Morgunblaðið - 13.09.2012, Síða 6
6 finnur.is 13. september 2012
A
madeus (1985), Óskarsverðlaunamynd
Milos Forman um Mozart, og svo Im-
mortal Beloved (1994) sem sagði frá
Ludwig van Beethoven, með Gary Old-
man í aðalhlutverki, eru líkast til þekktustu leiknu
myndirnar um raunveruleg tónskáld. Impromptu
frá 1991 er minna þekkt en að ósekju því hún er
afbragðsgóð. Hún segir frá meintu ástarævintýri
pólska tónskáldsins Fréderic Chopin (Hugh
Grant) og rithöfundarins og barónessunnar
Amantine-Lucile-Aurore Dupin (Judy Dav-
is), sem skrifaði undir dulnefninu George
Sand. Í myndinni er Sand yfir sig hrifin af
Chopin en jafnframt er henni vandi á
höndum; hið pólska tónskáld er ákaflega
brothætt til heilsunnar og vinir hans biðja
skáldkonuna ástföngnu að stíga varlega í
vænginn við hann, sé hún of áköf er hætt
við að það myndi ríða honum að fullu. Sé hún
hins vegar of hæglát í umleitunum sínum er eins
víst að hann líði heilsubrest af vonbrigðum. Tilhugalífið
verður því kúnst, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Inn í
söguna fléttast svo tónskáldið Franz Liszt (Julian Sands), leik-
skáldið og rithöfundurinn Alfred de Musset (Mandy Patinkin) og
listmálarinn Eugene Delacroix (Ralph Brown).
Impromptu (orðið merkir spuni í hljóðfæraleik) fékk prýðis
viðtökur þegar hún var frumsýnd fyrir rúmum 20 árum. En
eins og gengur falla góðar myndir í gleymsku ef hvorki leik-
stjórinn né neinn aðalleikaranna er stórstjarna — og Hugh
Grant var ekki búinn að bjóða Divine Brown upp í bílinn sinn.
Impromptu er sýnd á MGM á föstudagskvöldið 14. september.
Leikið af
fingrum fram
* Glöggir taka eflaust eftir hinni öldnu úrvals-
leikkonu Önnu Massey, sem fór með stór hlutverk
í sígildum myndum á borð við Peeping Tom og
Frenzy.
* Judy Davis lék í Where Angels Fear To Tread,
Emma Thompson í Howard’s End og Julian Sands
í A Room With A View.
*Hugh Grant hafði þegar leikið Chopin áður en
þessi mynd var gerð. Það var í stuttmyndinni
Nocturnes frá 1988.
*Það sem meira er, öll léku þá á móti Helenu
Bonham Carter, hvert í sinni myndinni!
* Judy Davis, Emma Thompson og
Julian Sands leika öll í myndinni
og eiga það líka sameiginlegt að
hafa leikið í búningadrama eftir þá
Ismail Merchant og James Ivory.
Vissirþú að...
DAGSKRÁIN
UM HELGINGA
Draugaþættirnir á SkjáEinum lofa góðu. Unglingurinn á heim-
ilinu, sem legið hefur yfir Gæsahúð, Twilight Zone og fleiri hálf-
draugalegum bókmenntum var yfir sig spenntur yfir fyrsta þætt-
inum og foreldrarnir voru á því að gefa þættinum séns í nafni
fjölskyldusamveru. Ekki á hverju kvöldi sem hægt er að búa slíka
stund til.
Þættirnir bera yfirskriftina Óupplýst og verða alls sjö talsins, í
heimildamyndaformi. Eins og heiti þeirra gefur til kynna fjalla
þeir um óútskýrða atburði sem hafa átt sér stað hérlendis og
jafnvel eru taldir tengjast öðrum heimi.
Þættirnir eru mátulega langir, eða um
25 mínútur þannig að þetta er ágætis
kvöldkaffi rétt fyrir svefninn. Í honum
komu áhugaverðar týpur fram. Spá-
miðlum sem sófakartaflan hefur
fylgst með í gegnum tíðina og jafn-
vel heimsótt brá fyrir á skjánum og
brutu þeir frásögnina upp og með
þessum viðtölum inn á milli byggðist
spennan enn frekar upp. Sjálf Bíbí var
ein af þeim sem og Hrönn Friðriks-
dóttir sem er afar áhugaverður spámið-
ill og gaman að heyra hennar sögu.
Það er í raun ótrúlegt, miðað við
áhuga Íslendinga á draumum og
dularfullum atburðum að þættir
sem þessir séu nýmeti í sjón-
varpinu en ekki daglegt brauð.
En það ber að þakka sem þó er
gert og SkjárEinn fær prik
fyrir þetta.
SÓFAKARTAFLAN RAUSAR
Mánudagsdraugar
Never So Few
er kvikmynd
með BÆÐI
Steve
McQueen og
Frank Sinatra. Fleira þarft
þú ekki að vita, nema að
myndin er sýnd á TCM.
(Þá það, þetta er stríðs-
mynd sem gerist í seinna
stríði).
Fimmtudagur
Þegar við
Íslend-
ingar tök-
um okkur
saman um
gott mál-
efni lyftum við grettistaki.
Nú er tími til þess kominn;
Á allra vörum er á RÚV í
kvöld. Komaso!
Föstudagur
Ein indæl-
asta verð-
launamynd
seinni ára er
tvímæla-
laust Side-
ways. Hug-
ljúf fyrir dömurnar og
fyndin fyrir strákana – fínt
fyrir alla! Skál í boðinu,
varlega þó. Sýnd á Stöð 2.
Laugardagur
Cat On A
Hot Tin Ro-
of er ekki
bara eitt
frægasta
leikverk
allra tíma heldur skartar
bíógerðin Paul Newman og
Elizabeth Taylor í sínum
besta ham. TCM.
Sunnudagur
Sögulegur skáldskapur um líf
og listir raunverulegra tón-
skálda hefur reynst gott bíó-
efni. Impromptu er skínandi
gott dæmi um slíka mynd.
ÞAÐ KOSTAR LÍKA AÐ ÞVO SJÁLFUR!
LÁTTU OKKUR SJÁ UM ÞÍNAR SKYRTUR.
350 KR. SKYRTAN
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr.
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
- NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is Efnalaug - Þvottahús