Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013
Þrettán nemendur útskrifuðust
sem flutningatæknar úr Flutninga-
skóla Samskipa í fyrradag og var
nemendahópurinn fjölþjóðlegri en
nokkru sinni fyrr því auk Íslend-
inga stunduðu nú nám við skólann
þrír Pólverjar, Marokkóbúi og Fil-
ippseyingur, samkvæmt því sem
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Samskipum.
Alls hafa 50 nemendur útskrifast
frá skólanum frá því hann var sett-
ur á laggirnar haustið 2008. Boðið
er upp á tvíþætt fagnám og starfs-
nám í flutningum í skólanum sem
starfræktur er í samstarfi við Mími
símenntun.
„Stefna Samskipa er að stuðla
stöðugt að auknum lærdómi starfs-
fólks. Fræðsla skal vera hluti af
framtíðaráætlun hvers starfs-
manns á þann hátt að viðkomandi
hafi möguleika á að auka við þekk-
ingu sína og færni í núverandi
starfi, auk þess að afla sér þekk-
ingar á nýjum sviðum,“ sagði Auð-
ur Þórhallsdóttir, mannauðs-
ráðgjafi Samskipa, m.a. við
skólaslitin, að viðstöddum fram-
kvæmdastjóra Samtaka verslunar
og þjónustu, forstjóra Samskipa,
nemendum og gestum.
Flutningaskóli Samskipa er fyrir
starfsmenn sem eiga stutta form-
lega skólagöngu að baki og starfa í
vöruhúsum, á gámavelli eða sem
bílstjórar. Nokkur starfsþróun hef-
ur átt sér stað hjá því starfsfólki
Samskipa sem þegar hefur útskrif-
ast úr skólanum og sagði Auður að
um helmingur þeirra tækist nú á
við ný og ábyrgðarmeiri störf.
„Kennslan í Flutningaskólanum
byggist á viðurkenndri námskrá
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
og er námið viðurkennt af mennta-
málaráðuneytinu til allt að 23 ein-
inga í framhaldsskóla. Námið tekur
tvær annir og er tæplega 400
kennslustundir. Kennt er í vinnu-
tíma starfsmanna tvisvar til þrisv-
ar í viku,“ segir í tilkynningu.
Ljósmynd/Samskip/Jón Svavarsson
Flutningatæknar Tólf af þrettán nemendum Flutningaskóla Samskipa.
Flutningatækn-
ar útskrifaðir
Samskip rækir flutningaskóla
Heildarafli íslenskra skipa í apríl-
mánuði, metinn á föstu verði, var
19,9% meiri en í apríl 2012. Það sem
af er árinu hefur aflinn dregist sam-
an um 3,5% miðað við sama tímabil
2012, sé hann metinn á föstu verði,
samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.
Aflinn alls 110.657 tonn
Aflinn nam alls 110.657 tonnum í
apríl 2013 samanborið við 80.266
tonn í apríl 2012.
Botnfiskafli jókst um tæp 8.100
tonn frá apríl 2012 og nam rúmum 44
þúsund tonnum. Þar af var þorskafl-
inn rúm 21.000 tonn, sem er aukning
um rúm 4.900 tonn frá fyrra ári. Ýsu-
aflinn nam tæpum 4.300 tonnum sem
er 428 tonnum minni afli en í apríl
2012.
Karfaaflinn jókst um rúm 1.200
tonn samanborið við apríl 2012 og
nam rúmum 6.400 tonnum. Rúm
7.200 tonn veiddust af ufsa sem er
rúmlega 2.900 tonna aukning frá
apríl 2012.
Uppsjávartegundir 59.500 tonn
Afli uppsjávartegunda nam rúm-
um 59.500 tonnum, sem er rúmlega
21.700 tonnum meiri afli en í apríl
2012. Aukninguna má rekja til aukn-
ingar í kolmunnaafla en nær engar
aðrar uppsjávartegundir voru veidd-
ar í mánuðinum, líkt og í apríl 2012.
Flatfiskaflinn var tæp 2.100 tonn í
apríl 2013 og dróst saman um 198
tonn frá fyrra ári. Skel- og krabba-
dýraafli nam rúmum 2.300 tonnum.
Fiskafli jókst um 19,9% í apríl
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Við bjóðum ölbreytt úrval innlánsreikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
M
ið
að
vi
ð
út
ge
fn
a
va
xt
at
ö
flu
M
P
ba
nk
a
1
1
.a
pr
íl
2
0
1
3
.
Fastir vextir á innlánsreikningum
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Óverðtryggðir2,5 6,3
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtumVerðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
NÝJUNG Í
LANDSLAGINU