Morgunblaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013
Nú, þegar fréttir þykja bendatil að stjórnarmyndunar-
viðræður séu á lokaspretti, er farið
að horfa á persónur og leikendur.
Hér er dæmi:
Ég hef miklaráhyggjur af
því ef Vigdís
Hauksdóttir verður
innanríkisráð-
herra,“ segir Katrín
Oddsdóttir héraðs-
dómslögmaður.
„Hún hefur í máli
sínu lýst ákveðinni
afstöðu til útlend-
inga sem ég held að
sé mjög óheppileg
hjá þeim sem fer
með æðsta vald í
málefnum útlend-
inga.
Það er ekki gott að hafa þarnaeinhvern sem talar í öfgum.“
Katrín hefur í lögmannsstörfumsínum tekið að sér mál fjölda
hælisleitenda. „Málefni hælisleit-
enda virðast vera á frekar við-
kvæmum stað. Það liggur fyrir
frumvarp um breytingar á lögum
um málaflokkinn, en maður veit
ekkert hver afstaða nýs þings er til
þess,“ segir Katrín.
Það er nú þetta með öfgarnar.
Sumum finnst allt öfgar semekki fellur í þeirra eigið kram.
Vigdís Hauksdóttir er öflugurþingmaður.
Ríkisstjórnin þoldi hana ekki.
Sakar nokkur prúðmennin Jó-hönnu og Steingrím J. um öfg-
ar?
Vigdís
Hauksdóttir
Hver talar í öfgum?
STAKSTEINAR
Katrín
Oddsdóttir
Veður víða um heim 16.5., kl. 18.00
Reykjavík 10 heiðskírt
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 4 skýjað
Nuuk 0 snjókoma
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 11 súld
Brussel 8 súld
Dublin 8 léttskýjað
Glasgow 12 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 10 skúrir
Hamborg 21 heiðskírt
Berlín 25 heiðskírt
Vín 22 skýjað
Moskva 26 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 22 súld
Winnipeg 17 alskýjað
Montreal 17 skýjað
New York 23 léttskýjað
Chicago 24 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:05 22:44
ÍSAFJÖRÐUR 3:43 23:16
SIGLUFJÖRÐUR 3:25 22:59
DJÚPIVOGUR 3:28 22:20
Hágæðaryksugur
með sjálfvirkum
hristibúnaði fyrir
sigti.
Fáanlegar fyrir:
Ármúla 17. Sími 533-1234. www.isol.is
IÐNAÐARRYKSUGUR
Efling stéttarfélag og þau stétt-
arfélög sem staðið hafa að Flóa-
bandalaginu við gerð kjarasamninga
eru að hefja vinnu við undirbúning
kjarasamninga af
fullum þunga, að
sögn Sigurðar
Bessasonar, for-
manns Eflingar.
Stjórn Eflingar
fundaði í gær þar
sem undirbún-
ingur fyrir kjara-
viðræðurnar sem
framundan eru
var m.a. til um-
ræðu. Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði renna út í lok nóv-
ember.
Að sögn hans er einnig til skoð-
unar innan launþegahreyfingarinnar
að teknir verði upp breyttir starfs-
hættir við gerð kjarasamninga. „Það
er eitt af því sem skoða þarf á þessu
vori í aðdraganda að þeirri vinnu
sem fram fer í sumar og haust. Ég
held að það sé vilji til þess að menn
reyni að ljúka allri málefnavinnu
tímanlega svo liggi nokkuð skýrt
fyrir í haust hvert verkefnið verður.“
Undirbúa
sig af full-
um þunga
Sigurður Bessason
Kjaraviðræðurnar
komnar á dagskrá
Ákveðið hefur verið að ráðast í
stækkun byggingarinnar við Sætún 1
þar sem Efling stéttarfélag, ASÍ,
Gildi lífeyrissjóður o.fl. eru til húsa.
Aðalfundur Eflingar samþykkti ný-
verið að heimila viðbyggingu við hús-
ið fyrir félagið. Hefur verið heimilað
að byggja fjögurra hæða viðbyggingu
við norðurenda suðurhússins og eina
hæð ofan á norðurhúsið og er um að
ræða 1.000 fermetra aukningu á hús-
næði Eflingar. ASÍ og Gildi sem eru
eignaraðilar hússins ásamt Eflingu
standa einnig að stækkuninni en
heildarkostnaður við framkvæmd-
irnar er áætlaður um 562 milljónir kr.
Er hlutur Eflingar um 352 milljónir.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar, segir að starfsemi félagsins
hafi aukist verulega á umliðnum ár-
um. 5 stéttarfélög sameinuðust í Efl-
ingu 1998-2000 og eitt félag bættist
við 2008. Á þessum tíma hefur orðið
mikil breyting á starfsemi félagsins.
Verkefnin hafa líka aukist vegna þess
mikla atvinnuleysis sem hefur verið
til staðar frá 2008 og frá 2009 hefur
átt sér stað mikil uppbygging hjá
VIRK Starfsendurhæfingu, sem
einnig er til húsa í Sætúni 1. að sögn
hans. Að mati forsvarsmanna Efl-
ingar er viðbygging Sætúns 1 mjög
hagkvæm á þessum tíma og heppilegt
að skapa atvinnu við byggingar-
starfsemi sem hefur verið í mikilli
lægð. Hefja á framkvæmdir í sumar.
omfr@mbl.is
Stækka hús stéttarfélaga við Sætún 1
Fjögurra hæða viðbygging reist
Heildarkostnaður 562 milljónir
Morgunblaðið/Eggert
Sætún 1 Höfuðstöðvar ASÍ og Efl-
ingar eru þar til húsa.