Morgunblaðið - 18.02.2013, Side 2
Í HÖLLINNI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Valskonum tókst ekki að bæta við
nýju ártali á vegginn í Valsheimilinu
á Hlíðarenda þar sem helstu afrek
Valsliðanna í boltagreinunum blasa
við. Valur átti möguleika á því að
sigra í bikarkeppni kvenna í körfu-
knattleik í fyrsta skipti en tapaði
fyrir sterku liði Keflavíkur 68:60.
Keflvíkingar spiluðu öfluga vörn í
þrjá leikhluta af fjórum og sigur
þeirra var verðskuldaður.
Keflavík hefur gengið nánast allt í
haginn í vetur enda hefur liðið ein-
ungis tapað tveimur leikjum. Bik-
armeistaratitillinn er því rökrétt
niðurstaða miðað við spilamennsku
liðsins í vetur. Sjálfsagt gerði það
Keflvíkingum gott að tapa illa fyrir
Val á heimavelli á dögunum. Þar
blikkuðu aðvörunarljós og hafa
dregið úr mögulegri hættu á ein-
hverri værukærð í úrslitaleiknum.
Keflavík tók leikinn strax föstum
tökum og varnarleikur liðsins virk-
aði svo um munaði því Valur skoraði
aðeins 17 stig í fyrri hálfleik. Þá
munaði tuttugu og einu stigi á lið-
unum og Guðbjörg Sverrisdóttir
var nánast sú eina af lykilmönnum
Vals sem var með á nótunum. Leik-
urinn gerbreyttist hins vegar í
þriðja leikhluta og Val tókst að
minnka forskotið niður í aðeins tvö
stig. Valskonum tókst þó hvorki að
jafna né komast yfir og þær ráku sig
aftur illa á sterka vörn Keflavíkur í
síðasta leikhlutanum. Keflavík náði
að tryggja sér sigurinn á án þess að
teljandi taugatitringur gerði vart
við sig á lokamínútunum.
Hin bráðefnilega Sara Rún Hin-
riksdóttir var ófeimin á stóra sviðinu
þrátt fyrir ungan aldur og var drjúg
fyrir Keflavík í fyrri hálfleik. Pálína
Gunnlaugsdóttir var stigahæst með
19 stig og Bryndís Guðmundsdóttir
átti stórleik. Hún tók 18 fráköst,
varði þrjú skot og skoraði 15 stig.
Þegar Jaleesa Butler og Ragna
Margrét Brynjarsdóttir lentu í villu-
vandræðum átti Bryndís teiginn.
Merkileg er hins vegar sú staðreynd
að Keflavík skuli hafa unnið bikar-
úrslitaleik þar sem liðið hitti aðeins
úr einu af sextán þriggja stiga skot-
um sínum.
Valsliðið var langt frá sínu besta í
fyrri hálfleik og svo virðist sem
Ágústi Björgvinssyni hafi ekki tekist
að stilla spennustigið en það er auð-
vitað hægara sagt en gert við þessar
aðstæður. Of margir lykilmanna
Vals fundu sig ekki í sókninni og þá
sérstaklega Butler og Kristrún Sig-
urjónsdóttir sem hafa verið at-
kvæðamiklar undanfarið. Guðbjörg,
Ragna Margrét, Hallveig Jónsdóttir
og Unnur Lára Ásgeirsdóttir áttu
ágæta spretti.
Morgunblaðið/Golli
Máttarstólpar Pálína Gunnlaugsdóttir og Birna Valgarðsdóttir, máttarstólpar Keflavíkurliðsins, þreytast ekki á því að taka við bikurum.
Varnarleikurinn virkaði
Keflavík hélt Val í samtals þrjátíu stigum í þremur leikhlutum Of margar
Valskonur fundu sig ekki Þrettándi bikarmeistaratitill kvennaliðs Keflavíkur
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2013
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Laugardalshöllin, bikarúrslitaleikur
kvenna, laugardaginn 16. febrúar
2013.
Gangur leiksins: 2:4, 8:4, 15:8,
19:8, 28:8, 32:9, 35:14, 38:17,
40:24, 44:29, 48:37, 49:47, 51:49,
54:51, 58:52, 68:60.
Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir
19/7 fráköst, Bryndís Guðmunds-
dóttir 15/18 fráköst/3 varin skot,
Sara Rún Hinriksdóttir 13/5 frá-
köst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir
9/13 fráköst, Jessica Ann Jenkins
9/10 fráköst/11 stoðsendingar,
Ingunn Embla Kristínardóttir 3.
Fráköst: 35 í vörn, 19 í sókn.
Valur: Hallveig Jónsdóttir 13,
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 12/6
fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir
11/4 fráköst, Guðbjörg Sverr-
isdóttir 10/7 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 7/4
fráköst, Jaleesa Butler 5/15 frá-
köst/6 varin skot, Ragnheiður Be-
nónísdóttir 2.
Fráköst: 30 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Davíð Tómas Tómasson.
Keflavík – Valur 68:60
Óheppnin elti
Valskonuna Guð-
björgu Sverris-
dóttur í bikarúr-
slitaleiknum á
laugardaginn.
Hún fór bæði úr
axlarlið og sleit
hásin í leiknum
og spilar tæplega
körfubolta aftur
fyrr en seint á
þessu ári. Mikill áfall fyrir Valsliðið
sem hefur leikið einna best í deild-
inni á nýju ári.
Guðbjörg fór úr axlarlið í fyrri
hálfleik og hrökk aftur í liðinn þegar
hugað var að henni utan vallar. Hún
fór aftur inn á skömmu síðar þótt
hún virtist nokkuð kvalin. Í síðari
hálfleik hné hún hins vegar niður á
miðjum vellinum þegar enginn leik-
maður var nálægt. Sjúkraþjálfara
Vals grunaði strax að hásin hefði
slitnað þegar hann heyrði lýsingar
Guðbjargar og sá grunur reyndist á
rökum reistur. kris@mbl.is
Guðbjörg fór
úr axlarlið og
sleit hásin
Guðbjörg
Sverrisdóttir
Þrír bæjar-
stjórar voru
heiðursgestir á
úrslitaleikjunum
tveimur á laug-
ardaginn. Árni
Sigfússon í
Reykjanesbæ var
heiðursgestur
Keflavíkur, Ró-
bert Ragnarsson
í Grindavík var
heiðursgestur Grindvíkinga og
Gunnar Einarsson bæjarstjóri
Garðabæjar var heiðursgestur
Stjörnunnar en þess má geta að
hann varð sjálfur bikarmeistari í
handbolta í eina tíð. Valur fór hins
vegar aðra leið og heiðursgestur
þeirra var ekki stjórnmálamaður
heldur Ragnheiður Haraldsdóttir
forstjóri Krabbameinsfélagsins.
Valur var einmitt í samstarfi við
Krabbameinsfélagið síðasta haust
og lék kvennaliðið þá í bleikum
búningum í október. kris@mbl.is
Valur fór aðra
leið en hin
þrjú félögin
Ragnheiður
Haraldsdóttir
Keflavík hefur
oftast orðið bik-
armeistari í
kvennaflokki í
körfuknattleik en
fyrst var keppt
árið 1975. Kefla-
vík vann þó ekki í
fyrsta skipti fyrr
en árið 1988 en
síðan þá hefur
reynst erfitt að
halda aftur af liðinu í keppninni.
Keflavík hefur alls unnið keppnina
þrettán sinnum en liðið var nánast
óstöðvandi fyrir aldamótin. Þá varð
Keflavík bikarmeistari sjö sinnum á
átta ára tímabili frá 1993-2000.
Keflavík varð síðast bikarmeistari
fyrir tveimur árum.
KR hefur næstoftast unnið keppn-
ina í kvennaflokki eða tíu sinnum. Í
fyrsta skipti sem keppt var um bik-
arinn stóð Þór frá Akureyri uppi
sem bikarmeistari en hefur ekki
unnið keppnina síðan.
Þrettándi sig-
ur Keflavíkur
á 25 árum
Þjálfarinn Sigurður
Ingimundar.
Bryndís Guðmundsdóttir Bryndís skoraði
15 stig fyrir Keflavík í leiknum, tók 18 frá-
köst, varði 3 skot, gaf 3 stoðsendingar og
náði boltanum fjórum sinnum á þeim tæp-
lega 39 mínútum sem hún spilaði.
Moggamaður leiksins