Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Á HLÍÐARENDA
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta hafa verið hálfskrýtnir dagar.
Það var fundur í gær [í fyrradag]
sem var erfiður en við ákváðum bara
að láta þetta þjappa okkur saman,
vinna fyrir félagið, og mér sýndist í
þessum leik að það hefði tekist. Fyr-
ir mitt leyti var þetta sigur fyrir
Magga,“ sagði Guðmundur Þór-
arinsson leikmaður ÍBV eftir örugg-
an 3:0 sigur liðsins á Valsmönnum að
Hlíðarenda í fyrsta leik eftir óvænt-
ar þjálfarabreytingar Eyjamanna.
Eins og alkunna er sagði Magnús
Gylfason upp starfi í vikunni og
munu þeir Dragan Kazic og Ian
Jeffs stýra ÍBV út tímabilið. Þeir
höfðu reyndar sér til fulltingis í gær
Heimi Hallgrímsson aðstoðarlands-
liðsþjálfara og fyrrverandi þjálfara
liðsins. Hermann Hreiðarsson hefur
svo verið ráðinn til að taka við sem
aðalþjálfari eftir tímabilið og hann
fylgdist að vanda með leiknum í gær
úr stúkunni.
Þessi rússíbanareið síðustu daga
virtist ekki skemma fyrir Eyja-
mönnum sem léku fantavel í gær, á
meðan Valsmenn náðu vart skoti á
mark, og áttu ekkert minna skilið en
sigur. Það fór því ekki eins og undir
lok síðustu leiktíðar þegar óvænt
fréttist að Heimir myndi hætta með
liðið og það náði aðeins einu stigi af
tólf mögulegum í kjölfarið. Guð-
mundur segir það þó hafa tekið sinn
tíma að melta nýjustu þjálfarabreyt-
ingarnar.
Skrýtin stemning og sorgleg
niðurstaða
„Mönnum var mjög brugðið og
það var rosalega skrýtin stemning á
fundinum í gær þar sem við fengum
þetta staðfest. Fyrir mitt leyti er
þetta sorgleg niðurstaða en við fáum
flottan mann í staðinn og verðum
bara að halda áfram. Það er virki-
lega spes hvernig hlutirnir þróuðust
en við verðum bara að taka því,“
sagði Guðmundur sem vildi ekki
taka undir kjaftasögur þess efnis að
leikmenn hefðu verið orðnir þreyttir
á Magnúsi sem hafði náð mjög góð-
um árangri með liðið í sumar.
„Það er alla vega ekki þannig fyrir
mitt leyti. Maggi gaf mér 100%
traust, setti mig á miðjuna, og ég hef
átt mjög gott sumar þó ég segi sjálf-
ur frá,“ sagði Guðmundur.
Með sigrinum styrkti ÍBV stöðu
sína enn í baráttunni um Evr-
ópusæti og þegar aðeins tvær um-
ferðir eru eftir er liðið fjórum stig-
um frá því að fara úr slíku sæti. Það
er því allt útlit fyrir að Eyjamenn
taki þátt í forkeppni Evrópudeild-
arinnar þriðja árið í röð. Tímabilið er
hins vegar algjör vonbrigði fyrir
Valsmenn sem eiga enn á hættu að
falla.
„Sigur fyrir Magga“
Eyjamenn styrktu stöðuna í öðru sætinu með 3:0 sigri
á Hlíðarenda Þjálfaraskiptin skemmdu ekki fyrir
Stjórnandi Ian Jeffs var óvænt kominn í þá s
FÆRI 34. GuðmundurÞórarinsson átti
stórkostlega sendingu fram hægri
kantinn á Arnór Eyvar sem gaf
góða sendingu fyrir markið á Ol-
sen en einhvern veginn tókst Dan-
anum að skjóta framhjá marki
Vals af stuttu færi.
0:1 45. Eftir hornspyrnu frávinstri barst boltinn að
lokum til Rasmus Christiansens
við vítateigslínuna hægra megin og
hann átti glæsilegt skot upp í
hægra markhornið.
0:2 56. Andri Ólafsson áttifrábæra vippu inn fyrir
vörn Vals á Christian Olsen sem
rétt slapp við að vera rangstæður
og komst einn gegn Sindra mark-
verði. Olsen læddi boltanum svo í
hægra markhornið.
0:3 86. Abel sendi langasendingu fram völlinn og
þeim Úlfari Hrafni og Jónasi Þór
Næs, öftustu mönnum Vals, mis-
tókst skelfilega að bregðast við
henni. Á endanum reyndi Jónas að
spyrna fram en boltinn fór beint í
Tryggva Guðmundsson sem slapp
þá einn gegn markverði og skoraði
af öryggi.
I Gul spjöld:Atli Sveinn (Val) 23. (brot),
Rasmus (ÍBV) 39. (brot), Þórarinn
Ingi (ÍBV) 53. (brot), Haukur Páll
(Val) 90. (brot).
M
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Arnór Eyvar Ólafsson (ÍBV)
Rasmus Christiansen (ÍBV)
Guðmundur Þórarinsson (ÍBV)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV)
Christian Olsen (ÍBV)
Magnús Gylfason mætti á leik-
inn í gær eftir að hafa sagt upp
starfi og sat nærri verðandi arf-
taka sínum, Hermanni Hreið-
arssyni.
Þetta gerðist
á Hlíðarenda
SLÁ 4. Kristinn Jónsson tókhornspyrnu frá hægri
og miðvörðurinn Sverrir Ingi Inga-
son skallaði boltann í slána.
FÆRI 27. BjörgólfurTakefusa fékk bolt-
ann inná teignum, sneri og kom sér
í dauðafæri en Ingvar Kale varði.
FÆRI 47. IngimundurNíels Óskarsson
plataði varnarmenn Blika upp úr
skónum við endalínuna og gaf fyrir
markið þar sem Björgólfur Take-
fusa skóflaði boltanum yfir af
tveggja metra færi.
0:1 56. Magnús Þórir Matt-hías átti hnitmiðaða fyr-
irgjöf inná teiginn þar sem Ingi-
mundur Níels Óskarsson var
mættur og skoraði með skalla af
stuttu færi.
STÖNG 69. Arnar MárBjörgvinsson
gaf fyrir frá hægri og Rafn Andri
Haraldsson skallaði boltann í ut-
anverða stöngina.
1:1 90.+2 Elfar Árni Að-alsteinsson átti skot að
marki sem Bjarni Þórður varði út í
teiginn. Þar var enginn nema
Sverrir Ingi Ingason sem skoraði
auðveldlega í autt markið.
I Gul spjöld:Tómas (Fylki) 58. (brot),
Finnur (Breiðabliki) 66. (brot),
Þórður (Breiðabliki) 86. (brot).
MM
Ingvar Þór Kale (Breiðabliki)
M
Sverrir Ingi Ingason (Breiðabliki)
Kristinn Jónsson (Breiðabliki)
Bjarni Þórður Halldórsson (Fylki)
David Elebert (Fylki)
Tómas Þorsteinsson (Fylki)
Ingimundur N. Óskarsson (Fylki)
Magnús Þórir Matthíasson (Fylki)
Þetta gerðist
á Kópavogsvelli
Kópavogsvöllur, Pepsi-deild karla, 20.
umferð, fimmtudag 20. september
2012.
Skilyrði: Milt og gott, völlurinn fínn.
Skot: Breiðablik 8 (6) – Fylkir 14 (8).
Horn: Breiðablik 8 – Fylkir 12.
Lið Breiðabliks: (4-3-3) Mark: Ingvar
Kale. Vörn: Þórður S. Hreiðarsson,
Sverrir Ingi Ingason, Renee Troost
(Elfar Á. Aðalsteinsson 72.), Kristinn
Jónsson. Miðja: Finnur Orri Margeirs-
son, Andri R. Yeoman, Rafn A. Har-
aldsson. Sókn: Nichlas Rhode, Ben
Everson (Arnar Már Björgvinsson
60.), Tómas Óli Garðarsson (Olgeir
Sigurgeirsson 60.).
Lið Fylkis: (4-3-3) Mark: Bjarni Þ.
Halldórsson. Vörn: Elís R. Björnsson,
David Elebert, Kjartan Á. Breiðdal,
Tómas Þorsteinsson. Miðja: Ásgeir B.
Ásgeirsson, Finnur Ólafsson (Sig-
urvin Ólafsson 90.), Emil Ásmunds-
son (Ásgeir Eyþórsson 80.) Sókn:
Ingimundur N. Óskarsson, Björgólfur
Takefusa (Jóhann Þórhallsson 75.),
Magnús Þ. Matthíasson.
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: 766.
Breiðablik – Fylkir 1:1
Í KÓPAVOGI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Sverrir Ingi Ingason, miðvörður
Breiðabliks, reyndist bjargvættur
liðsins í gærkvöldi þegar hann skor-
aði jöfnunarmark gegn Fylki, 1:1, í
uppbótartíma og hélt þannig lífi í
Evrópudraumum Blika.
Fylkismenn voru einni mínútu frá
því að senda falldrauginn með næsta
strætó úr Árbænum en sigur hefði
endanlega tryggt sæti liðsins í Pepsi-
deildinni. Þeir eru í góðum málum því
þeir geta nú aðeins fallið á markatölu
en vissulega hefði verið fínt fyrir
Fylkismenn að geta farið algjörlega
pressulausir inn í síðustu tvær um-
ferðirnar.
Færin fengu Fylkismenn
Sigurinn hefði Fylkisliðið átt skilið
því það spilaði einn af sínum betri
leikjum í sumar. Það fékk nóg af fær-
um til að skora fleiri mörk en Ingvar
Kale var í ham í marki Breiðabliks og
bjargaði því sem bjargað varð.
Blikar fengu líka sín færi í fyrri
hálfleik en bæði Nichlas Rhode og
Ben Everson unnu illa úr þeim tæki-
færum sem þeir fengu.
„Þetta er rosalega svekkjandi,“
sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari
Fylkis, daufur í dálkinn við Morg-
unblaðið eftir leikinn. „Á meðan þú
nýtir ekki færin þín geturðu alltaf átt
von á einni langri sendingu inn fyrir
og höggi í andlitið. Því miður þurfum
við að þola það í dag.“
Ásmundur var samt sem áður
ánægður með liðið. „Þetta var flottur
leikur. Við spiluðum loksins mjög fín-
an leik og sýndum aðeins hvað í okk-
ur býr. Það er bara leiðinlegt að hafa
ekki landað þremur stigum.“
Hættulegir á lokamínútunum
Þrátt fyrir að vera í hörkubaráttu
um Evrópusæti vantaði mikið upp á
kraft og vilja í Blikaliðinu. Þeir voru
ívið betri til að byrja með en Fylk-
ismenn tóku völdin, sérstaklega í
seinni hálfleik, og hefðu átt að vera
búnir að vinna leikinn áður en Sverrir
Ingi jafnaði metin.
En Blikar gerðu það sem þeir hafa
gert nokkrum sinnum vel á þessari
leiktíð. Þeir tóku varnarmann út fyrir
sóknarmann, spiluðu með þriggja
manna varnarlínu og bættu Sverri
Inga við framlínuna til að fá meiri
styrk og kraft framar á völlinn.
Þeir settu mikla pressu á Fylk-
ismennina sem þeir á endanum
brotnuðu undan og fengu á sig jöfn-
unarmark. Ólafur Kristjánsson, þjálf-
ari Blika, var ánægður með að taktík-
in undir lokin hefði heppnast en
hrósaði sínum strákum ekkert sér-
staklega fyrir leikinn.
„Við vorum nokkuð saddir í 87 mín-
útur en hungrið kom aðeins í restina
og það dugði til að ná í stig. Við tók-
um ákveðna sénsa og hentum Sverri
fram til að fá meiri grimmd þarna og
það tókst. „Lucky punch,“ sagði Ólaf-
ur við Morgunblaðið eftir leikinn.
Fylkismenn hefðu með sigri getað
jafnað Breiðablik að stigum og komið
sér í smá baráttu um Evrópusæti í
lokaumferðunum. Þess í stað fengu
bæði liðin stig sem gerði ansi lítið fyr-
ir þau. Fylkismenn eru skrefi nær því
að bjarga sér og Blikar eru hænu-
skrefi nær Evrópudeildinni. Þrjú stig
var það sem bæði lið þurftu.
Stigið gerði lít-
ið fyrir bæði lið
Fylkir náði ekki að kveðja falldrauginn
Morgunblaðið/Golli
Dramatík Breiðablik náði að jafna gegn Fylki í uppbótartíma á Kópavogsvell-
inum í gærkvöldi. Miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason skoraði markið.
Vodafonevöllurinn, Pepsi-deild karla,
20. umferð, fimmtudag 20. sept.
Skilyrði: Hálfskýjað og logn. Völlurinn
ágætur.
Skot: Valur 6 (1) – ÍBV 12 (8).
Horn: Valur 3 – ÍBV 6.
Lið Vals: (4-3-3) Mark: Sindri Snær
Jensson. Vörn: Jónas Þór Næs, Atli
Sveinn Þórarinsson, Halldór K. Hall-
dórsson, Úlfar Hrafn Pálsson. Miðja:
Haukur Páll Sigurðsson, Kristinn
Freyr Sigurðsson (Indriði Áki Þorláks-
son 65.), Rúnar Már Sigurjónsson.
Sókn: Matthías Guðmundsson (Ás-
geir Þór Ingólfsson 83.), Kolbeinn
Kárason (Andri F. Stefánsson 72.)
Guðjón P. Lýðsson.
Lið ÍBV: (4-5-1) Mark: Abel Dhaira.
Vörn: Arnór Ólafsson, Brynjar G. Guð-
jónsson, Rasmus Christiansen, Matt
Garner. Miðja: Víðir Þorvarðarson
(Tryggvi Guðmundsson 65.), Tonny
Mawejje, Andri Ólafsson (Ian Jeffs
74.), Guðmundur Þórarinsson, Þór-
arinn I. Valdimarsson. Sókn: Christian
Olsen (Yngvi Borgþórsson 87.)
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson – 9.
Áhorfendur: Um 800.
Valur – ÍBV 0:3