Morgunblaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013
Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 551 6646 Laura Ashley á Íslandi • Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Ljósadagar 20% afsláttur 10.-25. maí
EINFÖLD ÁKVÖRÐUN
VELDU
ÖRYGGI
FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi 544 5000
Hjallahrauni 4, Hfj 565 2121
Rauðhellu 11, Hfj 568 2035
Fitjabraut 12, Njarðvík 421 1399
Eyrarvegi 33, Selfossi 482 2722www.solning.is
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti
– UMBOÐSMENN UM LAND ALLT –
Þú paSSaR HaNN
VIÐ PÖSSUM ÞIG
Fyrir um fjörutíu
árum komu saman
nokkrir slökkviliðs-
menn sem töldu að
það vantaði sameig-
inlegan málsvara fyrir
stéttina. Þessum
gæfumönnum eigum
við margt að þakka,
fjórum áratugum
seinna.
Því má halda fram
að LSS hafi í sam-
starfi við breiðan hóp aðila frá
sveitarfélögum, Mannvirkjastofnun
og fagráðuneytum markað mörg
spor í sand bráðaþjónustu lands-
manna á þessum árum.
Samningsrétturinn
Þegar horft er yfir farinn veg
rifjast upp ýmis baráttumál eins og
reglugerð nr. 197/1991 um mennt-
un, réttindi og skyldur slökkviliðs-
manna. 1994 samþykkti Alþingi lög
sem veitti slökkviliðsmönnum lög-
gildingu og þar með samningsrétt
fyrir stéttina. Þá var LSS ekkert að
vanbúnaði að gera kjarasamning
sem og var gerður og langvinn
samningsréttardeila þar með úr
sögunni. LSS undirritaði sinn
fyrsta kjarasamning í júní árið
1994.
Þrír samningar
Kjarasamningar eru lifandi og
eiga að taka breytingum miðað við
breytta tíma og breytt vinnulag.
LSS heldur nú úti þremur kjara-
samningum; fyrir slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn hjá sveit-
arfélögunum, fyrir sjúkraflutn-
ingamenn sem starfa hjá ríkisstofn-
unum og fyrir slökkviliðsmenn sem
starfa á flugvöllum hjá ISAVIA.
Félagsmenn LSS hafa alla tíð
verið baráttuglaðir þegar kemur að
brýnum hagsmunum þeirra. Ber
þar hæst baráttan um samnings-
réttinn. Árið 2010 var farið í verk-
fall sem gekk það langt að starf-
semi Landspítalans var við það að
stöðvast, sökum þess að ekki var
hægt að koma sjúklingum á milli
staða.
Sjúkraflutningamenn í hópinn
Með breytingum á rekstri sjúkra-
flutninga um áramótin 1997-1998,
þegar Rauði krossinn og heilbrigð-
isráðuneytið gerðu með sér samn-
ing um rekstur sjúkrabíla landsins,
varð mikil breyting á fyrirkomulagi
á mannahaldi á bílunum. Í stað þess
að deildir Rauða krossins greiddu
laun fór heilsugæslan að greiða
laun sjúkraflutningamanna. Á þingi
LSS sem haldið var á Akureyri vor-
ið 1999 var samþykkt að taka þá
inn í félagið. Merki félagsins var
svo breytt í framhaldi af þessari
sameiningu. Þannig að í stað Ís-
lands sem var í miðju Möltukross-
ins kom lífsstjarnan og hefur það
merki haldið sér síðan. Möltukross-
inn er mjög algengt merki slökkvi-
liðsmanna út um allan heim en lífs-
stjarnan er alþjóðlegt merki
sjúkraflutningamanna.
Hvaða lög gilda?
Margs er að minnast í svona yfir-
ferð um síðastliðin tuttugu ár. LSS
hefur haldið uppi réttindabaráttu
fyrir slökkviliðsmenn á Keflavík-
urflugvelli. Eftir að herinn fór
breyttist mjög margt hjá starfs-
mönnum. Þá voru tíðar breytingar
og uppsagnir á vellinum og eitt
rekstrarformið kom og annað fór.
Nú er þó staðan þannig að enginn
veit hvaða lög gilda um starfsemi
slökkviliða á flugvöllum landsins.
Umhverfisráðuneytið segir að lög
um brunamál nr.75/2000 gildi en
innanríkisráðuneytið segir að lög
um loftferðir nr. 60/1998 gildi þar.
Þetta mál er núna hjá umboðs-
manni alþingis. Einnig hefur LSS
blandast inn í deilur sem sköpuðust
við byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar. Snér-
ust þær aðallega um
hvaða réttindi þarf til
að vinna við sjúkra-
flutninga og hvað
rekstraraðilar þurfa að
uppfylla til að reka
sjúkraflutninga-
þjónustu.
Menntun
Á tímamótum sem
þessum ber að huga að
menntunarmálum
stéttanna til framtíðar.
Koma þarf þessum stéttum inn í það
formlega skólaumhverfi sem rekið
er á landinu. Það verður að stefna
að því að menntun stéttanna sé ein-
ingabær og falli þannig inn í
menntakerfi okkar. Má þar hugsa
sér að slökkviliðsmenntunin verði
einingabær til háskólaeininga enda
þarf sveinspróf eða lokapróf frá
framhaldsskóla til að verða slökkvi-
liðsmaður. Sjúkraflutningarnir
verða einnig að fá það formlega
metið hvar og hvernig meta á það
inn í menntakerfið. Það hefur verið
ályktað um það á þingum LSS að
hefja bráðatæknanám á Íslandi. Til
að framþróun geti átt sér stað þurfa
menn að eiga sér drauma.
Alþjóðasamstarf
Á árinu 2007 hóf LSS samstarf
við systursamtök sín á Norðurlönd-
unum. Upp úr þessu samstarfi voru
stofnuð Evrópusamtök slökkviliðs-
manna, EFFUA. Hafa þessi samtök
verið að vinna að ýmsum málum og
ber þar kannski hæst að kynna
rannsóknir um krabbamein og
slökkviliðsmenn. Samtökin hafa
einnig átt fundi með ESB um að-
búnað og hollustuhætti í bráðaþjón-
ustu. Það hafa átt sér hugarfars-
breytingar hér heima sem beint er
hægt að rekja til þessa samstarfs.
Að svo mæltu vil ég óska félags-
mönnum LSS til hamingju með af-
mælið og árna þeim alls velfarnaðar
til framtíðar.
40 ára barátta fyrir
bættum kjörum
Eftir Sverri Björn
Björnsson
» Félagsmenn LSS
hafa alla tíð verið
baráttuglaðir þegar
kemur að brýnum hags-
munum þeirra. Ber þar
hæst baráttan um
samningsréttinn.
Sverrir Björn
Björnsson
Höfundur er formaður Lands-
sambands Slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna.
Ör hækkun meðalaldurs þjóðar-
innar kallar á róttækar aðgerðir í
vistunarmálum gamla fólksins, eigi
ekki allt að fara
í óefni innan
fárra ára. Það
gengur heldur
ekki lengur, að
aldraðir séu
amakefli stjórn-
valda.
Nú þarf nýja
nálgun, nýja yf-
irsýn. Hægt er
að byrja á að
senda öllum sem
orðnir eru 60 ára þrjár spurn-
ingar:
1. Hvar vilt þú vera í vistun í
ellinni?
2. Getur þú hugsað þér að
dvelja í öðru sveitarfélagi og þá
hvar?
3. Hyggst þú reyna að vera al-
veg á eigin vegum til loka?
Út frá þessu má svo vinna. Tak-
ist vel til í vistunarmálunum, má
fyrirgefa margt annað. Það sjáum
við, sem dveljum við bestu hugs-
anleg skilyrði.
Afar nauðsynlegt er svo að gera
umönnunarstörfin eftirsóknarverð.
Þau eru unnin af mikilli fórnfýsi,
hjartahlýju og þolinmæði.
Því er reynt að lýsa í ljóðinu,
sem hér fylgir:
Ég á þig nú samt.
Þeir segja
karlaskarfarnir hér
að ég sé farinn
að rugla
ég eigi þig ekki
heldur sértu gift
öðrum manni
úti í bæ
ég eigi ekki þig
sem kemur brosandi
og segir falleg orð
siðar mig til
og lagar á mér
axlaböndin
það verður annað
upplitið á þeim
þegar við förum saman
í sólina
ætli ekki það.
HELGI KRISTJÁNSSON,
Ólafsvík.
Verkefni nýrra stjórnvalda
Frá Helga Kristjánssyni
Helgi Kristjánsson
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift