Morgunblaðið - 17.05.2013, Side 36

Morgunblaðið - 17.05.2013, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 ✝ Ársæll Guð-mundsson fæddist í Reykja- vík 20. nóvember 1929. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Eir 11. maí 2013. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Magnús Guðmundsson sjó- maður, fæddur á Nýlendu, Miðneshreppi, 16. mars 1901, d. 29. mars 1989, og Ingibjörg Kristín Guð- mundsdóttir húsfreyja, fædd á Brekkubæ, Snæfellsnesi, 18. maí 1890, d. 15. apríl 1974. Ár- sæll ólst upp á Bjargi í Sand- gerði ásamt foreldrum sínum og bróður, Aðalsteini Guð- mundssyni, f. 24. júní 1928. Ársæll, alltaf kallaður Sæli, flutti til Reykja- víkur sem ungur maður og settist að í Háaleitis- hverfi. Hann kynntist konu sinni, Ísabellu Jónsdóttur f. 1. apríl 1940, d. 18. september 2001, árið 1976. Sonur hennar er Tomasz R. Tomczyk f. 22. janúar 1966. Ársæll og Ísa- bella gengu í hjónaband 1978 og eignuðust eina dóttur, Kar- en Olgu, f. 13. desember 1980. Maður Karenar er Einar Þór Egilsson og eiga þau tvö börn, Daníel Mána og Ellen Maríu. Útför Ársæls fer fram frá Hvalsneskirkju í Sandgerði í dag, 17. maí 2013, og hefst at- höfnin kl. 13. Elsku pabbi minn. Nú hefurðu loksins hlotið langþráðan frið sem ég veit að þig var farið að lengja eftir. Ég get ekki annað en verið þakklát fyrir það, þótt að það sé sárt að þurfa að kveðja þig. En svona er gangur lífsins „því eitt sinn verða allir menn að deyja“ eins og þú sagðir alltaf sjálfur. Það er svo margt sem þú kenndir mér, þótt ég sé að skilja sumt af því fyrst núna á fullorðinsárum. En sem betur fer hlustaði ég á þig og þessu bý ég að í dag. Ég hafði svo gaman af því þegar þú sagðir mér frá bernsku þinni í Sandgerði og frá afa og ömmu á Bjargi og ekki síst ævintýrum þínum þegar þú varst á flakki um Evrópu. Þú fórst ekki leynt með tilfinningar þínar og kaust oft að tjá þig með því að yrkja vísur og ég á auðvitað öll afmæliskvæðin sem þú ortir til mín. Þú varst gull af manni – ósér- hlífinn og ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Þannig minnist ég þín og finnst sárt til þess að hugsa að Ellen og Daníel fá ekki að kynnast því. En ég mun segja þeim frá þér og halda minningu þinni á lofti – því ég hlustaði, manstu. En nú kveð ég þig, pabbi minn, og vona að ferðin verði góð þangað sem mamma tekur á móti þér. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. (Steinn Steinarr.) Guð geymi þig. Karen. Mig langar í fáum orðum að minnast bróður míns Ársæls. Hann fæddist í Reykjavík en flutt- ist ungur til Sandgerðis og ólst þar upp. Við níu ára aldur greind- ist hann með berkla og dvaldist á Vífilsstöðum og Kópavogshæli, en fékk að lokum fullan bata. Átján ára tekur hann bílpróf og seinna meiraprófið og stundar næstu ár vörubílaakstur ásamt ökukennslu. Honum var margt til lista lagt, þar á meðal var hann vel hagmæltur eins og eftirfarandi erindi sýna sem hann orti til móður sinnar. Ég minnist þín móðir, svo mild og svo hlý, þinn góðvilja kýs ég að erfa. Nú minningar birtast, sem líðandi ský, úr fjarlægð þær koma og hverfa. Þú heilræði gafst mér, þann dýrindis auð, og vildir ei sannleikann villa. Þú gerðir það eitt, sem þín samviska bauð. Þín verk verða öðrum til heilla. Eftir þetta fór hann í nám í raf- vélavirkjun. Að námi loknu hóf hann störf hjá varnarliðinu og starfaði þar næstu þrjátíu ár. Eitt af því sem einkenndi Ársæl var hjálpsemi og kom það sérstaklega vel í ljós þegar breyta þurfti ýmiss konar raftækjum sem gerð voru fyrir bandarískar aðstæður svo hægt væri að nota þau við íslensk- ar. Við lok starfsævinnar gerði heilsuleysi vart við sig og dvaldi hann síðustu árin á dvalarheim- ilinu Eir. Að lokum vil ég þakka fyrir góðar samverustundir og votta aðstandendum samúð mína. Þinn bróðir, Aðalsteinn. Ársæll Guðmundsson Kveðja. Þegar sorgin knýr að dyrum skiptir lífið um lit. Það er ekk- ert sjálfsagt í lífinu nema sól- arupprás og sólsetur og þó varla það. Allt hefur sinn tilgang og hvert skref er leið til ákveðins þroska. Það eru forréttindi að vera heilbrigður og hvert andartak í lífinu er dýrmætara en maður heldur. Við sjálf ráðum mestu um Heiða Rósa Sigurðardóttir ✝ Heiða RósaSigurðardóttir fæddist á Sjúkra- húsinu á Akureyri 10. febrúar 1959. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 29. apríl 2013. Útför Heiðu Rósu var gerð frá Glerárkirkju 10. maí 2013. framtíð okkar og forlög en skaparinn ætlar okkur ákveð- ið hlutverk. Svo var með elsku Heiðu Rósu okkar, fötlun henn- ar var þeim sem kynntust henni mikill þroski. Hún var rós sem kom inn í líf okkar og sprakk út á svo fal- legan hátt að margur mætti taka það sér til fyrirmyndar. Rósin okkar sem við kveðjum nú kenndi þeim sem umgengust hana bara það fallega, þess vegna var öllum dýrmætt að þekkja þessa rós. Við Stöllur, Anna Jóna og Lára þökkum henni þann skóla. Það eru bara fallegar minning- ar frá mörgum árum. Farðu sæl fagra rós. Anna Jóna Jónasdóttir og Lára Tryggvadóttir. ✝ Birna MaríaSigvaldadóttir fæddist í Stafni í Svartárdal, A-Hún. 28. febrúar 1935. Hún lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi 23. apríl 2013. Foreldrar henn- ar voru Steinunn Elísabet Björns- dóttir, húsfreyja í Stafni, f. 4.1. 1899, d. 7.2. 1994, og Sigvaldi Halldórsson, bóndi í Stafni, f. 30.9. 1897, d. 16.5. 1979. Systkini: Sigurður Fanndal, f. 1923, d. 1981, Þórir Hólm, f. 1925, d. 1992, Guðrún Halldóra, f. 1927, Erna Sólveig, f. 1938, d. 1985, Jón Björgvin, f. 1942. Synir Birnu Maríu eru: 1) Sig- ursteinn Bjarnason, bóndi í Stafni, f. 5.2. 1960. 2) Ari Grétar Björnsson, leigubílstjóri í Reykjavík, f. 23.11. 1963, kvænt- ur Jóhönnu Líndal Jónsdóttur iðjuþjálfa, f. 2.7. 1968. Dóttir þeirra er Lilja Petrea Líndal, f. 24.12. 2007. Dóttir Ara Grétars er Svanhvít Mjöll, f. 11.10. 1998. Birna María giftist hinn 20. des. 1969 Þorkeli Sigurðssyni á Barkarstöðum. For- eldrar hans voru Halldóra Bjarna- dóttir frá Hallfreð- arstöðum, N-Múl., húsfreyja á Bark- arstöðum, f. 26.8. 1903, d. 6.8. 1960, og Sigurður Þorkels- son, bóndi á Bark- arstöðum, f. 27.3. 1888, d. 12.12. 1976. Synir Birnu Maríu og Þorkels eru: 1) Sigurður, skrifstofumaður á Blönduósi, f. 5.8. 1970. Sambýliskona hans er Anna Margret Sigurðardóttir kennari, f. 22.6. 1984. Sonur þeirra er Þorkell, f. 24.11. 2010. 2) Halldór, rafvirkjameistari í Reykjavík, f. 8.2. 1972, kvæntur Margréti Sigurðardóttur sjúkra- þjálfara, f. 11.12. 1968. Dætur þeirra eru þrjár: Sigríður Þóra, f. 14.7. 1997, Þórkatla María, f. 7.1. 1999, og Freyja Hrönn, f. 23.9. 2006. Á sínum yngri árum vann Birna María ýmis störf í Reykja- vík en hún var lengst af húsfreyja á Barkarstöðum í Svartárdal. Útför Birnu Maríu fór fram frá Bergsstaðakirkju 4. maí 2013. Fennir í fótspor ferðamanna, svo í heimhaga sem í hágöngum, fljótt í sum, seinna í önnur, loks í allra eins. Samt er í samfylgd sumra manna andblær friðar án yfirlætis, áhrif góðvildar, inntak hamingju þeim er njóta nær. (Guðmundur Böðvarsson) „andblær friðar án yfirlætis“. María, mágkona mín, fór ekki með fyrirgangi né yfirlæti. En hún stóð fyrir sínu. Hún var lífslán Þorkels bróður míns. Þau voru komin til „vits og ára“ er þau gengu í hjóna- band árið 1969 og vissu hvað skiptir máli í lífinu. Saman sköp- uðu þau traust og hlýlegt heimili þar sem öllum þótti gott að koma og gott að dvelja. Það þekkja hin mörgu sumardvalarbörn. Þau hjónin hlynntu líka vel að föður mínum, sem var í heimilinu hjá þeim síðustu árin, áður en hann fór á Héraðshælið á Blönduósi. Snyrtimennska og smekkvísi voru Maríu í blóð borin, svo sem glöggt kom fram í húshaldi og klæðaburði. Þótt gesti bæri óvænt að garði voru veitingar á borðum á svipstundu, án þess að á því bæri að hún hefðist eitthvað að. Þau hjónin voru sérlega gestrisin og skemmtileg heim að sækja. Ég veit að margir eiga minningar úr eldhúsinu á Barkarstöðum þar sem húsfreyja sat til hliðar að gömlum sið, við eldhúsbekkinn, maldaði stundum í móinn þegar henni þótti bóndi sinn fara frítt með – örlaði jafnvel á ergelsistóni en þó var glettni í augunum, því hún hafði gott skopskyn. María var í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1954-55 og jók þar við það góða veganesti sem hún fékk í foreldrahúsum í Stafni. Hún tók líka bílpróf snemma, sem alls ekki var sjálfsagt þá að ungar stúlkur gerðu. Það var henni, eins og gefur að skilja, mikil frelsis- skerðing þegar hún varð að hætta að aka vegna áfalls, sem hún fékk á góðum aldri. Hún var líka fljót að tileinka sér tölvutæknina, hafði framgöngu um heimilistölvukaup og lagði sig eftir þeirri töfratækni, sem þar bauðst. Og síðast, eftir að súrefniskúturinn varð hennar fasti förunautur og hamlaði för, stytti tölvan stundirnar, hún gat haft samband og fylgst með í gegnum „Fésbókina“. María gekk í Kvenfélag Bólstaðarhlíðar- hrepps árið 1987 og var virk í starfinu meðan heilsan leyfði. Sat t.d. í ritnefnd er „Ljós og skugg- ar“ – saga kvenfélagsins í 70 ár – kom út 1997. Samband Maríu við systkini sín og fjölskyldur þeirra var náið. Stafnsfólkið hefur alltaf verið samheldið og traust. „áhrif góðvildar, inntak ham- ingju þeim er njóta nær“. Um- hyggja hennar fyrir sonunum og fjölskyldum þeirra var takmarka- laus, hún var stolt af hópnum sín- um enda naut hún ómælds ástríkis þeirra. Hún hélt lengi í vonina um að geta farið suður að fermingu nöfnu sinnar, Þórkötlu Maríu, á sumardaginn fyrsta en lést 2 dög- um áður. – Kannski var hún við- stödd, hvað vitum við. Þessum fáu orðum er ekki ætl- að að vera æviágrip, aðeins lítil þakkarkveðja að leiðarlokum. Gestrisni og góðvild Maríu í okkar garð verður þó aldrei fullþökkuð og því síður launuð úr þessu. Engilráð M. Sigurðardóttir frá Barkarstöðum og fjölskylda. Birna María Sigvaldadóttir Elsku amma mín. Þrátt fyrir að fréttirnar af för þinni á betri stað hafi ekki kom- ið á óvart þá er samt sárt að sjá á eftir einhverjum sem er manni svo kær sem þú varst öllum sem nutu þeirra forréttinda að þekkja þig. Eftir sitja ógrynni af minningum liðinna ára sem ég er ótrúlega þakklát fyrir. Hlutir sem kannski voru smávægilegir þá en eru mikilsmetnir minja- gripir um einstaka manneskju nú þegar þú ert farin. Ég man eftir sundferðunum okkar og hvernig ég nöldraði alla leiðina heim yfir hvað ég væri svöng og aldrei brást að eftir þessar ferðir var boðið upp á pasta og þúsundeyjasósu. Ég man eftir að sitja inni á skrif- stofu, hlustandi á vinylplötur og í bílaleik og örygginu sem fylgdi því að dunda sér og njóta lífsins í ömmuhúsi. Suðusúkkulaðið sem þú gafst mér alltaf ískalda mjólk með vegna ólæknandi sér- visku minnar. Ég man eftir hvað ég var upp með mér þegar ég fékk að hjálpa þér að hafa þig til, rúlla hárið og gera augabrún- irnar fínar. Þú varst óþreytandi þegar kom að því að kenna mér vand- aða stafsetningu og málfar. Sama gilti um kurteisi og snyrti- mennsku. Þolinmæðin var enda- laus. En það sem skiptir mestu þegar upp er staðið er að þú varst besta fyrirmynd sem nokkur gat átt, svo ólýsanlega góðhjörtuð, dugleg og sterk og máttir aldrei neitt aumt sjá. Æðruleysið og velviljinn sem einkenndi þig er nokkuð sem ég mun einsetja mér að fara eftir. Það eru engin orð yfir hversu mikils virði minningarnar um þig og tíminn sem við áttum saman eru mér. Ég læt fylgja með fyrstu bænina sem þú kenndir mér og Guðrún Pálmadóttir ✝ GuðrúnPálmadóttir fæddist í Bolung- arvík 31. júlí 1925. Hún lést í Sjúkra- skýli Bolung- arvíkur 3. maí 2013. Útför Guðrúnar fór fram frá Hóls- kirkju í Bolungar- vík 11. maí 2013. var í miklu uppá- haldi hjá okkur: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Góða ferð, amma mín, og takk fyrir allt. Ég elska þig. Þín Sandra. Elsku amma. Mig langar að þakka þér fyrir mörg góð ár. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég var í 4. bekk. Ég var lagður í einelti og átti enga vini. Þú spurðir einskis en skildir allt. Í hvert sinn sem þú komst til Reykjavíkur eftir að þú fluttir vestur kom ég heim eftir skóla til manneskju sem stóð með mér. Þeir voru ófáir handbolta- leikirnir sem við tókum í eldhús- inu áður en mamma kom heim. Þú gafst mér ómetanlegan stuðning og varst alltaf til staðar ef þín var þörf og það er þér að þakka að ég fór ekki verr út úr þessu. Ég man þegar þú bjóst hér fyrir sunnan og þið Sandra sótt- uð mig alltaf í leikskólann og við fórum heim í gulu blokkina og fengum heitt brauð með osti og kalt kókómalt og fengum að horfa aðeins á Cartoon Network. Þú ert manneskjan sem vand- ir mig á að drekka maltextrakt með pulsum. Ég man þegar ég heimsótti þig til Bolungarvíkur um 12 ára aldurinn og þú dreifst mig strax út í búð að kaupa saltkjöt og kók því þú vildir taka vel á móti mér, enda fengu allir konunglegar móttökur hjá þér. Líka þegar þú gafst mér veiðistöng og fórst með mér nið- ur á bryggju að veiða marhnúta. Allar þessar minningar og ótalmargar í viðbót eru ómet- anlegar nú þegar þú hefur kvatt í síðasta sinn. Takk fyrir allt, þú varst mér allt. Þinn Benedikt (Benni). Nú er amma Hjördís farin en minningin um einstaka konu mun ætíð dvelja í hjörtum okk- ar. Þær eru margar minning- arnar sem koma upp í hugann þegar við lítum til baka. Bú- staðurinn við Elliðavatn sem var annað heimili ömmu Hjör- dísar var ævintýraland fyrir okkur barnabörnin, þar voru bakaðar drullukökur sem amma og afi gæddu sér svo á, að sjálf- sögðu með bestu lyst. Þær voru þó betri kökurnar sem amma bauð upp á bæði í bústaðnum og við Laugalækinn, maður fór aldrei svangur úr ömmu húsi og Hjördís Georgsdóttir ✝ HjördísGeorgsdóttir fæddist á Lauga- vegi 53, Reykjavík 26. desember 1928. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 30. apríl 2013. Útför Hjördísar fór fram frá Laug- arneskirkju 10. maí 2013. ristað brauð bragðaðist hvergi betur en þar. Amma var stór- glæsileg kona og ein af þessu fólki sem hlýjar manni um hjartarætur með brosi sínu einu saman. En hún var líka hörkudugleg, ákveðin og tók öll verkefni föstum tökum, hún var amma sem fór létt með að kenna manni að veiða og slægja fisk, spila fótbolta, klifra í trjám og allt annað sem krakk- ar þurftu að kunna að mati ömmu. Hún er og verður ein besta fyrirmyndin sem ég hef átt. Það er minningin sem amma Hjördís skilur eftir hjá okkur, við minnumst hennar með kær- leika og þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa hana í okkar lífi. Takk fyrir samfylgdina, elsku amma. Daníel Fannar, Íris og börn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR, Breiðumörk 15, Hveragerði. Arnheiður I. Svavarsdóttir, Einar Sigurðsson, Anna María Svavarsdóttir, Wolfgang Roling, Hannes Arnar Svavarsson, Guðbjörg Þóra Davíðsdóttir, Árni Svavarsson, Svandís Birkisdóttir, Guðrún Hrönn Svavarsdóttir, Svava Sigríður Svavarsdóttir, Erlendur Arnar Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.