Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 3
Ljósmynd/Algarvephotopress
Leikreyndar Katrín Jónsdóttir og Þóra B. Helgadóttir eiga samanlagt á þriðja
hundrað landsleiki að baki fyrir Íslands hönd. Þær spila á Algarve.
Á VARMÁ
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Eftir að reglum var breytt í nútíma-
handbolta, meðal annars með hraðri
miðju, er sjaldséð að lið skori minna
en 20 mörk í leik. Enn sjaldséðara er
að lið skori minna en 15 mörk í leik.
Það hefur hinsvegar Mosfellingum
tekist í tveimur síðustu leikjum sín-
um í N1-deildinni í handknattleik.
Þeir skoruðu aðeins 12 mörk gegn
Fram á fimmtudagskvöldið og að-
eins 13 gegn Haukum í gær. Aftur-
elding hefur því aðeins skorað 25
mörk á síðustu 120 mínútum. Hauk-
ar gerðu þó lítið betur en lokatölur
voru 16:13 en með sigrinum bættu
Haukar við forskot sitt á toppi deild-
arinnar.
Úrslitin eru ekki síður merkileg
fyrir þær sakir að svo langt sem töl-
fræðin nær á vef HSÍ eða aftur til
1994 hafa liðin alltaf náð að skora 30
mörk eða meira. Afturelding komst
nálægt þessu meti árið 1995 þegar
liðið fór norður yfir heiðar og keppti
við KA. Lokatölur í þeim leik voru
17:17 og því 34 mörk skoruð.
Slakur handboltaleikur
Þó að Haukar hafi unnið var leik-
ur þeirra uppfullur af mistökum,
sérstaklega í sókninni. Mikið hefur
verið rætt og ritað um sóknina hjá
lærisveinum Arons Kristjánssonar
sem hafði eftirfarandi um málið að
segja. „Okkur fannst við vera búnir
að vinna vel í því undanfarið og búið
að ganga ágætlega í tveimur síðustu
leikjum. Sóknarleikurinn var aldrei
góður í þessum leik og í raun var
þetta bara slakur handboltaleikur.“
Aron hældi þó varnarleik og
markvörslu sinna manna en Aron
Rafn Eðvarðsson landsliðs-
markvörður var án nokkurs vafa
besti maður Hauka. Það sama má
segja um markvörð Aftureldingar
Davíð Svansson, hann var besti mað-
ur heimamanna.
Það er hinsvegar ótrúlegt hvað
leikur Hauka hefur verið þunglama-
legur eftir áramót. Það virðist vanta
allt sjálfstraust þegar kemur að
sóknarleiknum og mikið um ein-
staklingsframtak sem virkar ekki og
í gær voru barnaleg mistök alltof al-
geng.
Reynir Þór Reynisson, þjálfari
Aftureldingar, gerir sér fulla grein
fyrir því að fjarvera manna sem eru
á meiðslalistanum er liðinu erfið.
Hann sagði þó að ungir og efnilegir
strákar nytu að sama skapi góðs af
því. Spurður hvort von væri á ein-
hverjum leikmönnum fyrir næsta
leik gegn FH sagði Reynir svo ekki
vera. „Það er hugsanlegt að við end-
urheimtum Sverri Hermannsson og
Örn Inga Bjarkason í þarnæsta leik.
Það er þó ólíklegra með Örn Inga.“
Söguleg úrslit
í Mosfellsbæ
- Haukar sigruðu í 29 marka leik
Morgunblaðið/Ómar
Bestur Aron Rafn Eðvarðsson átti
góðan leik í marki Hauka.
Honum var mikið niðri fyrir þegar
hann gaf sig á tal við blaðamann enda
skildi hann allt sem hann átti eftir úti á
vellinum en uppskar ekkert frekar en
aðrir Valsmenn sem börðust svo sann-
arlega eins og hetjur.
„Við gefum okkur alla í þessa helvítis
leiki en bara ekki síðustu mínúturnar.
Okkur vantar bara herslumuninn. Það
vantar þetta hjarta í okkur til að klára
leikina. Við erum með mannskapinn en
okkur vantar hjartað!“ sagði Gunnar
sem tekur ekki í mál að fara með Hlíð-
arendastórveldið niður um deild.
„Það er ekki séns að Valur falli. Það
er bara of stórt félag til þess – það er
stranglega bannað!“ sagði Gunnar
Kristinn Malmquist ákveðinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Ekki séns að Valur falli“
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Hans Lind-berg, hinn
dansk-íslenski
hornamaður HSV
Hamburg, er
markahæstur í
Meistaradeild
Evrópu í hand-
knattleik þegar
riðlakeppnin er
að baki. Hans skoraði alls 69 mörk í
tíu leikjum í riðlakeppninni en lið
hans varð efst í A-riðli með 16 stig.
Annar er Gasper Margur, leikmaður
Celje Lasko í Slóveníu, með 65 mörk
og Frantisek Sulc hjá Pick Szeged í
Ungverjalandi skoraði 62 mörk. Ís-
land á ekki leikmann í hópi tíu
markahæstu að þessu sinni.
- - -
Jón ArnórStefánsson,
landsliðsmaður í
körfuknattleik,
tognaði á ökkla á
æfingu hjá liði
sínu CAI Zara-
goza á Spáni á
fimmtudaginn og
missti af þeim
sökum af síðasta leik liðsins um
helgina. Samkvæmt frétt á heima-
síðu félagsins eru meiðslin ekki talin
alvarleg að mati lækna sem skoðuðu
Jón á föstudaginn. Meiðslin ættu því
ekki að halda Jóni lengi frá æfingum
en hann hefur verið nokkuð óhepp-
inn með meiðsli eftir áramót og gat
til að mynda lítið beitt sér í Kon-
ungsbikarnum í febrúar.
- - -
Atli Jóhannesson og Rakel Jó-hannesdóttir, bæði úr TBR,
urðu um helgina Reykjavíkur-
meistarar í einliðaleik í badminton.
Atli vann í úrslitum Ragnar Harð-
arson, ÍA, 21:13 og 21:17. Hann vann
einnig í tvíliðaleik karla ásamt bróð-
ur sínum Helga Jóhannessyni. Þeir
bræðurnir unnu Birki Stein Erlings-
son og Róbert Þór Henn, TBR,
21:16 og 21:14. Rakel vann í úrslitum
Sigríði Árnadóttur, TBR, 21:10 og
21:7. Rakel og Elín Þóra Elíasdóttir,
TBR, urðu Reykjavíkurmeistarar í
tvíliðaleik kvenna eftir að hafa sigr-
að í úrslitum Margréti Jóhanns-
dóttur og Söru Högnadóttur, TBR,
eftir oddalotu 21:14, 23-21 og 21:15.
Tvenndarleik unnu Helgi og Elín
Þóra eftir sigur á Margréti og Daní-
el Thomsen, TBR, 21:14 og 21:16.
- - -
Vala Rún B.Magn-
úsdóttir úr
Skautafélagi
Reykjavíkur sigr-
aði nokkuð
örugglega í ung-
lingaflokki A á
Vetrarmóti ÍSS
sem fram fór í
Skautahöllinni á
Akureyri um helgina. Er þetta þriðji
sigur Völu í röð. Í unglingaflokki B
sigraði Hekla Hallgrímsdóttir úr
Birninum. Elísabet Ingibjörg Sæv-
arsdóttir úr Skautafélagi Akureyrar
hafði talsverða yfirburði í stúlkna-
flokki A en í stúlknaflokki B sigraði
Eva Dögg Sæmundsdóttir úr Birn-
inum. Alls kepptu 67 einstaklingar
frá skautafélögunum þremur í
mótinu.
- - -
Ísland hlaut þrjá meistaratitla áNorðurlandamóti unglinga í
kraftlyftingum með hjálparbúnaði
sem fram fór í Ármannsheimilinu á
laugardaginn. Sindri Freyr Arn-
arsson úr Massa varð Norð-
urlandameistari í -66,0 kg unglinga-
flokki karla og Guðfinnur Snær
Magnússon úr Breiðabliki vann tit-
ilinn í -120 kg flokki. Fanney Hauks-
dóttir úr Gróttu sigraði í -57 kg
flokki kvenna. Júlían Jóhann Karl
Jóhannsson setti tvö Íslandsmet í
+120 kg flokki eins og fjallað var um
í blaðinu í gær en gerði allar tilraun-
irnar í hnébeygju ógildar og missti
því af Norðurlandameistaratitlinum.
Fólk sport@mbl.is
Austurberg, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, mánudag 25. febrúar 2013.
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 3:3, 5:7, 6:10,
8:12, 13:13, 14:15, 14:16, 16:18, 17:19,
18:21, 23:21, 23:23, 25:23.
Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 8,
Sturla Ásgeirsson 6/3, Davíð Georgsson
4, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 4, Jón
Heiðar Gunnarsson 2, Hrannar Máni
Gestsson 1.
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmunds-
son 16 (þar af 7 aftur til mótherja), Seb-
astian Alexandersson 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Vals: Orri Freyr Gíslason 6, Nikola
Dokic 4, Finnur Ingi Stefánsson 4, Valdi-
mar Fannar Þórsson 3, Sveinn Aron
Sveinsson 2/1, Þorgrímur Smári Ólafs-
son 2, Gunnar Malmquist Þórsson 1,
Fannar Örn Þorbjörnsson 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 18 (þar af
6 aftur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Þorleifur Árni Björnsson og
Jón Karl Björnsson – Sæmilegir.
Áhorfendur: 480.
ÍR – Valur 25:23
Varmá, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, mánudag 25. febrúar
2013.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 2:3, 5:5,
7:7, 8:7, 8:10, 11:11, 12:11, 12:13,
13:13, 13:16.
Mörk Aftureldingar: Jóhann Jó-
hannsson 4/1, Þrándur Gíslason 3,
Hilmar Stefánsson 2, Benedikt
Reynir Kristinsson 1, Helgi Héð-
insson, Birkir Benediktsson 1.
Varin skot: Davíð Svansson 16/1
(þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Hauka: Þórður Rafn Guð-
mundsson 3, Sveinn Þorgeirsson
2, Tjörvi Þorgeirsson 2, Sig-
urbergur Sveinsson 2, Árni Steinn
Steinþórsson 2, Elías Már Hall-
dórsson 2, Gylfi Gylfason 2, Matt-
hías Árni Ingimarsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson
15 (þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og
Bjarki Bóasson, góðir.
Áhorfendur: Óuppgefið, leik-
skýrsla barst ekki.
Afturelding – Haukar 13:16
Matt Kuchar sigraði Hunter Mah-
an í úrslitaleik Heimsmótsins í
holukeppni sem lauk í Arizona-ríki
í Bandaríkjunum í fyrrinótt.
Kuchar sigraði 2/1 og lauk
leiknum því á 17. flötinni. Þar
fagnaði Kuchar sínum fimmta
sigri á PGA-mótaröðinni á ferl-
inum, og sínum áttunda mótssigri
sem atvinnumaður.
Hunter Mahan undirstrikaði
hversu sterkur hann er í holu-
keppni því hann sigraði á mótinu í
fyrra en ef mið er tekið af sam-
keppninni sem ríkir á PGA-
mótaröðinni þá er mikið afrek að
komast í úrslit tvö ár í röð.
„Að sigra eftir að hafa keppt
sex leiki við kylfinga sem eru á
meðal þeirra
sextíu og fjög-
urra bestu í
heiminum, er
ótrúleg tilfinn-
ing,“ sagði
Kuchar við
blaðamenn þeg-
ar sigurinn var í
höfn.
Matt Kuchar
er 34 ára gamall
Bandaríkjamað-
ur, fæddur á Flórída en búsettur í
Georgíu. Þetta er hans þrettánda
ár sem atvinnumaður. Sigurinn
lyftir honum úr 15. sætinu upp í
það áttunda á heimslistanum.
kris@mbl.is
Kuchar vann Mahan
í úrslitaleik holukeppninnar
Matt
Kuchar