Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Á morgun, laug- ardaginn 18. maí, býður um- hverfisnefnd Sel- tjarnarness til fuglaskoðunar um Suðurnes Sel- tjarnarness. Lagt verður af stað frá fugla- skilti við Bakkatjörn klukkan 13 og gengið um Bakkagrandann og Bak- katjörn og hring um Suðurnes. Leiðsögumaður verður Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglavernd- ar. Áhugafólk er hvatt til að mæta og skoða fuglalíf á Seltjarnarnesi í byrjun sumars. Þá er fólk hvatt til að hafa með sér kíki. Fuglaskoðunarferð um Seltjarnarnes Tæknidagur HR verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík í dag, föstudag, frá kl. 13-16. Þar er sýnd- ur afrakstur verklegra námskeiða og rannsókna innan tækni- og verk- fræðideildar HR. Meðal þeirra verkefna sem sýnd verða eru rafbílar, hvalahlust- unarbaujur, talandi róbotar, burð- arvirkjahönnun og umhverfisvæn lýsing. Frá kl. 15- 16 verða veittar viðurkenningar fyrir bestu loka- verkefnin. Tæknidagur HR er öll- um opinn. Tæknidagur HR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Eikarbátarnir Húni II frá Akureyri og Knörrinn frá Húsavík eru vænt- anlegir til Reykjavíkur í dag á leið sinni í kringum landið. Bátarnir verða til sýnis við Víkina, Sjóminja- safn frá kl. 13.00 – 17.00 á morgun, laugardag. Einnig verður boðið í siglingu klukkan 10.00 á morgun. „Siglingin gengur mjög vel, það er sjólaust og fínt veður núna,“ sagði Þorsteinn Pétursson, sem var um borð í Húna II á stími frá Höfn til Vestmannaeyja í gær. Veðrið var þá gott en hafði verið leiðinlegt frá Akureyri á Höfn. Lagt var frá Höfn klukkan 22.00 í fyrrakvöld og reikn- uðu þeir með að koma til Vest- mannaeyja síðdegis í gær. Leiðin er um 150 sjómílur (278 km). Bátarnir sigla á 7-8 sjómílna hraða (13-15 km) á klukkustund. „Bátarnir fara svo vel með okkur. Við erum átján um borð í Húna og fjórir um borð í Knerrinum,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði ánægjulegt að finna mikinn áhuga á bátunum. Á Höfn komu um 100 skólabörn að skoða bátana og um 250 börn á Nes- kaupstað og Eskifirði. Skipverjar funduðu í fyrradag með áhuga- mannahópi á Höfn sem hefur hug á að vernda þar gamlan bát. „Íslendingar hafa mikla vitund fyrir því að varðveita gömul hús og ég fagna því. Á sama tíma var engin vitund fyrir því að varðveita gömlu bátana. Húni II kostaði sitt í upp- hafi en hann aflaði 32 þúsund tonna. Framreiknað gæti það verið 9-12 milljarðar! Hann er búinn að skila andvirði sínu margsinnis.“ Margir viðkomustaðir Tilefni hringsiglingar bátanna er að á þessu ári er liðin hálf öld frá því að þeim var hleypt af stokk- unum á Akureyri, árið 1963. Tryggvi Gunnarsson, skipa- smíðameistari, teiknaði báða bátana. Með siglingunni er vakin at- hygli á strandmenningu og mikil- vægi svona báta í Íslandssögunni. Knörrinn er 15,15 metra langur og mælist 19,27 lesta skip. Húni II er 27,48 metra langur og mælist vera 117,98 lestir. Norðursigling, sem á Knörrinn, og Hollvinir Húna skipulögðu siglinguna. Hringsiglingin hófst á Akureyri og Húsavík 11. maí sl. og hafa bát- arnir haft viðkomu á Vopnafirði, Neskaupstað, Eskifirði, Breið- dalsvík, Höfn í Hornafirði og í Vest- mannaeyjum. Frá Reykjavík verður siglt vestur á Bíldudal þar sem bát- arnir verða á hvítasunnudag, daginn eftir á Þingeyri og Ísafirði. Þann 20. maí verður siglt á Ísafjörð, daginn eftir á Skagaströnd og 22. maí verð- ur komið við á Siglufirði og áætlað er að ljúka ferðinni um miðnætti þann dag á Akureyri, heimahöfn Húna II. Sigla hringinn í kringum landið á gömlum bátum  Tveir 50 ára bátar, Húni II og Knörrinn, verða til sýnis í Reykjavík á morgun Ljósmynd/Runólfur Hauksson Húni II Um borð eru 18 manns í siglingunni. Myndinar voru teknar þegar bátarnir komu til Hafnar í Hornafirði í fyrradag. Húni II var gerður út frá Hornafirði í fjölda ára og bar einnig nöfnin Haukafell og Sigurður Lárusson. Knörrinn Fjórir eru í áhöfn bátsins. Hann var fiskibátur og bar þúsundir tonna af fiski að landi en er nú farþegaskip og notaður til hvalaskoðunar. Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir karlmanni vegna ítrekaðra kynferð- isbrota gegn stúlku og dreng. Hér- aðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn í sjö ára fangelsi en Hæsti- réttur lengdi dóminn í átta ár. Lengri dómur mun ekki hafa verið kveðinn upp í kynferðisbrotamáli gegn börnum hér á landi. Maðurinn beitti stúlkuna fyrst kynferðisofbeldi þegar hún var tólf ára gömul en drengurinn var sjö ára þegar ofbeldið gegn honum hófst. Að því er segir í dómnum hafði maður- inn samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna á meðan hann hélt henni nauðugri á heimili sínu frá því hún var tólf ára til fimmtán ára aldurs. Notfærði hann sér yfirburðastöðu sína yfir henni vegna aldurs hennar og reynslu og fékk hana til kynmak- anna með peningagreiðslum. Brotin gegn drengnum voru fram- in á heimili mannsins, í kjallara í sama húsi, í bifreiðum sem hann hafði til umráða og á víðavangi. Lét hann drenginn með ólögmætri nauð- ung ítrekað hafa við sig munnmök er drengurinn var sjö til tíu ára gamall. Hann braut aftur gegn honum frá því drengurinn var 14 ára til 18 ára aldurs og lét drenginn ítrekað og stundum oft í viku hafa við sig munn- mök og hafði einnig við hann enda- þarmsmök. Maðurinn notfærði sér yfirburðastöðu sína gagnvart drengnum vegna aldurs og reynslu. Þá fékk hann drenginn til kynmaka með peningagreiðslum, gjöfum og áfengi er hann komst á unglingsald- ur. Til viðbótar við fangelsisrefs- inguna var manninum gert að greiða börnunum tveimur 5,6 milljónir króna í skaðabætur. Þyngri dómur ekki fallið  Átta ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hæstiréttur Maðurinn þarf að greiða milljónir í skaðabætur. Á vefsíðunni Heilahreysti er fjallað um starf- semi heilans. Meðal umfjöll- unarefna eru áhrif líkams- ræktar á vits- munalega færni eldra fólks, mik- ilvægi góðs næt- ursvefns fyrir heilastarfsemina og samskynjun, en heili sumra er þannig gerður að áreiti kallar fram viðbrögð hjá fleiri en einu skyn- færi. Höfundar eru María K. Jóns- dóttir, doktor í klínískri sálfræði, og Brynhildur Jónsdóttir, MA-nemi í sálfræði. Fróðleikur um heil- ann á mannamáli Heilinn Marg- slungið, heillandi og flókið fyrirbæri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.