Morgunblaðið - 18.02.2013, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2013
ÍÞRÓTTIR
Frjálsar ÍR-ingar sigruðu í 7. bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins innanhúss. Sameinað lið
frá Norðurlandi fagnaði sigri í karlaflokki. Tveir fóru yfir 5 metra í stangarstökki. 8
Íþróttir
mbl.is
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Alexander Petersson, landsliðs-
maður í handknattleik og leikmaður
þýska liðsins Rhein-Neckar Löwen,
haltraði meiddur af velli í byrjun síð-
ari hálfleiks þegar Löwen burstaði
Zaporozhye frá Úkraínu, 35:22, í
EHF-keppninni í fyrrakvöld. Alex-
ander var þá búinn að skora fjögur
mörk og hann kom ekkert meira við
sögu en Stefán Rafn Sigurmannsson
skoraði þrjú.
„Ég sneri mig á ökklanum en
þetta er ekki svo slæmt og ég vonast
til að geta spilað á móti Wetzlar á
miðvikudaginn. Ég er ekki búinn að
prófa að hlaupa en ökklinn er ekki
bólginn og ég er svo til verkjalaus.
Ég hef oft snúið mig á þessum fæti
og ég held að það sé ekkert hægt að
skemma meira í ökklanum,“ sagði
Alexander við Morgunblaðið í gær.
Enn með talsverða
verki í öxlinni
Eins og flestir vita var Alexander
ekki með íslenska landsliðinu á
heimsmeistaramótinu á Spáni í síð-
asta mánuði en öxlin hefur verið að
stríða leikmanninum snjalla sem
hefur verið lykilmaður í landsliðinu
undanfarin ár. Hans var svo sann-
arlega sárt saknað á HM en spurður
hvort hann verði með landsliðinu í
leikjunum á móti Slóvenum í und-
ankeppni EM sem fram fara í byrj-
un apríl sagði Alexander:
„Vonandi. Ég er enn með tals-
verða verki í öxlinni en ég get von-
andi beitt henni meira á næstunni.
Það var auðvitað afar svekkjandi að
vera ekki með landsliðinu á Spáni en
ég vona að ég geti verið með í leikj-
unum á móti Slóvenunum. Það verða
erfiðir leikir því eins og við sáum á
HM er Slóvenía með mjög sterkt
lið,“ sagði Alexander.
Rhein-Neckar Löwen undir stjórn
Guðmundar Guðmundssonar trónir
enn á toppi þýsku A-deildarinnar en
liðið er stigi á undan meisturum
Kiel. „Við höfum ekki byrjað neitt
sérstaklega vel eftir fríið. Við féllum
úr leik í bikarnum og urðum að
sætta okkur við jafntefli á móti
Lübbecke. Það er alltaf erfitt að
byrja eftir langt hlé. Það voru marg-
ir frá okkur sem tóku þátt með
landsliðum sínum á HM en ég hef
fulla trú á að við náum okkur á strik
aftur. Það tekur nokkra leiki að slípa
liðið saman,“ sagði Alexander, sem
gekk í raðir Löwen fyrir tímabilið
frá Füchse Berlin.
Morgunblaðið/Ómar
Góður Alexander Petersson í leik
með íslenska landsliðinu.
Þetta er ekki svo slæmt
Alexander Petersson meiddist í Evrópuleik með Löwen Vonast til að vera
með íslenska landsliðinu í leikjunum á móti Slóveníu í undankeppni EM
Brynjar Jökull Guðmundsson,
skíðamaður úr Víkingi, endaði í 39.
sæti í svigi á heimsmeistaramótinu í
alpagreinum á skíðum í Schladming
í Austurríki í gær.
Brynjar var í 52. sæti eftir fyrri
ferðina en hann endaði eins og áður
sagði í 39. sæti af þeim 47 skíða-
mönnum sem tókst að ljúka keppni.
Þetta er besti árangur íslensks
keppanda í svigi á HM frá því
Björgvin Björgvinsson endaði í 28.
sæti í Bormio á Ítalíu árið 2005.„Ég
er virkilega ánægður með árang-
urinn. Þetta er í fyrsta skipti sem ég
kemst inná aðalkeppni á heims-
meistaramóti. Ég ætlaði mér að
komast í úrslitin sem tókst og að
enda í 39. sæti var frábært,“ sagði
Brynjar Jökull við Morgunblaðið í
gær.
„Það var mikill léttir að ná að
vinna sér sæti í úrslitunum eftir
undankeppnina og það var mjög
gaman að fá tækifæri að skíða með
þeim bestu og fyrir framan alla
þessa áhorfendur sem fylgdist með.
Brautin var rosalega erfið og krefj-
andi. Hún var hörð og bakkinn
mjög erfiður,“ sagði Brynjar Jökull.
Austurríkismaðurinn Marcel
Hirscher tryggði sér heimsmeist-
aratitilinn en hann var með forystu
eftir fyrri ferðina og hélt henni í
þeirri síðari. Þjóðverjinn Felix Neu-
reuther hreppti silfrið og Austur-
ríkismaðurinn Mario Matt hlaut
bronsið.
Bandaríkjamaðurinn Ted Ligety,
sem fyrir svigkeppnina í gær hafði
unnið til þriggja verðlauna, féll í
fyrri ferðinni en margir höfðu spáð
honum heimsmeistaratitlinum.
gummih@mbl.is
Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson
Á fleygiferð Brynjar Jökull Guðmundsson á fleygiferð í brekkunni í Schladming í Austurríki í gær.
„Gaman að fá tækifæri að
skíða með þeim bestu“
Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, tók þátt í
sínu fyrsta móti á þessu ári þegar hann og
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum léku á
Palmetto Hall Championship sem lauk í Norð-
ur-Karólínuríki í gærkvöldi.
Mótið er hluti af mótaröð fyrir atvinnumenn
sem heitir Egolf og fer fram í Karólínuríkj-
unum tveimur. Þar ætla þeir félagarnir að
spila fram á vorið en Ólafur hefur í byrjun árs
tekið þátt í nokkrum litlum mótum á Flórída.
Birgir hafnaði í 22. sæti í mótinu en hann
lauk leik á samtals einu höggi yfir pari. Birgir
lék hringina á 72, 73, 70 og 74 höggum og var
hans besti hringur tvö högg undir pari. Birgir
hafði tæplega 1.600 dollara upp úr krafsinu í
verðlaunafé.
Ólafi gekk ekki eins vel
en hann lauk leik á samtals
ellefu höggum yfir pari.
Hann hafnaði í 62. sæti en
Ólafur byrjaði vel í mótinu
og komst auðveldlega í
gegnum niðurskurðinn en
missteig sig á þriðja hring.
Ólafur lék hringina á 69, 73,
80 og 77 höggum. Hann
fékk 745 dollara fyrir sinn
snúð í verðlaunafé.
Birgir og Ólafur munu leika á þessari móta-
röð á næstunni en í apríl ætla þeir að reyna
fyrir sér á úrtökumóti fyrir kanadísku móta-
röðina eins og fram kom á dögunum.
Birgir á höggi yfir pari á
fyrsta móti sínu á árinu
Hafnaði í 22. sæti Ólafur varð í 62. sæti
Birgir Leifur
Hafþórsson
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk og
var markahæstur í liði Evrópu- og Þýskalands-
meistara Kiel þegar þeir tóku ungverska liðið
Veszprém í bakaríið í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Kiel
vann 11 marka sigur, 32:21, en fyrir leikinn
hafði Veszprém unnið alla átta leiki sína. Kiel
var fjórum mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn,
17:13, en í síðari hálfleik tóku Evrópumeist-
aranir öll völd á vellinum. Ungverjarnir eru
efstir í riðlinum með 16 stig en Kiel hefur 14.
Aron Pálmarsson skoraði tvö af mörkum Kiel.
Hjá Veszprém var ungverski landsliðsmaðurinn
Laszlo Nagy markahæstur með fimm mörk.
Þórir Ólafsson og félagar hans í pólska meist-
araliðinu Kielce héldu sigurgöngu sinni áfram.
Þeir höfðu betur gegn
frönsku meisturunum í
Chambery, 36:32, og hefur
Kielce unnið alla níu leiki
sína. Þórir skoraði þrjú af
mörkum Kielce.
Danska liðið Bjerring-
bro/Silkeborg tryggði sér
sæti í 16-liða úrslitunum
með sigri gegn Gorenje,
27:26, þar sem danski lands-
liðsmaðurinn Rasmus
Lauge skoraði sigurmarkið á lokasekúndunum.
Hornamaðurinn Guðmundur Árni Ólafsson
skoraði tvö mörk fyrir Bjerringbro.
gummih@mbl.is
Guðjón Valur markahæstur í
stórsigri Evrópumeistaranna
Kiel burstaði Veszprém í Meistaradeildinni
Guðjón Valur
Sigurðsson