Morgunblaðið - 17.05.2013, Page 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú nýtur þess að ræða við vini
þína í dag, ekki síst vinkonur. Ekki gleyma
að gefa þér tíma til einveru þótt einhver
innan fjölskyldunnar þurfi á þér að halda.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér finnast sumar persónulegar
skoðanir starfsfélaga þinna út í hött. Yf-
irmennirnir gefa vinnu þinni ekki jafn mik-
inn gaum og þeir ættu að gera.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Heiðarleikinn er það sem dugar
best bæði gagnvart sjálfum þér og öðrum.
Möguleikarnir eru óteljandi og það er synd
að sitja með hundshaus og hendur í
skauti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Aðkallandi verkefni skaltu reyna að
leysa sem fyrst en láta önnur veigaminni
sitja á hakanum á meðan. Mundu að sjald-
an veldur einn þá tveir deila.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn hentar sérstaklega vel til
skemmtana og sumir grípa hvert tækifæri
til að gera prakkarastrik. Neistaflugið er
það sem færir þér það sem þú leita að.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ánægja þín með eigin frammistöðu
veltur á því hvernig þú stjórnar öðrum.
Hann/hún kemur auga á það sem má bet-
ur fara.
23. sept. - 22. okt.
Vog Notaðu daginn til þess að leiðrétta
misskilning. Nú verður þú að sinna eigin
málum, því þú getur ekki stólað á það að
aðrir sjái um þau.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Viðgerðir og breytingar gætu
átt sér stað þar sem þú átt þér samastað.
Vertu á varðbergi gegn freistingum og
gylliboðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef ágreiningur rís upp meðal
fjölskyldumeðlima þarf að komast að
málamiðlun. Vilji fólk að þú vitir eitthvað
mun það sjá um það sjálft.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert kraftmikill þessa dagana
og kemur miklu í verk. Notaðu tækifærið
til að segja sögur sem endurspegla lífsgildi
sem þér finnst skipta máli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Kímnigáfa þín og rausnarskapur
gera að verkum að flestum líkar vel við
þig. Haltu samt ró þinni og láttu velgengn-
ina ekki stíga þér til höfuðs.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Dagurinn í dag er ákjósanlegur fyrir
miklar endurbætur á heimilinu. Þú ert
bæði skrýtnari og skemmtilegri en flestir
álíta þig vera við fyrstu kynni.
Í klípu
„ÞAÐ ER RÉTT, ÉG HEF KOMIST Í KAST
VIÐ LÖGIN OFTAR EN EINU SINNI. EN
ÞAÐ ER EKKI MÉR AÐ KENNA. SJÁÐU TIL,
ÞEGAR ÉG VAR BARN VAR ÉG EINU SINNI
... SKILINN EINN EFTIR HEIMA!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ ÆTTUM AÐ GETA LIFAÐ
Á LÍFEYRINUM. OKKUR VANTAR BARA
FARGJALDIÐ TIL GRÆNLANDS.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að reyna að vekja
hana ekki þegar þú
þarft að fara snemma
á fætur.
AAATSJÚÚÚ! BLESSI ÞIG.
TAKK.
EN FRÁBÆR MORG-
UNN, GRETTIR!
MÉR LÍÐUR EINS OG ÉG
GETI SIGRAÐ HEIMINN!
ÉG RÆÐ! SAGÐI
MAÐURINN Í
HESTANÁTT-
FÖTUNUM.
Snillingar leynast víða og sumirþeirra mega svo sem fara huldu
höfði án þess að Víkverji missi svefn,
en sá sem fékk þá frábæru hugmynd
að færa gönguljósin við Hringbraut á
móts við Þjóðminjasafnið og fékk því
framgengt á skilið að fá mynd af sér
við ljósin. Líka pólitíkusarnir sem
samþykktu hugmyndina. Ekki passa-
myndir heldur stórar eins og birtust
af stjórnmálaleiðtogum fyrir nýaf-
staðnar kosningar. Víkverji sér fyrir
sér stór spjöld beggja vegna göt-
unnar með myndum af þessu fólki
smæla framan í heiminn að hætti
Megasar.
x x x
Gönguljós eru yfirleitt hugsuð tilþess að auðvelda gangandi fólki
að komast yfir götur án þess að
leggja líf og limi í hættu. Fólk hefur
misjafnlega langan tíma til þess að
komast frá einni gangstétt að ann-
arri. Í Reykjavík er til dæmis greini-
lega gengið út frá því að göngufólk á
Bræðraborgarstíg sé fljótara í förum
en gestir og gangandi við Miklubraut
á móts við Klambratún annars vegar
og við gamla Lídó hinsvegar. Þeir
sem ætla yfir á gönguljósunum við
Þjóðminjasafnið þurfa ekki að hafa
hraðan á og geta þess vegna kíkt í
bók á leiðinni án þess að eiga á hættu
að missa af græna karlinum. Þegar
myndaspjöldin verða að veruleika
geta þessir göngugarpar virt fyrir sér
snillingana sem gerðu þeim það
mögulegt, samglaðst þeim og tekið af
þeim myndir ef vill á grænu ljósi.
x x x
En það eru ekki aðeins þeir semfara um á tveimur jafnfljótum
sem geta virt fyrir sér dýrðina og dá-
semdina frá Melatorgi langleiðina
austur að göngubrúnni skammt frá
BSÍ. Á annatímum hreyfist bílaum-
ferðin ekki á svæðinu vegna um-
ræddra gönguljósa. Ökumenn og
þess vegna farþegar geta auðveldlega
nýtt biðtímann, yfirgefið bílana og
farið í gönguför um svæðið. Þegar
nýju gönguljósin verða komin á móts
við Sæmundargötu verður til
skemmtileg gönguleið í áttu með
myndaspjöldum hvert sem litið verð-
ur. Þetta hefði Víkverja aldrei dottið í
hug. víkverji@mbl.is
Víkverji
Því að þótt fjöllin bifist og hæðirnar
haggist mun kærleikur minn til þín
ekki bifast og friðarsáttmáli minn ekki
haggast, segir Drottinn sem mis-
kunnar þér. (Jesaja 54:10)
Það rifjaðist upp vísa fyrir Sig-hvati Björgvinssyni, fyrrver-
andi ráðherra, sem hann gaukaði
að umsjónarmanni:
„Þegar Guðni Ágústsson var
landbúnaðarráðherra fór hann í op-
inbera heimsókn til Kína ásamt
Margréti eiginkonu sinni. Þegar
hann kom aftur heim kom í ljós að
hann hafði smitast af kamfílóbak-
ter eftir að hafa klappað strútum
og lagðist á spítala. Ég stóðst ekki
mátið:
Hann Guðni er sjúkur að sagt er
sóttvarnarlæknir á vakt er;
hann kom heim frá Kína
með kerlingu sína
og kamfílóbakter.
Þegar Guðna barst vísan til
eyrna kom hann til mín og spurði:
„Varst þú að yrkja um mig?“ „Já,“
svaraði ég. „Þú kallaðir Margréti
mína kerlingu. Það var ekki fallegt
af þér,“ sagði þá Guðni. „Það er
enginn vandi að breyta því,“ sagði
ég.“ „Hvernig þá?“ spurði Guðni.
„Og ég svaraði:
Hann Guðni er sjúkur að sagt er
sóttvarnarlæknir á vakt er
hann kom heim frá Kína
með konuna sína
og kamfílóbakter.“
Þá sagði Guðni: „Þetta er góð
vísa.“
Ármann Þorgrímsson kastar
fram hringhendu:
Bölvað stand á bænum hér
burtu andinn flúinn
einhver fjandinn er að mér
enda landinn búinn.
Jóhann Hannesson orti sem rétt
er að rifja upp þar sem makríldeil-
an er rétt að hefjast:
Það má segja það sérkenni Breta
ef samningaleið á að feta
að finna þá lausn
af framsýni og rausn
en fresta henni eins lengi og þeir geta.
Reynslan af nýafstöðnum kosn-
ingum er sú sama og á dögum
Jóhanns:
Þessi flokksblaðaskriffífl, sem skvetta
á mann skítnum í dulbúning frétta
ef allt fer að vanda
hafa oftast að standa
á einhverju, en sjaldnast því rétta.
Káinn orti þegar hann sá Fjalla-
Eyvind leikinn:
Órór sveimar andi minn
upp til reginfjalla;
takið þið mig í útlegð inn
Eyvindur og Halla.
Káinn sýndi þreytumerki:
Þreytir K.N. strit og stjá,
stynur öndin þjáða;
maður sá sem ekkert á
á úr vöndu að ráða.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Guðna, Kína og utanreisu