Morgunblaðið - 17.05.2013, Side 38

Morgunblaðið - 17.05.2013, Side 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Ó lafur Gíslason, listfræð- ingur og fararstjóri, fæddist í Reykjavík 17. maí 1943 og ólst þar upp, á Leifsgötunni. Hann var auk þess í sveit á sumrin, frá fimm og til tólf ára aldurs, í gamla torfbænum á Hofsstöðum í Skagafirði sem Björn Pétursson, langafi hans, byggði á sínum tíma. Ólafur var í Austurbæjarskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1963, stundaði nám við háskólann í Lundi í Svíþjóð 1963-64 og við Listaakadem- íuna í Kaupmannahöfn 1964-66. Þá dvaldi hann við nám á Ítalíu 1966-67, 1968-69 og 1985-86. Ólafur var kennari við gagnfræða- og barnaskóla í Norsjö í Västerbot- ten í Svíþjóð, á Hallormsstað 1967- 68 og í Kópavogi og Reykjavík 1972- 74. Hann var starfsmaður við gróð- urrannsóknir á hálendi Íslands, einkum á sumrin, hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins 1964- 79, var blaðamaður við Þjóðviljann 1981-92 og fréttaritari RÚV á Ítalíu 1985-86. Ólafur hefur verið fararstjóri er- lendis frá 1979, einkum á vegum Samvinnuferða og Heimsferða, oft- ast á Ítalíu, en einnig á Grikklandi, Tyrklandi, Kúbu og víðar. Ólafur var einn af stofnendum SÚM 1967, tók virkan þátt í starf- semi þess félagsskapar og skrifaði sögu hans í SÚM-bókinni sem Lista- safn Reykjavíkur gaf út 1989. Ólafur hefur kennt listheimspeki Ólafur Gíslason, listfræðingur og fararstjóri – 70 ára Ítölsk menning Leiðsögumaðurinn Ólafur með fjölmennum hópi ferðamanna í Flórens á sínum yngri árum. Allur í list og heimspeki Fjölskyldan Ólafur og Una með Helgu og Gísla, á Amalfíströnd um 1990. Ég ætla nú að byrja á að nýta mér lyklavöldin að skrifstofuStúdentaráðs í fyrsta skipti,“ segir María Rut Kristinsdótt-irs nýkjörinn formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands og af- mælisbarn dagsins. Hún segir að fyrri hluti dags muni fara í grein- arskrif og að koma sér inn í nýja starfið en hún stefnir þó að því að fagna um kvöldið.„Eftir vinnu sæki ég strákinn minn í leikskólann og við ætlum að fá okkur köku saman en svo bauðst frænka mín til að leyfa honum að gista svo ég geri ráð fyrir að fara út með vinkon- um mínum og fá mér einn kokteil eða svo í tilefni dagsins.“ María Rut er að eigin sögn mjög hógvært afmælisbarn. „Ég held eiginlega aldrei upp á afmælið mitt og ég verð alltaf svona pínu vandræðaleg í kringum afmælið,“ segir hún en bætir við að það sé þó eins gott að hún fái afmælissöng frá nýjum samstarfsmönnum sínum á skrifstofu Stúdentaráðs. María segir það heppilegt að Euro- vision steli ekki senunni á afmælisdeginum hennar en hún hugðist þó taka forskot á sæluna yfir forkeppninni í gærkvöldi. Hvað gjafir varðar er María Rut ekki lengi að hugsa sig um þegar hún er spurð út í drauma-afmælisgjöfina. „Kvöldstund með Rob Schneider,“ svar- ar nýkjörinn formaður Stúdentaráðs grafalvarleg í bragði en gefur engar frekari útskýringar á áhuga sínum á gamanleikaranum geð- þekka. annamarsy@monitor.is María Rut Kristinsdóttir er 25 ára í dag Vinir Albert Guðmundsson, María Rut, Eva Laufey Kjaran og Árni Grétar Finnsson stilla sér upp á árshátíð Vöku fyrr í vor. „Kvöldstund með Rob Schneider“ Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Hveragerði Berglind María Hofland fæddist 14. september kl. 20.49. Hún vó 3.175 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Eva Dögg Þorkelsdóttir og Guðmundur Árni Kjartansson. Nýir borgarar Selfoss Lára Lind fæddist 11. sept- ember kl. 11.21. Hún vó 16,5 merkur og var 52,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Margrét Hrönn Lindudóttir og Ámundi Rögnvaldsson. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isGLER OG SPEGLAR 54 54 300 • smiðjuvegi7 • kópavogi sólvarnargler • sjálfhreinsandi gler • einangrunargler • þakgler • og margT fleira skjólveggir & handrið SÍðAn 196 9 allT í gleri sendum um allT land sTílhreinT goTT úTsýnivoTTu ðf ra ml eið sl a

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.