Morgunblaðið - 18.02.2013, Síða 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2013
Hin 17 ára gamla Mikaela Shiffrin
frá Bandaríkjunum varð heims-
meistari í svigi kvenna á heims-
meistaramótinu í alpagreinum sem
fram fer í Schladming í Austurríki.
Shiffrin, sem hefur hlotið viður-
nefnið svigprinsessan, hefur vakið
verðskuldaða athygli í skíðabrekk-
unum á tímabilinu en hún hefur
unnið þrjú heimsbikarmót í svigi og
er í efsta sæti í heildarstigakeppn-
inni.
María Guðmundsdóttir varð í 52.
sæti í sviginu, tæpum 15 sekúndum
á eftir heimsmeistaranum. Helga
María Vilhjálmsdóttir endaði í 55.
sæti. Erla Guðný Helgadóttir varð í
64. sæti eftir fyrri ferðina og komst
því ekki í seinni, en einungis 60
bestu komust í hana. Erla Ásgeirs-
dóttir keyrði hins vegar út úr
brautinni í fyrri ferðinni.
gummih@mbl.is
Skíðaprins-
essan vann
Spilað var á fullu í A-deild
Lengjubikarkeppninnar í knatt-
spyrnu um helgina en keppni í
henni hófst á föstudaginn.
Guðjón Pétur Lýðsson opnaði
markareikning sinn með Breiða-
bliki þegar hann skoraði fjórða
markið í 4:1-sigri gegn KA. Olgeir
Sigurgeirsson, Árni Vilhjálmsson
og Tómas Óli Garðarsson gerðu
hin mörk Blika.
Tvö rauð spjöld fóru á loft á
Akranesi þar sem Valur hafði bet-
ur gegn ÍA, 3:1. Kolbeinn Kára-
son, Stefán Ragnar Guðlaugsson
og Þórir Guðjónsson gerðu mörk
Vals en Eggert Kári Karlsson lag-
aði stöðuna fyrir ÍA. Skagamað-
urinn Þórður Birgisson var rekinn
út af á 26. mínútu og Kristinn
Freyr Sigurðsson fór sömu leið á
53. mínútu.
Íslandsmeistarar FH sigruðu
Fjölni, 4:2, eftir að Fjölnir skoraði
fyrsta markið. Atli Guðnason skor-
aði tvö af mörkum FH og þeir
Emil Pálsson og Kristján Gauti
Emilsson gerðu hin mörkin. Guð-
mundur Karl Guðmundsson og
Ómar Hákonarson settu mörk
Fjölnis.
Mikið fjör var í viðureign ÍBV
og Grindavíkur en liðin skildu
jöfn, 3:3. Daníel Leó Grétarsson
jafnaði metin fyrir Grindvíkinga á
lokamínútunni. Magnús Björg-
vinsson skoraði tvö fyrstu mörk
Grindvíkinga en Yngri Borgþórs-
son, Ragnar Leósson og Kjartan
Guðjónsson skoruðu fyrir ÍBV.
Víkingur Ólafsvík, sem leikur í
efstu deild í sumar í fyrsta sinn,
vann öruggan sigur á BÍ/
Bolungarvík, 3:0. Eldar Masic,
Brynjar Kristmundsson og Alfreð
Már Hjaltalín skoruðu fyrir Vík-
inga. gummih@mbl.is
Rauð spjöld á
Skaganum
FRJÁLSAR
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
ÍR-ingar fögnuðu sigri í 7. bikar-
keppni Frjálsíþróttasambands Ís-
lands sem haldin var í Laugardals-
höllinni á laugardaginn. ÍR-ingar,
sem á dögunum urðu Íslands-
meistarar sjötta árið í röð, hlutu
samtals 119 stig. Í öðru sæti varð
lið Norðurlands með 109,5 stig en
lið Norðurlands var sameiginlegt
lið frá UMSS, UMSE, UFA og
HSÞ. FH-ingar, sem áttu titil að
verja urðu að láta sér lynda þriðja
sætið en FH hlaut samtals 90 stig.
Í karlaflokki hrósuðu Akureyr-
ingar sigri með 58 stig. ÍR-ingar
urðu í öðru sæti með 55 stig en úr-
slitin réðust í æsispennandi 4x400
metra boðhlaupi. FH-ingar höfn-
uðu í þriðja sæti með 44 stig.
Í kvennaflokki vann ÍR-A yfir-
burðasigur í stigakeppninni en
þær hlutu 64 stig. Norðurland
varð í öðru sæti með 51,5 stig og
FH í því þriðja með 46 stig.
Ekki tókst neinu af frjáls-
íþróttafólkinu að tryggja sér lág-
mark fyrir þátttöku á Evrópu-
meistaramótinu sem fram fer í
Gautaborg í Svíþjóð í næsta mán-
uði en þar keppir Aníta Hinriks-
dóttir í 400 og 800 metra hlaupum.
Bjarki og Mark yfir 5 metra
í stangarstökkinu
Í fyrsta sinn í 31 ár tókst tveim-
ur stangarstökkvurum að komast
yfir 5 metra. Þeir Bjarki Gíslason
úr UFA og Mark Winston stukku
báðir 5 metra en Bjarki sigraði
þar sem hann fór yfir þá hæð í
fyrstu tilraun. Sigurður T. Sig-
urðsson og Kristján Gissurarson
voru þeir síðustu sem afrekuðu að
fara báðir yfir 5 metra en það var
á 75 ára afmælismóti ÍR árið 1982.
Hafdís Sigurðardóttir, Norður-
landi, vann tvær greinar á mótinu.
Hún sigraði í langstökki með því
að stökkva 6,16 metra og hún kom
fyrst í mark í 60 metra hlaupi á
tímanum 7,70 sekúndum. Hún varð
þar sjónarmun á undan Hrafnhild
Eir Hermóðsdóttur úr ÍR sem
fékk tímann 7,71 sek.
Tvöfalt hjá Kolbeini
Kolbeinn Höður Gunnarsson,
Norðurlandi, sigraði bæði í 60 og
400 m hlaupi. Í 60 metra hlaupinu
kom hann í mark á 7,09 sek. sem
er næst besti tími hans og ársins
innanhúss í ár og í 400 metra
hlaupinu hljóp hann á tímanum
48,26 sekúndum eftir harða keppni
við FH-inginn Trausta Stefánsson.
Þórdís Steinsdóttir FH setti met
bæði í flokki 13 og 14 ára stúlkna í
800 m hlaupi, þegar hún kom í
mark á tímanum 2:16,46 mín, en
Björg Gunnarsdóttir, ÍR, sigraði á
2:15,28 mínútum sem er persónu-
legt met hjá henni í greininni.
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir úr
ÍR vann 200 metra hlaup kvenna.
Hrafnhild kom í mark á 25,11 sek-
úndum en Andrea Torfadóttir úr
FH varð önnur á 25,77 sekúndum.
Hjá körlunum varð ÍR-ingurinn
var Kristinn Jasonarson hlut-
skarpastur í 200 metra hlaupinu.
Hann hljóp á 22,28 sekúndum en
Jóhann Björn Sigurbjörnsson,
Norðurlandi, varð annar á 22,32
sekúndum.
Aníta vann 400 metrana
Ungstirnið ótrúlega, Aníta Hin-
riksdóttir úr ÍR, vann 400 metra
hlaup kvenna sem hún hljóp á tím-
anum 54,88 sekúndum. Stefanía
Valdimarsdóttir úr Breiðabliki
varð önnur á 56,39 sekúndum og
Rakel Ósk Björnsdóttir sem
keppir fyrir Norðurland fékk
bronsið en hún hljóp á 59,32 sek-
úndum.
Tugþrautarkappinn Einar Daði
Lárusson úr ÍR vann hástökks-
keppnina. Einar Daði stökk hæst
1,99 metra en það tókst honum í
þriðju tilraun. Egill Níelsson úr
FH fékk silfrið en hann stökk 1,96
metra.
Morgunblaðið/Eggert
Bikarmeistarar ÍR-ingar fagna bikarmeistaratitlinum þar sem Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir lyftir bikarnum á loft.
ÍR hampaði bikarnum
ÍR hrósaði sigri í bikarkeppni FRÍ Sameiginlegt lið frá Norðurlandi varð í 2.
sæti og karlalið félagsins hrósaði sigri Tveir yfir 5 metra í stangarstökki