Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 3

Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 3
Í BARCELONA Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Daninn Lars Christiansen, leikja- hæsti og markahæsti leikmaður danska landsliðsins í handknattleik frá upphafi, er einn sérfræðinga danska sjónvarpsins sem fylgst hafa með heimsmeistaramótinu á Spáni en Christiansen lagði skóna á hilluna í fyrra eftir glæsilegan feril. Morgunblaðið settist niður með Christiansen á Expo-hótelinu í Barcelona í gær og viðtalið snerist auðvitað um sýn hans á heimsmeist- aramótið, líklega sigurvegara og skoðanir hans á íslenska landsliðinu. Engar merkjanlegar framfarir Christiansen var fyrst spurður út í að því hvort handboltinn sem hann hefur séð á HM sé betri eða verri en á undangengnum árum. ,,Ég held að handboltinn sem við höfum séð á þessu móti sé bara sam- bærilegur því sem við höfum séð á síðustu árum. Nú er mótið virkilega að hefjast þegar átta liða úrslitin eru að byrja og nú fer virkilega að reyna á liðin og leikmennina. Ég merki ekki neinar sérstakar framfarir á íþrótt- inni miðað við það sem ég hef séð í keppninni en kannski breytist leik- urinn eitthvað á næstu 5-6 árum,“ sagði Christiansen. Christiansen er einn besti vinstri hornamaður sem uppi hefur verið en þessi fertugi fyrrverandi leikmaður Ribe, Kolding og Flensburg, lék í 20 ár með danska landsliðinu. Hann sló leikjametið en hann spilaði samtals 338 leiki og skoraði í þeim 1.503 mörk sem er meira en nokkur hefur skorað fyrir danska landsliðið. Christiansen var í liði Dana sem hlaut silfurverðlaunin á HM í Svíþjóð fyrir tveimur árum og hann var í bronsliðinu á HM 2007. Christiansen hampaði Evrópumeistaratitlinum í Serbíu í fyrra og það í annað sinn en hann var í liðinu sem vann EM í Nor- egi 2008. Innkoma Kaspers Nielsens breytir miklu Christiansen er bjartsýnn fyrir hönd sinna manna og spáir því að Danir verði heimsmeistarar í fyrsta sinn. ,,Fram undan er mjög spennandi keppni. Eftir að varnarmaðurinn Ka- sper Nielsen bættist í danska hópinn í síðustu viku held ég að með því færi hann öðrum varnarmönnum liðsins meira sjálfstraust og nú held ég virkilega að Danmörk eigi góða möguleika á að vinna heimsmeist- aratitilinn. Í Svíþjóð fyrir tveimur ár- um vorum við hársbreidd frá því að vinna mótið en töpuðum fyrir Frökk- um í framlengdum úrslitaleik. Ég hélt að draumur okkar væri að ræt- ast en því miður skorti okkur herslu- muninn. Það hafa komið nýir menn inn í liðið eins og Henrik Möllgaard Jensen sem hefur spilað virkilega vel og er leikmaður sem fáir þekkja. Hann hefur gefið liðinu mjög mikið. En það verður ekki auðvelt fyrir Dani að fara alla leið. Spánverjar eru með virkilega gott lið og njóta þess auðvitað að spila á heimavelli. Króat- arnir líta líka vel út og það er aldrei hægt að afskrifa Frakka. Þjóðverj- arnir hafa að mínu mati komið á óvart en ég held að þeim takist samt ekki að komast í verðlaunasæti,“ sagði Christiansen. Ísland stóð sig vel með þessa mörgu nýju leikmenn Cristiansen sá flesta leiki íslenska landsliðsins á HM þar sem Danir og Íslendingar voru í sama riðli sem leikinn var í Sevilla. Spurður út í frammistöðu íslenska liðsins sagði Lars; ,,Íslenska liðið breyttist mikið og að sjálfsögðu munar gríðarlega um leikmenn eins og Ólaf Stefánsson, Al- exander Petersson og Arnór Atlason. Allt eru þetta frábærir leikmenn og til að mynda hefur Alexander verið frábær í þýsku Bundesligunni. Hann er hreint ótrúlegur. En mér fannst íslenska liðið standa sig vel með þessa marga ungu nýju leikmenn. Það eru 7-8 leikmenn í íslenska liðinu sem eru mjög góðir, þeirra bestir eru Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson, en auðvitað geta þeir ekki dregið vagninn í allri keppninni. Ég held að þetta mót komi ís- lenska landsliðinu til góða. Aron Kristjánsson er að byggja upp nýtt lið og sú reynsla sem ungu mennirnir fengu á mótinu á eftir að nýtast lið- inu í framtíðinni. Það hefur alltaf verið erfitt að spila á móti Íslend- ingum. Það er alltaf ótrúlega gott hugarfar hjá leikmönnum Íslands og þeir gefast aldrei upp fyrr en í fulla hnefanna. Þeir eru afar vinnusamir. Þú getur aldrei verið öruggur með að vinna leik á móti Íslendingum. Sjálfir heims- og ólympíumeistararnir voru ekki langt frá því að falla úr leik fyrir Íslendingum og ég er alveg fullviss um að Ísland mæti með betra lið á næsta stórmót. Ég vona að það komi að því einn daginn að Ísland vinni stórmót,“ sagði hinn skemmtilegi Lars Christiansen sem verður mætt- ur í Palau Santi Jordi-höllina í Barce- lona í kvöld þegar Danir etja kappi við Ungverja í átta liða úrslitunum. „Vonandi kemur sá dagur að Ísland vinni stórmót“ Reuters Sigursæll Lars Christiansen vann til fjölmargra verðlauna, bæði með danska landsliðinu og þýska liðinu Flensburg. Hér fagnar hann marki í landsleik gegn Pólverjum á HM í Þýskalandi árið 2007 þar sem Danir fengu bronsverðlaunin.  Lars Christiansen, leikjahæsti og markahæsti leikmaður danska landsliðsins frá upphafi, spáir Dönum titlinum  Mótið mikil reynsla fyrir ungu leikmenn Íslands Lars Christiansen » Hann verður 41 árs í apríl og þá verður tæpt ár síðan hann lagði skóna á hilluna. » Christiansen lék með Ribe og Kolding til 1996 en með Flens- burg í fjórtán ár, til 2010. Síð- ustu tvö árin spilaði hann á ný með Kolding. » Christiansen lék 338 lands- leiki fyrir Dani og skoraði 1.503 mörk. Hann var í Evrópumes- istaraliði þeirra 2008 og 2008 og vann silfur á HM 2011 og brons 2007. » Þá vann hann þýska meist- aratitilinn með Flensburg, þýska bikarinn þrisvar og Evr- ópukeppni þrisvar. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 LínumaðurinnOrri Freyr Gíslason er á leið heim til Ís- lands eftir því sem fram kemur á heimasíðu danska liðsins Vi- borg. Þar greinir Peter Cassoe, framkvæmdastjóri félagsins, frá þessu og segir þetta vera slæmt fyrir liðið en jákvætt fyrir efnahag félagsins. Eins og fram hefur komið ákvað félagið að draga saman segl- in í rekstri karlaliðs félagsins og ætlar að keyra á ungum uppöldum leikmönnum. Orri lék með Val áður en hann hélt utan síðasta sumar ásamt Óskari Bjarna Óskarssyni sem mun þjálfa kvennalið félagsins.    Körfuknattleikskonan Eyrún LífSigurðardóttir hefur ákveðið að leika með Fjölni það sem eftir er leiktíðar í úrvalsdeild kvenna, Dom- inos-deildinni, en hún hefur leikið með Njarðvík og var m.a. Íslands- meistari með liðinu á síðasta vori. Eyrún spilar væntanlega sinn fyrsta leik með Fjölni gegn KR í kvöld.    MatthíasKróknes Jóhannsson er genginn í raðir BÍ/Bolung- arvíkur á nýjan leik eftir árs dvöl hjá Fram. Matt- hías spilaði með Vestfirðingum í 1. deildinni sumarið 2011 og ætti að styrkja liðið næsta sumar. BÍ/ Bolungarvík hefur verið að styrkja hópinn að undanförnu en Nigel Quashie kom til liðsins frá ÍR á dögunum og Michael Abnett sem einnig lék með liðinu 2011 er aftur kominn vestur. Þá hefur markvörð- urinn ungi Bjarki Pétursson gert þriggja ára samning við félagið.    Sænska félagið Norrköping hefurhafnað tilboði í sóknarmanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Hann staðfesti þetta við Norr- köpings Tidning í gær en kvaðst ekki vita um hvaða lið væri að ræða. Fólk folk@mbl.is Enska D-deildarliðið Bradford City tryggði sér í gærkvöldi farseðilinn á Wembley í úr- slitaleik deildabikarsins þrátt fyrir 2:1-tap gegn Aston Villa á útivelli. Í fyrri leik liðanna hafði Bradford unnið 3:1-sigur. Christian Ben- teke kom Villa yfir á 24. mínútu en James Hanson jafnaði metin á 55. mínútu fyrir Brad- ford eftir hornspyrnu. Andreas Weimann kom Villa svo yfir á 89. mínútu en þar við sat. Bradford mun nú mæta annaðhvort Swan- sea eða Chelsea í úrslitaleiknum en þessi lið mætast annað kvöld. Þar er Swansea með 2:0- forskot. Þetta er í annað sinn í sögunni sem lið úr fjórðu efstu deild kemst í úrslit deildabikarsins. Áður gerðist það fyrir rúm- lega hálfri öld, eða árið 1962, þegar Rochdale komst í úrslit en beið þar lægri hlut fyrir Norwich City. sindris@mbl.is D-deildarlið í úrslit James Hanson Geir Þorsteinsson gefur kost á sér til áframhaldandi for- mennsku í Knattspyrnu- sambandi Íslands en þing sam- bandsins verður haldið 9. febrúar. Formaður er kosinn til tveggja ára í senn og Geir var síðast kjörinn í febrúar 2011 þannig að tveggja ára kjör- tímabili hans er að ljúka. Öll stjórn KSÍ ásamt varamönnum gefur líka kost á sér til endur- kjörs en framboðsfrestur rennur út tveimur vikum fyrir þing, eða á laugardaginn kemur, 26. janúar. Skila þarf framboðum skriflega til skrifstofu KSÍ fyrir þann tíma. vs@mbl.is Öll stjórnin tilbúin áfram Geir Þorsteinsson Serbneska knattspyrnukonan Danka Podovac, sem hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö ár, gekk í gær til liðs við bik- armeistara Stjörnunnar og leikur með þeim á komandi keppnistímabili. Danka, sem er þrítug að aldri, er komin með tvöfalt rík- isfang, serbneskt og íslenskt, en hún hefur leikið hér á landi í sjö ár. Fyrst með Keflavík í þrjú ár, þá með Fylki eitt tímabil og með Þór/KA eitt tímabil, en hefur spilað með ÍBV frá 2011. Hún hefur gert 64 mörk í 110 leikjum í efstu deild og síð- ustu tvö árin hefur hún skorað 25 mörk og lagt upp 13 fyrir Eyjaliðið í deildinni. Þá á Danka að baki 41 landsleik fyrir Serbíu og hefur þar meðal annars nokkrum sinnum verið mótherji íslenska landsliðsins. Hjá Stjörnunni er Dönku ætlað að fylla skarð hinnar bandarísku Ashley Bares sem kemur ekki aftur í Garðabæinn eftir að hafa spilað þar undanfarin tvö ár. vs@mbl.is Danka til Stjörnunnar Danka Podovac Svíþjóð Sundsvall – Solna .............................. 101:87  Jakob Örn Sigurðarson skoraði 23 stig og tók fimm fráköst fyrir Sundsvall og Hlynur Bæringsson skoraði 17 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar. NBA-deildin Memphis – Indiana............................... 81:82 New Orleans – Sacramento............. 114:105 Charlotte – Houston........................... 94:100 Atlanta – Minnesota........................... 104:96 New York – Brooklyn .......................... 85:88 Golden State – LA Clippers .............. 106:99 Philadelphia – San Antonio ................. 85:90 Chicago – LA Lakers ........................... 95:83 Portland – Washington........................ 95:98 KÖRFUBOLTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.