Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 ✝ Bragi Guðjóns-son fæddist í Reykjavík 10. mars 1928. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. maí 2013. Foreldrar hans voru Guðjón Guð- jónsson pípulagn- ingameistari í Reykjavík, f. 11. maí 1884, d. 27. júlí 1971, og Sveinbjörg Jónsdóttir, f. 31. ágúst 1888, d. 30. júní 1972. Systkini: Jón, f. 1910, d. 1992, Sveinn Ingólfur, f. 1913, d. 1938, Unnur, f. 1917, d. 2006 og Haukur, f. 1921, d. 2010. Kona Braga var Auður Bjarnadóttir, f. 14. október 1912, d. 25. maí 1998. Seinni kona Braga er Guðrún Frið- geirsdóttir, f. 14. janúar 1940. Bragi ólst upp á Grettisgötu 47 í Reykjavík, bjó síð- an í Hvassaleiti 10 til ársins 1984 er hann flutti að Skriðuseli 5. Bragi flutti að Hólabergi 84 í desember síðast- liðnum. Útför Braga verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 17. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Bragi Guðjónsson var myndar- legur maður, glaðvær og bar sig vel. Hann ólst upp á góðu og kær- leiksríku heimili á Grettisgötu 47 hjá foreldrunum, Sveinbjörgu og Guðjóni og með eldri systkinum sínum, Jóni, Sveini Ingólfi, Unni og Hauki, sem nú eru öll látin. Æskuárin voru Braga erfið vegna veikinda, þar sem hann lenti mjög illa í berklafaraldrinum sem þá hafði hrjáð Íslendinga um langt skeið. Hann dvaldi meira og minna á Vífilsstöðum öll sín ung- lingsár og þar var annað lungað í honum fjarlægt vegna veikind- anna. Bragi náði sér ágætlega eft- ir þau veikindi og átti hann gott og viðburðaríkt líf þar til hann greindist með MND-sjúkdóminn fyrir rösku ári. Á Vífilsstöðum kynntist Bragi konu sinni Auði Bjarnadóttur og hófu þau búskap á Vitastíg 16 í Reykjavík. Eftir dvölina á Vífilsstöðum starfaði Bragi um 6 ára skeið við pípulagnir með Guðjóni föður sín- um. Samhliða því starfi vann Bragi hjá Sigurþóri Jónssyni úr- smið á Vitastígnum. Í bréfi sem Sigurþór skrifaði því til staðfest- ingar segir að Bragi hafi starfað þar „við verslunarstörf og skriftir og bókhald þar viðkomandi. Reyndist hann mér í alla staði ábyggilegur og sérstaklega ná- kvæmur við öll störf, og vildi ég engan mann frekar hafa í minni þjónustu“. Bragi var einstaklega handlaginn og m.a. sérlega vel að sér bæði í trésmíði og pípulögn- um. Bragi var mjög greindur maður og vildi hafa skipulag og reglu á hlutunum. Hann sinnti rekstri ýmissa fyrirtækja og var alltaf sérlega áhugasamur um að lesa sér til og afla sér fróðleiks á hinum ólíklegustu sviðum. Bragi bjó yfir þeim kosti að leggja sig fram um að hlusta á viðmælendur sína. Bragi hóf störf hjá Ríkisútgáfu námsbóka í janúar 1957 og hafði forgöngu um stofnun Skólavöru- búðarinnar. Hann var m.a. skip- aður framkvæmdastjóri Skóla- vörubúðarinnar 1969 og fram- kvæmdastjóri Ríkisútgáfu náms- bóka var Bragi frá 1978 til 1980. Bragi vann svo við ýmis verkefni fyrir Námsgagnastofnun þar til hann lauk starfsævinni. Bragi sat í stjórn SÍBS frá 2006-2010. Bragi og Auður höfðu yndi af ferðalögum um hálendið og þau ferðuðust mikið um landið. Bragi og Auður bjuggu lengi í Hvassa- leiti 10 eða til ársins 1984, en fluttu þá í það hús sem þau höfðu sjálf byggt sér í Skriðuseli 5 í Breiðholti. Auður lést 25. maí árið 1998. Braga og Auði varð ekki barna auðið, en þau komu fram við syni okkar Brynju, þá Brynjar Örn, Guðmund Braga og Árna Bene- dikt sem sín barnabörn. Bragi rökræddi við þá um flest sem á góma bar og fékk þá til að líta málin frá ýmsum hliðum. Eftirlifandi sambýliskonu sinni, Guðrúnu Friðgeirsdóttur, kynntist Bragi 2006 og ferðuðust þau talsvert saman til annarra landa. Bragi var greindur með MND-sjúkdóminn fyrir um ári og hugsaði Guðrún um hann í erfið- um veikindum hans. Nú undir lok síðasta árs fluttu Bragi og Guðrún í íbúðir aldraðra í Hólabergi 84. Okkur er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga svona lengi samleið með Braga, fyrir all- ar góðu minningarnar og fyrir umhyggju hans fyrir okkur og strákunum okkar. Árni og Brynja. Við bræðurnir kveðjum Braga frænda og minnumst allra góðu stundanna með honum. Þegar við vorum pollar fórum við reglulega í mat í Skriðusel til hans og Auðar. Þar fengum við konfekt um leið og við komum inn úr dyrunum, svo var boðið upp á kótelettur í raspi, ís með rjóma, súkkulaðisósu og ís- kexi í eftirrétt og þegar allir voru orðnir pakksaddir kom Auður fram með kökur, kaffi og meira konfekt. Eftir mat fórum við svo í forstofuna þar sem við skemmt- um okkur við að spila handbolta þangað til við vorum orðnir kóf- sveittir. Þrátt fyrir að hafa gaman af leikjunum í forstofunni hafði hann áhyggjur af handboltaiðk- uninni þegar við urðum eldri, þá fannst honum þetta bara vera slagsmál. Við hlógum svo að því þegar hann sagði okkur að hann hefði alltaf verið settur í mark þegar hann var í fótbolta á sínum yngri árum af því að hann var miklu stærri og sterkari en hinir strákarnir og að þeir hafi sagt að hann væri of mikill tuddi til að vera útispilari. Bragi hafði alltaf nóg fyrir stafni hvort sem verkefnin voru í vinnunni, fyrirtækinu hans eða heima fyrir. Okkur fannst alltaf ótrúlegt að hann skyldi hafa byggt húsið sitt sjálfur, en þegar veikindin dundu yfir hafði hann nýhafið vinnu við endurnýjun efri hæðarinnar og hafði stór plön varðandi húsið. Þegar hann þurfti að takast á við erfiðleika eða vandamál sýndi hann mikinn kar- akter og hugrekki og gafst ekki upp heldur reyndi að finna lausnir á þeim. Bragi var sérvitur og hafði sterkar skoðanir sem hann var óhræddur við að koma á framfæri. Hann kom fram við okkur eins og fullorðna menn frá því við vorum litlir og rökræddi við okkur ýmis mál sem voru okkur hugleikin. Hann var góð fyrirmynd og hefur haft mikil áhrif á líf okkar allra. Bless elsku Bragi, skilaðu kveðju frá okkur til Auju. Brynjar, Bragi og Árni. Bragi Guðjónsson starfaði hjá Ríkisútgáfu námsbóka frá árinu 1957 og fluttist yfir til Náms- gagnastofnunar þegar hún var sett á laggirnar árið 1980. Hann lauk formlega störfum hjá Náms- gagnastofnun árið 1998 en hélt áfram að vinna í hlutastarfi til árs- ins 2009. Þetta er því óvenju lang- ur starfstími hjá sama vinnuveit- anda. Bragi gegndi mörgum ólíkum störfum fyrir stofnunina á þessum langa ferli. Hann byrjaði í Skóla- vörubúðinni og starfaði lengst af sem framkvæmdastjóri hennar en var um tíma forstjóri Ríkisútgáf- unnar. Bragi var einstaklega sam- viskusamur starfsmaður og lagði alúð í öll sín störf. Hann var fús til allra verka og hafði gaman af að takast á við snúin verkefni og finna lausn á erfiðum málum. Hann var lipur og hjálpfús við vinnufélaga sína og létti undir með þeim á ýmsa lund. Bragi hafði mikið jafnaðargeð og skipti seint skapi. Hann lá þó ekki á skoðunum sínum í umræðum um menn og málefni þegar málin voru rædd á kaffistofunni. Það er gott á hverjum vinnustað að hafa starfs- mann eins og Braga sem tók að sér að vinna ólík störf og leysa fjölbreytt verkefni með jákvæðni og vinnugleði. Stofnunin þakkar Braga fyrir vel unnin störf, trúnað og sam- viskusemi á þeim langa tíma sem hann gegndi starfi sínu í hennar þágu. Starfsfélagar þakka fyrir gott samstarf og samverustundir og senda aðstandendum samúðar- kveðjur. Fyrir hönd vinnufélaga, Ingibjörg Ásgeirsdóttir. Bragi Guðjónsson Ég kynntist Ingó fyrst 2002. Það var á Ólafsvökunni í Færeyjum. Ingó var að skjóta myndbönd fyrir fær- eysku hljómsveitina Tý. Ég hafði oft rekist á Ingó áður. Hann var svo mikið á ferðinni. Var ætíð með mörg járn í eldinum: Ljósmyndaði fyrir dagblöð, tímarit og netmiðla; braut um bækur og blöð; vann fréttaskot fyrir sjónvarp; spilaði á gítar með Q4U og fleiri hljóm- sveitum; hannaði auglýsingar af öllu tagi; stundaði víkingaleiki og kom fram á víkingasýningum. Bara svo fátt eitt sé nefnt. Með okkur Ingó tókst góð vin- átta. Við brölluðum ýmislegt sam- an. Fórum m.a. margoft til Fær- eyja og á færeyska fjölskyldudaga á Stokkseyri. Þetta voru vinnu- ferðir. En jafnframt miklar skemmtiferðir. Ingó var frábær ferðafélagi. Hann horfði aðeins á jákvæðar hliðar allra hluta og sá iðulega eitthvað broslegt í stöð- unni. Þessi eiginleiki fylgdi Ingó í Ingólfur Júlíusson ✝ Ingólfur Júlíus-son fæddist á Akureyri 4. maí 1970. Hann lést í Reykjavík 22. apríl 2013. Útför Ingólfs var í Silfurbergi í tón- listarhúsinu Hörpu 4. maí 2013. veikindum hans. Þau urðu honum upp- spretta ótal brand- ara. Ingó var einstak- lega bóngóður. Hann var stöðugt á fullu við að hjálpa öðrum. Var sífellt að redda hlutum fyrir aðra; redda þeim fyrir horn. Það skipti engu máli þó að hann væri þegar á kafi í verkefni. Vinnudagurinn var bara lengdur. Æði oft teygðist á vinnudeginum og vinnuvikunni. Eins sorglegt og það er að kveðja Ingó þá ylja minningarnar. Þær kalla fram þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þessum yndislega manni. Ég votta Monicu, Hrafnhildi og Söru dýpstu samúð. Jens Kristján Guðmundsson. Hér kveðjum við höfðingja manngæsku, æðruleysis og ævin- týra. Ingó var sannur. Hann kom ávallt til dyranna eins og hann var klæddur. Hann lifði í núinu, naut lífsins ævintýra. Hann gaf af sér gleði hvert sem hann fór. Allir vildu þekkja Ingó. Við hjónin tengdumst Ingó á marga vegu. Bæði í gegnum vinnu og áhugamál, samstarf á fjölmiðl- um eða í Handverkshúsinu. Alls staðar var Ingó gleðigjafi og sá eldmóður sem hvatti til góðra verka. Hann var höfðinginn sem heimsótti frændfólk okkar fyrir austan í öskufalli Grímsvatna- gossins og stappaði stálinu í heimafólk með myndavélina á öxl- inni. Hann var alltaf reiðubúinn að hjálpa Rauða krossinum í sjálf- boðavinnu. Hann brunaði á litlu bjöllunni sinni út í fjöru við Mýr- arnar í Borgarfirði til að festa gleði okkar brúðhjóna á mynd og skeytti engu um bílinn sem sat fastur í sandinum. Hann gaf meira af sér en hann þáði. Við tökum æðruleysi hans og jákvæðni okkur til fyrirmyndar. Þegar stressið verður skynsem- inni yfirsterkara eigum við hjónin til að segja „heyrðu, stöldrum að- eins við og tökum Ingó á þetta“. Kæri vinur, við kveðjum þig með sorg og söknuð í hjarta. Ást- arþakkir fyrir vináttuna og þann lærdóm sem þú færðir okkur hin- um. Andi þinn mun lifa alla tíð. Við færum fjölskyldu þinni og vinum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þorsteinn Eyfjörð Jónsson og Sólveig Hildur Björnsdóttir. Með örfáum orðum langar mig að minnast Ingólfs Júlíussonar. Leiðir okkar lágu fyrst saman árið 2003 þegar kom að því að gera stuttmynd við byggingu Drauga- setursins. Í gegnum sameiginleg- an vin var mér bent á að hann væri rétti maðurinn og það reyndust sannarlega orð að sönnu. Ingó leysti málin með mikilli snilld svo eftir var tekið og þetta varð fyrsta verkefnið af mjög mörgum sem við unnum saman í framhaldi. Oft höfðum við ekki mikla fjár- muni til að spila úr en aldrei sást það við verkefnaskilin. Sköpunar- og leikgleði réðu ríkjum þannig að engin leið var að greina skemmt- un frá vinnu og öfugt. Allt rann þetta saman í eitt, traust og sterk vinátta myndaðist og ávallt var stutt í gleðina hjá Ingó. Ísland, Kína eða Færeyjar, útkoman var ávallt sú sama, ávallt heillaði Ingó viðstadda. Hvellur hlátur, góður húmor og frelsi listamannsins ein- kenndi hann og hvar sem við vor- um var hann hrókur alls fagnaðar. Þótt Ingó hafi verið afkasta- mikill listamaður voru ótalmargir hlutir sem enn voru ógerðir og margar hugmyndir sem biðu eftir að verða framkvæmdar. Á þeim var aldrei skortur og verkefna- leysi var nokkuð sem þekktist ekki í hans orðabók. Hins vegar var sama hversu mikið var á hans borðum; alltaf vildi hann allt fyrir alla gera og hjálpa til við að leysa málin. Minn kæri vinur, það er mjög skrýtin tilhugsun að fá ekki að hitta þig aftur hér á þessari jörð. Það er mikill söknuður og missir að einlægni þinni, heiðarleika og hlýju. Það er söknuður að húm- ornum þínum góða og sýn þinni á menn og málefni en minning um góðan vin lifir alla tíð. Monicu, Hrafnhildi, Söru, fjöl- skyldu og aðstandendum öllum sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Benedikt G. Guðmundsson. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, fyrrverandi eiginkona, systir og mágkona, EIRÍKSÍNA KRISTBJÖRG ÁSGRÍMSDÓTTIR, Eia, frá Siglufirði, andaðist á sjúkrahúsi í Frakklandi mánu- daginn 13. maí. Útför fer fram í heimabæ hennar St.-Michel-en-l’Herm laugardaginn 18. maí. Minningarathöfn á Íslandi verður auglýst síðar. Eric Ásgrímur Mancini, Carla Silveira Mancini, Bastien Héðinn Mancini, Laura-Kate Wilson Mancini, Shelma, Kayba, Eleanor Eia, Ange Mancini, María Ásgrímsdóttir, Kristinn Finnsson, Halldóra Ásgrímsdóttir, Karl-Erik Rocksén. ✝ Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HALLFRÍÐUR MAACK, Hraunbæ 61, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi miðvikudaginn 15. maí. Sverrir Sveinsson, Ingibjörg Sverrisdóttir, Sölvi Ólafsson, Anna Svava Sverrisdóttir, Úlfar Örn Valdimarsson, María Vigdís Sverrisdóttir, Ragnar Auðunn Birgisson, Skúli Sverrisson, barnabörn og langömmubörn. ✝ ÞÓR VIGFÚSSON fyrrverandi skólameistari, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugar- daginn 18. maí kl. 13.30. Útvarpað verður á rás FM 89,9. Hljóð, mynd- varp og næg sæti verða í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hildur Hákonardóttir. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og besti vinur okkar, ELÍAS EGILL GUÐMUNDSSON fyrrv. flugvélstjóri og forstjóri Steinprýði, lést á Landspítalanum mánudaginn 13. maí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 23. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Guðný Sigurðardóttir, Guðlaugur Ágúst Elíasson, Guðrún Júlíusdóttir, Kristján Elíasson, Sesselja Jónsdóttir, Erla Elíasdóttir, Gunnar Hjálmarsson, Elías Egill Elíasson, Cynthia Nkeiru Elíasson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra SIGRÍÐUR ÞÓRA GÍSLADÓTTIR, Grandavegi 11, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 14. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Joseph G. Adessa og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.