Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 19
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Nýtt skip kom í fyrsta skipti til heimahafnar er Skálaberg RE 7 lagðist við Miðbakkann í Reykjavík undir hádegi í gær. Brim hf. festi kaup á skipinu í fyrrahaust og var kaupverðið um 3,5 milljarðar króna. Jóhann Gunnarsson, skip- stjóri, sigldi skipinu heim. Guðmundur Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Brims, segist gera sér vonir um að hægt verði að koma skipinu í rekstur sem allra fyrst. Það byggist þó á því að stjórnvöld breyti viðhorfum sínum til sjávarútvegsins. Þau mál hljóti að skýrast á næstu dögum. Skálabergið var smíðað í Noregi 2003 fyrir útgerð í Færeyjum og gert út þaðan til ársins 2010 er það var selt til Argentínu. Þaðan keypti Brim hf. skipið í fyrrahaust og var Skálabergið í Las Palmas á Kanaríeyjum í vetur þar sem það fór í slipp og var málað í litum fé- lagsins. Skipið er mjög tæknivætt og trú- lega yngsti frystitogarinn í flot- anum. Aðbúnaður áhafnar er góður og skipið er sérstaklega byggt fyr- ir erfiðar aðstæður í Norður- Atlantshafi. Skipið er búið fjórum togvindum og er með 10 þúsund hestafla aðalvél, það er 3.435 tonn að stærð, 16 metra breitt og 74,50 m. langt. Frystigeta á sólarhring er um 100 tonn. Brim gerir út frystitogarana Brimnes RE 27, sem var smíðað 2002, Guðmund í Nesi RE 13, smíðaðan árið 2000, og Kleifaberg RE 7, sem var smíðað árið 1974, og dragnótabátinn Sólborgu RE 270, sem var smíðaður 2001.  Vonar að hægt verði að koma skipinu í rekstur sem allra fyrst Morgunblaðið/Golli Í heimahöfn Skálaberg RE 7 siglir fánum prýtt til hafnar í gærmorgun. Auk nýja frystitogarans á Brim hf. þrjá aðra skuttogara og dragnótarbát. Útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson við nýja skipið. Fullkominn frystitogari í flotann FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Ertu að gera upp gamalt hús? Laugavegi 29 - sími 552 4320 - www.brynja.is - brynja@brynja.is Byggjum á langri hefð og eigum mikið úrval af alls kyns járnvöru. Hurðahúnar, glugga- og hurðalamir, stormjárn, læsingar, útiljós o.fl. Sérpöntunarþjónusta á hurðarhúnum, raflagnaefni o.s.frv. Líttu við – sjón er sögu ríkari Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16 Sótt var um leyfi til makrílveiða í flokknum án frystingar fyrir 84 skip, en til skipta milli þeirra eru 6.703 tonn. Af þeim eru 64 skip 200 brúttótonn eða stærri og koma 98,5 tonn í hlut hvers þeirra. Undir þess- ari stærð eru 20 skip og koma tæp- lega 20 tonn í hlut hvers. Sótt var um leyfi til makrílveiða með línu og handfærum fyrir 239 skip. Af þessum fjölda fá 118 leyfi þegar leyfisgjald hefur verið greitt. Af umsækjendum eru 98 skip ekki með haffæri sem gildir 1. júlí, en þann dag má hefja makrílveiðar með línu og handfærum. Ekki verða gefin út leyfi til þeirra fyrr en það skilyrði er uppfyllt. Þá eru 23 af þeim skipum sem sóttu um nú þegar með strandveiðileyfi og því er ekki unnt að gefa út leyfi til þeirra fyrr en 1. september, segir á vef Fiskistofu. Skip sem sækja um á grundvelli veiðireynslu eða eru með vinnslu um borð hafa áfram tækifæri til að sækja um veiðileyfi. Mikill áhugi á mak- rílveiðum í sumar Að tillögu Hafrannsóknastofnunar- innar hefur atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytið heimilað rækjuveiðar í sunnanverðum Breiðafirði, vestan Krossnesvita fram til 1. júlí 2013. Veiðarnar má ekki stunda með stærri skipum en 105 brúttólestir og skal varpa skip- anna búin seiðaskilju. Fari rækjuafli á svæðinu yfir þús- und tonn 2013 ákveður ráðherra hvort veiðar verði bannaðar á svæðinu. Í reglugerð kemur fram að afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafsrækjuafla. Rækjuveiðar í sunn- anverðum Breiðafirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.