Morgunblaðið - 19.04.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.04.2013, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ K omst á bragðið í Kaupmannahöfn! Á fallegum morgnum er gaman að hjóla til vinnu. Ég bý í Laugarnes- hverfinu og þaðan er bein leið niður í Kvos þar sem ég starfa. Ég er um fimmtán mínútur að hjóla og þetta er mjög þægilegt. Yfirleitt fylgi ég Sæbrautinni en þegar vindur stendur af norðri er betra að vera aðeins til hlés og fara Borgartúnið og njóta skjóls af stórbyggingum þar,“ segir Sigríður Halldórsdóttir, starfsmaður Borgarskjala- safns Reykjavíkur. Sigríður hefur lengi stundað hjólreiðar. Kynntist þeim sem ung kona en fór að tileinka sér þær sem daglega hreyfingu og lífsstíl þeg- ar hún bjó í Danmörku frá 1998 til 1999. „Það má segja að ég hafi komist á bragðið í Kaupmannahöfn. Bjó þá á Nørrebro, nærri Bispebjerg-sjúkrahúsinu og ölverksmiðjum Tuborg. Þaðan var ég um það bil tuttugu mín- útur að hjóla niður á Strik og leiðin er meira að segja aðeins niður í mót þótt slíkt sé ekki al- gengt í Danmörku. En þessi halli gerði leiðina léttari og skemmtilegri,“ segir Sigríður. „Reiðhjólamenningin í Danmörku er sterk, auk þess sem fólk nýtir sér almennings- samgöngur mjög mikið. Segja má að ef Danir væru jafn háðir einkabílnum og Íslendingar myndi gatnakerfið þar hreinlega springa,“ segir Sigríður sem í dag fer flestra sinna ferða á hjóli – og seldi bílinn sinn nýlega. Segist mjög sátt við þá ákvörðun. Ökumenn eru tillitssamir „Þetta kallar að vísu á að maður skipuleggi til matarinnkaup betur en ella væri. Birgðirnar geta ekki verið jafn miklar. Stundum hjóla ég neðan úr bæ og kem við í Bónus í Kringlunni og tek með eitthvert lítilræði. Ég þarf hins vegar að fara kannski tvisvar, ein ferð dygði væri ég að á bíl. En þetta kemur samt ekki að sök. Þá finnast mér ökumenn eru tillitssamir, stoppa gjarnan að fyrra bragði þegar maður þarf að komast yfir akbraut, þeir víkja og svo framvegis. Þetta er til fyrirmyndar.“ Sigríður Halldórsdóttir Hún komst á bragðið í Köben H jólreiðafólki í þessu fyrirtæki fjölgar jafnt og þétt. Hér starfa um 150 manns og mér telst svo til að fimmtán til tuttugu manns komi hingað á hjóli flesta daga ársins. Við sérstök tilefni svo sem þegar átakið Hjólað af vinnuna fer af stað fjölgar mjög í hópnum og þá gæti látið nærri að annar hver maður leggi bílnum og nýti sér þægindi reiðhjólsins,“ segir Ólafur Árnason, sviðsstjóri hjá verkfræðistofunni Eflu. „Ég þurfti að hreyfa mig meira – auk þess sem hagsýni réð því að ég fór að hjóla reglu- lega til vinnu. Fjölskyldan hafði stækkað og slíku fylgja jafnan snúningar vítt og breitt um bæinn. Niðurstaðan varð sú að við seld- um annan bílinn okkar. Konan hefur bílinn en ég hjóla í vinnuna heiman úr Laug- ardalnum. Ég er um tuttugu mínútur á leið- inni, Ártúnsbrekkan er á fótinn en annars er þetta léttleikandi,“ segir Ólafur – sem getur þess að Eflufólki bjóðist að nýta styrk, sem það fær skv. samningum vegna hjólreiða eða til þess að nýta sér vistvænar samgöngur. Allt niður í mót Vel er gert við starfsfólk Eflu, segir Ólaf- ur, og nefnir þar til dæmis aðstöðu til íþróttaæfinga. „Nei, veðrátta setur sjaldan strik í reikning hjólreiðafólks. Ég hefði kannski betur verið á hjóli 6. mars í vetur; óveðursdaginn mikla. Ég sat fastur í bíl í alls fimm klukkutíma en kannski hefði ég komist á hjólinu,“ segir Ólafur sem hefur tekið þátt í ýmsum hjólreiðakeppnum. Hefur einnig oft hjólað með syni sínum á heima- slóðir í Hveragerði. „Á jöfnum og þægilegum hraða er maður um tvo klukkutíma á hjólinu austur. Sveigi þá oft af Hellisheiðinni við Ölkelduháls og fer um Grændal sem er inn af Hveragerði. Annars verður að segja að öllu auðveldara er að hjóla frá Hveragerði til Reykjavíkur – en hitt – því þegar maður er kominn upp Kamba er allt eftir það niður í mót.“ Ólafur Árnason Annar hver leggur bílnum L eiðin er ekki löng og raunar er ég fljót- ari í vinnuna á hjóli en á bíl. Ég bý við Laugardalinn í Reykjavík og byrja daginn á því að fylgja börnum mínum í skólann. Fer svo stígana um dalinn sem er einstaklega fallegur á vormorgnum eins og núna. Þetta finnst mér góð byrjun á vinnu- deginum,“ segir Hrafnhildur Brynjólfsdóttir. Hjá ráðgjafafyrirtækinu Alta við Síðumúla í Reykjavík, þar sem Hrafnhildur starfar, er fólk áhugasamt um hjólreiðar. Um tíu starfsmenn eru hjá Alta og meirihluti þeirra hjólar að stað- aldri. Hrafnhildur hefur notað hjólreiðar sem samgöngumáta í um fimmtán ár, eða alveg síð- an hún lauk háskólanámi. Hún segir þær nú vera fyrir löngu orðnar hluta af daglegu lífs- mynstri sínum. „Viðmiðið sem ég fylgi er að hjóla til vinnu að minnsta kosti fjóra daga í viku. Hef svo svigrúm til að koma á bíl fimmta daginn, til dæmis ef ég þarf einhverra erinda út í bæ eða slíkt. Að vera á bíl einn dag í viku er enginn glæpur en þegar ég næ bíllausri viku er ég mjög ánægð. Þá er ég með góðar farangursgrindur á hjólinu, því ég kem oft við í verslunum þegar ég hjóla heim,“ segir Hrafnhildur sem kveðst hjóla á dömu- hraða; rólega en örugglega. „Strákarnir í þröngu buxunum og vindjökk- unum á flottu götuhjólunum stinga mig af þegar ég fer þetta bara í rólegheitum. Og það skiptir nefnilega auðvitað meginmáli að taka þetta al- gjörlega á eigin forsendum,“ segir Hrafnhildur sem kom nýlega til Alta, en áður var hún á mun fjölmennari vinnustað. Bros á hverju andliti „Áður vann ég á stórri verkfræðistofu og þar var jafnan mjög mikil þátttaka í verkefnum eins og t.d. Hjólað í vinnuna. Sú keppni eða átak er alltaf í maí á vorin og þá fann maður svo glöggt að stemningin á vinnustaðnum varð allt önnur og léttari. Bros á hverju andliti. Satt að segja voru áhrifin smitandi, því þegar nokkrir hjól- reiðamenn voru komnir af stað fjölgaði fljótt í hópnum sem var mjög ánægjulegt.“ Hrafnhildur Brynjólfsdóttir Á dömuhraða í byrjun dags V eðráttan er ekkert sem hjólreiða- fólk þarf að setja fyrir sig. Tvo síð- ustu vetur hafa aðeins tveir dagar komið þar sem hefur snjóað svo mikið að ég hef ekki náð að hjóla til vinnu. Hjá borginni er raunar sterk vitund fyr- ir því hve margir nota þennan samgöngumáta, því strax í morgunsárið eru allir helstu hjól- reiðastígar vel mannaðir,“ segir Haukur Snær Hauksson viðskiptafræðingur. „Mér finnst fínt að byrja daginn með þessu áhlaupi og setjast frískur við skrifborðið. Starfsdagurinn verður oft drjúgur með þessu,“ segir Haukur Snær sem hefur stundað hjólreiðar síðan hann var strákur. Hann er al- inn upp í Seljahverfi í Breiðholti en stundaði fótbolta með Fram. „Ég hjólaði oft á æfingar í Safamýrinni og var fljótur í förum. Það var því ekki svo mikið átak að hella sér út í þetta aft- ur. Það byrjaði raunar með því að við hjónin vorum með lítil börn og hefðum miðað við óbreyttan lífsstíl þurft að vera hvort á sínum bílnum. Niðurstaðan varð hins vegar sú að einn daginn fór ég á hjóli í vinnu og einnig þann næsta. Og brátt var boltinn farinn að rúlla.“ Haukur Snær býr með fjölskyldu sinni í Norðlingaholtinu í Reykjavík en vinnur í Kringlunni. „Leiðin sem ég fer á morgnana er skemmtileg. Ég fer um Víðidal, Elliðaárdal og þar fram Fossvog og upp í Kringlu. Ég er 22 mínútur á leiðinni, en þremur mínútum lengur heim,“ segir Haukur Snær. Frá Berlín til Mínanó Þessa dagana er Haukur Snær með félögum sínum að undirbúa leiðangur í júní nk. en þeir ætla að hjóla frá Berlín um Þýskaland, Tékk- land, Austurríki og um ítölsku Alpana suður til Mílanó „Við verðum tvær vikur á leiðinni en rennum blint í sjóinn. Förum bara eftir kort- um og tölvu. Fyrir tveimur árum fór ég svo með Ágústi bróður mínum um Frakkland, það er þræddum sveitavegi frá borginni Avignon í Suður-Frakklandi og upp til Parísar." Haukur Snær Hauksson Byrja daginn með áhlaupi Æ fleiri stunda á hjólreiðar. Enga tölfræði þarf til þess að kveða upp úr með slíkt, úti á götum og vegum sést vel að hjóla- fólki fjölgar enda er þægilegt að koma sér frá A til B með þeim samgöngumáta. Raunar er kostað kapps um að svo megi verða, enda hafa t.d. á höfuðborgarsvæðinu verið lagðir hjól- reiðastígar þvers og kruss, til dæmis um útivistarsvæði og jafnsíða umferðargötum. Því er hægur vandi að komast til og frá vinnu á hjóli – og að morgni dags er gott veganesti að hafa fyllt lungun af súrefni og komið blóðinu á hreyfingu. Súrefni í lungun og blóðið á hreyfingu Morgunblaðið/Styrmir Kári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.