 ÍBV 20 10 4 6 33:17 34 KR 20 9 5 6 34:29 32 Stjarnan 20 7 10 3 40:34 31 Breiðablik 20 8 6 6 27:25 30 ÍA 20 8 5 7 29:34 29 Keflavík 20 8 3 9 33:32 27 Fylkir 20 7 6 7 25:35 27 Valur 20 8 1 11 29:31 25 Fram 20 6 3 11 28:35 21 Selfoss 20 6 3 11 27:37 21 Grindavík 20 2 5 13 28:51 11 Markahæstir: Atli Guðnason, FH................................. 12 Kristinn Ingi Halldórsson, Fram ......... 11 Christian Olsen, ÍBV ............................... 9 Kjartan Henry Finnbogason, KR........... 8 Garðar B. Gunnlaugsson, ÍA................... 8 Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki....... 8 Björn Daníel Sverrisson, FH.................. 8 Jóhann B. Guðmundsson, Keflavík......... 7 Kolbeinn Kárason, Val ............................ 7 Guðmundur Steinarsson, Keflavík ......... 7 Jón Daði Böðvarsson, Selfossi ................ 7 Rúnar Már Sigurjónsson, Val ................. 7 Garðar Jóhannsson, Stjörnunni.............. 6 Pape Mamadou Faye, Grindavík ............ 6 Viðar Örn Kjartansson, Selfossi ............. 6 Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni ....... 6 Guðjón Árni Antoníusson, FH ................ 6 Evrópudeild UEFA A-RIÐILL: Young Boys – Liverpool ...................... 3:5 Rapha Nuzzolo 38., Juhani Ojala 53., Gonzalo Zárate 63. – Jonjo Shelvey 76., 88., Ojala 4.(sjálfsm.), Andre Wisdom 40., Sebastian Coates 70. Udinese – Anzi Makhachkala............... 1:1 B-RIÐILL: Hapoel Tel-Aviv – Atlético Madrid ..... 0:3 Viktoria Plzen – Academica ................. 3:1 C-RIÐILL: AEL Limassol – Mönch’gladbach ....... 0:0 Fenerbache – Marseille........................ 2:2 D-RIÐILL: Maritimo – Newcastle .......................... 0:0 Bordeaux – Club Brugge...................... 4:0 E-RIÐILL: FC Köbenhavn – Molde ....................... 2:1  Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með FCK, Sölvi Geir Ottesen sat á bekknum en Rúrik Gíslason var ekki í hópnum. Stuttgart – Steaua Búkarest................ 2:2 F-RIÐILL: Napoli – AIK......................................... 4:0  Helgi Valur Daníelsson var í liði AIK og var skipt af velli á 81. mínútu. Dnipro – PSV Eindhoven ..................... 2:0 G-RIÐILL: Genk – Videoton.................................... 3:0 Sporting Lissabon – Basel ................... 0:0 H-RIÐILL: Inter Mílanó – Rubin Kazan................ 2:2 Marko Livaja 39., Yuto Nagatomo 90. – Alexander Ryazantsev 17., Salomon Rondón 84. Partizan Belgrad – Neftchi Bakú ........ 0:0 I-RIÐILL: Athletic Bilbao – Kiryat Shmona......... 1:1 Lyon – Sparta Prag .............................. 2:1 J-RIÐILL: Tottenham – Lazio............................... 0:0  Gylfi Þór Sigurðsson kom inná sem varamaður hjá Tottenham á 75. mínútu. Maribor – Panathinaikos...................... 3:0 K-RIÐILL: Leverkusen – Metalist Kharkiv........... 0:0 Rapid Vín – Rosenborg ........................ 1:2 L-RIÐILL: Twente – Hannover .............................. 2:2 Levante – Helsingborg......................... 1:0 KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.