Morgunblaðið - 18.02.2013, Side 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2013
Michael Laudrup, knattspyrnustjóri Swansea,
gerði sjö breytingar á liðinu fyrir leikinn gegn
Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi
vegna úrslitaleiksins í deildabikarnum um
næstu helgi.
Veikburða lið Swansea hafði ekki roð við
Liverpool sem réð nánast frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu og skaut rétt tæplega 40 sinn-
um á markið.
Liverpool vann leikinn auðveldlega, 5:0, og
lyfti sér með stigunum þremur aftur upp í sjö-
unda sæti úrvalsdeildarinnar en heimamenn
spiluðu virkilega vel og niðurlægðu Swansea.
„Þetta var martröð. Okkur var slátrað,“
sagði Michael Laudrup, knattspyrnustjóri
Swansea, eftir leikinn.
„Við vorum með í leikn-
um í fyrri hálfleik en það
var lélegt að gefa þrjú mörk
á tíu mínútna kafla. Ég verð
bara að biðja stuðnings-
mennina afsökunar,“ sagði
Laudrup en hvað með
breytingarnar á liðinu?
„Það var bara í nokkrum
stöðum. Ég vildi hvíla
nokkra en það er engin af-
sökun. Við hefðum getað tapað 10:0. Þetta er
okkur öllum að kenna,“ sagði hundsvekktur
Michael Laudrup. tomas@mbl.is
Martröð hjá Laudrup á Anfield
Phillipe
Coutinho
Manchester City og Chelsea áttu ekki í nein-
um vandræðum með mótherja sína í ensku
bikarkeppninni í knattspyrnu í gær því bæði
unnu þau örugga 4:0-sigra.
Chelsea mætti C-deildar liðinu Brentford í
endurteknum leik í 32-liða úrslitum. Gest-
irnir náðu að halda marki sínu hreinu í fyrri
hálfleik en í þeim síðari héldu Evrópumeist-
urunum engin bönd. Juan Mata, Oscar,
Frank Lampard og John Terry skoruðu allir
eitt mark og skutu Chelsea í 16-liða úrslitin
þar sem B-deildarlið Middlesbrough bíður
þess.
Manchester City fékk B-deildar lið Leeds
í heimsókn en það gerði sér lítið fyrir og
skellti Tottenham í síðustu
umferð. Leikurinn á Eti-
had-vellinum í gær var
aldrei spennandi því Yaya
Touré og Sergio Agüero
komu Englandsmeist-
urunum tveimur mörkum
yfir eftir aðeins fimmtán
mínútna leik.
Agüero bætti svo við
öðru marki sínu í seinni
hálfleik og þá skoraði
einnig Carlos Tévez til að fullkomna stór-
sigur Manchester City. Bikardraumar Leeds
eru á enda að þessu sinni. tomas@mbl.is
Stórsigrar hjá City og Chelsea
Juan
Mata
ENGLAND
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Arsenal hefur ekki unnið titil síðan
liðið lagði Manchester United í úr-
slitum ensku bikarkeppninnar í
vítaspyrnukeppni í maí 2005. Stað-
reynd sem allir stuðningsmenn liðs-
ins vita of vel. Svo gæti hæglega
farið að liðið endaði núverandi
tímabil án titils en þá yrðu átta ár
liðin frá því Wenger gat síðast lyft
bikar.
Arsenal er úr leik í deildabik-
arnum, 21 stigi frá Manchester
United í úrvalsdeildinni og mætir
gríðarlega sterku liði FC Bayern í
16-liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar. Þótt Arsenal geti auðvitað
unnið Bayern hefðu kannski flestir
veðjað á að besti möguleiki Arsenal
að næla sér í langþráðan titil væri í
bikarkeppninni í ár þar sem liðið
fékk tiltölulega þægilegt verkefni;
leik gegn B-deildarliði Blackburn á
heimavelli í 16-liða úrslitum.
Hvíldi lykilmenn
Nú er sá draumur einnig búinn.
Arsenal tapaði fyrir Blackburn, 1:0,
á heimavelli og þarf nú að komast í
gegnum mörg af bestu liðum Evr-
ópu í bestu deild í heimi, Meist-
aradeildinni, ætli það að vinna titil.
Arsenal mætir einmitt FC Bay-
ern í vikunni og hvíldi Wenger því
þrjár skærustu stjörnur sínar gegn
Blackburn; Jack Wilshere, Santi
Cazorla og Theo Walcott. Án þeirra
gat liðið mest lítið og skoraði Black-
burn sigurmarkið aðeins nokkrum
sekúndum eftir að þeir komu inn á.
Wenger veðjaði frekar á Meist-
aradeildina og hvíldi sína bestu
menn gegn Blackburn en hann
treysti eðlilega úrvalsdeildar-
leikmönnum til að klára verkefnið
gegn liði úr deild fyrir neðan.
Hrokafullur Wenger
Mörgum stuðningsmönnum Ars-
enal er nóg boðið og vandaði Ian
Wright, goðsögn í lifanda lífi hjá fé-
laginu, Wenger ekki kveðjurnar eft-
ir leikinn.
„Það verður kenna knattspyrnu-
stjóranum um þennan ótrúlega
hroka að gefa ekki meira í þessa
keppni,“ sagði Wright.
„Af hverju ættu leikmennirnir að
vera tilbúnir í svona bikarleiki þeg-
ar stjórinn talar bara um að það að
ná fjórða sætinu í deildinni sé for-
gangsatriði? Hann gerði mönnum
það algjörlega ljóst að bik-
arkeppnin skiptir ekki máli. Með
því er hann að missa af keppni sem
er vel þess virði að vinna. Það yrði
frábær dagur fyrir stuðningsmenn
liðsins,“ sagði Ian Wright.
Ver ákvörðunina
Arsene Wenger var spurður af
fréttamönnum eftir leikinn af
hverju hann hvíldi sínar helstu
stjörnur í mögulega einu keppninni
sem hann gæti unnið. Frakkinn gaf
lítið fyrir þær afsakanir að liðið
hefði ekki verið nægilega sterkt,
það spilaði einfaldlega ekki nógu
vel.
„Það voru ellefu landsliðsmenn
inni á vellinum þegar leikurinn
byrjaði. Við gerðum gríðarleg mis-
tök í markinu hjá Blackburn sem
var okkur að kenna. Við vorum ein-
faldlega ekki nógu góðir til að vinna
þennan leik í dag. Það er svo ein-
falt,“ sagði Arsene Wenger.
Meistaradeildin eina vonin
Arsenal skellt í bikarnum af B-deildarliði Gömul hetja gagnrýnir Wenger
harkalega fyrir liðsvalið Var alveg sama um bikarinn Átta ár án titils?
AFP
Titlaleysi Arsene Wenger gæti farið í gegnum átta ár án þess að vinna titil ef Arsenal vinnur ekki Meistaradeildina.
Nani, portú-galski
vængmaðurinn í
liði Manchester
United, slapp
ómeiddur þegar
lögreglubifreið í
útkalli ók á Bent-
ley Continental-
lúxusbíl kappans
um helgina. Atvikið átti sér stað á
gatnamótum í Gatley við Stockport.
Tjón varð á báðum bílum og slas-
aðist farþegi í lögreglubílnum en
Nani og lögregluþjónninn sluppu
ómeiddir.
Ítalski snillingurinn FrancescoTotti skoraði stórkostlegt mark
með þrumuskoti þegar Roma lagði
Ítalíumeistara Juventus í ítölsku
A-deildinni um helgina. Totti barst
boltinn fyrir utan teig eftir horn-
spyrnu en hann þrumaði honum
óverjandi framhjá Gianluigi Buffon
í markinu.
Harry Red-knapp,
knattspyrnustjóri
QPR, telur liðið
þurfa að fá 20 stig
í þeim tólf leikj-
um sem eftir eru í
ensku úrvals-
deildinni ætli það
að sleppa við fall.
QPR er rótfast við botn deildarinnar
með aðeins 17 stig eftir 26 leiki, sjö
stig frá öruggu sæti. Redknapp telur
þó að 37 stig verði nóg til að bjarga
liðinu. „Ég tel okkur þurfa 20 stig í
síðustu tólf leikjunum ætlum við að
eiga möguleika ef ég á að vera heið-
arlegur,“ segir Redknapp á heima-
síðu félagsins. „Ef einhver byði mér
37 stig núna myndi ég líklega taka
áhættuna á að það yrði nóg,“ segir
Harry Redknapp.
Brendan Rod-gers, knatt-
spyrnustjóri Liv-
erpool, vill fá
reynda menn til
liðsins í sumar,
menn sem geta
hjálpað liðinu að
þróast í rétta átt.
„Það sem okkur
vantar helst í
sumar er að fá karlmenn til liðsins,
menn með karakter sem hjálpa hin-
um. Mér finnst það mikilvægast,“
segir Rodgers. „Sjáið bara Jamie
Carragher. Hann er 35 ára en samt
okkar besti varnarmaður og við er-
um að missa þann karakter úr liðinu.
Við verðum að leysa það. Svo eru
líka fleiri stöður sem við þurfum að
bæta okkur í,“ segir Brendan Rod-
gers.
Baráttan um markakóngstitilinn íÞýskalandi er enn hörð en Mar-
io Mandzukic, leikmaður Bayern, og
Stefan Kiessling, Leverkusen, skor-
uðu báðir um helgina og eru efstir
með 15 mörk. Robert Lewandowski
í Dortmund var í banni um helgina
en hann hefur skorað 14.
Fólk sport@mbl.is
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Granada, sem gerði sér lítið fyrir
og lagði Real Madrid í spænsku 1.
deildinni á dögunum, gerði sig lík-
legt til að valda enn meiri usla í
deildinni á laugardaginn þegar lið-
ið komst yfir, 1:0, gegn Barcelona á
heimavelli.
Ekkert varð þó úr því að Gran-
ada tækist að vinna tvö stærstu lið
landsins með skömmu milli því arg-
entínska undrið,
Lionel Messi,
skoraði tvö mörk í
seinni hálfleik og
tryggði Barcelona
útisigur, 2:1.
Þetta voru
hvorki meira né
minna en 300. og
301. mark hins 25
ára gamla Messis
fyrir Barcelona. Þessi nánast
ómannlegi Argentínumaður hefur
nú skorað 301 mark fyrir Barce-
lona í 365 leikjum eða 0,82 mörk í
leik. Hreint ótrúleg tölfræði fyrir
knattspyrnumann.
Messi hefur nú skorað 37 mörk í
deildinni og 44 mörk í öllum keppn-
um fyrir Barcelona á tímabilinu.
Hann skoraði þrennu í 5:4-sigri
liðsins gegn Deportivo og jafnaði
sitt eigið met á dögunum þegar
hann skoraði fernu í 5:1-sigri á
Osasuna.
Messi hefur fjórtán sinnum skor-
að tvö mörk í leik á tímabilinu og
aðeins fengið gula spjaldið einu
sinni.
Argentínumaðurinn, sem fram-
lengdi samning sinn við Barcelona í
síðustu viku, er nú einnig búinn að
skora í fjórtán leikjum í röð fyrir
Barcelona.
Hann skoraði 91 mark á árinu
2012 þar sem hann bætti markamet
Þjóðverjans Gerds Müllers sem
skoraði 85 mörk á einu almanaks-
ári.
Messi með 301 mark í 365 leikjum
Argentínumaðurinn ótrúlegi rauf 300 marka múrinn í sigurleik Barca gegn Granada
Lionel
Messi