Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir umsóknum í starf sem felur í sér umhirðu
opinna svæða. Leitað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum og hugmyndaríkum einstaklingi
sem er tilbúinn í að móta nýtt starf í einu fallegasta sveitarfélagi landsins sem leggur
ö Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar
veitir Birgir Árnason, sími 895-1473, netfang birgir@hornafjordur.is
Umsóknarfrestur er til 15. október 2012og skal stíla umsókn áSveitarfélagiðHornafjörð,
Hafnarbraut 27, 780 Hornafjörður merkt „Garðyrkjufræðingur“ eða “Vélamaður”.
Umsjón með öllum opnum svæðum í sveitarfélaginu.
Taka þátt í hönnun opinna svæða og áningarstaða.
Önnur tilfallandi störf í þjónustustöð.
Menntun eða reynsla af garðyrkjustörfum nauðsynleg.
! "
Reynsla af stjórnun æskileg.
Góð almenn tölvukunnátta.
Hæfniskröfur
Helstu verkefni:
Garðyrkjufræðingur
Sinnir tilfallandi verkefnum í þjónustustöð
Vinnuvélaréttindi nauðsynleg.
Vigtarréttindi æskileg
Ríkur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum.
Hæfniskröfur
Helstu verkefni:
Vélamaður
Nærri 65 þúsund erlendir
ferðamenn fóru frá landinu í
sl. mánuði eða um þrettán
þúsundum fleiri en í sept-
ember á sl. ári. Er þetta
fjórði mánuðurinn á árinu
sem aukningin er meiri en
20% milli ára. Ferðamenn í
september voru 25,4% fleiri
en í september árið 2011.
Þegar litið er til fjölda ferða-
manna á ellefu ára tímabili
má sjá að jafnaði 6,6% aukn-
ingu milli ára frá árinu 2002.
17,2% aukning
milli ára
Bandaríkjamenn, Norð-
menn, Þjóðverjar og Bretar
eru nærri helmingur þeirra
64.672 sem frá Íslandi fóru.
Í þeim hópi voru Banda-
ríkjamenn 15,2% og Norð-
menn 11,6%. Af einstaka
þjóðum fjölgaði Norð-
mönnum, Bretum, Banda-
ríkjamönnum, Frökkum og
Japönum. Það sem af er ári
hafa 536.957 erlendir ferða-
menn farið frá landinu eða
78.897 fleiri en á sama tíma-
bili í fyrra.
Það er 17,2% aukningu
milli ára, segir í frétt frá
Ferðamálastofu. Eru ferða-
menn um Keflavíkurflugvöll
það sem af er ári því orðnir
álíka margir og allt árið
2011. Ferðamönnum hefur
fjölgað verulega milli ára frá
öllum mörkuðum.
Um 32 þúsund Íslend-
ingar fóru utan í september
síðastliðnum, 4,9% fleiri en í
september 2011. Frá ára-
mótum hafa 275.217 Íslend-
ingar farið utan. Má álykta
að það sé einhver vísbending
um vænkandi hag lands-
manna og meira svigrúm en
áður til utanfara. sbs@mbl.is
Aldrei fleiri flogið frá landinu
Flug Ferðaþjónustan er í vexti. Erlendum ferðamönnum fjölgar stöðugt og eins flugfélögum
sem halda uppi Íslandsferðum. Icelandair er umsvifamikið fyrirtæki á þeim markaði.
20% fjölgun
ferðamanna í
september
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Erlendir ferðaþjónar sem
sóttu kaupstefnuna Vestnor-
den sem haldin var í Reykja-
vík í vikunni hafa áhyggjur af
hækkun skatta. Þetta kemur
fram í tilkynningu þeirra. Þar
segir að samkeppnishæfi Ís-
lands í ferðaþjónustu skaðist
ef hugmyndir ríkisstjórnar-
innar um hækkun virðisauka-
skatts á gistinu, úr 7% í 25,%
ná fram að ganga.
Í frétt frá Vest Norden seg-
ir að ferðaþjónustan sé ein af
auðlindum Íslands og á sl. 10
árum hafi erlendum ferða-
mönnum fjölgað um 300 þús-
und samkvæmt gögnum
Ferðamálstofu. Talsmenn
ferðaþjónustufyrirtækja telji
sóknarfæri í greininni mikil.
Hærri skattar séu sem stein-
ar í götur þeirrar þróunar.
Eyðileggur ódýra ímynd
Merete Bach Kristensen
hjá dönsku ferðaskrifstofunni
Iceland Explorer hefur selt
ferðir til Íslands í fjölda ára.
„Dönum hefur í gegnum
tíðina þótt afar dýrt að koma
til Íslands en síðustu ár hefur
okkur tekist að sannfæra far-
þega okkar að svo sé ekki
enda krónan afar hagstæð.
Þessi hækkun myndi eyði-
leggja þá ímynd sem við höf-
um verið að byggja upp að Ís-
land sé hagstæður kostur,“ er
haft eftir Kristensen – og um-
sagnir annarra eru á sömu
nótum. sbs@mbl.is
Hærri skattar
sem steinar í götu
Morgunblaðið/Eggert
Túrismi Ferðaþjónustan stendur í blóma en atvinnugreinin ber
kvíðboga fyrir boðuðum auknum álögum hins opinbera.
Áhyggjur af virðisaukaskatti
Auðlindin er sögð vera í hættu
Áhugi er fyrir því meðal
Vopnfirðinga að þar í sveit
verði sett á laggirnar fram-
haldsskóladeild. Fjallað var
um málið á aðalfundi for-
eldrafélags Vopnafjarð-
arskóla á dögunum og í álykt-
un eru yfirvöld hvött til
aðgerða. Sagt er að mennta-
málaráðuneyti, framhalds-
skólar á Austurlandi og sveit-
arstjórnin á Vopnafirði þurfi
að taka höndum saman. Ljóst
sé að afstaða mennta-
málaráðherra og Alþingis
ráði úrslitum um að af þessu
geti orðið, ekki síðar en að
ári.
Skapandi tækifæri
Í greinargerð og könnun
sem gerð hefur verið á veg-
um Vopnafjarðarhrepps er
mikill áhugi foreldra grunn-
skólabarna á stofnun fram-
haldsskóladeildar á Vopna-
firði.
„Framhaldsskóladeild
myndi treysta búsetu á
Vopnafirði til lengri tíma og
bæta lífsgæði. Kostnaður
vegna náms fjarri heima-
byggð myndi lækka umtals-
vert og brottfall nemenda úr
námi minnka. Öll aðstaða er
til staðar verði af framhalds-
skóladeild og hér eru mennt-
aðir framhaldsskólakennarar.
Þá væri deildin kærkomin
viðbót við menningar- og at-
vinnulíf samfélagsins og yki
líkur á að ungt fólk settist að
á staðnum til frambúðar með
frumkvæði til skapandi tæki-
færa eins og aðstæður leyfa,“
segir í frétt í tilkynningu frá
foreldrum á Vopnafirði.
sbs@mbl.is
Vilja framhalds-
skóla á Vopnafirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vopnafjörður Horft til framtíðar í framhaldsskólamálum.
Aðstaða og menntaðir kenn-
arar eru starfandi í þorpinu