Morgunblaðið - 17.05.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 17.05.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Stjórnvöld í Noregi hafa hafnað beiðni norska fjöldamorðingjans Anders Breivik um að fá að stofna fasískan stjórnmálaflokk. Breivik, sem hefur verið í einangrun í fangelsi rétt utan við Osló síðan hann var dæmdur fyrir að drepa 77 manns í tveimur hryðjuverka- árásum árið 2011, hafði sótt um leyfi til að stofna stjórnmálaflokk sem átti að bera nafnið „Norski fasistaflokkurinn og Norræna bandalagið“. Í samtali við Aftenposten sagði Mette Siri Broenmo, talsmaður norsku félagaskráarinnar, að um- sókn Breiviks hefði skort nauðsyn- leg gögn en auk þess hefði hún ekki uppfyllt lágmarkskröfur um fjölda meðlima í stjórnmála- samtökum. „Það þarf tvo eða fleiri til að stofna félag ... en í þessu til- felli er einungis um Breivik að ræða,“ sagði Broenmo. Raunar er aðeins flóknara að stofna stjórn- málaflokk heldur en hefðbundið félag í Noregi en samkvæmt lög- um þar í landi þurfa stjórn- málaflokkar að hafa að minnsta kosti fimm þúsund skráða stuðn- ingsmenn til að hljóta viðurkenn- ingu og styrki frá hinu opinbera. Að sögn Todd Jordet, lögmanns Breiviks, ætlar skjólstæðingur hans að gera aðra tilraun til að fá flokkinn skráðan. skulih@mbl.is Breivik fær ekki að stofna fasistaflokk  Skorti nauðsynleg gögn og stuðning AFP Breivik Fjöldamorðinginn Anders Breivik fær ekki að stofna flokk. Skotbómulyftarar mest seldi skotbómulyftarinn 2012 Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is Lyftigeta 2.5 til 12 tonn Fáanlegir með • Vinnukörfum • Skekkingju á bómu • Bómu með lengd allt að 18 metrum • Roto útfærsla með bómu allt að 25 metrum Aðalfundur Haga hf. 7. júní 2013 Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 7. júní 2013 og hefst hann kl. 09:00 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi í Kópavogi. Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samÞykktar. 3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2012/13. 4. Tillaga að nýjum samÞykktum félagsins. • Lögð verður fram tillaga að nýjum samÞykktum Þar sem Þær hafa verið endurskoðaðar í heild sinni. Greinargerð um helstu breytingar er aðgengileg hluthöfum á skrifstofu félagsins og vefsíðu Þess, www.hagar.is 5. Ákvörðun um Þóknun til stjórnarmanna. 6. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu. 7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda. 8. Tillögur stjórnar um arðgreiðslustefnu. 9. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu, rétt hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu félagsins, http://www.hagar.is/hluthafaupplysingar/adalfundur-/ Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og annarra hluthafa ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum. Stjórn Haga hf. Breska ríkisútvarpið, BBC, segist hafa séð myndbönd sem virðast stað- festa frásagnir af notkun efnavopna í Sýrlandi í síðasta mánuði. Þá hefur fréttaritari BBC heyrt frá sjónar- vottum sem segjast hafa séð þyrlur á vegum sýrlenska hersins varpa að minnsta kosti tveimur hylkjum af eiturgasi á bæjinn Saraqeb í norður- hluta Sýrlands. Átta lagðir inn á sjúkrahús Hinn 29. apríl síðastliðinn hóf sýr- lenski stjórnarherinn stórskotaliðs- árás á Saraqeb, segir í frétt BBC. Þá er haft eftir læknum á spítala í ná- grenni bæjarins að átta manns hafi verið lagðir þangað inn vegna önd- unarerfiðleika. Sögðu læknarnir að sumir hefðu verið með uppköst og aðrir með herpt sjáöldur. Maryam Khatib, ein þeirra sem lagðir voru inn á spítalann, er nú látin. Eins og kassalaga ílát Sjónarvottar segja eitt hylkjanna, sem sagt er hafa lent í útjaðri bæj- arins, líta út eins og kassalaga ílát með innantómu steinsteypuhylki. Þá segist BBC hafa heimildir fyrir því að sýni frá vettvangi árásarinnar, sem og úr hinum meintu fórnarlömb- um, hafi verið send til rannsóknar í Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakk- landi og Tyrklandi. Rúm tvö ár eru síðan stríðsátökin í Sýrlandi hófust en Sameinuðu þjóð- irnar áætla að meira en 80 þúsund manns hafi látið lífið í þeim. skulih@mbl.is AFP Átökin í Sýrlandi Rúm tvö ár eru síðan stríðsátökin í Sýrlandi hófust. Ber ummerki efnavopnaárásar  Sýni til rannsóknar á Vesturlöndum Boyko Borisov, leiðtogi GERB- flokksins, tilkynnti fjölmiðlum á blaðamannafundi í gær að hann hygðist kæra úrslit þingkosning- anna sem fram fóru í Búlgaríu síð- astliðinn sunnudag og krefjast þess að kosið yrði á ný. GERB-flokk- urinn, sem er flokkur íhaldsmanna, hlaut flest atkvæði í kosningunum en náði þó ekki hreinum meirihluta. Í dag ríkir pattstaða á þinginu en talið er að nær ómögulegt muni reynast fyrir Borisov að mynda rík- isstjórn með einhverjum hinna þriggja flokkanna á þinginu. Krefst þess að þingkosn- ingar verði endurteknar AFP Kosningakæra Boyko Borisov á blaðamannafundinum í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.