Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 6
HANDBOLTI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Síðasta tímabil hjá Fram í N1- deildinni endaði með miklum von- brigðum. Liðið mætti með ógnar- sterkan leikmannahóp til leiks og vann sjö af fyrstu átta leikjum sín- um. Þá var byrjað að tala um liðið sem verðandi Íslandsmeistara. En síðan fór að halla undan fæti. Liðið varð ekki Íslandsmeistari og komst ekki einu sinni í úrslitakeppnina. Þá tapaði Fram fyrir Haukum í úr- slitum bikarkeppninnar. Fram fór illa með gott tækifæri í fyrra því nú er leikmannahópurinn langt því frá jafnsterkur. Farnir eru menn á borð við Ingimund Ingimundarson, Jóhann Karl Reyn- isson og Einar Rafn Eiðsson. Þá er Halldór Jóhann Sigfússon hættur. Þorri Björn Gunnarsson er kominn heim úr atvinnumennsku og Har- aldur Þorvarðarson er mættur aft- ur á línuna en Safamýrarliðið hefur misst mun meira en það hefur fengið. Það vandamál á að leysa með ungum heimamönnum. Einar Jónsson þjálfar Framara áfram en verður ekki með kvenna- liðið samhliða karlaliðinu aftur. Hann lét af störfum þar í sumar og ætlar að einbeita sér að því að byggja upp nýtt karlalið í Safamýr- inni. Ekkert að marka Hafnarfjarðarmótið „Undirbúningurinn hefur verið mjög góður,“ segir línumaðurinn Haraldur Þorvarðarson sem er kominn aftur heim í Fram eftir stutta dvöl í Garðabænum. „Við erum búnir að æfa mjög vel og oft. Við höfum æft allt að tíu sinnum í viku. Svo fórum við í æf- ingaferð til Spánar þar sem Grótta var líka. Það var helvíti gott að fara þangað og ná að stilla streng- ina og koma okkur í gírinn. Eftir það komum við heim og þá hófust öll þessi æfingamót,“ segir Har- aldur en eitt þeirra var Hafn- arfjarðarmótið þar sem Fram gekk vægast sagt illa. „Það var ekkert að marka það mót. Við vorum nýkomnir heim úr æfingaferðinni og vorum í þungum æfingum. Svo fór þetta smátt og smátt að léttast hjá okkur og nú er liðið að taka miklum framförum,“ segir Haraldur. Ungir strákar fá tækifæri Fram er með sterkt byrjunarlið þar sem má finna Harald sjálfan á línunni, Jóhann Gunnar Einarsson og Róbert Aron Hostert og Sigurð Eggertsson fyrir utan og svo Stef- án Baldvin Stefánsson og Þorra Björn Gunnarsson í hornunum. Þau skörð sem aðrir skildu eftir þegar þeir yfirgáfu Fram í sumar verða fyllt með ungum heimamönn- um. „Það eru margir ungir strákar að fara að stíga sín fyrstu skref. Ég þjálfaði marga þessara stráka þannig að þetta er svolítið spes fyrir mig,“ segir Haraldur. Fáir þekkja þessa ungu menn betur en hann og segir Haraldur þá tilbúna. „Ekki spurning. Þetta eru efni- legir strákar sem hafa spilað alla leikina á undirbúningstímabilinu og staðið sig vel. Einar hefur gefið þeim tækifæri til að breikka hópinn og setja þá inní hlutina, “ segir Haraldur sem viðurkennir þó að breiddin sé ekki sterkasta hlið Fram. „Hún er kannski ekkert sér- staklega mikil en við erum með gott byrjunarlið. Þar eru gríð- arlega sterkir leikmenn í öllum stöðum. En þetta er eins og hjá flestum að það má lítið út af bregða okkur. Ef við lendum í miklum meiðslum getur farið illa hjá okkur,“ segir Haraldur. Markmiðið að halda sér í deildinni Með svona ungt lið segir Har- aldur það erfitt fyrir liðið að setja sér einhver háleit markmið. „Við þurfum bara að stilla þessu upp þannig að við berjumst í hverjum leik. Við vitum að ef við erum ekki klárir andlega munum við tapa gegn öllum. En ef við erum klárir getum við unnið alla. Markmiðið er bara að taka þetta leik fyrir leik og reyna að halda sér í deildinni til að byrja með,“ segir Haraldur sem hefur trú á að deildin verði jöfn. „Það geta allir unnið alla. Hauk- arnir eru samt með langbreiðasta hópinn sem mun skila þeim titl- inum,“ segir Haraldur Þorvarð- arson.  N1-deildin í handbolta hefst næstkomandi mánudagskvöld, 24. september, með heilli umferð. Morgunblaðið kynnir öll liðin í N1- deildinni til leiks. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skytta Róbert Aron Hostert skoraði mikið fyrir Framara síðasta vetur og á komandi tímabili mun væntanlega mæða enn meira á honum. Fram fyllir í skörðin með ungum heimamönnum  Fram missti góða leikmenn  Ungir strákar fá mikið að spila í vetur  Haraldur Þorvarðarson þjálfað flesta  Fyrsta markmið að halda sér í deildinni Morgunblaðið/Golli Leikstjórnandi Sigurður Eggertsson, oft kallaður Gleðigjafinn, kom til liðs við Framara fyrir síðasta tímabil og stjórnar leik þeirra. Fyrstu fimm leikir Fram » Haukar (ú) 24. sept. » Akureyri (h) 27. sept. » FH (ú) 4. okt. » Valur (ú) 11. okt. » ÍR (h) 18. okt. Þjálfarinn » Einar Jónsson tók við Fram fyrir síðustu leiktíð af Reyni Þór Reynissyni. Undir stjórn Einars endaði liðið í 5. sæti í fyrra, tveimur stigum frá úr- slitakeppninni. » Einar þjálfaði einnig kvenna- lið Fram á síðustu leiktíð en hann lét af störfum sem þjálf- ari þess í sumar. » Undir stjórn Einars varð kvennalið Fram í öðru sæti á Íslandsmótinu fimm ár í röð og vann bikarmeistaratitilinn tvisvar. Leikmannabreytingar » Komnir: Björn Viðar Björnsson (úr láni), Haraldur Þorvarðarson (Stjörnunni), Þorri Björn Gunn- arsson (Team Sydhavsöerne). » Farnir: Sebastian Alexandersson (Vík- ingur), Halldór Jóhann Sigfús- son (hættur), Ingimundur Ingi- mundarson (ÍR), Jóhann Karl Reynisson (FH), Einar Rafn Eiðsson (FH), Arnar Birkir Hálfdánsson (FH), Matthías Daðason (TMS Ringsted), Ást- geir Rúnar Sigmarsson (Fylk- ir). 6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 Jonjo Shelvey var í aðal- hlutverki hjá Liverpool í gærkvöld þegar ungt lið félags- ins vann góðan útisigur á Yo- ung Boys í Sviss, 5:3. Þetta var fyrsti leik- urinn í riðla- keppni Evrópudeildar UEFA en þar var leikin heil umferð í gær- kvöld. Liverpool lenti 3:2 undir um miðjan síðari hálfleik eftir að hafa komist tvisvar yfir í fyrri hálfleik. Úrúgvæski miðvörð- urinn Sebastian Coates náði að jafna metin í 3:3 og síðan tók varamaðurinn Shelvey til sinna ráða. Hann kom Liverpool yfir og innsiglaði svo sigurinn með glæsilegu marki rétt fyrir leiks- lok. Nítján ára gamall miðvörður, Andre Wisdom, skoraði annað mark Liverpool í leiknum, í sín- um fyrsta leik með aðalliðinu, en fyrsta mark Englendinganna var sjálfsmark heimamanna á upp- hafsmínútunum. Flestir lykilmenn Liverpool voru skildir eftir heima, svo sem Steven Gerrard, Luis Suárez, Daniel Agger, Martin Skrtel og Pepe Reina. FCK krækti í þrjú stig FC Köbenhavn, með Ragnar Sigurðsson í vörninni, vann Molde frá Noregi, 2:1, í slag Norðurlandaliðanna á Parken í Kaupmannahöfn. Andreas Cornelius skoraði sigurmarkið, stundarfjórðungi fyrir leikslok. Ragnar var eini Íslending- urinn í liði FCK í gær en Sölvi Geir Ottesen var varamaður og kom ekkert við sögu, og Rúrik Gíslason var í 20 manna hópnum en ekki meðal þeirra sjö sem sátu á varamannabekknum. Helgi og félagar steinlágu Helgi Valur Daníelsson og fé- lagar í sænska liðinu AIK áttu lítið í Napoli þegar liðin mættust á Ítalíu. Napoli vann öruggan sigur, 4:0, en Helgi lék á miðj- unni hjá AIK í rúmar 80 mín- útur. Eduardo Vargas, sókn- armaður frá Síle, var Svíunum erfiður og skoraði þrennu fyrir Napoli. Gylfi spilaði í korter Gylfi Þór Sigurðsson lék síð- asta stundarfjórðunginn með Tottenham sem gerði marka- laust jafntefli við Lazio frá Ítal- íu á White Hart Lane. Totten- ham hafði ekki heppnina með sér því þrjú mörk voru dæmd af liðinu í leiknum. Eitt þeirra af Clint Demspey sem tók stöðu Gylfa í byrjunarliðinu. Gylfi leysti hann síðan af hólmi í leiknum. Hugo Lloris, fyrirliði franska landsliðsins, varði mark Totten- ham og spilaði þar með sinn fyrsta leik fyrir félagið. vs@mbl.is Jonjo Shelvey tryggði Liver- pool sigurinn Jonjo Shelvey 1. deild karla KFR-Lærlingar – KR-C........................ 15:5 KFR-Stormsveitin – KFA-ÍA............... 1:19 KFR-JP-kast – KFA-ÍA-W............. 5,5:14,5 KR-A – ÍR-PLS................................. frestað ÍR-L – ÍR–KLS...................................... 3:17 1. deild kvenna KFA-ÍA – ÍR-N...................................... 16:4 KFR-Skutlur – KFR-Afturgöngur ...... 2:18 ÍR-Buff – ÍR-TT................................ frestað ÍR-BK – ÍR-KK...................................... 15:5 ÍFH-DK – KFR-Valkyrjur ................... 2:18 KEILA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.