Morgunblaðið - 27.10.2012, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2012
ÍÞRÓTTIR
Fótbolti Chelsea tekur á móti Manchester United í einum af úrslitaleikjum leiktíðarinnar
í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Borgarslagur á Goodison Park 2
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fögnuður Dóra María Lárusdóttir í faðmlögum við Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra og frænku sín eftir sigurinn á Úkraínu.
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Ég er bara virkilega glaður og
ánægður með þennan árangur
kvennalandsliðsins. Það að komast í
lokakeppni á stórmóti verður alltaf
stór áfangi fyrir Ísland,“ sagði Geir
Þorsteinsson, formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands, við Morg-
unblaðið þegar leitað var eftir við-
brögðum hans eftir að ljóst var að
íslenska kvennalandsliðið tekur þátt í
úrslitakeppni Evrópumótsins í Sví-
þjóð á næsta ári.
Ákall Sigga virkaði vel
„Ég var vongóður fyrir leikinn að
liðið okkar myndi ná að tryggja sér
EM-sætið en Úkraníuliðið var alls
ekki auðvelt viðureignar. Mætingin á
leikinn var frábær og ljóst að ákall
Sigga landsliðsþjálfara til þjóðar-
innar virkaði vel. Ég er líka viss um
að áhorfið á leikinn í sjónvarpinu hafi
verið gríðarlega mikið,“ sagði for-
maðurinn.
Geir bindur vonir við að íslenska
landsliðið nái betri árangi á EM í Sví-
þjóð næsta sumar en það náði í Finn-
landi fyrir þremur árum en þá tapaði
það öllum þremur leikjum sínum í
riðlinum.
„Ég sagði við leikmennina strax
eftir leikinn að nú væru þeir reynsl-
unni ríkari eftir að hafa verið með í
síðustu Evrópukeppni og nú væri
markmiðið að komast að minnsta
kosti í átta liða úrslitin,“ sagði Geir.
Í gær birti Evrópska knattspyrnu-
sambandið nýjan styrkleikalista og á
honum er Ísland í 8. sæti og hefur
fært sig upp um eitt sæti frá því síð-
asti listi var gefinn út. Þýskaland er
sem fyrr í efsta sæti og á eftir koma:
Svíþjóð, Frakkland, England, Nor-
egur, Ítalía, Danmörk, Ísland, Finn-
land, Rússland, Holland og Spánn
sem er í 12. sæti. Þessar tólf þjóðir
taka þátt í úrslitakeppninni sem
haldin verður í Svíþjóð 10.-28. júlí á
næsta ári.
Eiga bónusinn skilið
Geir kom færandi hendi þegar
hann hitti landsliðskonurnar í hófi
eftir leikinn en þar greindi hann frá
því að stjórn KSÍ hefði ákveðið að
greiða leikmönnum samtals 10 millj-
ónir króna í bónus sem skiptist á
milli leikmannanna. „Við ákváðum að
veita leikmönnunum afreksstyrk
eins og gert var þegar liðið vann sér
sæti á EM í Finnlandi. Þeir voru
mjög glaðir með það og þeir eiga
þetta virkilega skilið. Þessi árangur
liðsins er gríðarlega mikilvægur fyr-
ir grasrótina. Það kom mikill kippur í
kvennafótboltann þegar liðið komst á
EM fyrir þremur árum og ég held að
það gerist aftur nú,“ sagði Geir.
Geir segir að landsliðinu verði gert
kleift að undirbúa sig sem allra best
fyrir átökin í Svíþjóð. „Liðið fer eins
og undanfarin ár á Algarve-mótið í
byrjun næsta árs og þátttakan á því
verður örugglega lykilþátturinn í
undirbúningi liðsins,“ sagði Geir.
Gríðarlega mikilvægt
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, vill sjá kvennalandsliðið komast alla vega
í átta liða úrslit á EM Leikmenn liðsins skipta á milli sín 10 milljónum krónaKnattspyrnu-maðurinn Viktor
Bjarki Arnarsson
skrifaði í gær
undir tveggja
ára samning við
Fram en hann
kemur í Safa-
mýrina frá bik-
armeisturum KR
þar sem hann
hefur spilað frá
árinu 2008. Viktor Bjarki var samn-
ingslaus hjá Vesturbæjarliðinu og
gat því rætt við hvaða lið sem var.
Hann átti einnig í viðræðum við
Fylki, Stjörnuna og 1. deildar liðið
Víking R., samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins en hann spilar með
Fram næstu tvö árin. Viktor var
kjörinn besti leikmaður Íslands-
mótsins 2006. tomas@mbl.is
Viktor Bjarki
samdi við
Framara
Viktor Bjarki
Arnarsson
Kylfingurinn
Ólafur Björn
Loftsson úr Nes-
klúbbnum þarf á
kraftaverki að
halda í dag ætli
hann að komast í
gegnum fyrsta
stig úrtökumóta
fyrir PGA-mót-
aröðina. Hann lék
þriðja hringinn í
gær á 74 höggum eða fjórum högg-
um yfir pari vallarins.
Hann er samtals níu höggum yfir
pari, tólf höggum frá þeim spilurum
sem komast áfram eins og staðan er
núna. tomas@mbl.is
Ólafur Björn
í vonlausri
stöðu
Ólafur Björn
Loftsson
U19 ára landslið
pilta í knatt-
spyrnu hafði bet-
ur á móti Aserba-
ídsjan, 2:1, í
fyrsta leik sínum
í undankeppni
EM sem hófst í
Króatíu í gær. Ís-
lendingar fengu
óskabyrjun, eftir
aðeins eina mín-
útu skoraði Arnar Aðalgeirsson.
Aserar jöfnuðu metin á 24. mínútu
en fyrirliðinn Hjörtur Her-
mannsson, sem er á mála hjá hol-
lenska liðinu PSV, tryggði Íslend-
ingum sigurinn með marki á 39.
mínútu. gummih@mbl.is
Hjörtur
tryggði Ís-
landi sigur
Hjörtur
Hermannsson
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu frá upphafi, er sjóð-
heitur þessa dagana með liði sínu Cercle Brugge í Belg-
íu.
Eiður Smári skoraði í þriðja leiknum í röð í gærkvöldi
þegar Cercle Bruggaði tapaði fyrir Standard Liege, 2:1,
á útivelli.
Standard tók forustuna í leiknum á 30. mínútu með
marki frá Imoh Ezekiel en Eiður Smári jafnaði metin á
47. mínútu eftir sendingu frá Mushaga Bakenga. Arnar
Þór Viðarsson átti þó einnig hlut í markinu. Því miður
fyrir Cercle skoraði Standard sigurmarkið tíu mínútum
síðar, lokatölur 2:1.
Þó Eiður hafi lagt sitt af mörkum í síðustu þremur
leikjum liðsins og skorað í þeim öllum hefur Cercle samt
sem áður tapað öllum þremur leikjunum. Liðið er rótfast
við botn belgísku deildarinnar með aðeins fjögur stig eft-
ir tólf leiki.
Það er þó mikið fagnaðarefni fyrir landsliðsþjálfarann
Lars Lagerbäck að Eiður Smári sé að finna sitt rétta
form því skortur hefur verið á framherjum í síðustu
verkefnum landsliðsins. tomas@mbl.is
Eiður Smári
sjóðheitur
Skoraði þriðja leikinn í röð
AFP
Markaskorari Eiður er sjóðheitur með Cercle þessa
dagana en hann hefur skorað í þremur leikjum í röð.
Sverre Andreas Jakobsson og sam-
herjar hans í þýska handknattleiks-
liðinu Grosswallstadt fögnuðu sín-
um fyrsta sigri í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöldi þegar
þeir kjöldrógu Vigni Svavarsson og
félaga í GWD Minden, 35:22, á
heimavelli. Sverre skoraði ekki
mark í leiknum en var fastur fyrir í
vörninni og var m.a. einu sinni vís-
að af leikvelli. Vignir skoraði tvö af
mörkum Minden-liðsins sem er í 12.
sæti deildarinnar með átta stig.
Grosswallstadt er áfram í næst
neðsta sæti með þrjú stig að lokn-
um 10 leikjum.
Grosswallstadt, sem tapaði illa í
bikarkeppninni í vikunni fyrir 2.
deildarliði Eisenach, tók forystu í
leiknum við Minden strax í upphafi.
Eftir stundarfjórðungsleik var
munurinn á liðunum orðinn átta
mörk, 13:5. Í hálfleik skakkaði sjö
mörkum, 19:12. iben@mbl.is
Fyrsti sigur-
inn hjá Sverre
og félögum