Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 2
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðs-
þjálfari kvenna í knattspyrnu, fer með
afar leikreyndan hóp í Algarve-
bikarinn í Portúgal í næstu viku. Hann
tilkynnti 23 manna hóp sinn fyrir mótið
í gær og í honum eru sjö leikmenn sem
hafa spilað meira en 50 landsleiki, sex-
tán sem eiga meira en 20 landsleiki að
baki. Í hópnum eru jafnframt 14 af
þeim 18 konum sem eru í atvinnu-
mennsku erlendis um þessar mundir.
Eitt nafn vantar þó af þeim sem
myndað hafa kjarna íslenska landsliðs-
ins undanfarin ár. Margrét Lára Við-
arsdóttir, sem hefur skorað 69 mörk í
86 landsleikjum, verður fjarri góðu
gamni og missir í fyrsta sinn af móti
með landsliðinu. Hún er í endurhæf-
ingu eftir uppskurð á læri fyrr í vetur
og stefnir á að vera komin í stand fyrir
úrslitakeppni EM í Svíþjóð í sumar.
Ólína G. Viðarsdóttir kemur aftur
inní hópinn en hún lék ekkert á síðasta
ári vegna barnsburðar. Þá er Guðný B.
Óðinsdóttir með á ný en hún missti af
stórum hluta síðasta tímabils vegna
meiðsla.
Einn nýliði er í hópnum en það er
Birna Kristjánsdóttir, markvörður
Breiðabliks. Hún fyllir skarð Söndru
Sigurðardóttur úr Stjörnunni sem er
frá keppni í bili vegna meiðsla.
Hópurinn er þannig skipaður, lið og
landsleikir/mörk innan sviga:
Markverðir: Þóra B. Helgadóttir
(Malmö, 92), Guðbjörg Gunnarsdóttir
(Avaldsnes, 21), Birna Kristjánsdóttir
(Breiðabliki, 0).
Aðrir leikmenn: Katrín Jónsdóttir
(Umeå, 122/21), Edda Garðarsdóttir
(Chelsea, 97/4), Dóra María Lárus-
dóttir (Val, 83/15), Hólmfríður Magn-
úsdóttir (Avaldsnes, 76/30), Ólína G.
Viðarsdóttir (Chelsea, 55/2), Sara B.
Gunnarsdóttir (Malmö, 54/12), Katrín
Ómarsdóttir (Liverpool, 48/8), Rakel
Hönnudóttir (Breiðabliki, 43/2), Sif
Atladóttir (Kristianstad, 43/0), Fanndís
Friðriksdóttir (Kolbotn, 33/2), Hallbera
G. Gísladóttir (Piteå, 33/1), Guðný B.
Óðinsdóttir (Kristianstad, 32/0), Dagný
Brynjarsdóttir (Val, 23/3), Harpa Þor-
steinsdóttir (Stjörnunni, 23/1), Mist
Edvardsdóttir (Avaldsnes, 8/0), Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir (Arna-Björnar,
7/0), Elísa Viðarsdóttir (ÍBV, 4/0),
Sandra M. Jessen (Þór, 3/2), Elín Metta
Jensen (Val, 2/0), Glódís Perla Viggós-
dóttir (Stjörnunni, 2/0).
Reynslumikið lið fer til Algarve
- Sjö leikmenn með meira en 50 landsleiki - Fjórtán í hópnum spila erlendis
Á AKUREYRI
Andri Yrkill Valsson
sport@mbl.is
Vorvindarnir eru snemma á ferð-
inni í ár og blésu duglega fyrir
norðan í gær. Hvort það hafi gefið
Akureyringum
þann meðbyr
sem hefur vantað
stóran hluta
tímabilsins er
óvíst, en sama
hvort það var
vorloftinu að
þakka eða ekki
þá er alveg
greinilegt að
þungu fargi er
létt af liðinu eftir
sigur 29:24, á FH. „Það er alveg
satt, enda langt síðan við unnum
síðast,“ sagði Bergvin Þór Gíslason,
leikmaður Akureyrar, og hitti þar
sannarlega naglann á höfuðið, en
þetta var fyrsti sigurleikur liðsins í
deildinni síðan um miðbik nóv-
embermánaðar. Fögnuður liðsins
var líka ósvikinn í leikslok og ómaði
hið fræga meistaralag Queen um
salinn þegar menn féllust í faðma.
Akureyringar voru sprækir í
leiknum og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik og voru yfir að honum lokn-
um, 13:9. Vörnin var heildsteypt og
gerði sérstaklega vel í að loka á
skot fyrir utan sem kom sér illa fyr-
ir Ragnar Jóhannsson og félaga í
sókn FH-inga. Í síðari hálfleik
þorðu Hafnfirðingar þó frekar að
taka af skarið og um miðbik hálf-
leiksins komust þeir yfir í fyrsta
skipti. Margir áttu þá líklega von á
að Akureyringar myndu brotna eft-
ir allt mótlætið á tímabilinu en svo
var aldeilis ekki. Með Bergvin í
broddi fylkingar og Jovan Kukubat
í stuði í markinu gegn fullbráðum
FH-ingum héldu heimamenn haus
og fögnuðu eins og áður segir lang-
þráðum sigri þegar lokaflautið gall.
„Við höfum verið frekar óheppnir
en það small allt í dag. Vörnin var
góð í fyrri hálfleik, Jovan var öfl-
ugur í markinu og svo virtist ekki
skipta máli hvert ég skaut, það end-
aði allt inni. Þetta var bara einn af
þessum dögum,“ sagði Bergvin, en
hann átti stórfínan leik í sókninni
og var markahæstur með 9 mörk.
Eftir að hafa verið viðloðandi liðið
undanfarin tímabil hefur hann feng-
ið aukna ábyrgð í vetur og þá sér-
staklega vegna þeirra meiðslavand-
ræða sem herjað hafa á
norðanmenn. Hann hefur þó svarað
kallinu með prýði og aðspurður var
hann bara nokkuð ánægður.
Alltaf hægt að gera betur
„Það er auðvitað alltaf hægt að
gera betur. Við höfum lent í miklum
meiðslum svo það hefur komið
meiri ábyrgð á okkur ungu strák-
ana en ég er búinn að vera þokka-
lega ánægður með mitt framlag,“
sagði Bergvin. FH-ingar hafa verið
á miklu skriði undanfarið en þeim
var sannarlega kippt niður á jörðina
í þessum leik. Þeir voru mjög dapr-
ir framan af og þá sérstaklega í
sókninni, en það verður þó að hrósa
þeim fyrir þann styrk sem liðið
sýndi í að koma til baka í síðari
hálfleik. En það tekur sinn toll að
þurfa að elta stóran hluta leiksins
og gerðu Akureyringar vel að
ganga á lagið undir lokin og sigldu
örugglega fram úr á ný. Deildin er
mjög jöfn þetta árið og þrátt fyrir
brösugt gengi á tímabilinu og langt
frá síðasta sigurleik hafa Akureyr-
ingar þó enn möguleika á sæti í úr-
slitakeppninni.
„Ég held að öll lið horfi þangað.
Næst á dagskrá hjá okkur er leik-
urinn við ÍR á laugardaginn og það
er algjör úrslitaleikur fyrir okkur,“
sagði Bergvin í leikslok.
Sigurdans var
stiginn nyrðra
- Fyrsti deildarsigur síðan í nóvember
Bergvin Þór
Gíslason
Í BREIÐHOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Heimasigrarnir þrír hjá ÍR í N1-deild-
inni í handbolta eftir áramót hafa ekki
verið fyrir hjartveika. Breiðhyltingar
unnu Val með marki á síðustu sekúnd-
unni í fyrsta leik nýs árs, Haukar voru
lagðir að velli með marki úr vítakasti
eftir að leiktíminn var liðinn og svipuð
spenna var á boðstólum þegar ÍR vann
Val, 25:23, í Austurbergi í gærkvöldi.
Valsmenn voru komnir í góða stöðu,
21:18, þegar þrettán mínútur voru eftir
en þá mætti Davíð Georgsson til leiks af
bekknum, skoraði fjögur mörk í röð, og
kom ÍR yfir, 22:21. Heimamenn voru
svo sterkari á endasprettinum og Sig-
urjón Friðbjörn Björnsson tryggði lið-
inu sigur, 25:23, þegar tíu sekúndur
voru eftir.
Mikilvægur sigur hjá ÍR í baráttunni
um fjórða sætið, það síðasta sem gefur
þátttökurétt í úrslitakeppninni, en
Breiðhyltingar eru ósigraðir á heima-
velli á árinu.
Áttum að vinna alla leikina
Þetta var stærsta tap Vals eftir ára-
mót en liðinu gengur ekkert að vinna
leiki. Hlíðarendapiltar hafa ekki bragð-
að á sigri í deildinni síðan í byrjun nóv-
ember á síðasta ári.
Eftir áramót hefur liðið gert tvö jafn-
tefli og tapað með einu og tveimur
mörkum. Lokaspretturinn hefur ekki
verið sterkur hjá Valsmönnum.
„Þetta er búið að gerast í öllum leikj-
unum eftir áramót. Það er eins og við
höfum þetta ekki í okkur síðustu fimm
mínúturnar. Við áttum að vinna alla
þessa leiki eftir áramót en klikkum allt-
af á síðustu mínútunum,“ sagði Gunnar
Malmquist, hornamaður Vals og
fremsti maður í 3:2:1-vörn liðsins, við
Morgunblaðið eftir leikinn.
Innkoma Davíð Georgsson,
leikmaður ÍR, sem hér brýst
fram hjá Gunnari Malmquist í
vörn Vals skoraði fjögur mörk
í röð fyrir ÍR á mikilvægum
tímapunkti sem lagði grunninn
að sigri Breiðhyltinga.
„Ekki séns að V
- Valsmenn í vondum málum á botni
deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
England
West Ham – Tottenham .......................... 2:3
Andy Carroll 25.(víti), Joe Cole 58. – Ga-
reth Bale 13., 90., Gylfi Þór Sigurðsson 76.
- Gylfi kom inná hjá Tottenham á 56. mín.
Staðan:
Man. Utd. 27 22 2 3 64:31 68
Man.City 27 16 8 3 50:24 56
Tottenham 27 15 6 6 47:32 51
Chelsea 27 14 7 6 55:30 49
Arsenal 27 13 8 6 52:30 47
Everton 27 10 12 5 41:34 42
WBA 27 12 4 11 38:36 40
Liverpool 27 10 9 8 49:34 39
Swansea 27 9 10 8 38:34 37
Stoke 27 7 12 8 26:32 33
Fulham 27 8 8 11 37:42 32
Norwich 27 7 11 9 27:41 32
Newcastle 27 8 6 13 38:48 30
West Ham 27 8 6 13 31:41 30
Sunderland 27 7 8 12 29:36 29
Southampton 27 6 9 12 38:49 27
Wigan 27 6 6 15 33:51 24
Aston Villa 27 5 9 13 26:52 24
Reading 27 5 8 14 33:51 23
QPR 27 2 11 14 19:43 17
Ítalía
Lazio – Pescara........................................ 2:0
- Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Pescara.
Udinese – Napoli ...................................... 0:0
Staðan:
Juventus 26 18 4 4 53:17 58
Napoli 26 15 7 4 46:21 52
Lazio 26 14 5 7 37:29 47
AC Milan 26 13 6 7 45:32 45
Inter Mílanó 26 13 5 8 41:34 44
Fiorentina 25 12 6 7 45:30 42
Catania 26 12 6 8 34:31 42
Roma 26 12 4 10 54:47 40
Udinese 26 9 10 7 35:34 37
Sampdoria 26 9 6 11 33:30 32
Parma 26 8 8 10 32:35 32
Torino 26 7 11 8 32:32 31
Cagliari 26 8 7 11 32:44 31
Chievo 26 8 5 13 26:42 29
Atalanta 26 8 5 13 24:38 27
Bologna 25 7 5 13 33:35 26
Genoa 26 6 8 12 26:37 26
Siena 26 7 6 13 27:37 21
Pescara 26 6 3 17 20:53 21
Palermo 26 3 11 12 22:39 20
Spánn
Levante – Osasuna ................................... 0:2
Staðan:
Barcelona 25 22 2 1 82:28 68
Atl. Madrid 25 18 2 5 48:23 56
Real Madrid 25 16 4 5 62:23 52
Málaga 25 12 6 7 37:24 42
Valencia 25 12 5 8 36:37 41
R. Sociedad 25 11 7 7 41:31 40
Real Betis 25 12 3 10 34:35 39
Rayo Vallecano 25 12 1 12 34:43 37
Getafe 25 10 5 10 35:44 35
Levante 25 10 4 11 30:38 34
R. Valladolid 25 9 6 10 34:33 33
Sevilla 25 9 5 11 34:37 32
Espanyol 25 8 7 10 31:35 31
Osasuna 25 7 7 11 22:27 28
Granada 25 7 5 13 24:36 26
Ath.Bilbao 25 7 5 13 30:50 26
R. Zaragoza 25 7 4 14 25:36 25
Celta 25 6 5 14 24:32 23
Mallorca 25 4 6 15 24:48 18
Dep. La Coruna 25 3 7 15 29:56 16
knattSpyrna
Höllin, Akureyri, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, mánudag 25. febrúar 2013.
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 5:3, 8:5,
10:8, 13:9, 14:12, 17:16, 19:20, 22:22,
25:23, 29:24.
Mörk Akureyrar: Bergvin Þór Gísla-
son 9, Geir Guðmundsson 5, Heimir
Örn Árnason 4/3, Guðmundur Hólm-
ar Helgason 4, Heiðar Þór Að-
alsteinsson 4, Halldór Tryggvason 2,
Valþór Guðrúnarson 1.
Varin skot: Jovan Kukobat 19/1 (þar
af 4 til mótherja), Stefán Guðnason 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk FH: Ragnar Jóhannsson 6, Ein-
ar Rafn Eiðsson 4/2, Ásbjörn Frið-
riksson 4, Magnús Óli Magnússon 3,
Ísak Rafnsson 2, Atli Rúnar Stein-
þórsson 2, Andri Berg Haraldsson 2,
Þorkell Magnússon 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson
13 (þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og
Hlynur Leifsson.
Áhorfendur: 526.
Akureyri – FH 29:24
N1-deild karla
Akureyri – FH ...................................... 29:24
ÍR – Valur.............................................. 25:23
Afturelding – Haukar .......................... 13:16
Staðan:
Haukar 17 14 1 2 421:359 29
FH 17 11 1 5 436:424 23
Fram 17 10 1 6 453:424 21
ÍR 17 8 1 8 439:452 17
Akureyri 17 6 2 9 413:424 14
HK 17 5 3 9 415:435 13
Afturelding 17 4 2 11 403:444 10
Valur 17 2 5 10 406:424 9
18. umferð:
28.2. FH – Afturelding
28.2. Haukar – HK
28.2. Valur – Fram
02.3. ÍR – Akureyri
19. umferð:
14.3. Akureyri – Valur
14.3. HK – FH
14.3. Afturelding – ÍR
14.3. Fram – Haukar
20. umferð:
21.3. FH – Fram
21.3. ÍR – HK
21.3. Akureyri – Afturelding
21.3. Haukar – Valur
21. umferð:
25.3. Haukar – FH
25.3. Fram – ÍR
25.3. HK – Akureyri
25.3. Valur – Afturelding
HandBolti
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Varmá: Afturelding – Fram ................ 19.30
1. deild karla:
Laugardalshöll: Þróttur – Grótta ....... 18.30
Selfoss: Selfoss – Fjölnir ..................... 19.30
Í kvöld!