Morgunblaðið - 21.02.2013, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Axel Bóas-son, kylf-
ingur úr Keili í
Hafnarfirði, lék
vel á Mobile Bay-
háskólamótinu í
Alabama sem
lauk á þriðjudag-
inn. Sérstaklega
sýndi Axel góða
takta á lokahringnum sem hann lék
á 68 höggum en hina tvo hringina lék
hann á 77 og 73 höggum. Hann lauk
leik á samtals tveimur höggum yfir
pari og lék best þeirra sem kepptu
fyrir Mississippi State-háskólann.
Þar er Haraldur Franklín Magnús
úr GR einnig við nám en hann var
ekki með í mótinu. Axel hafnaði í 11.
sæti í einstaklingskeppni mótsins.
Netmiðillinn Kylfingur.is greindi
frá.
Ítölsku meistararnir í Juventus ogþýska stórliðið Bayern München
eru bæði sögð ætla að reyna að fá
Úrúgvæmanninn Luis Suárez til liðs
við sig í sumar frá Liverpool. Ítalska
blaðið La Stampa greindi frá þessu í
gær en blaðið greindi frá því að Bæj-
arar væru reiðubúnir að að greiða 46
milljónir evra fyrir framherjann
skæða sem jafngildir tæpum átta
milljörðum króna. Fari svo að Liver-
pool nái ekki meistaradeildarsæti
mun reynast erfitt fyrir félagið að
halda sínum bestu leikmönnum og
Suárez er örugglega einn þeirra.
Gylfi Þór Sig-urðsson er
bjartsýnn á að
Tottenham kom-
ist áfram í 16-liða
úrslit Evrópu-
deildarinnar í
knattspyrnu en
liðið er 2:1 yfir í
einvíginu við
Lyon fyrir seinni leik liðanna í
Frakklandi í kvöld. „Við erum alltaf
líklegir til að skora, sérstaklega á
útivelli og það höfum við gert í nán-
ast hverjum einasta leik. Við höfum
fulla trú á að við getum komist
áfram og skorað eitt eða tvö mörk,
og ef það tekst er það mjög jákvætt
fyrir okkur,“ sagði Gylfi við heima-
síðu Tottenham, en liðið hefur skor-
að í 17 af 19 útileikjum sínum í vetur.
Evrópu- ogÞýskalands-
meistarar Kiel
fóru með sigur af
hólmi gegn rúm-
enska liðinu Cost-
anta, 28:25, í
lokaleik sínum í
B-riðli Meist-
aradeildar Evr-
ópu í Búkarest í Rúmeníu í gær. Al-
freð Gíslason notaði tækifærið og
gaf mönnum sem minna hafa fengið
að spreyta sig í vetur og þeir Guðjón
Valur Sigurðsson og Aron Pálm-
arsson sátu meira og minna á
bekknum allan tímann. Hvorugur
þeirra komst á blað í leiknum.
Þýska knattspyrnuliðið GreutherFürth, sem er nýliði í þýsku A-
deildinni, rak í gær þjálfarann Mike
Bueskens úr starfi. Liðið situr á
botni deildarinnar með 12 stig og
hefur aðeins náð að vinna tvo af 22
leikjum sínum í deildinni. Liðið er 14
stigum frá öruggu sæti í deildinni og
fátt sem virðist geta komið í veg fyr-
ir að liðið falli í B-deildina í vor. Bue-
skens tók við þjálfun Greuther
Fürth árið 2009 og undir hans stjórn
vann liðið sér sæti í A-deildinni síð-
astliðið vor í fyrsta skipti í sögu fé-
lagsins.
Bueskens er fjórði þjálfarinn semfær að taka pokann sinn í
þýsku A-deildinni á tímabilinu en áð-
ur hafði Wolfsburg rekið Felix Ma-
gath, Hoffenheim Markus Babbel og
Schalke Huub Stevens.
Fólk sport@mbl.is
Tveir fyrrverandi leikmenn Portsmouth, Kevin-Prince Boateng
og Sulley Muntari, sáu um að tryggja níföldum Evrópumeisturum
AC Milan sigurinn gegn Barcelona í Meistaradeildinni í gær.
Enginn leikur betur en andstæðingurinn leyfir er oft sagt í íþrótt-
unum og það á vel við um viðureign þessara risaliða í evrópskri
knattspyrnu. Börsungar komust ekkert áleiðis gegn frábærlega
vel skipulögðu liði heimamanna og menn eins og Lionel Messi
sáust varla í leiknum. Messi var haldið í heljargreipum af varn-
armönnum AC Milan og Argentínumaðurinn var einungis skugg-
inn af sjálfum sér. Enginn skyldi þó afskrifa Katalóníuliðið en
Allegri, þjálfari AC Milan, var greinilega búinn að kortleggja lið
Barcelona og leikaðferð þess og leikmenn hans höfðu öll ráð Bör-
sunga í hendi sér.
Schalke stendur vel að vígi í rimmunni gegn Galatasaray en Þjóðverjarnir náðu 1:1-
jafntefli í Istanbul. Yilmaz kom Tyrkjunum yfir með sínu 7. marki í Meistaradeildinni
en Jermaine Jones skoraði markið mikilvæga fyrir Schalke. gummih@mbl.is
Frábær frammistaða AC Milan
Kevin-Prince
Boateng
Handboltadómarinn Arnar Sigurjónsson stóð í ströngu síðastliðinn sunnu-
dag en þá dæmdi hann tvo leiki í röð í N1-deild karla. Arnar dæmdi ásamt
Svavari Péturssyni félaga sínum leik Fram og Akureyri í Safamýri klukkan
17 og var mættur upp í Breiðholt fyrir klukkan 19.30 og dæmdi þar leik ÍR
og Hauka ásamt Antoni Pálssyni.
Að sögn Róberts Geirs Gíslasonar, mótastjóra HSÍ, var einfaldlega um að
ræða forföll á leikdegi sem gerðu það að verkum að Arnar dæmdi einnig leik
ÍR og Hauka. Róbert sagði að auðvitað væri ekki um óskastöðu að ræða en
benti á að þegar margir leikir færu fram í efstu deild gæti þurft að grípa til
aðgerða sem þessara til að bjarga málunum
ef upp kæmu óvænt forföll. Róbert sagði
einnig að ef dómari væri settur á tvo
meistaraflokksleiki sama daginn væri
það ekki gert nema viðkomandi hefði
komið vel út úr þrekprófum sem dóm-
arar gangast undir. kris@mbl.is
Dæmdi tvo leiki sama dag
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í
handknattleik og leikmaður Wetzlar, er búinn að
semja við danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro/
Silkeborg og gengur hann til liðs við félagið í
sumar en þá rennur samningur hans við Wetzlar
út.
„Ég hafði úr nokkrum möguleikum að velja og
ég var í viðræðum við lið í Þýskalandi og í Dan-
mörku. Áhuginn hjá Bjerringbro/Silkeborg var
mjög mikill og úr varð að ég fór til félagsins í
viðræður og niðurstaðan úr þeim varð sú að ég
fer til liðsins í sumar,“ sagði Kári við Morg-
unblaðið en samningur hans er til tveggja ára.
Kári hefur spilað með Wetzlar frá árinu 2010
en þangað kom hann frá svissneska liðinu Ami-
citia Zürich.
Morgunblaðið greindi frá því í janúar að Bjerr-
ingbro/Silkeborg væri með Kára í sigtinu og þá
hafa Team Tvis Holstebro og Århus Håndbold
einnig verið með Eyjamanninn sterka undir smá-
sjánni en Bjerringbro/Silkeborg vann kapp-
hlaupið um Kára. Honum er ætlað að fylla skarð
danska landsliðsmannsins Henriks Toft Hansen
sem fer til Hamburg í sumar.
„Þetta er spennandi fyrir mig. Nú fæ ég tæki-
færi til að taka aftur þátt í varnarleiknum sem
mér líst ansi vel á. Ég spilaði alltaf vörnina hjá
Haukum og það var aldrei vandamál en um leið
og ég fór út í atvinnumennskuna var ég bara lát-
inn spila í sókninni,“ sagði Kári Kristján.
Kári er 29 ára gamall línumaður sem hefur
leikið 65 leiki með íslenska A-landsliðinu og hef-
ur í þeim skorað 77 mörk. Hann var mjög öfl-
ugur með landsliðinu á heimsmeistaramótinu á
Spáni í janúar þar sem hann var fjórði marka-
hæsti leikmaður liðsins með 16 mörk og fiskaði
ófá vítaköstin.
Með liði Bjerringbro/Silkeborg leikur horna-
maðurinn Guðmundur Árni Ólafsson en liðið er í
2. sæti í dönsku úrvalsdeildinni og er komið í 16-
liða úrslit í Meistaradeild Evrópu.
Kári fær að spila varn-
arleik á ný í Danmörku
AFP
Grimmur Kári Kristján Kristjánsson í hörðum
slag gegn Frökkum á HM á Spáni í janúar.
Breyting
Þóra B.
Helgadóttir
er komin úr
hitanum í
Ástralíu og í
kuldann í
Svíþjóð.
Þóra í Malmö á ný eftir hitann í Ástralíu Býst ekki við að
fara þangað aftur Mælir samt eindregið með landinu
anum þar sem var sérlega mikill þetta sumarið og var mikið í
heimsfréttunum.
Mörkin dregin við 42 gráður
„Við þurftum oft að spila í 40 stiga hita en mörkin þar eru
dregin við 42 gráður. Einu sinni þurfti að seinka leik hjá okk-
ur um fimm tíma vegna of mikils hita, og síðan varð að hætta
honum um kvöldið þegar þrumur og eldingar skullu á,“ sagði
Þóra.
Hún er komin á fulla ferð í undirbúning Malmö fyrir kom-
andi tímabil. Liðið byrjar fyrr en önnur sænsk lið því seinni-
partinn í mars mætir það Evrópumeisturum Lyon í 8-liða
úrslitum Meistaradeildarinnar. Með Malmö leikur sem
kunnugt er einnig landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir.
Keppni í sænsku úrvalsdeildinni hefst síðan 13. apríl þegar
Malmö tekur á móti Jitex í fyrstu umferðinni.
Mun sterkari hópur hjá Malmö
Þóra er bjartsýn á gott gengi Malmö á komandi keppn-
istímabili. „Við erum með mun sterkari hóp en í fyrra eftir
að hafa bætt öflugum leikmönnum við í vetur, og endurheimt
tvær sterkar eftir meiðsli, og það er komin geysileg sam-
keppni um allar stöður í liðinu. Lyon er með ógnarsterkt lið
en ég er sannfærð um að við getum staðið í þeim. Það er þó
verst að Algarve-bikarinn truflar undirbúninginn. Nánast
allt okkar lið verður á Algarve með sínum landsliðum, allar
nema fjórar úr leikmannahópnum, þannig að þjálfarinn okk-
ar verður þar líka til að fylgjast með. Þegar við komum aftur
heim verður bara vika í fyrri leikinn við Lyon en við verðum
samt algjörlega klárar þegar að honum kemur,“ sagði Þóra
B. Helgadóttir sem er að hefjast sitt fjórða tímabil með
Malmö. Hún kom til félagsins frá Kolbotn í Noregi í árs-
byrjun 2010 og varð meistari með liðinu 2010 og 2011. Þóra
var kjörin besti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar árið
2012, sem var smá sárabót fyrir hana eftir að liðið missti
naumlega af meistaratitlinum.
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta var ævintýri og skemmtileg reynsla og mig
hafði lengi langað þarna niðureftir,“ segir Þóra B.
Helgadóttir landsliðsmarkvörður í knattspyrnu,
sem kom aftur til Svíþjóðar fyrir skömmu eftir að
hafa dvalið og spilað í Ástralíu frá því í nóvember.
Þóra fór til Sydney um leið og tímabilinu lauk í Svíþjóð í
haust og varði mark Western Sydney Wanderers í átta
leikjum sem eftir voru af tímabilinu í Ástralíu, sem lauk í
janúar. Þar með varð hún fyrsta íslenska knattspyrnukon-
an til að spila með liði í Eyjaálfu. Lið hennar endaði í
sjötta sæti af átta liðum í W-deildinni og komast ekki í úr-
slitakeppnina um meistaratitilinn.
Svipuð og íslenska deildin
„Fótboltinn sem slíkur var ekkert sérstakur miðað við
Svíþjóð. Styrkleikinn á áströlsku deildinni er svipaður og á
þeirri íslensku og íþróttin er ung í landinu. En Ástralir eru
góðir í íþróttafræðunum, leikmennirnir þar eru í mjög góðu
líkamlegu formi og aðstæðurnar fínar,“ sagði Þóra þegar
Morgunblaðið spurði hana um dvölina í Sydney.
„Það er í raun heppilegt fyrir evrópska leikmenn að fara
þangað í vetrarfríinu og ég mæli eindregið með þessu. Ég
reikna þó ekki með því að endurtaka þetta næsta vetur því
tímabilið hjá mér verður langt í ár. Svo var ég á milli samn-
inga hjá Malmö í fyrra, gerði nýjan tveggja ára samning í
haust og gat þá haft inni í honum ákvæði um að mega fara til
Ástralíu í vetur. Það voru nokkrir fleiri evrópskir leikmenn í
deildinni, t.d. frá Svíþjóð, og svo var þarna Ariane Hingst,
sem lék lengi með þýska landsliðinu.“
Frá nóvember og fram í janúar er hásumar í
Ástralíu og Þóra fékk heldur betur að kynnast hit-
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þetta var ævintýri og
skemmtileg reynsla