Morgunblaðið - 17.05.2013, Page 4

Morgunblaðið - 17.05.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 20% afmælisafsláttur af öllum vörum fram á laugardag. Barnafataverslunin Róló Glæsibæ. Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook Við erum 3 ára Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er vitað hvort eða þá hvernig meirihluti þeirrar orku sem til verður þegar Búðarhálsvirkjun tek- ur til starfa verður nýtt. Kaupandi orkunnar, Rio Tinto Alcan, til- kynnti í gær að ákveðið hefði verið að draga úr áformum um aukna framleiðslu álversins í Straumsvík. Rio Tinto hefur á síðustu árum unnið að viðamiklum breytingum á álverinu í Straumsvík. Meðal ann- ars var áformað að auka fram- leiðslu áversins um 20%, úr 190 þúsund tonnum á ári í 230 þúsund tonn. Aukningin átti að koma til í áföngum og að fullu á næsta sumri. Rio Tinto Alcan samdi við Landsvirkjun á árinu 2010 um kaup á raforku vegna stækkunar- innar. Landsvirkjun réðst þá í byggingu Búðarhálsvirkjunar til að útvega orkuna. 75 megawött af 95 MW afli virkjunarinnar áttu að fara til álversins. Virkjunin er nú langt komin. Stefnt er að því að hún verði gangsett undir lok árs- ins, eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Tæknilegir erfiðleikar Framleiðsluaukningin grundvall- aðist á straumhækkun í kerskálum álversins. Hægt var á þessum áformum í fyrrasumar og í gær til- kynnti Rio Tinto Alcan að viðamikil uppfærsla á straumleiðurum í ker- skálum hefði reynst vandkvæðum bundin, bæði tæknilega og af ör- yggisástæðum. Athuganir sem ráðist var í leiddu í ljós að hægt er að ná fram umtalsverðum hluta framleiðslu- aukningarinnar með öðrum hætti og því ekki talið fýsilegt að verja meiri fjármunum í verkefnið. Ál- verið mun að sinni stefna að því að auka framleiðslugetuna um 15 þúsund tonn í stað þeirra 40 þús- und tonna sem áformað var en það svarar til 8% aukningar. Fram kemur í tilkynningu að það muni gerast á lengri tíma. Teknar upp viðræður Samningur Landsvirkjunar og Rio Tinto Alcan um kaup á raf- orku gildir til ársins 2036. Nú virðist ljóst að álverið þurfi innan við 30 MW af afli Búðarhálsvirkj- unar og 45 MW nýtist því fyrir- tækinu ekki. Ólafur Teitur Guðna- son, framkvæmdastjóri samskipta- sviðs Alcan á Íslandi, segir að Landsvirkjun hafi verið tilkynnt um breyttar áætlanir. Rætt verði við Landsvirkjun um hvernig hægt verði að laga orkusamninginn að breyttri orkuþörf fyrirtækisins. Landsvirkjun væntir þess að farsæl niðurstaða finnist fyrir báða aðila. Þær upplýsingar feng- ust hjá Landsvirkjun að það myndi ekki liggja endanlega fyrir fyrr en eftir viðræður fyrirtækj- anna hversu mikil orka losnaði. Fyrr yrði ekki unnt að selja hana annað. Ekki er gert ráð fyrir að breytt áform Rio Tinto hafi áhrif á upp- byggingu Búðarhálsvirkjunar sem verður tilbúin fyrir lok ársins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Breytingar Þegar hafa skapast um 600 ársstörf við fjárfestingarverkefnið í álverinu í Straumsvík. Nýta aðeins hluta afls Búðarhálsvirkjunar  Minni aukning hjá álverinu í Straumsvík en áformað var Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hópur rúmlega fimmtíu bílstjóra flugrútu Kynnisferða hefur sent innanríkisráðherra bréf þar sem skorað er á hann að falla þegar í stað frá hugmyndum um einka- leyfi á farþegaflutningum á milli Flugsstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfuðborgarinnar. Í áskoruninni segir ennfremur að verði ákvörðunin ekki dregin til baka þegar í stað sé atvinnu- öryggi bílstjóranna og afkoma fjölskyldna þeirra í húfi. Vegagerðin og Samband sveit- arfélaga á Suðurnesjum hafa boð- ið út akstursleiðina á milli flug- vallarins og höfuðborgarsvæðisins. SBK í Keflavík átti lægsta tilboðið í útboðinu sem fjöldi fyrirtækja tók þátt í. Samtök atvinnulífsins og Samtök ferðaþjónustunnar hafa meðal annars gagnrýnt útboðið harðlega og Samkeppniseftirlitið segir það raska samkeppni veru- lega. Um 60-80 bílstjórar „Við erum uggandi um okkar hag og störfin okkar. Við sjáum fram á að umsvif fyrirtækisins minnki verulega og að atvinnu- öryggi einhverra séu í hættu,“ segir Sigurður Steinsson, einn þeirra sem skrifa undir áskor- unina til innanríkisráðherra. Um 60-80 bílstjórar vinni hjá fyrir- tækinu og segir Sigurður að stór hluti starfsemi þess sé aksturinn til og frá Keflavíkurflugvelli. Þeg- ar einkaleyfið taki gildi í haust geti Kynnisferðir ekki lengur stundað reglubundinn akstur á leiðinni. Hann segir bílstjórana ekki hafa hugsað sér frekari aðgerðir að svo stöddu. „Við erum vongóðir um að ráðherra hlusti á raddir okkar eins og annarra og þetta mál verði skoðað nánar,“ segir Sig- urður. Skora á ráðherra að falla frá einka- leyfisakstrinum  Bílstjórar Kynnisferða uggandi um hag sinn og störf vegna einkaleyfis Ljósmynd/Kristján Dan Akstur Kynnisferðir hafa rekið Flugrútuna undanfarin ár. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ríkisskattstjóri, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins munu í sumar hrinda úr vör markvissu átaki til að sporna við svartri atvinnustarfsemi, þriðja árið í röð. „Undirbúningur fyrir nýtt átak er í fullum gangi og við höfum undirritað samstarfssamn- ing á milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ríkisskattstjóra um fram- kvæmd eftirlitsins,“ segir Skúli Eggert Þórð- arson ríkisskattstjóri. Í gær var undirbún- ingsfundur vegna verkefnisins. Átakið felst í eftirlitsferðum og heimsókn- um á vinnustaði án þess að gera boð á undan sér, þar sem kannað verður m.a. hvort staðin hafi verið skil á sköttum og öðrum lögbundn- um gjöldum o.s.frv. og verður aðaláherslan lögð á þær atvinnugreinar sem hæst hefur borið í umræðu um að þar þrífist ólögleg starf- semi. Að sögn Skúla Eggerts hvetja aðilar í fjöl- mörgum atvinnugreinum til aukins eftirlits, þeirra á meðal eru aðilar í ferðaþjónustu, byggingargreinum og Bílgreinasambandið, sem kalla eftir eftirliti svo bæta megi ástandið og uppræta ólöglega starfsemi þar sem hún finnst. Spurður hvort ástand þessara mála sé að versna segir ríkisskattstjóri að almennt séu virðisaukaskattsskil heldur verri samhliða auknu peningamagni í umferð. „Þær athug- anir sem við gerðum fyrir tveimur árum og á síðasta ári benda til þess að undanskot séu heldur meiri en þau voru,“ segir hann. Tíu milljarðar skila sér ekki á ári Átakið verður kynnt sérstaklega þegar nær dregur, að sögn Skúla Eggerts. Í sambæri- legu verkefni sumarið 2011 var áætlað að töp- uð gjöld vegna svartrar vinnu einnar hefðu þá numið yfir tíu milljörðum króna á ári. Átak gegn svartri vinnu  RSK, ASÍ og SA taka á ný höndum saman um baráttu gegn ólöglegri atvinnustarfsemi  Ríkisskattstjóri segir virðisaukaskattsskil hafa versnað Breytt umfang straumhækkunar kerskála álversins í Straumsvík hefur ekki áhrif á aðra þætti fjárfestingaverkefnisins. 150 menn vinna við breytingarnar. Nú þegar hefur 50 milljörðum verið varið í verkefnið og er áætlað að kostnaðurinn verði vart undir 57 milljörðum, þótt hætt hafi verið við straumleiðarabreytingar. Fyrsta þættinum er þegar lokið en hann snýr að auknu rekstraröryggi. Gerðar voru viðamiklar breytingar á aðveitustöð til að tryggja að bilun í einum spenni slái ekki út rafmagn á heilum kerskála. Unnið hefur verið að breytingum á afurðum álversins. Byrjað var að framleiða stangir í fyrrasumar og að loknum breytingum næsta sumar verður framleiðslu á börrum hætt. Samhliða undirbúningi framleiðsluaukningar var unnið að því að auka afkastagetu lofthreinsibúnaðar. Því verki verður lokið. Áfram unnið að öðrum þáttum 150 MENN VINNA VIÐ BREYTINGAR Í STRAUMSVÍK Ríkisskattstjóri hóf í gær að senda þeim fram- teljendum, sem ekki hafa skilað skattframtali, tilkynningu um að allir frestir séu liðnir en framtal hafi ekki borist. Eru þeir hvattir til að standa skil á framtölum og minntir á að þeir geti búist við að þurfa að sæta áætlun opin- berra gjalda berist framtal ekki. Að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra sendir embættið út um það bil 10.000 tölvu- pósta til einstaklinga sem ekki hafa skilað framtali og auk þess eru nú í fyrsta skipti send bréf til 2.238 bótaþega Tryggingastofn- unar ríkisins sem ekki hafa talið fram. Skúli Eggert segir að aldrei hafi verið jafngóð skil á skattframtölum og í ár. 10.000 tölvupóstar og 2.238 bréf REKIÐ Á EFTIR SKATTFRAMTÖLUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.