Morgunblaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Grænland þarf á samstarfsþjóðum að halda vegna þeirrar gríðarlegu efnahagsuppbyggingar sem er framundan í landinu á næstum ár- um og áratugum – og þar væru Ís- lendingar vænlegur kostur. Fjár- mögnun þeirra fjölmörgu verkefna sem eru í pípunum á Grænlandi er metin á yfir 40 milljarða danskra króna, jafnvirði um 850 milljarða ís- lenskra króna. Þetta kom fram í máli Svend Hardenberg, stofnanda Greenland Invest og sveitarstjóra í Qaasuitsup á Grænlandi, á fundi sem VÍB, eignastýringarþjónustu Íslands- banka, stóð fyrir í gærmorgun. Á meðal fyrirhugaðra framkvæmda í Grænlandi eru verkefni tengd hvers kyns námuvinnslu, vatnsút- flutningi, olíu- og gasvinnslu, upp- byggingu innviða – flugvöllum, skipahöfnum og vegum – og vatns- aflavirkjana. Stærsta einstaka fjár- festingin um þessar mundir er ál- ver sem Alcoa hyggst reisa og kostar yfir 400 milljarða íslenskra króna. Hann sagði að stærsta áskorunin sem Grænlendingar stæðu hins vegar frammi fyrir væri skortur á mannafli til að fást við allar þessar framkvæmdir. Því væri nauðsyn- legt að vinnuafl í Grænlandi myndi smám saman að færa sig úr óhag- kvæmari atvinnugreinum þar í landi, til að mynda fiskvinnslu, yfir í störf sem tengjast þeim miklu framkvæmdum sem eru framund- an. Gríðarleg tækifæri bíða Íslands Heiðar Már Guðjónsson, hag- fræðingur og fjárfestir, sagði í er- indi sínu að gríðarleg tækifæri biðu Íslendinga á norðurheimskauts- svæðinu. Nefndi hann meðal annars í því samhengi þá fyrirsjáanlegu aukningu sem yrði í skipa- og flug- samgöngum vegna aukinna efna- hagsumsvifa í Grænlandi. Heiðar telur þó ekki sennilegt – né endi- lega eftirsóknarvert – að Ísland verði nokkurn tíma umskipunar- höfn ef siglingaleiðin um norður- slóðir opnast fyrir skipaflutninga. Til þess að svo gæti orðið þyrfti að- komu alþjóðlegs skipaflutninga- félags sem tæki það að sér að reisa slíka umskipunarhöfn og byggja upp flutninganet á Íslandi. Að mati Heiðars Más njóta Múrmansk í Rússlandi og Kirkenes í Noregi for- skots fram yfir Ísland í þessum efn- um. Því ætti Ísland fremur að ein- blína á það samkeppnisforskot sem Íslendingar hafa fyrir minni skip sem koma að þjónustu og uppbygg- ingu ýmiss konar innviða á Græn- landi. Þrátt fyrir að Heiðar Már sé þeirra skoðunar að Ísland sé í sterkri stöðu til að taka þátt upp- byggingu á Grænlandi á komandi árum – vegna þekkingar á sam- bærilegum fjárfestingaverkefnum og landfræðilegrar legu – þá sé hætta á því að fjármagnshöftin muni gera Íslendingum erfitt fyrir. Hann telur að ætli Íslendingar sér að taka þátt í þessari uppbyggingu sé nauðsynlegt að við komum einn- ig að fjármögnun verkefna til lengri tíma litið. Þannig sýndum við að okkur væri alvara með að vera þátttakendur í þeim fjölmörgu verkefnum sem Grænlendingar muni ráðast í á komandi árum og áratugum. Það sem aftri því að slíkt geti hins vegar orðið að veruleika um þessar mundir séu höftin því þeir sem vilji koma að fjárfestingu á Grænlandi þurfi vitaskuld að reiða fram erlendan gjaldeyri. Heiðar Már vakti athygli á því í erindi sínu að þau átta ríki sem eiga sæti í Norðurskautsráðinu séu öll með sinn eigin gjaldmiðil. Að hans mati muni þetta breytast í ná- inni framtíð samhliða auknu sam- starfi þessara þjóða á norðurslóðum og að endingu muni „sterkustu“ gjaldmiðlarnir aðeins lifa af. Sjálfur telur Heiðar Már heppilegast ef all- ar þjóðirnar myndu sammælast um að taka upp kanadíska dollarann. Búum yfir þekkingu og reynslu Fram kom í erindi Hauks Ósk- arssonar, framkvæmdastjóra hjá Mannviti, að íslensk fyrirtæki væru heppilegir samstarfsaðilar að verk- efnum á Grænlandi vegna reynslu þeirra við að vinna við sambæri- legar aðstæður samfara uppbygg- ingu orkufreks iðnaðar. Hann sér fram á möguleika á margvíslegu samstarfi milli þjóðanna – Ísland hafi til að mynda þann mannauð og þekkingu sem Grænlendinga skorti til að nýta ýmsar náttúruauðlindir. Haukur undirstrikaði aftur á móti að mikilvægt væri að samstarfið yrði byggt upp með þeim hætti að báðar þjóðir högnuðust sem mest á því. Ísland vænlegur samstarfsaðili Morgunblaðið/Rósa Braga Tækifæri Á fundi VÍB í Hörpu í gærmorgun ræddu fundarmenn um þau miklu tækifæri sem eru á norðurslóðum.  850 milljarða fjárfestingar í pípunum á Grænlandi  Stofnandi Greenland Invest segir Grænlendinga þurfa á bandamönnum að halda  Heiðar Már Guðjónsson telur höftin geta hamlað aðkomu Íslands 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Hagar Hagnaðurinn jókst um 26% í fyrra. ● Hagnaður Haga á síðasta rekstrarári félagsins sem lauk í lok febrúar síðast- liðins nam tæplega 3 milljörðum kr. eft- ir skatta. Til samanburðar var hagn- aðurinn rúmlega 2,3 milljarðar kr. árið á undan og eykst því um rúm 26% milli ára. Þetta kemur fram í uppgjöri fyrir árið sem sent var til Kauphallarinnar í gær. Þar kemur fram að vörusala rekstrar- ársins nam tæplega 71,8 milljörðum króna, samanborið við 68,5 milljarða króna árið áður. Söluaukning félagsins er því 4,8% milli ára. Hagnaður Haga tæpir 3 milljarðar króna í fyrra ● Í ljósi gjalddagans í dag á ríkis- bréfaflokknum RIKB13 hefði mátt búast við meiri þátttöku en raunin varð í út- boði Lánamála ríkisins í fyrradag á 2ja ára óverðtryggða flokknum RIKB15, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka í gær. Einungis 9 gild tilboð bárust í flokk- inn að fjárhæð 5.825 m.kr., sem var öll- um tekið á ávöxtunarkröfunni 4,03%. Kjör ríkissjóðs bötnuðu um 58 punkta. Aðeins 9 tilboð bárust ● Árið 2012 var 21% framkvæmda- stjóra og 24% stjórnarformanna starfandi fyrirtækja sem skráð voru í hlutafélagaskrá kvenkyns. Hlutfall kvenna er hæst í minnstu fyrirtækj- unum, samkvæmt frétt á vef Hag- stofu Íslands. Þó hefur kvenkyns stjórnarformönnum fjölgað hlutfalls- lega mest á síðustu árum í fyrir- tækjum með yfir 250 starfsmenn en hlutfall kvenna í þeim hópi fyrirtækja óx úr 9% í 15% milli 2011 og 2012 og hefur tvöfaldast frá árinu 2010. Hlut- fall kvenna er hæst í yngsta aldurs- hópi framkvæmdastjóra og stjórnar- formanna. 21% stjóranna konur STUTTAR FRÉTTIR                                         !"# $% " &'( )* '$* +,,-./ +.0-1 +,2-34 ,+-+1, ,2-1,, +.-45 +,0-.. +-+10 +.4-23 +/5-15 +,4-+3 +.5-4/ +,2-5. ,+-,/3 ,2-1.3 +.-3,3 +,5-,4 +-+11/ +.4-/1 +/.-3+ ,+0-21.4 +,4-34 +.5-. +,+-+4 ,+-4+0 ,+-230 +.-35. +,5-/. +-,24 +.3-+3 +/.-./ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Spurður að því á fundinum hvort hann teldi að Danmörk væri milli- liður í samskiptum Grænlands við erlend ríki og hvort sú ráðstöfun væri til þess fallin að hamla upp- byggingu sagði Svend Hardenberg svo vera. Hann bætti því enn- fremur við að svo virtist sem danskir ráðamenn teldu sig enn vera í stjórnunarsætinu þegar kæmi að efnahagsuppbyggingu og nýtingu auðlinda á Grænlandi. Hann sagði að Grænlendingar ættu mjög erfitt með að sætta sig við það að Danir teldu sig geta ráðskast með þróun mála þar í landi. „Við munum þurfa að skil- greina okkar betur á leið til sjálf- stæðis og finna okkur banda- menn,“ sagði Svend. Hann telur að í þeim efnum muni Grænlend- ingar einkum horfa til Íslands, Noregs og Kan- ada. Jafnframt sagðist hann upplifa mikinn áhuga frá Kína og Suður-Kóreu en þau ríki hafa nú þegar ráðist í fjárfestingar á Grænlandi á undan- förnum árum. Heiðar Már Guðjónsson sá einn- ig ástæðu til þess að benda á að tengsl Danmerkur við Grænland væru eina ástæða þess að Anders Fogh Rasmussen, fyrrverandi for- sætisráðherra Danmerkur, hefði verið gerður að yfirmanni Atlants- hafsbandalagsins (NATO). Segir Dani enn afskiptasama GRÆNLENDINGAR ÞURFA AÐ LEITA AÐ BANDAMÖNNUM Svend Hardenberg Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk. Sími: 580-8900 Funahöfða 1 110 Reykjavík Sími: 567-4840 ERTU MEÐKAUPANDA?Skjalafrágangur frá kr. 15.080 Seljum allskonar bíla, langar þig í einn? Skráðu þinn frítt! Okkur finnst gaman að selja bíla, viltu selja þinn? SÖLULAUN frá kr. 39.9 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.