Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 3
sviðsljósinu og eru gjarnan á bandi
heimaliðsins. Stundum skilur maður
ekkert í því sjálfur í heimaleikjunum
hvernig allt fellur með þér og þínu
liði. Í einum sigurleiknum var varla
dæmd á okkur aukaspyrna.
Hér eru menn líka grimmir og það
er ekki gott að lenda upp á kant við
þá sem stjórna. Þá er leikmönnum
miskunnarlaust hent yfir í vara- og
unglingaliðin, sendir með þeim í 8-10
tíma rútuferðir, jafnvel án þess að fá
að spila, og þeir eru sektaðir grimmt.
Í raun er allt gert til að ýta þeim burt.
Þetta er því afar krefjandi umhverfi.“
Slóvenaleikirnir ráða öllu
Grétar getur fyrst komið við sögu
með íslenska landsliðinu á ný 7. júní
þegar það tekur á móti Slóveníu, en
er í banni þegar liðin mætast í Lju-
bljana 22. mars. Hann segir að í þess-
um tveimur leikjum ráðist framhaldið
algjörlega hvað varðar möguleika Ís-
lands í undankeppni HM.
„Já, þeir ráða öllu fyrir okkur. Við
verðum að sækja að minnsta kosti
stig til Slóveníu og fá 4-6 stig úr leikj-
unum tveimur. Ef það tekst, verður
virkilega gaman að fara inní haustið
og berjast við Norðmenn um annað
sætið í riðlinum. Slóvenar hafa byrjað
illa, þeir ráku þjálfarann og eru að
kalla eldri leikmenn inní landsliðið á
ný, og slíkt getur virkað á báða vegu.
Svisslendingar eru einfaldlega of
sterkir og þeir munu vinna riðilinn.
Ef okkur tekst ekki að komast nógu
vel frá leikjunum við Slóvena er hætt
við að Norðmenn sigli örugglega í
annað sætið. Þeir eru ekki sterkari en
við, en hafa samt alltaf þessa seiglu
og reynslu sem skilar þeim úrslit-
unum sem þeir þurfa að ná. Þeir hafa
haft þann stöðugleika umfram okkur.
En þetta eru úrslitaleikirnir fyrir
okkur og gulrótin í þeim er sú að eiga
möguleika á skemmtilegu hausti og
spennandi baráttu í síðustu umferð-
um riðilsins.“
Lengsta landsleikjabann
sögunnar
Vegna leikbannsins, sem Grétar
fékk vegna tveggja gulra spjalda í
undankeppni HM í haust, var Grétar
ekki kallaður í vináttuleikinn í An-
dorra í nóvember og ekki heldur gegn
Rússum 6. febrúar, en hefði hvort eð
er ekki spilað hann vegna meiðslanna.
„Ætli þetta sé ekki lengsta lands-
leikjabann sögunnar. Ég fékk tvö gul
spjöld í haust og má ekki spila aftur
með landsliðinu fyrr en í júní. Hjá
Lars Lagerbäck er maður líka í banni
í æfingaleikjunum á meðan svo þetta
verður ansi langt hlé frá landsliðinu.“
En hann er spenntur fyrir fram-
haldinu og telur framtíð landsliðsins
bjarta.
Miklu meiri breidd og
samkeppni í landsliðinu
„Mér finnst útlitið vera mjög gott.
Við erum komnir með miklu meiri
breidd en áður og samkeppni um
stöður. Það er gott að sjá að Alfreð
Finnbogason hefur skorað reglulega,
svo er Kolbeinn Sigþórsson að kom-
ast aftur í gang og þeir munu setja
pressu hvor á annan. Við höfum ekki
haft svona baráttu um stöður áður.
Síðan kemur Aron Jóhannsson, og
með samkeppnina við Alfreð og Kol-
bein fyrir höndum er alveg skiljanlegt
að hann velti fyrir sér þeim mögu-
leika að spila fyrir Bandaríkin.
Áður fyrr vorum við kannski með
10-11 sterka leikmenn og þurftum
síðan að fylla nokkrar stöður með
mönnum sem voru vanir að spila ann-
ars staðar. Núna eigum við allt, fram-
herja, kantmenn, fullt af miðjumönn-
um, miðverði og bakverði. Þetta getur
komið okkur til góða þegar við þurf-
um að spila við Slóveníu í júní. Sum-
arleikir eru erfiðir fyrir þá sem hafa
lokið sínu tímabili, því einhvern veg-
inn slokknar á líkamanum um tíma og
það er erfitt að rífa sig upp þremur
vikum seinna til að spila landsleik.
Auk þess sem sumir eru undir pressu
frá sínum félögum að hvíla sig eða
fara í aðgerð vegna meiðsla. Þá er
mikilvægt að breiddin í hópnum sé
góð,“ sagði Grétar Rafn Steinsson.
Morgunblaðið/Golli
Gleði Grétar Rafn Steinsson
fagnar marki með samherjum
sínum úr íslenska landsliðinu,
m.a. Bjarna Ólafi Eiríksssyni
og Gylfa Þór Sigurðssyni
m í Kayseri í Tyrklandi Spilar þó ekki aftur með liðinu fyrr en í mars vegna
rfi, enginn glamúr en gott að einbeita sér að því að æfa og spila fótbolta
Grétar Rafn Steinsson
» Hann er Siglfirðingur, nýorð-
inn 31 árs, og lék með KS til að
byrja með en síðan með Skaga-
mönnum frá 1999 til 2004.
» Grétar spilaði með Young Bo-
ys í Sviss og síðan með AZ
Alkmaar í Hollandi frá 2005 til
2008.
» Enska úrvalsdeildarfélagið
Bolton keypti Grétar árið 2008
og þar lék hann í fjögur og hálft
ár, spilaði samtals 126 leiki í úr-
valsdeildinni og skoraði 4 mörk.
» Grétar samdi við Kayerispor í
Tyrklandi til tveggja ára síðasta
sumar.
» Hann hefur leikið 46 lands-
leiki fyrir Íslands hönd og skorað
4 mörk. Grétar var fyrirliði Ís-
lands í síðasta leik í und-
ankeppni HM, gegn Sviss í októ-
ber.
aust ef leikir tapast
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Crystal Smith,leikmaður
Grindavíkur,
vann þriggja
stiga skotkeppn-
ina sem var hluti
af svokölluðum
stjörnuleik körfu-
knattleikskvenna
sem fram fór í
íþróttahúsinu í Keflavík í gærkvöld.
Britney Jones, hjá Fjölni, varð í
öðru sæti og Jessica Ann Jenkins,
leikmaður Keflavíkur, og Lele
Hardy úr Njarðvík voru í þriðja til
fjórða sæti.
Í Stjörnuleik-num sjálfum
vann lið lands-
byggðarinnar
liðsmenn höf-
uðborgarsvæð-
isins, 109:106, eft-
ir framlengdan
leik. Lele Hardy
var valin maður
leiksins en hún var með þrennu,
skoraði 20 stig, átti 10 stoðsendingar
og tók 18 fráköst.
Handknattleikslið Akureyrarhefur ekki aðeins endurheimt
Hörð Fannar Sigþórsson eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í
fyrradag. Jón Heiðar Sigurðsson
sem lék með Gróttu og Halldór Örn
Tryggvason sem gekk í raðir FH
fyrir þetta tímabil hafa einnig snúið
heim á síðustu dögum.
Fólk folk@mbl.is
Hervé Renard, þjálfari landsliðs Sambíu í
knattspyrnu, er afar ósáttur við þá ákvörðun
afríska knattspyrnusambandsins að leyfa
Sambíumönnum ekki að fara í álfukeppnina í
sumar fyrir hönd Afríku.
Sambía vann Afríkukeppnina í fyrra en
ákveðið var að halda hana strax aftur í ár og
koma henni þannig á oddatölur. Þá stangast
hún ekki á við HM og EM.
Afríska knattspyrnusambandið ákvað að
sigurvegari keppninnar í ár færi í álfukeppn-
ina en ekki sigurvegari síðasta árs. Sambía
datt út í riðlakeppninni í ár.
„Þeir eru ánægðir að við förum ekki því við erum ekki nægilega
sexí eða töff til að fara fyrir hönd Afríku,“ sagði ósáttur Herve
Rénard, þjálfari Sambíu. tomas@mbl.is
Renard afar ósáttur
Hervé
Renard
Forráðamenn bandarísku atvinnumótarað-
arinnar í golfi ætla að rannsaka þær fullyrð-
ingar í bandaríska íþróttablaðinu Sports Ill-
ustrated að Fídjeyingurinn Vijay Singh hafi
notað ólöglegt efni sem inniheldur stera.
Í frétt tímaritsins segir að Singh hafi pant-
að mikið af efninu sem kallað er „Deer antler
spray“ í nóvember og haft er eftir honum að
hann „noti efnið daglega, á nokkurra klukku-
stunda fresti“.
„Ég hlakka til að sjá breytingarnar á lík-
ama mínum. Það er erfitt að finna fyrir mun-
inum þegar maður hefur bara notað efnið í nokkra mánuði,“ er
einnig haft eftir Singh í tímaritinu.
Forseti bandarísku atvinnumótaraðarinnar, PGA, sagðist ný-
verið hafa frétt af þessu og málið yrði skoðað. tomas@mbl.is
Vijay Singh rannsakaður
Vijay
Singh
NHL-deildin í íshokki er komin á fullt skrið
eftir verkbann sem stóð yfir fram í byrjun jan-
úar. Liðin hafa flest spilað sex til sjö leiki og
eru enn fjögur lið taplaus í deildinni.
Austurmegin eru meistararnir frá því 2011,
Boston Bruins, efstir með fimm sigurleiki og
eitt jafntefli og New Jersey Devils sem fóru í
úrslit í fyrra eru í þriðja sæti með þrjá sigra og
tvö jafntefli.
Í vesturdeildinni hafa Chicago Blackhawks
og San Jose Sharks bæði unnið fyrstu sex leiki
sína en meistarar Los Angeles Kings eru í ní-
unda sæti.
Vegna verkbannsins spila liðin einungis 48 leiki í deildakeppn-
inni en tímabilið verður lengt aðeins til að koma til móts við
hversu þétt er leikið. tomas@mbl.is
Fjögur lið enn taplaus
Sidney
Crosby
Svíþjóð
Guif – Kristianstad.............................. 26:24
Haukur Andrésson skoraði 2 mörk fyrir
Guif og Heimir Óli Heimisson 3. Kristján
Andrésson þjálfar liðið.
Ólafur A. Guðmundsson skoraði 4 mörk
fyrir Kristianstad.
VästeråsIrsta – Hammarby ............... 29:33
Elvar Friðriksson skoraði 3 mörk fyrir
Hammarby.
Noregur
Flint Tönsberg – Tertnes ................... 22:21
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki
mark fyrir Tertnes.
Danmörk
KIF Vejen – Aalborg DH ................... 23:23
Arna Sif Pálsdóttir skoraði 1 mark fyrir
Aalborg DH.
Viborg – Midtjylland........................... 24:25
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfar Viborg
sem er í öðru sæti deildarinnar.
HANDBOLTI
Evrópudeildin
Good Angels – Fenerbache ................ 66:63
Helena Sverrisdóttir lék í 20 mínútur og
skoraði átta stig auk þess að ná fimm frá-
köstum. Good Angels er efst í riðlinum með
níu sigra í 11 leikjum. Fenerbache er í öðru
sæti með átta sigurleik í 11 viðureignum.
NBA-deildin
Cleveland – Golden State .................. 95:108
Detroit – Milwaukee .......................... 90:117
Portland – Dallas.............................. 106:104
LA Lakers – New Orleans............... 111:106
KÖRFUBOLTI