Morgunblaðið - 18.02.2013, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2013
Varmá, úrvalsdeild karla, N1-deildin,
sunnudaginn 17. febrúar 2013.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 2:4, 4:4,
4:5, 7:6, 8:8. 11:9, 14:9, 14:12, 14:114,
15:14, 16:17, 17:21, 21:21, 26:24,
26:26, 29:27, 29:28, 30:28.
Mörk Aftureldingar: Jóhann Jó-
hannsson 12/5, Þrándur Gíslason 5,
Benedikt R. Kristinsson 4, Sverrir
Hermannsson 4, Hilmar Stefánsson
2, Birkir Benediktsson 1, Helgi Héð-
insson 1, Hrafn Ingvarsson 1.
Varin skot: Davíð Svansson 16 (þar-
af 5 til mótherja)
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk HK: Bjarki Már Elísson 7/1,
Daníel Örn Einarsson 6, Tandri Már
Konráðsson 6, Garðar Svansson 2,
Vladimir Djuric 2, Eyþór Magnússon
2, Bjarki Már Gunnarsson 1, Jóhann
Karl Reynisson 1, Vilhelm Gauti
Bergsveinsson 1.
Varin skot: Björn Ingi Friþjófsson
17/1 (þaraf 6 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og
Ómar Ingi Sverrisson, mistækir.
Áhorfendur: 288.
Afturelding – HK 30:28
Í AUSTURBERGI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Lokamínúturnar í sigri ÍR á Haukum,
22:21, í Austurbergi í gærkvöldi voru
vægast sagt dramatískar. ÍR-ingar
voru komnir í góða stöðu, 21:18, þegar
rétt rúmar tvær mínútur voru eftir en
Hafnfirðingarnir lögðu ekki árar í bát,
skoruðu þrjú mörk á innan við tveimur
mínútum, og jöfnuðu leikinn, 21:21.
Það varð allt tryllt þegar Gylfi Gylfa-
son jafnaði metin því boltinn var
dæmdur af ÍR í sókninni á undan
vegna ruðnings Ingimundar Ingi-
mundarsonar. Bjarki Sigurðsson, þjálf-
ari ÍR, náði að biðja um leikhlé rétt áð-
ur en Ingimundur fékk dæmt á sig en
vegna misskilnings eða mistaka fékk
mark Gylfa að standa.
ÍR-ingar fengu 28 sekúndur til að
skora sigurmarkið og sóknin heppn-
aðist fullkomlega. Jón Heiðar Gunn-
arsson fékk boltann á línunni og fiskaði
víti um leið og tíminn rann út. Sturla
Ásgeirsson, sem var búinn að skora úr
öllum fjórum vítum sínum fram að því,
fór á vítalínuna, ískaldur, og tryggði
sigurinn við brjálaðan fögnuð heima-
manna.
Haukar ekki líkir sjálfum sér
Haukar, sem spáð var Íslandsmeist-
aratitlinum fyrir mótið, drottnuðu yfir
því fyrir jól, hafa nú tapað þremur
leikjum í röð í deild og bikar. Þar af
voru þeir rassskelltir í tveimur af þeim.
Menn keppast ekki við að kalla þá
„besta liðið“ þessa dagana eins og gert
var fyrir áramót þegar ekkert annað
kom til greina en þeir myndu spóla
þessu Íslandsmóti upp án vandræða.
Sóknarleikur liðsins var vandræða-
Ein ísköld Sturla í lokin
ÍR-ingar unnu Hauka í annað sinn á fimm dögum
Sigurmarkið úr vítakasti Þrjú töp „besta liðsins“ í röð
Hetja Sturla Ásgeirsson skoraði sigur
leiktíminn var liðinn. Hér skorar hann
Í SAFAMÝRI
Ólafur Már Þórisson
sport@mbl.is
Það gengur flest upp hjá Frömurum
þessa stundina í N1-deild karla í hand-
knattleik. Þeir unnu sinn fimmta sigur
í röð þegar Akureyri kom í heimsókn í
Safamýrina í gær. Fyrstu mínúturnar í
seinni hálfleik reyndust gestunum dýr-
keyptar en þá náði Fram forskoti sem
þeir létu aldrei af hendi og unnu loks
sannfærandi sjö marka sigur 30:23.
Einbeiting og þolinmæði í vörn
Fram reyndist munurinn á liðunum.
„Við höfum verið agaðir og einbeittir
og verðum að vera það áfram. Við höf-
um sýnt mjög góðan varnarleik eftir
áramót og hann hefur verið stöðugur.
Þá hefur markvarslan verið fín. Það er
vonandi það sem koma skal,“ sagði
Einar Jónsson þjálfari Fram.
Fram styrkti stöðu sína í þriðja sæti
deildarinnar með þessum sigri. Spurð-
ur hvort þeir væru farnir að horfa til
heimaleikjaréttarins í úrslitakeppninni
sagði Einar; „Nei alls ekki, í alvöru tal-
að. Ég get þulið upp allar þessar klisj-
ur eins og hvað deildin er jöfn og svo
framvegis. Það þýðir bara ekkert að
hugsa svo langt. Mestu máli skiptir að
við höldum áfram að spila vel, bæta
okkur og vinna.“
Unnu síðast Fram
Síðasti sigur Akureyrar í deildinni
kom einmitt þegar þessi lið mættust í
nóvember á síðasta ári. Liðið hefur að-
eins fengið eitt stig síðan en tapað
fimm leikjum. Liðið er með 12 stig og
fjarlægist efstu fjögur liðin. Spurður
hvort sæti í úrslitakeppninni sé orðið
áhyggjuefni, sagði Bjarni Fritzson
annar þjálfara Akureyrar; „Við spáum
bara ekki í því. Við eigum nóg með að
Harka Framarinn Ægir Hrafn Jónsson tekur hér Guðmund Hólmar Helgason föstum
Framarar flj
Fimm sigrar í röð Aðeins þrír marka-
skorarar í 50 mínútur hjá Akureyri
Fram komst upp að hlið Vals í efsta
sæti N1-deildar kvenna í handknatt-
leik eftir sigur á Stjörnunni, 34:27, á
heimavelli sínum í Safamýri. Valur og
Fram hafa 30 stig en Íslands- og bik-
armeistarar Vals eiga leik til góða.
Stella Sigurðardóttir skoraði níu
mörk fyrir Fram og þær Birna Berg
Haraldsdóttir og Elísabet Gunn-
arsdóttir skoruðu sex mörk hvor. Hjá
Stjörnunni var Jóna Margrét Ragn-
arsdóttir atkvæðamest með níu mörk
og Esther V. Ragnarsdóttir skoraði
sjö.
Sunna María Jónsdóttir fór ham-
förum í liði Gróttu sem hafði betur á
móti Aftureldingu á Varmá. Grótta
fagnaði þriggja marka sigri, 25:22,
þar sem Sunna skoraði 15 mörk.
Hekla Daðadóttir var markahæst í
liði Aftureldingar með níu mörk.
ÍBV gerði góða ferð í Hafnarfjörð
en liðið sigraði FH, 26:20. Drífa Þor-
valdsdóttir skoraði níu mörk fyrir
Eyjakonur en hjá FH var hin unga
Þórey Ásgeirsdóttir markahæst með
fjögur mörk.
HK hrósaði sigri gegn Haukum,
26:21, þar sem Brynja Magnúsdóttir
skoraði 11 mörk fyrir HK og Marija
Gedriot var með 12 fyrir Hauka.
Þá hafði Selfoss betur á móti Fylki,
28:23. gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Í stuði Sunna María Einarsdóttir
skoraði 15 mörk í sigri Gróttu.
Sunna María
skoraði 15
fyrir Gróttuna
Handknattleiksmaðurinn efnilegi,
Böðvar Páll Ásgeirsson, leikur ekki
meira með Aftureldingu á yfirstand-
andi leiktíð í N1-deildinni í hand-
knattleik. Hann fer í speglun á
hægri öxl á í dag. Böðvar fór í svip-
aða aðgerð á síðasta vori, en hann
hefur átt í þrálátum meiðslum í
hægri öxlinni í hálft annað ár.
Böðvar Páll lék nokkra leiki með
Aftureldingu fyrir áramótin en hef-
ur ekkert leikið með liðinu síðan
keppni hófst á ný í byrjun þessa
mánaðar að loknu hléi sem gert var
vegna þátttöku íslenska landsliðsins
á heimsmeistaramótinu á Spáni.
Vonir standa til þess að Böðvar
Páll verði klár í slaginn í haust þegar
keppni hefst á nýjan leik í N1-
deildinni. Böðvar Páll var við lok síð-
ustu leiktíðar valinn efnilegasti leik-
maður N1-deildarinnar. Auk Böðv-
ars Páls er Örn Ingi Bjarkason fjarri
góðu gamni vegna hnémeiðsla. Hann
hefur heldur ekki leikið með Aftur-
eldingu síðan fyrir áramót. Þá tók
Pétur Júníusson ekki þátt í leiknum
við HK í gær vegna meiðsla í baki.
iben@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Meiddur Böðvar Páll Ásgeirsson
leikur ekki meira á tímabilinu.
Böðvar Páll í
speglun á öxl
og er úr leik
Á́ VARMÁ
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Aftureldingarmenn tryggðu sér tvö
mikilvæg stig í botnbaráttu N1-
deildarinnar í handknattleik í gær
þegar þeir lögðu HK, 30:28, í sveiflu-
kenndum leik. Mosfellingar voru
tveimur mörkum
yfir í hálfleik,
14:12, en þremur
mínútum fyrir lok
hálfleiksins voru
þeir með fimm
marka forskot,
14:9.
HK byrjaði síð-
ari hálfleik af
krafti og vann
upp forskot Aft-
ureldingar og gott betur. HK-ingar
höfðu fjögurra marka forskot, 21:17,
þegar sextán mínútur voru eftir af
leiknum. Margir töldu að þar með
væri leiðin greið að sigri hjá Íslands-
meisturunum. Sú reyndist ekki
raunin. Þeir gerðust klaufalegir og
misstu m.a. menn út af. Það var vatn
á myllu Mosfellinga sem gáfust ekki
upp við mótlætið eins og stundum
áður í vetur, heldur sóttu í sig veðr-
ið. Fjögur mörk í röð tryggðu Aftur-
eldingu jafna stöðu, 21:21. Lokakafl-
inn var spennandi og þar gerðu
Mosfellingar færri mistök en HK-
ingar sem fóru á tíðum illa að ráði
sínu í sóknarleiknum sem varð oft
nokkuð fljótfærnislegur. Aftureld-
ingarmenn voru sterkari á endaps-
rettinum og unnu sanngjarnan sig-
ur, 30:28.
Brottrekstrar og klaufaskapur
„Mínir menn héldu að þeir væru
komnir með leikinn í sínar hendur
eftir að hafa komist fjórum mörkum
yfir, hafandi verið fimm mörkum
undir skömmu fyrir hálfleik. Menn
héldu þetta kannski vegna reynsl-
unnar frá síðasta leik í deildinni við
ÍR,“ sagði Kristinn Guðmundsson,
þjálfari HK. „Við gerðum klaufaleg
mistök og misstum menn út af og
misstum við það niður forskotið.
Auk þess fórum við kannski að
reyna að gera of flókna hluti í stað
þess að leika af einfaldleika, hann
reynist oft best,“ sagði Kristinn.
„Það er alveg ljóst að við verðum að
berjast í næstu leikjum. Við eigum
Val í næstu umferð á fimmtudag-
inn,“ sagði Kristinn. Tapið í gær hef-
ur fært neðstu liðin nær HK en áður
var en aðeins munar tveimur stigum
á Aftureldingu og Akureyri og HK
sem eru í næstu sætum fyrir ofan.
Tími kominn til að reyndari
menn tækju af skarið
„Þetta var rosalega kærkomið,“
sagði Þrándur Gíslason, línumaður
Aftureldingar, sem fór mikinn í
sóknarleik Mosfellinga ásamt Jó-
hanni Jóhannssyni sem átti enn einn
stórleikinn fyrir Aftureldingu og
skoraði 12 mörk. Þrándur skoraði
fimm mörk og vann nokkur vítaköst.
„Það var kominn tími til þess að
við sem eigum að heita reyndari
menn í liðinu tækjum af skarið og
gerðum okkar til þess að landa sigri
í þeim leikjum sem við erum með í
höndunum. Það tókst að þessu sinni.
Við höfum misst alltof marga leiki út
úr höndunum í vetur.
Í dag var Jói frábær á lokasprett-
inum og Davíð í markinu líka. Ég
var alveg brjálaður og lagði mig all-
an fram og var frábær,“ sagði
Þrándur glaðbeittur.
„Við skulduðum öllum þeim sem
starfa í kringum félagið, áhorf-
endum, vinum og fjölskyldum, að
sýna einu sinni úr hverju við erum
gerðir,“ sagði Þrándur Gíslason
Roth.
Afturelding
mjakaðist upp
Jóhann fór á kostum með 12 mörk
Jóhann
Jóhannsson