Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012 Embætti hæstaréttardómara laust til setningar Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til um- sóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands, til setningar meðan á leyfi skipaðs dómara stendur, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Meðan á setningu stendur nýtur sá sem hana hefur fengið sömu stöðu og skipaður dómari nema að því leyti sem leiðir af því að starfi hans er markaður ákveðinn tími, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Miðað er við að sett verði í embættið frá og með 1. desember nk. til og með 31. desember 2014 eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni dómara hefur lokið starfi sínu í samræmi við 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998 og reglur um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti nr. 620/2010. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 4. gr., sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) menntun og framhalds- menntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslu- störfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upp lýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upplýsingar um þrjá fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara. Umsóknir óskast sendar til innanríkis- ráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og á netfangið postur@irr.is. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfa- skiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu eigi síðar en 22. október nk. Innanríkisráðuneytið, 2. október 2012. Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Um er að ræða 100% stöðu sem skiptist í 50% starf við stjórnun og 50% klínískt starf. Staðan veitist frá 1. janúar 2013 eða eftir nánara samkomulagi. Framkvæmdastjóri lækninga heyrir undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn. Hann ber faglega-, fjárhagslega- og starfsmannaábyrgð í samræmi við gildandi stjórnskipulag og ákvæði laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Hæfniskröfur                                !        Umsókn skal fylgja staðfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, vísindavinnu og reynslu af stjórnunarstörfum. Umsóknarfrestur er til 20. október 2012. Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá Landlæknisembættinu. "      #  $&        &  Birgis Gunnarssonar forstjóra Reykjalundar sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið birgir@reykjalundur.is – sími: 585-2140 Framkvæmdastjóri lækninga Starf í gleraugnaverslun Starfskraftur óskast í fullt starf/hlutastarf í gleraugnaverslun í Reykjavík. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar og ferilskrá sendist á: box@mbl.is merkt: ,,G - 25146”

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.