Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 ✝ Ólafur GunnarGíslason Lóu- landi 12, Garði, fæddist í Hafnar- firði 10. mars 1946. Hann lést á heimili sínu 2. maí 2013. Foreldrar Ólafs voru Gísli Guðjón Ólafsson, skipstjóri í Hafnarfirði, f. 1919, d. 1966, og Lilja Eygló Karls- dóttir, húsmóðir og versl- unarkona í Hafnarfirði, f. 1921, d. 2010. Seinni eiginmaður Lilju var Ingi G. Sveinsson, f. 1919, d. 2000. Systkini Ólafs eru; Ragna, f. 1942, Karl Gunnar, f. 1944, Jón Gunnar, f. 1956, og Gísli, f. 1957. Hinn 14. 9. 1968 giftist Ólafur Sigurbjörgu Þorleifsdóttur hús- móður frá Dagsbrún í Neskaup- stað, f. 8.9. 1945. Foreldrar hennar voru Þorleifur Jónasson skipstjóri frá Neskaupstað, f. 1914, d. 1994, og Sigurfinna Ei- ríksdóttir húsmóðir frá Vest- mannaeyjum, f. 1915, d. 1997. Ólafur eignaðist soninn Arnar Berg, f. 15.2. 1966, móðir hans er Guðrún Frederiksen. Arnar er kerfisfræðingur og deildar- stjóri. Maki: Marie Andersson, póststarfsmaður. Þau eiga tvö börn; Alexandra, f. 9.2. 1999, og Björn, f. 4.2. 2001. Arnar á eitt barn úr fyrra hjónabandi; Vikt- Svava Steinunn Sævarsdóttir, f. 5.7. 1997, og Ólafur Ægir Sæv- arsson, f. 20.12. 1999. 5) Sigur- leif, f. 7.2. 1984, húsmóðir. Maki Luke A. Bird, f. 17.10. 1974, CPT US Army, þau eiga eitt barn; Sigurrós Alexa, f. 19.8. 2011. Sigurleif á eitt barn úr fyrra sambandi; Ísak Smári Ein- arsson, f. 14.10. 2003. Sigurleif og fjölskylda eru búsett í Banda- ríkjunum. Ólafur ólst upp í Hafnarfirði, fyrst á Kikjuvegi 3 en árið 1958 flutti fjölskyldan að Keldu- hvammi 32. Ólafur lauk barna- og gagnfræðaskóla í Hafnar- firði. Hann fór ungur á sjó og lauk námi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 4. maí 1966 sem stýrimaður og skipstjóri. Árið 1982 tók Ólafur meira- prófsréttindi. Ólafur starfaði lengst af sem stýrimaður og skipstjóri hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, Samherja í Grindavík og fleiri útgerðum þar til hann hóf eigin rekstur við verslun í Reykjavík árin 1983-1988. Ólafur rak smábáta- útgerð til ársins 2001 ásamt eig- inkonu sinni. Árið 2001 endur- nýjaði Ólafur meira- prófsréttindin og hóf akstur vörubifreiða til ársins 2009 ásamt því að stunda sjó- mennsku. Ólafur og Sigurbjörg bjuggu lengst af í Hafnarfirði. Árið 1988 fluttu þau til Sand- gerðis þar sem þau stunduðu smábátaútgerð. Árið 2002 fluttu þau í Garðinn og hafa verið bú- sett þar síðan. Útför Ólafs fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 17. maí 2013, kl. 13. or Berg, f. 19.8. 1987. Fyrir á Marie á þrjú börn. Arnar Berg og fjölskylda eru búsett í Sví- þjóð. Ólafur og Sigur- björg eignuðust fimm börn: 1) Linda Björk, f. 18.6. 1968, lögreglumaður. Maki Davíð Ey- steinn Sölvason raf- magnstæknifræðingur. Linda á tvö börn; Pétur Berg Marons- son, f. 27.5. 1990, og Guð- mundur Berg Markússon, f. 24.4. 2004. Fyrir á Davíð þrjú börn. 2) Bryndís, f. 11.1. 1971, ÍTR. Maki Jacky Pelleri, f. 5.4. 1963, landsliðsþjálfari í sundi. Bryndís á tvö börn; Björn Berg Pálsson, f. 22.3. 1990, og Aron Berg Pálsson, f. 26.2. 1994. Fyr- ir á Jacky þrjú börn. 3) Gísli Guðjón, f. 29.6. 1976, skipstjóri. Maki Verna Kr. Friðfinnsdóttir, f. 12.9. 1980, lyfjatæknir/ umsjónarmaður. Þau eiga tvö börn; Gabríela Þórunn, f. 15.9. 2005, og Sylvía Rós, f. 5.7. 2011. Gísli á eitt barn úr fyrra sam- bandi; Elvar Örn, f. 19.2. 2002. 4) Sigurbjörg, f. 28.9. 1977, nemi og bílstýra. Maki Óskar G. Bragason bifvélavirkjameistari. Þau eiga einn son; Bragi Sig- urður, f. 21.9. 2010. Sigurbjörg á tvö börn úr fyrra sambandi; Þú hvarfst mér á hádegi lífsins og komst ekki aftur, ég sá þig ekki meir. Samt bíð ég þín og vona að ég fái þig að leiða ströndum himinsins á eins og forðum þegar við leiddumst hönd í hönd, föðmuðumst, án orða, þögðum saman, grétum saman eða töluðum saman, lékum okkur, hlógum og skríktum, nutum lífsins í fjörunni eða úti í skógi. Ylur lífsins við okkur lék, tíminn eins og stóð í stað, var sem eilíft sumar. Fegurð lífsins speglast í lind minninganna um þig. Um síðir, þegar ævin dvín við mætast munum svo aftur elsku ástin mín við ströndina á englalandi, þar sem fegurðin býr og eilíf sólin við okkur skín. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þín elskandi eiginkona, Sigurbjörg. Í dag kveðjum við elskulegan pabba okkar sem var of fljótt frá okkur tekinn. Margar minningar streyma fram í huga okkar og minnumst við hans með söknuði og þakklæti. Pabbi var góður maður og skemmtilegur, fróður, uppátækja- samur og mikill vinur okkar. Við gátum alltaf leitað til pabba og var hann yfirleitt með góð ráð handa okkur, afabörnin og meira að segja gátu vinir okkar leitað til hans. Pabbi var sjómaður meira og minna öll okkar uppvaxtarár. Á yngri árum voru tvær elstu syst- urnar stundum teknar með í sigl- ingar erlendis og naut pabbi þess að sýna þeim systrum hafnar- borgirnar þar sem landað var. Hann kom alltaf með fallegar gjaf- ir handa okkur að utan þegar hann var á togurunum, margt sem ekki fékkst á Íslandi í þá daga, t.d. vasadiskó, hjólaskauta, fjarstýrða flugvél og margt fleira. Svo voru þau yngri tekin með í róðra á trill- unni þegar mamma og pabbi ráku sína eigin útgerð. Við höfðum öll sérstaklega gaman af þessum sigl- ingum og sjóferðum. Þegar þau voru með útgerðina var vand- virknin og snyrtimennskan í fyr- irrúmi en fiskurinn hjá pabba var alltaf bestur og geta margir vitnað um það. Farið var í margar útilegur með okkur krakkana og þar gerð- ust mörg ævintýrin. Við systkinin og seinna afabörnin höfðum mjög gaman af því að hlusta á pabba segja ævintýri um tröllin, álfana, sjóræningjana eða bardaga við hákarlana þar sem hann var að sjálfsögðu aðalpersónan. Hann var aðal. Pabbi sagði sögur af svo mikilli innlifun að atburðarásin varð ljóslifandi í huga okkar og afabarnanna. Pabbi hafði einstak- an og sérstakan húmor, og þá sér- staklega fyrir sjálfum sér, og sagði hann okkur margar sögur af strákapörum sínum frá yngri ár- um. Pabbi var mikill tónlistarunn- andi. Á seinni árum voru karlakór- ar í miklu uppáhaldi hjá pabba og heyrðist langar leiðir þegar pabbi var að koma heim því allt var í botni í bílnum. Pabbi kenndi okkur góð gildi sem við erum svo þakklát fyrir. Hann talaði aldrei illa um aðra, var réttsýnn og vildi alltaf skoða málin frá öllum hliðum. Pabbi var alltaf til staðar fyrir okkur. Alltaf var hægt að ræða vandamálin við pabba okkar. Hann gat verið fljót- ur upp en mun fljótari niður aftur. Hann vildi að allir væru sáttir og að allir væru vinir. Það var ekkert sem ekki var hægt að laga eða finna lausn á. Hann leysti öll mál á sinn einstaka máta. Pabbi var stoltur maður, stoltur af starfi sínu og fjölskyldu og erum við öll mjög stolt af að hafa átt hann sem pabba okkar. Minningarnar eru margar um þennan ljúfa mann sem vildi að all- ir væru jafnir og að allir hefðu sama tilverurétt. Pabbi var alltaf með útréttan faðminn. Elsku pabbi okkar, við þökkum þér fyrir allt sem þú hefur kennt okkur, gert fyrir okkur og stundirnar sem við áttum saman með þér. Við vildum að árin hefðu verið fleiri og að yngstu afabörnin fengið tæki- færi til að kynnast þér enn betur og getað dundað sér í bílskúrnum með afa sínum. Hvíldu í friði, elsku pabbi, þín verður sárt sakn- að. Minning um þig er ljós í lífi okkar. Þín börn Linda, Bryndís, Gísli, Sigurbjörg og Sigurleif. Það margt sem kemur í huga okkar þegar við hugsum um afa okkar. Ferðir í bátnum þegar ver- ið var að færa bátinn til við bryggjuna. Okkur var leyft að stýra bílnum stutta kafla. Allar sögurnar sem hann sagði okkur og svo líka leynihandabandið sem hann kenndi okkur. Afi kenndi okkur líka margar fallegar bænir og hér er ein af mörgum sem hann kenndi okkur. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson) Við kveðjum þig með miklum söknuði, elsku afi okkar. Svava Steinunn, Ólafur Ægir og Bragi Sigurður. Elsku afi. Við kveðjum þig með sorg í hjarta og minnumst allra ævintýranna sem þú skapaðir með okkur og allra sagnanna. Sjóræn- ingjakort, falinn fjársjóður sem kom úr skartgripaskríninu henn- ar ömmu og sundurgrafin blóma- beðin hennar í leit að meira gulli. Sögur af álfum og tröllum í bílnum á leið í sumarbústað sem lifnuðu við í svo skemmtilegri lýsingu. Tröll og álfar komu úr öllum stein- um og hólum og jafnvel skýin léku stórt hlutverk sem drekar og risa- stór farartæki tröllkallanna. Já, afi kunni að segja ævintýri og búa þau til með litlum afastrákum sem gleyma þeim aldrei. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Hvíl í friði. Elsku amma, megi góður Guð gefa þér styrk í sorg þinni. Þínir afastrákar, Björn Berg og Aron Berg. Okkur langar að minnast elsku afa okkar sem lést 2. maí 2013. Óli afi var yndislegur og kærleiksrík- ur og tók alltaf vel á móti okkur. Það var alltaf gaman að koma til afa og ömmu í Garðinn og að fá að fara í bílskúrinn til afa. Afi var allt- af eitthvað að gera í bílskúrnum og fengum við stundum verkefni við hæfi. Þegar afi var á trillunum fengum við stundum að fara með og stýra bátnum og ekki þótti okk- ur það leiðinlegt. Afi var líka best- ur, hann gat allt. Hann gat gert við leikföngin okkar, ef eitthvað bilaði var það afi sem gerði við. Við minnumst með söknuði sagna sem hann sagði okkur og ævintýranna, skógarferðanna með nesti. Afi hafði skoðanir á öllum hlutum og var gaman að spjalla við hann um lífið og tilveruna og hann sá alltaf björtu hliðarnar í öllum málum. Samverustundirnar með afa voru yndislegar og eigum við afa mikið að þakka og mun hann lifa áfram í hjörtum okkar. Viljum við kveðja hann með þessu ljóði: Afi minn. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst. Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær. Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman. Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár. En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt. En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú. Því þar getur hann vakið yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda. Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Höf. Katrín Ruth.) Guð geymi þig elsku afi. Elsku amma, Guð gefi þér styrk í sorg- inni. Afastrákarnir, Pétur Berg og Guðmundur Berg. Ólafur Gunnar Gíslason HINSTA KVEÐJA Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína eg glaður kyssi. (Hallgrímur Pétursson) Við viljum þakka afa okkar fyrir þær yndislegu stundir sem við áttum með honum. Hvíl í friði, elsku Óli afi. Ísak Smári og Sigurrós Alexa. Æ, afi, hvar ertu? Æ, ansaðu mér. Því ég er að gráta og kalla eftir þér. Fórstu út úr bænum eða fórstu út á haf? Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað? (Höf. ók.) Elvar Örn, Gabríela Þórunn og Sylvía Rós. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Ástkær móðir okkar, ANNA STEFANÍA SIGFÚSDÓTTIR, Litlahvammi 6, Húsavík, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn 14. maí. Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju föstudaginn 24. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Karl Hálfdánarson og Hjalti Hálfdánarson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PÁLÍNA JÓHANNESDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum mánudaginn 13. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.00. Jón Haukur Sigurðsson, Benedikt T. Sigurðsson, Ásta Níelsdóttir, Elín Stella Sigurðardóttir, Helgi Hauksson, Jóhannes Ómar Sigurðsson, Soffía Kristjánsdóttir, Sölvi Ellert Sigurðsson, Sigurveig Guðmundsdóttir, Þorgrímur Óli Sigurðsson, Helgi G. Sigurðsson, Einar Már Sigurðsson, Ellen Baer, Guðrún Fanney Sigurðardóttir, Laurent N. Bonthonneau, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 12. maí. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 11.00. Ólafur Örn Klemenzson, Inga Valdimarsdóttir, Sæunn Klemenzdóttir, Hallur Helgason, Guðmundur Kristinn Klemenzson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkæri faðir minn, bróðir okkar, frændi og vinur, GUÐMUNDUR V. H. BRYNJÓLFSSON, Gerði, Innri-Akraneshreppi, lést á sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn 4. maí. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðjón Helgi Guðmundsson, María M. Brynjólfsdóttir, Jón Brynjólfsson, Ingibjörg B. Halldórsdóttir, Fanný Bjarnadóttir, Áslaug Jóna Skúladóttir, Ingibjörg E. Jónsdóttir, Róbert A. Skúlason, Brynjólfur Jónsson, Bryndís Odda Skúladóttir, ættingjar og vinir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, JÓHANNES G. JÓHANNESSON, Nönnugötu 6, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 14. maí. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Petrína Kristín Steindórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.