Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 20

Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 20
20 finnur.is 13. september 2012 F lestir kaupendur nýrra bíla gera þá meginkröfu að hann eyði litlu. Það er því nokkuð upplífgandi að hafa ekið bíl 250 km í reynslu- akstri, tankurinn stendur í ríflega þremur fjórðu hlutum og aksturs- tölvan sýnir að enn megi aka 780 km uns tankurinn tæmist. Þannig var reynslan af Citroën C4 með 1,6 lítra díselvél. Uppgefin eyðsla frá framleiðanda er 4,2 l í blönd- uðum akstri og hann hjó einkar nærri þeirri tölu einmitt í blönd- uðum akstri sem bæði fór fram innan borgarmarkanna og úti á þjóðvegum. Það er ávallt skemmtileg tilbreyting að stíga inn í franskan bíl, en Frakkarnir fara alltaf aðrar leiðir við útfærslu á innréttingum og sýna þar oftast frumleika og stílfærni. Ekki versn- ar tilfinningin við að setjast í frá- bær framsætin, en þau eru með því allra besta sem býðst og mjög falleg þó svo tauklædd séu. Aft- ursætin eru ekki mikill eftirbátur og þar er höfuðrými svo mikið að undrum sætir, en ytra lagi bílsins er þar að þakka. Í heild má segja að Frökkunum hafi tekist vel til að koma öllum þessum tækni- og ör- yggisbúnaði fyrir í þessum netta bíl og hann vegi ekki nema rétt ríflega 1.200 kg. Snörp en sparneytin dísilvél Að utan er C4 býsna snotur bíll. Línurnar eru mjög bogadregnar og nær bogalínan alveg aftur að afturstuðara. Frakkar hafa ávallt hannað fallega bíla og þessi er ekki nein undantekning frá því. Stærð bílsins fellur í C-flokk en hann á minni bræður í C1- og C3- bílunum sem einnig hafa þetta dropaform sem prýðir þá alla vel. Citroën C4, sem leysti af Citroën Xsara, hefur verið framleiddur frá 2004 en núverandi kynslóð kom fram árið 2010. Hann er í boði hjá Brimborg með tveimur dísil- vélum, 92 og 112 hestafla sem báðar eru 1,6 l. Sama stærð af bensínvél er í boði, 120 hestafla, en með þeirri vél stígur eyðslan hressilega upp og er uppgefin 6,9 l í blönduðum akstri. Það er alltof mikið fyrir ekki stærri bíl svo það er skiljanlegt að aðaláherslan sé á dísilútgáfur bílsins. Reynsluakst- ursbíllinn var með aflminni dís- ilvélinni og beinskiptur. Þar sem bíllinn er nettur og léttur dugar þessi vél bílnum mjög vel. Það má færa rök fyrir því að skemmti- legra væri að búa að enn meira afli en hann er samt furðulega snarpur og í raun er lítill söknuður að fjölgun hestaflanna. Hann hraðar sér hressilega í öllum gír- um og 5 gíra beinskiptingin spilar mjög vel með þessari vél. Lipur í akstri en stýristilfinning lítil Svo lítið fer fyrir hraða í bílnum að passa verður sig stöðugt á að vera ekki kominn norðan megin við hraðatakmörkin. Hann fór mjög vel með farþega á þjóðveg- inum og er óvenju ljúfur í lang- keyrslu og viljugri en ótamið trippi. Innanbæjar er hann sem köttur, lipur og snöggur og fer fimlega í beygjur, þó krappar séu. Tilfinningin í stýri er lítil og er það einn af ókostum bílsins en það má þó hugga sig við að þar er verið að stýra mjög vel upp- settum undirvagni svo öryggis- tilfinningin er mikil þó skortur sé á næmi. Mörgum kann að finnast kúplingin í bílnum of létt en það vandist vel og er kannski nokkuð lýsandi við akstur hans, allt er svo létt, auðvelt og lipurt. Mælaborðið er stafrænt og hraðinn er uppgef- inn með stórvöxnum tölum. Þannig mælar gefa mun skýrara og hraðara svar við því hvort of hratt sé farið. Auk þess er út- færsla mælaborðsins smekkleg og upplýsandi. Stýrið er ansi stór- vaxið fyrir nettan bíl, en það má þó stilla, hækka það og lækka og draga að sér. Það er leðurklætt og ágætt fyrir augað, en á það er hlaðið mörgum stillingum sem er haganlega fyrir komið og þægi- legt að nota. Óvenjustórt skott Í mælaborði kemur upp ráð- legging til ökumanns um hvort hann eigi að skipta upp eða niður Finnur Orri Thorlacius reynsluekur Citroën C4 Morgunblaðið/Styrmir Kári Citroën C4 Árgerð 2012 • Farangursrými 380 l. • 1,6 l. dísilvél • 92 hestöfl/230Nm • 5 gíra beinskipting • 16“ stálfelgur • Eigin þyngd: 1.205 kg • Burðargeta: 585 kg • 0-100: 14,4 sek. •Hámark: 180 km/klst • Framhjóladrif • Verð: 3.390.000 kr. • 4,2 l/100 km. í bl. akstri • Umboð: Brimborg •Mengunargildi: • 110 g CO2/km Frakkar hafa ávallt hannað fal- lega bíla og Citroë C4 er ekki nein undantekning frá því. Kostum hlaðinn Frakki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.