Morgunblaðið - 17.05.2013, Page 24

Morgunblaðið - 17.05.2013, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Þýskir femínistar mótmæltu harðlega í gær opnun svokallaðs Barbie- draumahúss við Alexanderplatz í mið- borg Berlínar, höfuðborgar Þýska- lands. Um er að ræða 2.500 fermetra eftirlíkingu af Barbie-dúkkuhúsi þar sem ferðamenn geta meðal annars skoðað eldhús og fataskáp Barbie- dúkkunnar, farið á módel- og snyrti- vörunámskeið, skoða yfir 350 mismun- andi tegundir af Barbie-dúkkum ásamt því að láta taka myndir af sér til minn- ingar um ferðina. Hið skærbleika dúkkuhús hefur ver- ið harðlega gagnrýnt af ungliða- samtökum Vinstriflokksins í Þýska- landi en þau stóðu fyrir mótmælum fyrir utan húsið í dag á sama tíma og opnun þess fór fram. Gagnrýnendur hússins segja það ýta undir staðal- ímyndir kynjanna, karlrembu og ver- aldarhyggju. Á meðal þeirra sem tóku þátt í mótmælunum voru aðgerðar- sinnar úr hópi úkraínsku femínista- samtakana FEMEN. Við mótmælin beruðu aðgerðarsinnarnir brjóst sín og brenndu Barbie-dúkkur sem þær höfðu bundið fastar við trékrossa. skulih@mbl.is Krossfestu Barbie Mótmæltu opnun Barbie-draumahússins í Berlín AFP Skúli Hansen skulih@mbl.is Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur vikið Steven Miller, ríkis- skattstjóra Bandaríkjanna, úr starfi í kjölfar hneykslis vegna rannsókna skrifstofu bandarísku skattstofunn- ar, IRS, í Cincinatti-borg í Ohio- ríki, á hægrisinnuðum samtökum, tengdum hinni svokölluðu „Teboðs- hreyfingu“. Samtökin áttu það öll sameiginlegt að hafa sótt um und- anþágur frá skattareglum. Reiður vegna málsins Forsetinn tilkynnti fjölmiðlum þessa ákvörðun sína á blaðamanna- fundi í Hvíta húsinu í fyrrakvöld. Á fundinum fór hann hörðum orðum um vinnubrögð starfsmanna skatt- stofunnar og sagði þau vera óafsak- anleg. „Bandaríkjamenn hafa fullan rétt til þess að vera reiðir yfir þessu máli. Ég er reiður yfir því. Ég mun ekki líða svona vinnubrögð hjá nokkurri stofnun, sérstaklega ekki hjá bandarísku skattstofunni,“ sagði Obama við blaðamenn sem mættir voru í Hvíta húsið í fyrra- kvöld. Þá benti Obama á að Jack Lew, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefði krafist þess að Miller yrði vik- ið úr starfi í kjölfar þess að rann- sókn á vegum fjármálaráðuneytis- ins leiddi í ljós að skattstofan hafði hvorki haft hlutleysi né meðalhóf að leiðarljósi í fyrrnefndum rannsókn- um sínum. Jafnframt tjáði Obama fjölmiðlamönnum á fundinum að slegnir yrðu varnaglar við endur- tekinni valdamisnotkun af þessu tagi. Rak skattstjórann í kjölfar hneykslis AFP Bandaríkjaforseti Barack Obama á blaðamannafundinum í fyrrakvöld.  Fjármálaráð- herrann krafðist frávikningarinnar Norsk hjón voru í gær dæmd til sautján ára fang- elsisvistar fyrir að hafa ítrekað beitt þrjá syni sína hrottalegu kynferðisofbeldi. Drengirnir báru vitni fyrir dómi og sögðu foreldrana, sem eru 39 ára og 40 ára, hafa handjárnað þá og bundið þá með reipum, barið þá, sparkað í þá og hótað þeim auk þess að hafa neytt þá til að beita hver annan kynferðisofbeldi. Þá beittu foreldrarnir allskonar hlut- um við ofbeldið sem fór yfirleitt fram í sérstöku „kynlífsherbergi“ í kjallara hússins eða í svefnherbergi foreldranna. Tveir yngri dreng- irnir þjást af martröðum þar sem þeirra mesta ógn er að foreldrar þeirra komi og taki þá. NOREGUR Fertug hjón beittu syni sína ítrekað kynferðisofbeldi Íbúar Gaza- strandarinnar láta það ekki hamla neyslu sinni á skyndi- mat að enga al- þjóðlega skyndi- bitastaði er að finna á svæðinu. Þannig hefur nú verið stofnuð palestínsk heimsend- ingarþjónusta, undir nafninu Ya- mama, sem sérhæfir sig í að smygla mat til viðskipavina á Gazaströnd- inni frá útibúi skyndibitakeðjunnar KFC í borginni El-Arish í Egypta- landi. Heimsendingin tekur þó- nokkrar klukkustundir enda er El- Arish í 30 km fjarlægð frá Gaza- ströndinni. Maturinn er fluttur með bifreið eygpska hluta borgarinnar Rafah á Gazaströndinni. Þaðan er hann fluttur í gegnum neðanjarðar- göng yfir á palestínska hluta borg- arinnar. Loks sjá sendlar á bif- hjólum um að koma pöntuninni á leiðarenda . PALESTÍNA Smygla skyndibita yfir á Gazaströndina Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þá ákvörðun tók ég í ljósi stjórn- arskipta sem gætu brostið á hvern dag. Ég taldi því rétt að halda mig fremur heima við í því ljósi og sendi æðsta yfirmann ráðuneytisins á sviði norðurslóðamála, Hermann Örn Ing- ólfsson, sem staðgengil minn. Slíkt er alsiða eigi ráðherrar ekki heiman- gengt, og lítið tiltökumál. Ég hefi oft- sinnis gert það,“ segir Össur Skarp- héðinsson, fráfarandi utanríkis- ráðherra, aðspurður hvers vegna hann hafi ekki sótt fund Norður- skautsráðsins í Kiruna í Svíþjóð. „Við þessar að- stæður taldi ég rétt að hafa þetta svona, enda búinn að leggja með öðrum hætti fram minn skerf til þeirar niðurstöðu sem varð.“ – Má túlka fjar- veru þína sem mótmæli af þinni hálfu og þannig óbeinan stuðning við málstað Grænlendinga? Það er að segja áhyggjur Alequ Hammond, formanns grænlensku landstjórnar- innar, af því að Grænlendingar muni missa sæti við aðildarborð ráðsins í formennskutíð Kanada? Söguleg niðurstaða fundarins „Það er ekki hægt að túlka mína fjarveru með neinum hætti öðrum en þeim að vegna yfirvofandi stjórnar- skipta taldi ég rétt að sitja heima. Hins vegar varð niðurstaða fundarins söguleg að tvennu leyti. Í fyrsta lagi var formlega staðfest- ur samningur um varnir gegn olíu- mengun, sem er eitt af þeim málum sem ég hef harðast barist fyrir og Ís- land síðustu fjögur ár á sviði norður- slóða. Það var kærkomið, ekki síst í ljósi þess að sá samningur var til lykta leiddur endanlega hér í Reykja- vík á sínum tíma. Í öðru lagi voru þarna útkljáð mál varðandi áheyrn- araðild margra ríkja, nákvæmlega í þeim anda sem við hefðum viljað. Í því efni höfum við viljað ganga mjög langt og fyrir því hef ég talað síðustu ár. Þarna voru tekin inn Kína, Singa- púr, Indland, Ítalía, S-Kórea og Jap- an, auk ESB, með þeim fyrirvara þó að upptaka ESB tekur ekki formlega gildi fyrr en búið er að framkvæma ákveðin úrlausnarefni varðandi sela- málið svokallaða, í samræmi við bréf Josés Manuels Barrosos [forseta framkvæmdastjórnar ESB] til Kan- ada fyrr í þessum mánuði.“ Heima vegna stjórnarskipta  Utanríkisráðherra sótti ekki fund Norðurskautsráðsins vegna stjórnarskipta  Ákvörðunin tengist ekki mótmælum formanns grænlensku landstjórnarinnar Össur Skarphéðinsson www.jens.is www.uppsteyt.is Síðumúla 35 Kringlunni og Íslensk hönnun Útskriftir 2013 16.300.- 7.600.- 7.900.- 9.400.- 12.700.- 15.900.- 8.300.- 11.900.- 11.400.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.